Dagblaðið - 22.03.1976, Blaðsíða 15
Dagblaðið. Mánudagur 22. marz 1976.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
— en taugarnor brugðust lokakafla
leiksins við ÍR
Guöstcinn ■scndir hnlinnn í k<>iTn ÍK-ini'n. cn í Inkin hrnsi linnuin illn honnlislin.
|)ci'nr linnn i»ni liyt'i'l Ánnnnni fslniidsincisinrnlililinn incó |)ví nó sknrn úröóru nf
Ivciinnr vílnknsi 11111.
l)B-mvnd Bjnrnlcilur.
Ármanns-krakkarnir hiifðu lcngi miklu að fagna — lið þcirra virtist stefna í öruggan sigur, en það fór á aðra leið.
DB-mynd. Bjarnleifur
Auk þess má
gera hnappagöt
festa á tölur og
sauma út eftir vild.
Fullkominn íslenzkur
leiðarvísir fylgir.
Verð aðeins krónur
43.350
Býður nokkur betur?
Góð greiðslukjör.
Guðsteinn Ingimarsson, ungi, leikni
pilturinn í Ármanni, féll nær saman,
þegar hann misnotaði tvö vítaköst sex
sekúndum fyrir leikslok gegn ÍR í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á laugar-
dag. Staðan var þá 83-83 og ef Guð-
steinn hefði skorað úr öðru vítakastinu
hefði félag hans orðið íslandsmeistari í
fvrsta skipti í körfuknattleik. En það
tókst ekki. Jafnt var í leikslok og því
framlengt. Þá höfðu ÍR-ingar yfirburði
og sigruðu með 99-92 — enda fjórir af
beztu leikmönnum Ármanns þá komnir
út af — Jimmy Rogers, Birgir Örn
Birgis, Sigurður Ingólfsson og Björn
Christensen, en aðeins einn af þeim
beztu hjá ÍR, Jón Jörundsson.
En það voru fleiri Ármenningar en
Guðsteinn, sem gátu nagað sig í
handarbökin að hafa ekki tryggt félagi
sínu íslandsmeistaratitilinn í leiknum
við ÍR. Já, flestir — og þá ekki sízt
Jimmy Rogers, sem var áfar slakur í
vítaköstum í leiknum. Var aðeins með
50% nýtingu — og lét vísa sér af
leikvelli þremur mín. fyrir leikslok,
þegar staðan var 81-77 fyrir Ármann
vegna orða, sem hann lét falla við
dómarana.
Ármenningar geta enn trvggt sér
titilinn með því að sigra KR, þegar
liðin mætast á Seltjarnarnesi á laugar-
dag. Annars þurfa þeir ef til vill að leika
til úrslita við ÍR — og þá aftur spurn-
ing um taugar Ármenninga.
Taugarnar biluðu illa hjá Ármenn-
ingum lokakafla leiksins gegn ÍR —
ekki aðeins hjá leikmönnum heldur
einnig þeim, sem stjórnuðu liðinu utan
vallar. Ármann hafði yfir 10 stiga for-
skot, sex mínútum fyrir leikslok, þegar
Jón Sigurðsson, þessi bezti körfuknatt-
leiksmaður, sem nú leikur á fslandi —
hvort sem svertingjar eru taldir með
eða ekki — var hvíldur. Við því mátti
Ármanns-liðið ekki. ÍR-liðið þá með
alla sína beztu menn inn á tók upp
pressuvörn — hirti boltann hvað eftir
annað af Ármenningum og minnkaði
muninn stöðugt. Þá sýndu ÍR-ingar
mikla seiglu og keppnisskap og
Ármannslioið hrundi.
Framan af fyrri hálfleiknum var jafn-
ræði með liðunum, en síðan náði
Ármann góðum leikkafla og tíu stiga
forustu, 20-16, og í hálfleik höfðu þeir
enn þessa forustu, 49-39. Framan af
síðari hálflciknum jók Ármann cnn
forskot sitt og virtist slcfna í öruggan
sigur. Mestur munur 75-61 og langt
liðið á leikinn. En þá hrundi allt hjá
Ármanni eins og áður er lýst og ÍR-
ingar gengu á lagið — og svo komu
örlagasekúndurnar síðustu, þegar Guð-
steini mistókst tvö vítaköst. Framlcng-
ing og þá áttu Ármcnningar cnga
möguleika —. liðið hrunið og taugarn-
ar í öllum áttum. Spcnnan cr því enn í
mótinu þó svo Armenningar standi
vissulega bezt að vígi. Tifþess þarf liðið
að vinna KR — og raunv.erulega væri
afar sárt fvrir Ármcnninga að trvggja
sér þá ekki íslandsmeistaratitilinn eins
mikla vfirburði og það hefur haft í
vetur.
Flest stig ÍR á laugardaginn skoruðu
Kolbeinn Kristinsson eða 26. Kristinn
Jörundsson 19 og Birgir Jakobsson 16.
Hjá Ármanni var Jón Sigurðsson stiga-
hæstur með 24 stig, Jimmy Rogers var
með 18 og Guðsteinn 15.
Á eftir þessum tvísýna lcik léku Stúd-
entar við Fram í 1. deild og sigruðu létt
86-79.
Með aðeins einum takka
má velja um 17 sporgerðir:
Beint vanalegt spor
Beint feygjanlegt spor
Zig-zag
Satínsaum
Skelfald
Blindspor til að sauma
tvöfalda efnisbrún við
leggingarborða
Teygjanlegan skelfald
Overlock
Parísarsaum
Þrepspor
Teygjufestispor
Blindfaldspor
Rykkingarsaum
Oddsaum
Tungusaum
Rúðuspor
Þræðingarspor.
NECCHI
W'
er fullkomin, sjálfvirk
saumavél með lausum
armi og innbyggðum
fylgihlutakassa
HÚN VEGUR AÐEINS UM
12 KG. MEÐ TÖSKU
Necci Lydia 3 er
sérlega einföld í
meðförum
ískmdsmeistara-
trtilfinn blasti
við Ármenningum