Dagblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 13
Pagblaðið. Þriðjudagur 20, janúar 1976. 13 6. Laun undanþegin skv. 6. gr. og B-lið 10. gr. skattalaganna. Hér skal færa sömu upphæð launa og talin hefur verið til tekna i tekjulið 6, III, falli launin undir ákvæði 6. gr. skattalaganna um undanþágu frá tekjuskatti eða undir ákvæði B-liðar 10. gr. skattalaganna. 7. 50% af greiddu með- lagi, sbr. á bls. 1. Hér skal færa helming þess greidda meðlags með börnum, yngri en 17 ára, sem upplýsingar eru gefnar um á bls. 1, þó að há- marki sem svarar hálfum barna- lifeyri úr- almannatryggingum á árinu 1975 eða mest 46.176 kr. fyrir hvert barn. V. Frádráttur. 1. Kostnaður við ibúðar- húsnæði, sbr. tekjulið 3. a. Fasteignagjöld: Hér skal færa fasteignaskatt, brunabótaið- gjald, vatnsskatto.fi. gjöld sem einu nafni eru nefnd fasteigna- gjöld. Enn fremur skal telja hér með 90% af iðgjöldum svo- nefndrar húseigendatrygging- ar, svo og iðgjöld einstakra vatnstjóns-, gler-, fok-, sót- falls-, innbrots-, brottflutnings- og húsaleigutapstrygginga. Hérskal þó eingöngu færa þann hluta heildarupphæðar þessara gjalda af fasteign sem svarar til þess hluta fasteignarinnar sem tekjur eru reiknaðar af skv. tölulið 3, III. b. Fyrning: Hér skal færa sem fyrningu eftirtalda hundraðs- hluta af fasteignamati þess ibúðarhúsnæðis, að meðtöldum bilskúr, sení tekjur eru reikn- aðar af skv. tölulið 3, III: Af ibúðarhúsnæði úr stein- steypu 1% Af ibúðarhúsnæði hiöðnu úr steinum 1,3% Af ibúðarhúsnæði úr timbri 2,0% (Ath: Fyrning reiknast ekki af fasteignamati lóða.) c. Viðhald: Hér skal færa við- haldskostnað þess ibúðarhús- næðis, að meðtöldum bilskúr, sem tekjur eru reiknaðar af skv. tölulið 3, III. Tilgreina skal hvaða viðhald hefur verið framkvæmt á árinu. 1 liðinn „Vinna skv. launamiðum” skal færa greidd laun, svo og greiðslur til verktaka og verk- stæða fyrir efni og vinnu skv. launamiðum. I liðinn „Efni” færist aðkeypt efni til viðhalds annað en það sem innifalið er i greiðslum skv. launamiðum. Vinna húseiganda við viðhald fasteignar færist ekki á viðhalds- kostnað nema hún sé þá jafn- framt færð til tekna. 2. Vaxtagjöld Hér skal færa i kr. dálk mis- munartölu vaxtagjalda i C-lið, bls. 3, i samræmi við leiðbeining- ar um útfyllingu hans. 3. a. og b. Greitt iðgjald af lifeyristryggingu. Færa skal framlög framtelj- anda sjálfs i a-lið en i b-lið fram- lög eiginkonu hans til viður- kenndra lifeyrissjóða eða greidd iðgjöld af lifeyristryggingu til viðurkenndra vátryggingarfé- laga eöa stofnana. Framlög laun- þega i lifeyrissjóði eru öll lögboð- in og þvi án hámarkstakmark- ana. Nafn lifeyrissjóðsins, vá- tryggingarfélagsins eða stofnun- arinnar færist i lesmálsdálk. Frádráttur vegna framlaga þeirra, sem hafa með höndum sjálfstæða starfsemi eða atvinnu- rekstur er háður hámarkstak- mörkunum bæði skv. D-lið 13. gr. skattalaganna og undanþágu- heimild fjármálaráðuneytisins frá þvi hámarki sem fram kemur i fyrrnefndri lagagrein. Reglur hinna ýmsu lifeyrissjóða eða tryggingaraðila um hámarksfrá- drátt þeirra, sem hafa með hönd- um sjálfstæða atvinnu eða at- vinnurekstur, eru mismunandi og er þvi rétt fyrir þá framteljendur, sem eru þátttakendur i þessum sjóðum eða hafa annars konar lif- eyristryggingu, að