Dagblaðið - 15.03.1976, Blaðsíða 12
12
Iþróttir
170.5 kg. DB-mynd Bjarnleifur.
Reyndi við
Norður-
landamet!
Gústaf Agnarsson, KR, reyndi við nýtt
Norðurlandamet í snörun í þungavigt á
íslandsmótinu í lyftingum í Laugardals-
höll í gær. Það voru 170.5 kíló — og
Gústaf var mjög nærri því að vinna afrek-
ið. Náði lóðunum upp, en missti þau,
þegar snörunin virtist vera að heppnast.
En hann er greinilega í mjög góðri æfingu
og líklegur til stórræða. Gústaf snaraði
157.5 kíló og jafnhattaði 192.5 kíló. Sam-
tals því 350 kíló, sem var bezta afrek
mótsins.
Kári Elísson, Á, setti nýtt íslandsmet
samanlagt í fjaðurvigt. Lyfti samtals 205
kílóum — 90 í snörun og 115 í jafnhöttun,
sem er einn bezti árangur, sem náðst hefur
í þessum þyngdarflokki á Norðurlöndum.
Sigurvegarar í einstökum flokkum urðu
þessir: Fluguvigt Magnús Loftss., ÍBA, 35
— 52,5, samtals 87.5 kíló. Dvergvigt
Gunnar Sveinsson, HSK, 50 — 62,5, sam-
tals 112,5 kg. Millivigt Hjörtur Gíslason,
ÍBA, 92,5 — 120, samtals 212.5 kg. Skúli
Óskarsson hafði snarað 100 kílóum, þegar
hann meiddist í öxl og varð að hætta
keppni. Léttþungavigt Ólafur Sigurgeirss.
KR, 100 — 130, samtals 230 kíló. Milli-
þungavigt Guðmundur Sigurðsson, Á,
137.5 — 180, samtals 317.5 kíló. Þátttaka
var meiri en nokkru sinni fyrr og fór mótið
hið bezta fram.
Dagblaðið. Mánudagur 15. marz 1976.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Frœg knattspyrnulið
haf a gert mér tilboð!"
— segir Ásgeir Sigurvinsson, sem ótti stórleik með Standard Liege í gœr. Bíður
eftir bréfi fró Albert Guðmundssyni óður en hann tekur ókvörðun um félagaskipti
Því er ekki að leyna, að ég hef fcngið
mjög góð tilboð frá frægum knatt-
spyrnufélögum, en þetta er á byrjunar-
stigi og ekki hægt að skýra frá hvaða
félög það eru. Ég hef skrifað Albert
Guðmundssyni og bíð eftir svarbréfi frá
honum áður en ég geri eitthvað í mál-
inu. Það er þó rétt að taka fram, að ég
hef aldrei fengið neitt tilboð frá Barce-
lona. — Skil ekki hvernig sá orðrómur
hefur komizt á kreik, sagði Ásgeir
Sigurvinsson, þegar Dagblaðið ræddi
við hann í Liege. í gær.
Ég hef verið í þrjú ár hjá Standard
Liege og líkað vistin þar vel. Ég er
ánægður þar — en það er gaman að
breyta til. Kynnast nýjum liðum og
leikmönnum og þetta er freistandi, því
það eru mjög góð félög, sem hafa gert
mér tilboð. En væntanlega skýrist málið
á næstu dögum, sagði Ásgeir ennfrem-
ur.
Ásgeir Sigurvinsson hefur getið sér
mjög gott orð sem knattspyrnumaður í
Belgíu. Því kemur ekki á óvart, að
þekkt félög sækist eftir hæfileikum hans,
enda fer saman hjá honum mikil hæfni
á knattspyrnusviðinu og reglusemi á
öllum sviðum. Okkur segir svo hugur,
að þau félög, sem sækjast eftir Ásgeiri,
séu frá Niðurlöndum eða þar í ná-
grenni, en væntanlega kemur þáð fljótt
í ljós.
Standard Liege átti stórleik í gær og
sigraði Antwerpen með miklum mun,
4-0, í Liege. Já, þetta var frábær íeikur
af okkar hálfu — gaman að taka þátt í
honum í sól og blíðu hér í Liege. Ég
Ásgeir Sigurvinsson til hægri í leik með Standard.
skoraði eitt markanna — það 3ja úr
vítaspyrnu, en Garot skoraði tvö mörk
og Geretz eitt. Þetta er einn albezti
leikur liðsins á leiktímabilinu og gott að
vinna jafn sterkt lið og Antwerpen með
þetta miklum mun sagði Ásgeir. FC
Brugge er enn efst með 38 stig, þrátt
fyrir tap í umferðinni. Standard hefur
31 stig og leikið einum leik minna.
