Dagblaðið - 08.04.1976, Síða 1

Dagblaðið - 08.04.1976, Síða 1
Sriálst, úháð dagblað RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022. í Í I I 2. ARG. — FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1976 — 80. TBL. Sundrung er í ríkisstjórninni vegna frumvarps um Orkubú Vestfjarða. Einar Ágústsson utanríkisráðherra réðist gegn frumvarpinu á Alþingi í gær- kvöldi, en Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra studdi það ein- arðlega. Frumvarpið er stjórnarfrum- varp þrátt fyrir allt, en í raun flutt á vegum iðnaðarráðherra. Einar Ágústsson telur að með stofnun sérstaks Orkubús Vest- fjarða yrði Landsvirkjun aðeins nafnið eitt. Verið væri að sundra Landsvirkjun, þar sem búast mætti við, að svipuð orkubú yrðustofnsett fyrir aðra landshluta. Þetta væri mjög illa farið. Gunnar Thoroddsen telur að í frumvarpinu felist mikið framfaraspor. Farið sé að óskum Vestfirðinga. Orkubú Vestfjarða á að vera sameignarfélag ríkisins og sveitarfélaga á Vestfjörðum. Eignarhluti ríkissjóðs skal vera 40 prósent en eign sveitarfé- laga á Vestfjörðum samtals 60 prósent. Með þessu orkufyrir- tæki sameinast rafveitur á Vestfjörðum, sem sveitarfélög eiga. í eigu sveitarfélaganna eru nú Rafveita ísafjarðar, Raf- veita Patrekshrepps, Rafveita í Snæfjalla- og Nauteyrarheppi ögurhrepps. Reiknað er með, að Orkubú Vestjfarða yflrtaki eignir þessara fyrir- tækja svo og eignir annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum í orkumannvirkjum, sem kynni að verða stofnað til á þeim tíma, sem líður, þar til gengið hefur verið frá stofnun Orku- bús Vestfjarða. Gert er ráð fyrir, að eignir, sem ríkissjóður á tilheyrandi orkuiðnaðinum á Vestfjörðum verði yfirfærður til fyrirtækisins á sama hátt og eignir Rafmagnsveitna ríkisins, en Orkubú Vestfjarða á að hefja starfsemi sina með yfir- töku á þeim rekstri, sem Raf- magnsveitur ríkisins hafa með höndum, auk reksturs sveitar- félaganna. Orkubú Vestfjarða á að fá einkaleyfi. —HH SAILORÁ LISTAHÁTÍÐ Verulegar líkur eru á því að brezka popphljómsveitin SAILOR komi hingað til lands á vegum Listahátíðar og leiki í Laugardalshöllinni 10. júni. Samningar munu hafa verið undirritaðir, að minnsta kosti til bráðabirgða. Sailor er með vinsælustu popphljómsveitum i Evrópu í dag og tröllríða þessa dagana íslen/.kum vinsælda- listum með lögunum ..Glass Of Champagne’’ og „Girls Girls Girls”. —ov. Þokan ýtti millilandafluginu norður á Akureyri Veðrabrigðin, sem við viljum telja til vorboða, breyttu flug- vellinum í hpfuðstað Norður- lands skyndilega í alþjóðaflug- völl með öllu því annríki, sem því fylgir. Vegna svartaþoku, sem skall á hér á Reykjavíkur- svæðinu í gær, varð Sól- faxi, þota Flugletoa, sem var að koma frá Glasgow og Kaup- mannahöfn, að lenda á Akur- eyrarflugvelli um sexleytið í gærkvöldi. Með vélinni voru 60 farþegar, sem fengu gistingu á Hótel KEA og Varðborg. Vöruflutningavél Iscargo, sem var að koma frá Hollandi, varð einnig að lenda fyrir norðan. Þá lenti þar einnig lítil flugvél, sem kom frá Grænlandi. Þegar Dagblaðið talaði við flugvallarstarfsmann á Akur- eyri í morgun, sagði hann, að millilandavél hefði ekki lent á Akureyri í ein tvö eða þrjú ár. Þarna fyrir norðan var ljómandi veður og öll skilyrði hin ákjósanlegustu fyrir þessa óvæntu umferð. „ —ABj/BH DB-mynd Bjarnleifur. SJÓMENN SYÐRA VONLITLIR UM PÁSKAHR0TUNA ,,Hér er ekkert fiskirí. Aflinn glæðist ekkert, — það er frekar það gagnstæða. Þetta er þýðingarlitill barningur.” Þessi voru svörin, sem Dagblaðið fékk, er það hafði samband við nokkrar verstöðvar sunnan- lands i morgun. ,.Eg hef lilla trú á því, að nokkur páskahrota verði i ár. sú hefur ekki verið rcynsla síðustu ára, sagði vigtar- maðurinn vió Keflavíkurhöfn, og sömu svörin var að hafa frá öllum hinum varðandi páska- hrotuna. Fiskibátar sunnanlands halda sig ekki á neinum vissum svæðum um þessar mundir, heldur leita um allan sjó að fiski og sumir meira að segja uppi undir kartöflugörðum Þykkvbæinga, eins og kunnugt er af fréttum. Þó að einn og einn bátur hafi fengið góðan afla endrum og eins er það meira fyrir heppni en að ástandið sé nokkuð að ASÍ-félög kaupa hluta- bréf i Alþýðu- bankanum fyrir 60 millj. — sjá baksíðu Er 17 ára og 2,17 m á hœð og vex enn! — sjá íþróttir í opnu Krakkarnir reykja til að sýnast eldri — sjá bls. 8 Valda- baráttan í Kína Sjá erl. grein og fréttir, — bls. 6-7 og 10-11 Klofningur i rikisstjórninni: EINAR ER ANDVIGUR FRUMVARPIGUNNARS

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.