leita upplýs- inga hjá viðkomandi stofnun ef þeim er ekki ljóst hvaða upphæð skuli færa til frádráttar. begar aðili að lifeyrissjóði greiðir bæði iðgjald sem launþegi og sjálf- stæður atvinnurekandi er hann háður ákvörðun fjármálaráð- herra um hámarksfrádrátt ið- gjalda skv. D-lið 13. gr. skattalag- anna sem sjálfstæður atvinnurek- andi en lögboðið framlag hans sem launþegi er allt frádráttar- bært. 4. Iðgjald af lifsábyrgð. Hér skal færa greitt iðgjald af liftryggingu. Hámarksfrádráttur er 43.500 kr. (Rétt er þó að rita í lesmálsdálk raunverulega greidda fjárhæð ef hún er hærri en hámarksfrádráttur.) 5. Stéttarfélagsgjald. Hér skal færa iðgjöld sem laun- þegi greiðir sjálfur beint til stétt- arfélags sins, sjúkrasjóðs eða styrktarsjóðs, þó ekki umfram 5% af launatekjum. 6. Greitt fæði á sjó .... dagar. Hér skal rita sama dagafjölda og Aflatryggingarsjóður greiddi hlutdeild i fæðiskostnaði fram- teljanda. Siðan skal margfalda þann dagaf jölda með tölunni 64 og færa útkomu i kr. dálk. Greiðslur Aflatryggingarsjóðs til útvegsmanna upp i fæðiskostn- að skipverja á bátaflotanum skal framteljandi hvorki telja til tekna né frádráttar. Hafi Aflatryggingarsjóður dcki greitt framlag til fæðiskostnaðar framteljanda á þilfarsbát undir 12rúmlestum, opnum bát eða bát á hrefnu- eða hrognkelsaveiðum skalmargfalda fjölda róðrardaga með tölunni 340 og færa útkomu i kr. dálk. 7. Sjómannafrádr. mið- aður við slysatryggingu hjá útgerðinni .... vikur. Sjómaður, lögskráður á is- lenskt skip, skal rita hér þann vikufjölda, sem hann var háður greiðslu slysatryggingariðgjalda hjá útgerðinni enda ráðinn sem sjómaður. Ef vikurnar voru 18 eða fleiri skal margfalda viku- fjöldann með tölunni 4792 og færa útkomu i kr. dálk. Hafi vikurnar verið færri en 18 skal margfalda vikufjöldann með tölunni 654 og færa útkomu i kr. dálk. (Skýring: 654 kr. á viku, hvort sem vikurnar voru fleiri eða færri, dragast frá vegna hlifðar- fatakostnaðar en þeir, sem voru lögskráðir á islensk skip ekki skemur en 4 mánuði á árinu, fá auk þess sérstakan frádrátt 4.138 kr. á viku eða samtals 4.792 kr. fyrir hverja viku sem þeir voru lögskráðir.) Hlutaráðnir menn skulu og njóta sama frádráttar þótt þeir séu eigi lögskráðir enda geri út- gerðarmaður fulla grein fyrir hvernig hlutaskiptum er farið og yfir hvaða timabil launþegi hefur tekið kaup eftir hlutaskiptum. 8. 10% af beinum tekj- um sjómanns eða hluta- ráðins landmanns af fiskveiðum. Hér skal færa 10% af beinum tekjum sjómanns af fiskveiðum á islenskum fiskiskipum, þ.m.t. hvalveiðiskipum. Sama gildir um beinar tekjur hlutaráðins land- manns af fiskveiðum. Sjómaður, sem jafnframt er útgerðarmaður fiskiákipsins, skal njóta þessa 10% frádráttar af hreinum tekj- um fiskiskipsins af fiskveiðum eða hlut, hvort sem lægra er. Þessi frádráttur reiknast ekki af öðrum tekjum sem sjómaður eða hlutaráðinn landmaður kann að hafa frá útgerðinni. 9. 50% af launum eig- inkonu. Hér færast 50% þeirra launa eiginkonu sem talin eru i tölulið 12, III, enda hafi hún aflað þeirra sem launþegi hjá vinnuveitanda sem á engan hátt er tengdur henni, eiginmanni hennar eða ó- fjárráða börnum rekstrarlega eða eignarlega. Sama gildir um laun sem eiginkonan hefur aflað sem launþegi hjá hlutafélagi þótt hún, eiginmaður hennar eða ó- fjárráða börn eigi eignar- eða stjórnaraðild að hlutafélaginu, enda megi ætla að starf hennar hjá hlutafélaginu sé ekki vegna þessara aðilda. 