Dagblaðið - 08.04.1976, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976.
15
Þetla er sýnishorn af efnum,
sem hægt er að panta á
sýningunni. Metrinn kostar kr.
3800.
Þetta er ofið veggst.vkki,
óneitanlega mjög frumlegt, og
er í einkaeign.
" , -.........................................
Húsaraðir og endur i apríl heita þessi veggstvkki sem ná frá
lofti og niður á gólf. Litnirnir voru ákafle^a glaðir, en ekki er mér
alveg ljós til hvers á að nota þetta. Kannski lil að hengja yfir
sprungur í vegg, eða hvað? Húsaraðirnar kostar 18000 kr. og
endurnar kr. 13000.
FRUMLEG 0G UTRÍK VERK
f N0RRÆNA HÚSINU
Það verður einhver bið á því
að vorið komi hingað til okkar
en i sýningarsal Norræna
hússins er svo sannarlega
komið vor. Þar stendur yfir
sýning á mjög litríkum og
frumlegum verkum er hópur 44
sænskra textílhönnuða hefur
gert. Þarna getur að líta
tauþrykk, myndvefnað og
textíl-skúlptúr. Flest verkanna
eru til sölu.
Þessar 44 listakonur nefna
sig „Textílgruppen” og eru frá
Stokkhólmi en þar reka þær
sýningarsali og verzlun.
Hópurinn hefur haldið
sýningar víða í Svíþjóð og hafa
þær hvarvetna vakið mikla
athygli. A sl. hausti hélt
hópurinn - sýningu í
Washington.
Það er Norræna listabanda-
lagið og félagsskapurinn
NUNSKU (nefnd til þess að
kynna sænska nútímalist í
útlöndum) sem veittu styrki til
sýningarinnar í Norræna
húsinu. Fjórar stúlkur úr
hópnum komu með sýninguna
til landsins og settu hana upp,
en þær eru nú farnar aftur til
Svíþjóðar.
Sýningin verður opin fram
yfir páska.
Sænskir textilhönnuðir hafa
lengst af orðið að vinna hver í
sínu horni við erfiðar fjárhags-
aðstæður. Sýningarkostnaður
hefur jafnan verið hár. Þeir
hófu samvinnu með sér á
árunum 1970-73 um að standa
fyrir sýningum. Við það
opnuðust nýir möguleikar og
veturinn 1972-73 stofnuðu. allir
starfandi textílhönnuðir í
Stokkhólmi með sér félags-
skapinn Textílgruppen.
Stofnfélagar voru 45 talsins og
höfðu það markmið að vinna að
bættri starfsaðstöðu
textílhönnuða.
Félögum Textílgruppunnar
hefur verið falið að skreyta
opinberar byggingar, skólahús,
sjúkrahús og bókasöfn.
A. Bj.
Þetta er stórt veggstykki sem heitir Við drukknum. Þaó er í einkaeign.
Ljósm. Bjarnleifur.