Anderlecht er með 34 stig, Lokeren og
Beveren 33, Molenbeek og Lierse með
32 stig. Charleroi sat yfir í gær og hefur
18 stig eftir 26 leiki. Fjórða að neðan.
Úrslit urðu þessi í gær.
Malines — Beringen 0-0
Anderlecht — FC Brugge 1-0
Ostende — Lokeren 1-0
Standard — Antwerpen 4-0
Beveren — Liegeois 1-0
Lierse — La Louviere 1-1
CS Brugge — Beerschot 0-1
Waregem — Molenbeek 0-0
Berchen — Malinois 0-1
íþróttir
Dankersen vann í Essen
- annað sœtið blasir við
I — en Hamborg og Göppingen töpuðu. Líkur ó að Gunnar og Ólafur Einarssynir I
leiki saman í Bundeslígunni nœsta keppnistímabil
Ósigurinn
fór í skapið
Heldur óskemmtilegt atvik átti sér stað
vestur í Hagaskóla þegar 3. flokkur KR
var að leika við Hauka í úrslitum íslands-
mótsins í 3. flokki.
KR-ingar sem hafa verið ósigrandi í
vetur í körfunni töpuðu fyrir Haukum
37-31. Þessi ósigur fór meir en lítið í
taugarnar á hinum ungu KR-ingum —
því þegar ljóst var að ósigurinn varð ekki
umflúinn þá var öllum kennt um öðrum
en sjálfum sér. Drengirnir rifust sín á
milli, rifust við dómarana og höfðu til-
burði frammi við að lemja þá og eins
spörkuðu þeir boltanum upp í glugga úr
innkasti. Sem von var voru allir forviða á
essum tilburðum og Guttormur ólafsson
jálfari KR skammaðist sín svo fyrir sína
menn að hann kom ekki nálægt liðinu í
þeim tveimur leikjum sem eftir voru.
Báðir leikirnir töpuðust — fyrir Snæfelli
og Tindastól, og í síðasta leiknum, það er
gegn Tindastól var einn leikmaður KR
settur úr liðinu og óvíst hvað gert verður í
máli hans. Slík var framkoma hans.
Tindastóll frá Sauðárkróki vann
íslandsmótið í 3. flokki. Liðið sigraði
Hauka í hörkuskemmtilegum leik 26-25 og
var það mál manna að jafnvel hinir góðu
KR-ingar, sem svo halda sig vera, hafi
ekkert haft í hendurnar á Sauðkrækling-
um að gera — jafnvel þó KR hefði verið
ineð sitt sterkasta lið.
Celtic í
erfiðleikum
Miðherji Celtic, Dixie Deans, gctur ekki
leikið með liði sínu í Evrópukeppni bikar-
hafa á miðvikudag vegna inflúcnsu. Þá
leikur Celtic- síðari leik sinn við Sach-
senring Zwickau í Austur-Þýzkalandi.
Fyrri leiknum í Glasgow lauk með jafntefli
1-1 Flestir leikmenn Celtie hafa legið í
flensunni þó ekki Jóhanncs Eðvaldsson
og í ga:r lék liðið æfingaleik til að
undirbúa sig fyrir Evrópuleikinn.
Þetta var ákaflega þýðingarmikill
sigur hjá Dankersen í Bundeslígunni í
gær — nú held ég að annað sætið í
riðlinum sé nokkuð öruggt, sagði Axel
Axelsson, þegar Dagblaðið ræddi við
hann í gær. Dankersen lék þá á útivelli
við Phönix Essen og vann með 20-16,
Þessi tvö lið eru að berjast um annað
sætið og Dankersen varð raunverulega
að sigra til að hafa möguleika á því.
ÍR setti nýtt stigamet í körfuknattleik
hér á íslandi—sló bæði met KR í
bikarkeppninni og eins mct Ármanns í
1. deildinni. Já, ÍR skoraði hvorki fleiri
né færri en 148 stig gegn 76 stigum
Snæfells. Met KR var 144 stig og mct
Ármanns 141 stig.
ÍR-ingar án Agnars Friðrikssonar og
Birgir Jakobssonar tóku þegar í upp-
hafi að raða stigum og sérstaklega var
Kolbeinn Kristinsson í ham — en ef til
vill er ósanngjarnt að draga einn mann
út úr — liðið lék sem heild og allir vel.
Staðan í hálfleik var 68-41 og í síðari
hálfleik bókstaflega gekk allt upp —
hittni frábæi og eins allt samspil. Þegar
upp var staðið hafði nýtt met litið
dagsins Ijós, 148-76.