10. Frádráttur vegna starfa eiginkonu við atv.r. hjóna o.fl. Hér færast 50% eftirtalinna tekna eiginkonu, þó að hámarki 167.500 kr. (1) Tekna af atvinnurekstri sem hún vinnur við og er i eigu hennar eða af sjálfstæðri starfsemi sem hún rekur. (2) Tekna vegna starfs við at- vinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi eiginmanns hennar. (3) Launa vegna starfs við at- vinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi ófjárráða barns (barna) hjónanna. (4) Hluta hennar af tekjum af sameiginlegum atvinnu- rekstri eða sjálfstæðri starf- semi hjóna, metins miðað við beint vinnuframlag hennar við öflun teknanna. (5) Launa frá sameignarfélagi sem hjónin eða óf járráða börn þeirra eru aðilar að eða hluta- félagi, enda megi ætla að starf hennar hjá hlutafélaginu sé vegna eignar- eða stjórnar- aðildar hennar, eiginmanns hennar eða ófjárráða barna. 11. Sjúkra- eða slysa- dagpeningar. Hér'skal færa sjúkra- og slysa- dagpeninga frá almannatrygg- ingum, sjúkrasamlögum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem jafnframt ber að telja til tekna i tölulið 9, III. 12. Annar frádráttur. Hér skal færa frá frádráttarliði sem áðureru ótaldir og heimilt er að draga frá tekjum. Þar til má nefna: (1) Afföll af seldum verðbréfum (sbr. A-lið 12. gr. laga). (2) Ferðakostnað þeirra fram- teljenda sem fara langferðir vegna atvinnu sinnar. (3) Fargjaldakostnað með áætl- unarbifreið milli heimilis og vinnustaðar hjá þeim sem daglega þurfa að fara 50 km leið fram og til baka til að sækja vinnu sina. Samsvar- andi upphæð má draga frá ef notað er annað flutningatæki. A sama hátt mega þeir, sem húsnæðisaðstöðu hafa á vinnustað frá vinnuveitanda, draga frá tekjum sinum far- gjald i samræmi við tilhögun vinnu á hverjum stað, þó eigi hærra en svarar til einnar ferðar fram og til baka fyrir hverja viku. (4) Gjafir til menningarmála, visindalegra rannsóknar- stofnana, viðurkenndrar likn- arstarfsemi og kirkjufélaga (sbr. D-lið 12. gr. laga). Skil- yrði fyrir frádrætti er að framtali fylgi kvittun frá stofnun, sjóði eða félagi sem rikisskattstjóri hefur veitt viðurkenningu skv. 36. gr. reglugerðar nr. 245/1963. (5) Kostnað við öflun bóka, tima- rita og áhalda til visindalegra og sérfræðilegra starfa, enda sé þessi kostnaðarliður studd- ur fullnægjandi gögnum (sbr. E-lið 12. gr. laga). (6) Frádrátt frá tekjum hjóna sem géngið hafa i lögmætt hjónaband á árinu, 159.900 kr. (7) Frádrátt v/björgunarlauna (sbr. B-lið 13. gr. laga). (8) Námsfrádrátt meðan á námi stendur skv. mati rikisskatt- stjóra. Tilgreina skal nafn skóla og bekk. Nemandi, sem náð hefur 20 ára aldri, skal út- fylla þar til gert eyðublað um námskostnað óski hann eftir að njóta réttar til frádráttar námskostnaðar að námi loknu, sbr. næsta tölulið. (9) Námskostnað sem stofnað var til eftir 20 ára aldur og veitist til frádráttar aö námi loknu, enda hafi framteljandi gert fullnægjandi grein fyrir fjáröflun og kostnaði á fram- tali og á þar til geröum eyðu- blöðum eða sent ósk um að mega vera undanþeginn greinargerðum á sérstökum eyðublöðum en fá i