Dagblaðið - 31.01.1976, Blaðsíða 12
PagblaðiO. Laugardagur 31. janúar 1976.
12
r
Hœttir ekki oð syngja meðan
■ :
.
einhver vili hlusta a hann
Á þriðja hundrað hljómleikar ó nœstu tveim órum
Máltækið „Enginn er spá-
maður i sinu föðurlandi” sann-
aðist áþreifanlega á söngvaran-
um Roger Whittaker sem hefur
sannarlega sungið sig inn i
hjörtu fólks um gjörvallan
heim, einnig i Englandi þar sem
hann settjst að.
Roger Whittaker, sem fæddist
i Nairobi i Kenya, lærði að leika
á gitar þegar hann var ungur
drengur. Hann tileinkaði sér
fljótlega afrisk þjóðlög og önnur
vinsæl lög sem hann heyrði.
Þegar hann var i hernum
skemmti hann félögum sinum
með söng og gitarleik og naut
vinsælda meðal þeirra. Þetta
varð til þess að hann ákvað að
feta listabrautina. Á meðan
hann var við háskólanám, eftir
að herþjónústu lauk, notaði
hann hvert tækifæri sem gafst
til þess að syngja. Þetta tafði ó-
neitanlega fyrir honum i nám-
inu en engu að siður lauk hann
prófi i lifeðlisfræði og náttúru-
fræði. Skömmu siðar, eða árið
1962, ákvað Roger að ganga
listabrautina eingöngu. Það
gekk þó ekki betur en svo að
hann ,,sló ekki i gegn” fyrr en
árið 1967 á tónlistarhátið i
Knokke i Belgiu. Það var með
laginu Ef ég væri rikur sem
svo sannarléga færði honum
bæði rikidæmi og frægð um
gjörvallan heim. Hann hefur
siðan þá ferðazt viða og haldið
hljómleika. Má nefna staði eins
og Finnland og Nýja Sjáland,
Danmörku, Sviþjóð, Frakkland,
Belgiu og Kanada, og auðvitað
hefur hann öðlazt mikla frægð i
„heimalandinu”, Englandi.
Sjónvarpið islenzka hefur
nokkrum sinnum sýnt þætti með
Roger Whittaker og á þökk skil-
ið fyrir. Gaman væri að fá að
heyra i honum aftur.
Roger hefur gefið út fjöldann
allan af hljómplötum. Hann
syngur ekki bara og leikur held-
ur semur hann mörg laganna
sjálfur. — Seld hafa verið á
fjórðu milljón eintaka af
nýjustu plötunni hans en á henni
eru m.a. lögin ,,I don’t believe in
it anymore”, „Mamy blue” og
,,The last farewell”.
Rogér var i sinni fimmtu
heimsókn til Danmerkur i fyrri
viku og söng þar við mikinn
fögnuð áheyrenda. Hann ætlar
að haida enn eina hljómleika
þar 3. febrúar næstkomandi og
er löngu uppselt á þá hljóm-
leika.
Hann sagði i blaðaviðtali að
aukin plötusala hans gerði það
að verkum að nú yrði hann að
halda fleiri hljómleika en
nokkru sinni fyrr. Ráðgerðir erú
80hljómleikar árið 1976 og 125 á
árinu 1977.
„Ekkert getur fengið mig til
: ■■■'■ ■. V ■ •• •. ■ ■
Bíða hvað! þetta er óþolandi!!
/ Þvilíkur >
dónaskapur!
Þetta gerir
mann trylltan!
Algerlega
s. óðan! ^
Augnablik,
eitt orð...
Biddu
andartak
"'»• klikk
, Þeirskulu finna
fyrirþví, þegar
ég kæri. ,
.eitt að láta
þig biða
svona!
Gerir ekkert
til, góða!
rlvað þykist þetta hyski vera? Minn
tími erdýrmætur!! ,