Stigahæstir ÍRinga voru Kolbeinn
Liðið hefur nú 20 stig — en Essen-Iiðið
hefur 16 og hefur leikið einum leik
minna. Þrjár umferðir eru eftir.
Dankersen á eftir að leika við
Altenholz, neðsta liðið, á útivelli, en við
Gummersbach og Kiel heima.
Ólafi H. Jónssyni gekk allvel í
leiknum, sagði Axel ennfremur. Hann
skoraði þrjú mörk, en þeir Busch og
Kramer voru markhæstir með Fimm
Kristinsson með 36, Þorsteinn Hall-
grímsson 26.
Valur — ÍS 82:81
Valur og ÍS léku sögulegan leik á
laugardaginn, ja ef til vill var leikurinn
ekki sögulegur, heldur þær skýrslur sem
út voru fylltar. Þær voru með öllu
ólæsilegar og rangt út fylltar. Krotað og
krafsað ofan í — að lokum var dómarinn
að útfylla sjálfur skýrslu — eftir minni!!
Þetta hafa stúdentar kært, því sam-
kvæmt minni dómarans, Eiríks Jó-
hanness. sigraði Valur 82-81. Hins
vegar keinur það nokkuð á óvart að allir
aðilar skrifuðu nöfn sín undir krafs-
skýrsluna og eins voru úrslit samkvæmt
henni 82-81.
Nú, cn hvað um það. Þórir
Magnússon skoraði 37 stig fyrir Val og
mörk hvor. Ég ég lék ekki með og hef
verið frá í þrjár vikur. Tognaði illa í
nára þá í leiknum við Bad Schwartau
og þetta er anzi viðkváemur staður. Við
leikum í Evrópukeppninni í Sviss á
þriðjudag, og ég reikna ekki með að
geta tekið þátt í þeim leik.
Einar Magnússon lék sinn fyrsta leik
með Hamborg eftir Fmgurbrotið og
liðinu gekk ekki vel. Tapaði á útivelli
Torfi Magnússon 24. Hjá ÍS var Bjarni
Gunnar stigahæstur með 24 stig.
Ármann — Fram 101-67.
Á laugardaginn sigraði Ámann Fram
með 101-67. Ármann hafði yFtrhöndina
frá upphafi til enda og staðan í hálfleik
var. 50-35. Hjá Ármanni bar mest á
þeim kumpánum Jóni Sigurðss., 33
stig ogjimmy Rogers 34 stig.
Helgi Valdimarsson var stigahæstur
Framara með 17 stig, en hann var að
fara útaf um miðjan síðari hálfleik með
5 villur.
Um helgina var leikið til úrslita í 3.
deild og þar báru Laugdælir sigur úr
býtum — sigruðu Vestmannaevinga í
úrslitaleik með 66-58. h.halls.
fyrir Bad Schwartau 12-10. Einar
skoraði einn mark í leiknum og gat
skiljanlega ekki beitt sér mjög. Allar
líkur eru nú á, að Hamborg og
Göppingen berjist um fallsætið
innbyrðis. Verði nr. þrjú að neðan í
deildunum, en Fimm lið falla.
Göppingen lék við Hofweier á útivelli
fyrr í vikunni og tapaði eftir all-
sögulegan leik 16-14. í hálfleik var
staðan 11-8 fyrir Hofweier, en framan
af síðari hálfleiknum tóku leikmenn
Göppingen sig verulega á. Tókst að
jafna og komast yFir í 13-11, þegar
langt var liöið á lcikinn. Virtist stefna í
sigur, en þá léku dómararnir
Göppingen heldur grátt. Ráku tvo
leikmenn liðsins af leikvelli — annan í
tvær min. og hinn Fimm. Göppingen
var því aðeins með fjóra útileikmenn
Iokakaflann og náði Hofweier sigri.
Gunnar Einarsson átti mjög góðan leik
með Göppingen-liðinu. Skoraði Fimm
mörk í leiknum og hefur alls skorað 72
mörk. Er meðal markhæstu lcikmanna í
Bundeslígunni, en samt er Göppingen í
fallhættu. ólafur Einarsson, bróðir
Gunnars, er kominn heim. Talsverðar
líkur eru á, að þeir bræður leiki saman í
Þýzkalandi næsta keppnistímabil — og
þá í Bundeslígunni. Líkur að Gunnar
hætti hjá Göppingen — en fimm félög í
Bundeslígunni hafa sýnt mikinn áhuga
á að fá þá bræður í sínar raðir. Hins
vcgar er ekki líkJegt að það mál skýrist
fyrr en í bvrjun maí.
|R fór hamförum