Dagblaðið - 08.04.1976, Page 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976.
Varðskipsmenn eiga befra skiGð en
innantómt kjaftœði og augnagolur
— segir lesandi sem ekki er sáttur við svör Benedikts Gröndals og Jóns Skaftasonar í Kastljósi
Böðvar Jónsson, Asparfelli 4,
skrifar:
„Tilefni þessara skrifa
niinna er viðtal Eiðs Guðna-
sonar við alþingismennina
Benedikt Gröndal og Jón
Skaftason í þættinum Kastljósi
í fvrra mánuði en i sannleika
sagt get ég ómögulega orða
bundizt yfir því sem þeir létu
frá sér fara i nefndum þætti.
Ur þvi þessir þingmenn voru
valdir til að koma fram verður
að álíta að þeir séu
sérfræðingar sinna flokka hvað
viðkemur málefnum
Gæzlunnar.
Þeir töldu ekkert athugavert
við að þeysa fram og aftur á
núverandi varðskipum um það
stóra hafsvæði, sem landhelgin
er orðin, og töldu því hraðbáta
óþarfa. Ef þetta hefði verið
stutt með útreikningum, þar
sem gcrður væri samanburður
á þvi hvað kostar að sigla t.d.
Ægi hver.ja milu á 20 mílna
ferð og hvað kostar að sigla
hraðbát af þeirri stærðargráðu,
sem óskað hefur verið eftir, við
sömu aðstæður og allt tekið
með í reikninginn, eins og t.d.
raunhæf áhafnarstærðog út úr
þessum samanburði hefði
komið að núverandi varðskip
væru ódýrari í rekstri, þá væri
ekkert við þessu að segja. Eg
le.vfi mér að álíta að þessu sé
þveröfugt farið. Varöskipin
okkar eru afburða sjóskip og
björgunarskip í sérflokki. Að
visu vantar iill björgunartæki í
skipin og kom það fram í
skýrslu gerðri af
starfsmannafélagi Landhelgis-
gæzlunnar, sem send var
dómsmálaráðuneytinu 1972, og
mættu þingmenn kynna sér
hana. Glefsur úr skýrslu
þessari voru birtar í
Þjóðviljanum á sínum tima. En
við þurfum hraðbáta til að
spara núverandi varðskipum
yfirferð og til að nota í þeim
tilfellum þar sem þau eru of
svifasein.
Benedikt staðhæfði að ósk
um hraðbáta hefði fyrst komið
fram nú. Þetta er alrangt þvi sú
ósk var sett fram í fyrra
þorskastríði. Þá var rætt um
svokallaða Möltuháta. Þessir
bátar stóðu til boða til reynslu
hér áður en kaup yrðu ákveðin.
Ekki þótti forstjóra
Landhelgisgæzlunnar né
þáverandi dómsmálaráherra
ástæða til þess.
Jón Skaftason talaði um
hvernig nota mætti þyrlur
sendar frá varðskipum til að
staðsetja báta við
landhelgisbrot. Hann vitnaði í
mann hjá Gæzlunni sem hefði
tjáð honum erfiðleikana á því
að standa bát að verki. Þeir
væru oftast búnir að hífa þegar
að væri komið.
Þingmanninum er
augsýnilega ljóst að núverandi
skip eru svo svifasein í vissum
tilfellum. Ekki vill hann leysa
þennan vanda með hraðbátum
heldur þyrlum á
varðskipunum, sem sendar
yrðu og kæmu bátunum í opna
skjöldu. Ég leyfi mér að efast
um ágæti þessarar tillögu því
fram hjá eftirfarandi
staðreyndum verður ekki
gengið: Einu verkefnin, sem
litlu þyrlurnar hafa unnið,
þegar þær hafa verið um borð i
varðskipunum, eru
þjónustustörf við vita. Erfitt er
að lenda þvrlum á skipi á hafi
úti nema við mjög góðar
aðstæður. Það má t.d. benda
þingmönnunum á að kynna sér
mismun aðstæðna um borð í
íslenzku varðskipunum og
dönsku strandgæzluskipunum
hvað þetta varðar áður en þeir
koma fram með óábyrgar
fullyrðingar fyrir alþjóð.
Annars hafa þyrlukaup LHG
verið ein sorgarsaga frá
upphafi. í sambandi við þau
vakna spurmngar eins og: Hve
marga flugtíma eiga litlu
þyrlurnar, sem keyptar voru
frá Ameríku um árið að baki?
Hvað kostuðu þær og hve miklu
fé og vinnu hefur verið varið í
þær síðan þær komu til
landsins, fyrir utan
kaupverðið? Er von til þess að
farið verði að nota þær? Hvað
kostuðu radararnir sem settir
voru í þær?
