Dagblaðið - 15.03.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 15.03.1976, Blaðsíða 15
Dagblaðið. Mánudagur 15. marz 1976. í 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I HARALDUR TAPAÐIIITUNUM EFTIR SEX SIGURÁR í RÖD! — Sigurður Haraldsson sigraði Horald Kornelíusson í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í badminton 17-15, 15-11 Þetta er í fyrsta skipti síðan ég vann Reykjavíkurmeistaratitilinn í badminton 1970 að ég tapa honum, sagði Haraldur Kornelíusson, sá ágæti badmintonleikari eftir ósigur sinn gegn Sigurði Haraldssyni í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í badminton í gær. Sigurður vann báðar loturnar, þá fyrri 17-15 og hina síðari 15-11. Ég náði góðu forskoti í fyrri lotunni, leiddi 10-4, slakaði á og það má ekki gegn jafngóðum manni og Sigurður er, sem þegar gekk á lagið. Eftir það náði ég mér ekki á strik, sagði Haraldur ennfremur og því tap óhjákvæmilegt. Haraldur bætti sér tapið í einliðaleiknum með því að sigra í tvíliðaleik — Haraldur og Steinar Petersen sigruðu Sigfús Ægi Árnason og Ottó Guðjónsson í úrslitúm 15-9, 15-1. í tvenndarkeppninni sigraði Haraldur ásamt Hönnu Láru Pálsdóttur. Þau sigruðu Steinar Petersen og Lovísu Sigurðardóttur 15- 13, 15-10. í einliðaleik kvenna sigraði Lovísa Sigurðardóttir TBR Hönnu Láru Pálsdóttur einnig TBR í úrslitum 11-0, 11-3. í tvíliðaleiknum unnu þær stöllur Lovísa og Hanna Lára Ellen Franklin og Sveinbjörgu Pálsdóttur, KR 15-7, 15-13. En ef við snúum okkur frá meistaraflokki að A-flokki þá vann Sigurður Kolbeinsson TBR það afrek að sigra í einliðaleik, tvíliðaleik og Sigur og jafntefli í landsleikjum kvenna! íslenzka kvennalandsliðið í hand- knattleik lék tvo leiki við hinar banda- rísku stallsystur sínar um helgina — sigur hafðist í öðrum þeirra og jafntefli í hinum. Langþráður sigur hafðist loks í síðasta leik liðanna á laugardag uppi á Skaga 15-9. Eftir tvö jafntefli í röð voru aðstandendur liðsins orðnir uggandi um að sigur gæti fengizt, í fyrsta leiknum hafði íslenzka liðið unnið upp gott forskot Bandaríkjamanna og í öðrum leiknum hafði gott forskot glatazt. í leiknum uppi á Skaga stóð allt í járnum í fyrri hálfleik og staðan í hléi var 5-5. En loks í síðari hálfleik fóru stúlkurnar að þjappa sér meira saman, leika eins og ein heild. Árangurinn lét ekki á sér standa — liðið seig örugglega framúr og er upp var staðið var öruggur sigur, 15-9. Erla Sverrisd. og Harpa Guðmundsdóttir komu bezt út úr leikn- um, Erla skoraði 5 mörk og Harpa 4. Eins var Guðrún Sigurþórsdóttir drjúg — skoraði 3 mörk. Þrátt fyrir að liðið sé á réttri leið er enn langt í land og vonandi að úr rætist. Leikurinn suður í Firði á föstudaginn var afskaplega illa leikinn af hálfu ís- lenzka liðsins. Var nánast sem 7 ein- staklingar :— óháðir hver öðrum væru inná — vörnin sem gatasigti, skipulags- leysi í sókninni. Ógnun var sáralítil og til þess var tekið að bandaríska liðið hafði bæði beztu einstaklingana á vell- inum, ógnun var mun meiri í hornun- um og (*ins mun meiri barátta í vörn- inni. Staðan í hálfleik var 5-5 og í síðari hálfleik komst íslen/.ka liðið í 15-11 en glopraði hinu góða forskoti niðurog rétt fvrir leikslok jafnaði bandaríska liðið 17-17. h.halls. einnig tvenndarkeppninni. Sigurður sem er aðeins 16 ára, sigraði Friðrik Amgrímsson KR í úrslitum 15-10, 19- 15, og 15-10. í tvíliðaleiknum sigraði Sigurður ásamt Brodda Kristjánssyni, TBR þá Friðrik Amgrímsson og Ingólf Jónsson KR 15-12, 15-18, 15-10. Eini titilinn sem ekki hafnaði hjá TBR á þessu Reykjavíkurmóti var í I- flokki hjá konunum, en þar sigraði Bjarnheiður fvarsdóttir, Val, stöllu sína, einnig úr Val, Ásu Gunnarsdóttur II- 6, 11-2. í tvíliðaleik hjá konunum unnu þær Sigríður M. Jónsdóttir og Ellen Mogesen, TBR, þær Bjarnheiði og Ásu úr Val, 15-12 0-15, 15-11. Og í tvenndarleiknum í 1. flokki unnu þau Sigurður Kolbeinsson og Sigríður M. Jónsdóttir þau Walter Lentz og Hlaðgerði Laxdal, bæði KR, 15-6 og 15-2. Loks var á Reykjavíkurmótinu keppt í Old Boys flokki og þar sigraði Kjartan Magnússon og Matthías Guðmundsson, TBR. Þeir sigruðu Ragnar Haraldsson og Magnús Elíasson TBR í úrslitum 15-9, 15-10. Kjartan hefur komið mikið við sögu í vetur því í deildakeppninni hefur hann komið inn fyrir son sinn í veikindum og er þar ósigraður. h. halls. Áskíðum í hlíóum Alpafjalla Eins og síöastliöinn vetur bjóöum viö nú viku og tveggja vikna skíðaferðir til Kitzbuhel og St. Anton í Austurríki á verói frá 41.700 og 50.600 krónum. í Kitzbuhel og St. Anton eru jafnt brekkur fyrir byrjendur, sem þá bestu. Þar er verió á skíöum í sól og góöu veöri allan daginn, og þegar heim er komið, bíöur gufubaö og hvíld, góöur kvöldmatur og rólegt kvöld viö arineld, - eða upplyfting á skemmtistaó ef fólk vill heldur. Morguninn eftir, snemma, er stigið á skíöin og haldiö beint upp í brekkur - svona gengur þetta dag eftir dag eftir dag, meöan á dvölinni stendur. Sem sagt, dýröleg dvöl í alþjóðlegu andrúmslofti meö fullkomnu "apré ski”. Þeir sem velja tveggja vikna feröir, geta dvalið viku á hvorum staö ef þeir kjósa heldur. Skíöafólk leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum okkar, ferðaskrifstofunum og umboösmönnum. LOFTLEIDIR ISLAJVDS Félög með skipulagóar skíóaferóir til Evrópu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.