þess stað metinn heildarkostnað og skv. meðalnámstimalengd við við- komandi námsgrein (sbr. E-lið 13. gr. laga og B-lið 35. gr. reglugerðar, dags. 2. jan. 1976). (10) Afskrift heimæðargjalds v/hitaveitu, heimtaugar- gjalds v/rafmagns og stofn- gjalds v/vatnsveitu i eldri byggingar 10% á ári næstu 10 árin eftirað hitaveita, raflögn eða vatnslögn var innlögð (tengd). Ofangreind stofngjöld vegna innlagna (tenginga) i nýbyggingar teljast með byggingakostnaði og má ekki afskrifa sérstaklega. Um útfyllingu stafliða A-liður, bls. 3. a. Eignfærsla. 1 þessum staflið framtals ber þeim sem ekki eru bókhalds- skyldir að sundurliða eins og þar segir til um allar framtalsskyldar og skattskyldar innstæður i bönk- um, sparisjóðum og löglegum innlánsdeildum félaga, sbr. á- kvæði 21. gr. skattalaganna, svo og verðbréf sem hlita framtals- skyldu og skattskyldu á sama hátt skv. sérstökum lögum. Þess- ar tegundir eigna eru fram- talsákyldar og skattskyldar til jafns við skuldir frafnteljanda og ber að tilgreina upphæð hverrar eignar i dálknum „Upphæð kr. með vöxtum”. Til skulda i þessu sambandi teljast þó ekki eftir- stöðvar fasteignaveðlána að há- marki 1,700.000 kr. ef þau voru tekin til 10 ára eða lengri tima og sannanlega notuð til að afla fast- eigna eða endurbæta þær. Hafi framteljandi einungis talið fram- talsskylda og skattskylda eign i þessum staflið ber að færa sam- tölu slikra eigna i linuna „Skatt- skyldar innstæður, verðbréf og vextir.... alls kr.” og færa upp- hæðina siðan i kr. dálk töluliðar 7, I, (Inneignir) i framtali. Hafi framteljandi hins vegar talið fram allar umræddar eignir sinar i þessum staflið ber að færa sa m- tölu þeirra i þar greindar reit en draga þar frá upphæð skatt- frjálsra eigna (þ.e. þær eignir sem eru umfram aðrar skuldir skv. C-lið en áður umrædd fast- eignaveðlán) og færa mismun (þ.e. upphæð jafna öðrum skuld- um en áður umræddum fast- eignaveðlánum) i þar til gerðan reit fyrir skattskyldar eignir og færa upphæðina einnig i kr. dálk, tölulið7, I, (Inneignir) i framtali. 1 A-lið á bls. 3 skal auk nefndra innstæðna og verðbréfa færa skyldusparnaðarupph. skv. VII. kafla laga nr. 11/1975. Einnig má færa þar skyldusparnaðarinn- stæður skv. III. kafla laga nr. 30/1970. Ef nefndar skyldusparn- aðareignir eru taldar i A-lið þá skulu þær frádregnar i þar til ætl- aðri linu ásamt öðrum skatt- frjálsum eignum áður en fært er i tölulið 7, I á 1. bls. framtals. Skyldusparnaðarupphæðin skv. lögum nr. 11/1975 er framtals- skyld en ekki skattskyld, en skyldusparnaðarinnstæðurnar skv. lögum nr. 30/1970 eru hvorki framtalsskyldar né skattskyldar þótt heimilt sé að telja þær fram. Skuldir umfram hámark fast- eignaveðlánaskerða ekki skatt- frelsi skyldusparnaðareigna. b. Vaxtafærsla Þeim sem ekki eru bókhalds- skyldir ber að sundurliða reikn- aðar, greiddar og gjaldfallnar vaxtatekjur af framtalsskyldum og skattskyldum eignum skv. a-lið og tilgreina vaxtatekjurnar í dálknum „Vaxtatekjur kr.”. (Um áfallnar vaxtatekjur, sjá sam- eiginlegar leiðbeiningar um út- fyllingu A-, B- og C-liöa.) Enn fremur skal tilgreina skattskylda vexti af útteknum innstæðum og innleystum verðbréfum á árinu. Hafi framteljandi einungis talið skattskylda eign og skattskyldar vaxtatekjur þar af i þessum starfslið ber að færa samtölu vaxta i kr. dálklinunnar „Skatt- skyldar innstæður, verðbréf og vextir....alls kr.”