Þó notkun þyrlu við
gæzlustörf yrði eitthvað
gæfulegri hér eftir en hingað
til, með tilkomu þeirrar nýju,
tel ég það ekki gefa tilefni til að
álíta að hraðbáta sé ekki þörf
eins og mér fannst mega skilja
á þingmönnunum. Varla hefðu
allir skipherrar Gæzlunnar
farið fram á slík tæki ef þeirra
væri ekki full þörf.
Eg skil ekki þessa voðalegu
viðkvæmni Benedikts fyrir því
ef rússar væru tilbúnir að lána
skip. Það var vægast sagt
broslegt að horfa upp á tilburði
hans. Rússar eru ein af okkar
stærstu viðskiptaþjóðum og ég
held að það sé sama hvaðan
skipin koma ef við fáum þau
kvaðalaust.
Eftir að hafa hlustað á
þingmennina hafði ég á
tilfinningunni að það sem þeir
væru að reyna að segja þjóðinni
væri að Gæzlan þyrfti enga
hraðbáta. Auk þess gáfu þeir í
skyn að þeir væru ónothæfir á
íslandsmiðum og studdu mál
sitt með þvi að hingað hefðu
komið brezkir hraðbátar á
sínum tíma sem ekki var hægt
að nota. Mig langar rétt að
benda á að þessir bátar voru
mun minni en þeir sem nú er
talað um, byggðir úr krossviði
og búið að jaskast á þeim meira
eða minna alla síðari
heimsstyrjöldina.
Gera þessir sérfræðingar úr
liði þingmanna sér fulla grein
fyrir stærð þeirra skipa, sem
skipherrar LHG óska eftir og
gætu þeir lýst fyrir alþjóð
stærð þeirra samanborið við
islenzku varðskipin? Þeir tala
um stærð þeirra í tonnatali. Þaó
má benda þeim á til gamans að
Ashville skipin eru álíka löng
og Öðinn og ef miðað er við
tonn eru þau 220 tonn en Óðinn
700.
Ég hefði talið að
varðskipsmenn okkar hefðu átt
annað betra skilið en
innantómt kjaftæði, úrtölur og
alvarlegar augnagotur og mér
finnst þingmennirnir tveir hafa
óbeint lýst yfir vantrausti á
skipherra Gæzlunnar með því
að láta í það skína að þau skip,
sem þeir fara fram á, séu
ónothæf á miðunum.
Hringið í síma 83322 milli
kl. 13 og 15 eða skrifið
Landhelgisgœzkui
véískólanema til Péturs
---------w--- -_____Sigurðssonar forstjóra
er gagnrym vero LandheSœn»nar
Við undirritaðir skrifum þér,
Pét ur Sigurðsson þetta hréf
vegna þess að við höfum fylgzt
með þvi sem hefur verið að
gerast að undanförnu hjá Land-
helgisgæzlunni og getum ekki
lérigur orða bundizt.
Það. að viö skrifum þetta
bréf einmitt á þessum tima, er
vegna þess að störf Landhelgis-
gæzlunnar eru nú i brennidepli
og einmitt nú koma ýmis atriði
i ljós sem okkur voru óljós eða
ókunn.
Aður en við hefjurn hið eigin-
lega bréf viljum við fara fram á
að svör þau er þú kannt að gefa
varðandi athugasemdir okkar
verði ekki eins og svar sem
Landhelgisgæzlan lét frá sér
fara nú fyrir skömmu.
1 einu dagblaðanna spurði
bréfrilari hvers vegna varð-
skipið Óðinn væri inni í Reykja-
víkurhöfn. Svarið var á þá leið,
að almenningur ætti ekkert
með það að gagnrýna Land-
helgisgæzluna. Einnig sagði i
svarinu: „Landhelgisgæzlan
hefur fleiri verkefnum að sinna
en að gæla útfærslu landhelg-
innar”. Að síðustu var þess
getið að Landhelgisgæzlan
segði aldrei frá hvaða verkefni
skipin ynnu hverju sinni!
Við erum sammála þvi að
ekki eigi að tilk.vnna um störf
skipanna Hverju sinni, en ekki
erum við sammála því að ekki
megi gagnrýna störf Landhelg-
isgæzlunnar.
H.já Landhelgisgæzlunni
virðast ýmsir hlutir geta átt sér
stað sem síöan eru þaggaðir
niður eða gerðar eru „falsfrétt-
ir” varðandi þá og einnig að
þaggað er niður i þeint er segja
sína skoðun á hlutunum.
Viljum við vitna í umrædda
f.vrirspurn. sem birtist i einu
dagblaðanna um inniveru varð-
skipsins Öðins, og í svar Land-
hclgisgæzlunnar við þessari
fyrirspurn, sem getið er fvrr,
og siðan vil.jum við biðja þig
Pétur Sigurðsson. að taka eftir.
