Dagblaðið - 20.01.1976, Page 23

Dagblaðið - 20.01.1976, Page 23
Pagblaðið. Þriðjudagur 20. janúar 1976. 23 I Utvarp Sjónvarp Sjónvarpið í kvöld kl. 20,35: „JARÐSKJÁLFTAR OG BJARGRAÐ" Hvernig erum við í stakk búnir að mœta náttúruhamförum? „Það er auðvitað alveg óljóst hvort mennirnir utan af landi, sem taka þátt i umræðunum, komast i bæinn,” sagði Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sambands islenzkra sveitarfé- laga, sem ætlar að vera með umræðuþátt um „Jarðskjálfta og bjargráð”, en við töluðum við hann i gær. Þeir sem ætla að taka þátt i umræðunum eru Friðrik Jóns- son oddviti Kópaskers, dr. Sig- urður Þórarinsson, Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Al- mannavarna og Ásgeir Ólafsson stjórnarformaður Viðlaga- tryggingar Islands. Þarna verða almennt rædd hin ýmsu sjónarmið á sviði þessara manna. Friðrik segir sennilegast frá þvi hvernig fólk á Kópaskeri brást við þessum hamförum, hvað hefur verið gert að undan- förnu og hvað er framundan. Dr. Sigurður Þórarinsson kemur fram sem fulltrúi visind- anna. Fróðlegt er að heyra frá Guð- jóni Petersen um hvernig Al- mannavarnir eru i stakk búnar til þess að mæta náttúruham- förum. Ásgeir er fulltrúi þess fyrir- tækis sem verður að bæta mest- an hluta af þvi tjóni sem hlauzt af jarðskjálftunum á Kópaskeri. EVI j, , «... !. *■ Sprungin bryggjan á Kópaskeri eftir jarðhræringarnar um daginn. Sjónvarp í kvöld kl. 22,10: „Utan úr heimi" Hvað tekur nú við í Kína? raddir um að leyfa henni lenda. EVI „í fyrsta lagi verður fjallað um fráfall Cou En-lais forsætis- ráðherra Kina og hvað tekur nú við,” sagði Jón Hákon Magnús- son, stjórnandi þáttarins. Þá ræðir Jón Hákon við Ingi- björgu Haraldsdóttur sem bú- sett hefur verið á Kúbu i nokkur ár. Hún er hér stödd og aðstoðar sovézka leikstjórann við að setja upp leikritið Náttbólið eftir Maxim Gorki. Ingibjörg svarar nokkrum spurningum um lifið og tilveruna á Kúbu, hvernig pólitikin er og ástandið i þjóðmálum. Loks verður rætt um Con- corde-þotuna hljóðfráu sem Bretar og Frakkar hafa smiðað i sameiningu. Þotan hefur vald- ið miklum deilum, meðal ann- ars vegna þess hversu hávær hún er og hvað hún þykir hafa mengandi áhrif. í Bandarikjun- um hafa verið uppi háværar Mikil sorg rikti I Kina eftir fráfaii hins virta forsætisráðherra, Chou En-lais. Fólk kom unnvörpum að votta hinum látna virðingu sina þar sem lik hans lá á viðhafnarbörum áður en útförin fór fram. Sjónvarp kl. 21,15 Hvernig reiðir Rósu af í nýja hjóna- bandinu? Kl. 21.15 i kvöld er þátturinn um Benóni og Rósu á dagskrá sjónvarpsins. Er þetta 5. og næstsi'ðasti þátturinn en þeir eru byggðir á sögum eftir Knut Hamsun. Þýðandi er Dóra Haf- steinsdóttir. Siðasti þátturinn endaði á þvi að Rósa ætlaði að ganga að eiga Benoni. Maðurhennar, Nikulás, var farinn I burtu og Benóni sagði Rósu þær fréttir að hann væri dáinn. Lappinn, sem áður hefur komið við sögu þegar mikið hef- ur legið við, kom I siðasta þætti og Rósu brá mjög i brún þegar hún sá hann. Hafði hún orð á þvi að hann birtist alltaf þegar ein- hverj ar breytingar ættu sér stað i lifi hennar og boðaði jafnan ó- hamingju fyrir hana. Nú er bara að vita hvernig Rósu reiðir af í nýja hjónaband- inu. A.Bj. Útvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Um heilbrigðis- og félagsmál vangefinna, sið- , ari þáttur. Umsjón: Gisli Helgason og Andrea Þörðardóttir. 15.00 Miðdegistónleikar: ts- lensk tónlist. a. Sextett fyrir blásturshljóðfæri eftir Pál P. Pálsson. Jón Sigur- björnsson, Gunnar Egils- son, Jón Sigurðsson, Stefán Þ. Stephensen, Sigurður Markússon og Hans P. Franzson leika. b. Lög eftir Sigfús Einarsson. Att- menningarnir syngja, Hallur Þorleifsson stjórnar. c. Pianósónata eftir Leif Þórarinsson. Anna Aslaug Ragnarsdóttir leikur. d. Lög eftir Pétur Sigurðsson frá Sauðárkróki. Svala Nielsen og Friðbjörn G. Jónsson syngja Guðrún Kristinsdótt- ir leikur á pianó. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tónleikar. 16.40 Litli barnatíminn Finnbogi Scheving sér um timann. 17.00 Lagið mitt Anne-Marie Markan sér um óskalaga- þátt fyrir börn yngri en tólf ára. 17.30 Framburðarkennsla i spænsku og þýsku. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Pappiralausa fjölskyld- anDr. Gunnlaugur Þórðar- son flytur erindi. 20.00 Lög unga fólksins. Ragnheiður Drifa Steinþórsdóttir kynnir. 20.50 Að skoða og skilgreina. Kristján Guðmundsson sér um þátt fyrir unglinga. 21.30 Tilbrigði og fúga op. 24 eftir Brahms um stef eftir HandclDavid Lively leikur á pianó. — Hljóðritun frá út- varpinu i Stuttgart. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: ,,i verum”, sjálfsævi- saga Thcódórs F’riðriksson- ar Gils Guðmundsson les síðara bindi (7). 22.40 Harmonikulög. Sænskir harmonikuleikarar leika. 23.00 Á hljóðbergi „Major Barbara”, leikrit i þrem þáttum eftir George Bern- ard Shaw. Með aðalhlutverk fara : Maggie Smith, Robert Morley, Celia Johnson, Warren Mitchell og Cary Bond. Leikstjóri: Howard Sackler. — Siðari hluti. 20.35 Jarðskjálftar og bjarg- ráð. Umræðuþáttur um á- stand og horfur á jarð- skjálftasvæðinu i Þingeyj- arsýslu. Umræðunum stýrir Magnús Guðjónsáon, fram- kvæmdastjóri Sambands is- lenskra sveitarfélaga, og mun hann fá til viðræðna fulltrúa heimamanna, vis- indamanna og hins opin- bera. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. (í Sjónvarp 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Dagskrá og auglýsingar. 21.15 Benóni og Rósa. Fram- haldsleikrit i sex þáttum. byggt á sögum eftir Knut Hamsun. 5. þáttur. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. (Nordvision-Norska sjón- varpið). 22.10 Utan úr heimi. Þáttur um erlend málefni ofarlega á baugi. Umsjónarmaður Jón Hákon Magnússon. 22.40 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.