. Um innfærslu vaxta I tölulið 4, II, visast til leið- beininga um úftyllingu B-liðar framtals. Hafi framteljandi hins vegar talið fram állar framan- greindar eignir sinar ber einnig að færa i dálkinn „Vaxtatekjur kr.” alla reiknaða, greidda og gjaldfallna vexti af þessum eign- um en draga siðan frá skatt- frjálsa vexti miðað við hlutfall skattfrjálsra eigna og færa niður- stöðu i kr. dálk skattskyldra vaxta. Um innfærslu vaxta i tölu- lið 4, III, visast til leiðbeininga um útfyllingu B-liðar. c. Bókhaldsskyldir aðilar. Bókhaldsskyldum aðilum ber að færa allar áður umræddar eignir og vexti af þeim i bækur sinar og ársreikninga, sbr. 3. mgr. 21. gr. skattalaganna, en um framtalsskyldu og skattskyldu þessara eigna og vaxtatekna af þeim visast til sfðustu málsgrein- ar 1. töluliðar I. kafla og 4. og 5. málsgreinar 1. töluliðar III. kafla leiðbeininganna. B-liður, bls. 3. 1 þessum staflið framtals ber að sundurliða eins og þar segir til um allar verðbréfaeignir sem ekki bar að telja fram skv. A-lið (vixlar teljast verðbréfaeign) þótt geymdar séu i bönkum eða séuþar tilinnheimtu. Enn fremur allar útistandandi skuldir, stofn- sjóðsinnstæður, inneignir i verslunarreikningum o.fl. að meðtöldum ógreiddum vöxtum og færa i dálkinn „Upphæð kr.”. Samtölu þessara eigna skal siðan færa i tölulið 9, I, (Verðbréf o.s.frv.) i framtali. 1 dálknum „Vaxtatekjur kr.” ber að tilgreina allar reiknaðar, greiddar og gjaldfallnar vaxta- tekjur af þessum eignum og sams konar eignum sem innleystar hafa verið á árinu (Um áfallnar vaxtatekjur, sjá sameiginlegar leiðbeiningar um útfyllingu A-, B- og C-liða.) Samtölu þessara vaxtatekna, ásamt samtölu skattskyldra vaxtatekna skv. A-lið en að frádregnum vaxta- tekjum af stofnsjóðsinnstæðum. ber að færa i þar til gerðan reit i B-lið og færa siðan upphæðina i tölulið 4, III, (Vaxtatekjur) i framtali. C-liður, bls. 3. t þessum staflið framtals ber að sundurliða eins og þar segir til um allar skuldir i árslok og færa upphæðþeirra i dálkinn „Upphæð kr.” og merkja með X ef við á. Enn fremur ber að færa hér skuldir umfram eignir skv. efna- hagsreikningi, sbr. siðustu mgr. 1. töluliðar I. kafla leiðbeining- anna. Samtölu skulda skal siðan færa i tölulið II á fyrstu siðu framtals. t dálknum „Vaxtagjöld kr.” ber að tilgreina öll greidd og gjaldfallin vaxtagjöld af til- greindum skuldum, svo og af skuldum sem greiddar hafa verið upp á árinu og færa niðurstöðu dálksins i' linuna „Skuldir alls og vaxtagjöld allskr.”enfrá þessari niðurstöðu ber að draga heildar- upphæð þeirra vaxtagjalda sem hér hafa verið tilgreind en eru jafnframt færð á rekstraryfirlit skv. tekjuliðum 1 og 2, III, i fram- tali. Mismun þessara upphæða ber að færa i linuna „Vaxtagjöld. mismunur kr.” og sömu upphæð skal siðan færa i tölulið 2, V, (Vaxtagjöld) i framtali. (Um áfallin vaxtagjöld, sjá sameigin- legar leiðbeiningar um útfyllingu A-, B- og C-liða.) A-, B- ogC-liðir, bls. 3. — Sameiginlegar leiðbein- ingar. Um áfallna vexti. t stað þess að telja véxti til tekna og frádráttar eins og þeir eru reiknaðir, greiddir og gjald-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.