Nú liður nokkur timi og varð-
skipiö Öðinn hcldur úr höfn. Þá
birtist i Þjóðviljanum (25.
marz) viðtal við Garðar nokk-
urn Pálsson. sem titlaður er
eftirlitsmaður hjá Landhelgis-
gæzlunni. /Etlum við að vitna í
viðtalið við Garðar Pálsson.
Ilann segir: „I>að er eðlilegt að
mönnum komi það undarlcga
l'yrir að vélar Oðins hili. eins og
raun hefur orðið á. rétt eflir að
skipið er komið úr stórviðgerð.
Hins vegar er rétt að taka það
fram, að sú viðgerð náði lítið til
vélanna." Síðan spyr blaða-
maður Garðar Pálsson um
vatnsþétt skilrúm sem sett
hafi verið i öðin. Garðar Páls-
son svaraði: ...að þegar soðið
væri kippti málmurinn sér
nokkuð. Á Öðni hefði það
k-omið í ljós að undirstaða undir
legu héfði l.vft sér um brot úr
millimetf'-a, en slikt hefði þau
áhrif að skekkja kærni á sveif-
arás. Ur þessu hefði verið bætt
og hefði Öðinn farið til gæzlu-
starfa.
Við viljum Iteina þvi til þín,
Pétur Sigurðsson, að bera sam-
an svar Landhelgisgæzlunnar,
sem vitnað er í fyrst og siðan
viötal blaðamanns Þjóðviljans
við Garðar Pálsson. Eru þetta
ekki „falsfréttir” eða kanntu
einhverja skýringu á þessu? Er
svarið sem Landhelgisgæzlan
lætur frá sér fara í fyrstu ekki
komið frá þér sem yfirmanni
Landhelgisgæzlunnar, og er
eitthvað að fela varðandi varð-
skipið Oðin?
Um svipað le.vti og varðskipið
Oðinn heldur úr höfn birtist i
einu siðdegisblaðanna „glanna-
stör" fyrirsögn. þar sem segir
að 1. vélstjóri á Oðni hafi verið
lækkaður í stöðu og fluttur yfir
á Árvakur.
Nú vitum við að þessi frétt
hefur við rök að styðjast og
þess vegna biðjum við þig,
Pétur Sigurðsson, að skýra
fyrir okkur hvers vegna þú
tókst þessa ákvörðun. Það er ef
til vill rétt sem við höfum
heyrt, að 1. vélstjóri hafi
kvartað yfir því að ekkert hafi
verið gert fyrir vélar Oðins
(þar með ekki sveigjumælt) og
þess vegna verið færður og
lækkaður í stöðu. Er ekki í
slíku tilfelli verið að þagga
niður í manni?
í áðurnefndu viðtali, sem
blaðamaður átti við Garðar
Pálsson, segir hann að varð-
skipið Oðinn sé nýkomið úr
stórviðgerð og hafi sú viðgerð
ekki náð til véla skipsins.
Varðskipið Öðinn er að vísu
nýkomið frá útlöndum. en að
urn stórviðgerð hafi verió að
ræða viljum við draga í efa.
Aðeins ytra útlit skipsins var
bre.vtt og köllurn við það breyt-
ingu en ekki viðgerð.
Það má vel vera að þú. Pétur
Sigurðsson, hafi fengið fé til að
framkvæma viðgerðir á skip-
inu. en það var ekki gert.
Okkur langar að spyrja þig
hvort það sé ekki rétt að áður
en skipið fór af stað til útlanda,
hafi staðið til að taka vélar
skipsins upp? Einnig viljum við
spyrja þig hvort ekki hafi legið
fyrir beiðni frá 1. vélstjóra um
ýmsar viðgerðir sem hann taldi
þörf á að framkvæma?
Um bre.vtingar þær sem
gerðar voru á varðskipinu Óðni
má segja margt, þvi farið var í
meginatriðum eftir teikningum
af Ægi. en þetta skip heitir
Óðinn og er nokkrum árum
eldra og sjá flestir að ekki
getur slíkt gengið. Einnig rná
nefna dæmi um fáránleikann
við bre.vtingar á Oðni. hvaða
heilvita rnanni dettur í hug að
staðsetja bensintank við afgas-
grein aðalvélar?
Blaðamaður spvr Garðar
Pálsson unt vatnsþétt skilrúm.
Þar svarar Garðar Pálsson því
til, að undirstaða undir
legu hafi breytt sér.
í Vélskólanum er okkur
kennt að ekki megi gangsetja
vél f.vrr en búið er að sveigju-
mæla sveifarásinn. ef um hugs-
anlega bre.vtingu er að ræða.
eins og Garðar Pálsson nefnir.
Nú var Oðinn inni vegna
þessa og er jafnvel búið að láta
vélina ganga svona i niarga