Dagblaðið - 08.04.1976, Qupperneq 4
4
DACíBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976.
Ásiglingarnar leiða til slysa
jaf nvel dauða manna
— sagði skipherra Diomede við komuna til Skotlands
Freigátan Diomede
aði" inn i höfnina í Uun-
fermline í SKotlandi 30.
marz, segir í The Times frá 31.
marz. Vöktu svöðusárin, er hún
hafði fengið í ásiglingum sínum
við Baldur, mikla athygli. Skip-
herrann lýsti viðureigninni við
Baldur fyrir fréttamönnum og
sagði þá m.a. að sögn blaðsins:
,,í hvert sinn er varðskipinu
tókst að sigla á okkur fagnaði
áhöfn þess og sýndi kæti sína.”
Skipherrann, McQueen, sagði
ennfremur: ,,Ég efast ekki um
að þessar ásiglingar voru
gerðar af ásettu ráði og þær
munu leiða til þess að alvarleg
slys hljótist af, jafnvel dauða-
slys."
Sérfræðingar hófu strax
skoðun á skemmdunum en ekki
var ákveðið hvort viðgerð færi
fram í Rosyth eða i heimahöfn
Diomede, Chatham. Freigátan
verður úr leik í nokkrar vikur,
segir blaðið.
Myndirnar sem The Titnes
birti frá komu Diomcde til
Skotlands. Efri m.vndin sýnir
götin á skipshliðinni. Hin
neðri sýnir skipherrann,
McQueen, við skemmdirnar
inni í freigátunni.
Fœrri útlendingar hingað en í fyrra:
Matur margfalt dýrari
hér en erlendis
Frá síðustu áramótum og út
marzmánuð fækkaði ferðamönn-
um sem komu til íslands um 6,7%
miðað við sáma tíma í fyrra.
Reyndum við að grafast fyrir,
hvað þessari fækkun ylli, með
eftirfarandi spurningu að leiðar-
ljósi: ,,Er Island að verða of dýrt
fyrir ferðamenn?”
Skýringin á því hve fækkað
hefur komu útlendinga til lands-
ins fyrstu þrjá mánuði ársins er
að flestra áliti sú að þar sé hálfs-
mánaðarverkfallinu í febrúar um
að kenna.
Ekki vildu hótelmenn kannast
viö að Island væri að verða of dýrt
ferðamannaland, að vísu væri
allur matur hér margfalt dýrari
en gerðist í nágrannalöndunum,
en þar kæmi á móti að gisting á
hótelum í Reykjavík er 15—20%
ódýrari en í sambærilegum
hótelum annarsstaðar.
Baráttan við að fá útlendinga
til íslands er afar hörð en virðist
þó vera farin að bera einhvern
árangur a.m.k. að surnri til. T.d.
eru nú þegar bókaðar um 30 ráð-
stefnur á Loftleiðahótelinu, yfir-
leitt af stærðargráðunni ,,100 her-
bergja ráðstefnur.”
Útlitið í ferðamálunum í sumar
er alls ekki svo slæmt, að vísu er
von á færri Könum og það helzt
álitið stafa af 200 ára afmæli
bandarísku stjórnarskrárinnar
sem halda á hátíðlegt vestra í
sumar. —BH
Með höfuðið
ó milli
vörubíls og
lyftara
Verkamaður við Reykjavíkurhöfn
varð fyrir þvi slysi við höfnina á
mánudagsmorgun að lenda með
höfuðið á milli vörubíls og lyftara.
Var farið með manninn beint í
sjúkrahús og meiðsli hans þar
könnuð, en þau munu ekki hafa
verið mjög alvarleg.
MINKAVEIÐI LÍTIL
UM ÞESSAR MUNDIR
engan veginn kostnaði að veiða
hann. Nú fást 1.500 krónur
fyrir hvert skott, sem er ekki
einu sinni nóg fyrir hálfum
bensínkostnaói minkaveiði-
manna við veiðarnar.
Blaðamaður spurði Tryggva
hvort hann hefði orðið var við
að aliminkar gengju lausir.
,,Ekki vil ég þvertaka fyrir
það,” svaraði Tryggvi. „Eg hef
skotið nokkra slíka, en ekki veit
ég frá hvaða búum þeir eru.
Það vill náttúrulega enginn
viðurkenna að minkár geti
sloppió út frá þeim.” —AT—
Starfsmaður óskast
Óskum eftir að ráða ungan reglusaman
mann til starfa frá 1. júní nk. við
eftirlit með mælingastöð og til að-
stoðar við rannsóknarstörf. Tækni-
menntun æskileg. Umsóknir með
upplýsingum . um menntun og fyrri
störf sendist Raunvísindastofnun Há-
skólans, Dunhaga 3, Reykjavík, fyrir 1.
maí nk.
„Veðrátta fyrir minkaveiði
hefur verið sérstaklega slæm
undanfarinn vetur. Veiðibogar
hafa verið svo til ónothæfir
vegna frosts og snjóa og einnig
hefur frostið hamlað því, að
hægt væri að nota hunda til að
rekja slóðir minkanna,” sagði
Tryggvi bóndi Einarsson í
Miðdal í samtali við Dagblaðið.
Tryggvi taldi að mink hefði
farið nokkuð fjölgandi að
undanförnu. Ástæður fyrir því
eru nokkrar, en einna mest slá-
andi er sú, að nú fæst svo 1-ítið
fyrir hvern mink að það svarar
Bezta óperan:
SÁLUMESSA VERDIS
„Sálumessa Verdis” er eitt af
þessum frægu klassísku verkum
sem stundum er minnzt á við
hátíðleg tækifæri. I kvöld
klukkan hálf níu og á laugardag-
inn klukkan tvö mun tækifæri
gefast til að heyra þessa sérstæðu
sálumessu í Háskólabíói. Er þetta
í annað sinn sem sálumessan
verður flutt hér á landi en í fyrra
skiptið var það árið 1968 sem hún
varfluttafi sömu aðilum og nú,
þ.e. Sinfóníuhljómsveitinni og
Fílharmoníukórnum, þá undir
stjórn Róberts A. Ottóssonar, en á
tónleikunum í kvöld og á laugar-
daginn er stjórnandinn Carsten
Andersen frá Noregi sem er
landsmönnum að góðu kunnur
fyrir fyrri afskipti sem hann
hefur haft af tónlistarmálum
þjóðarinnar. .Fílharmoníukórinn
var stofnaður árið 1958 og hefur
hann alla tíð starfað í samvinnu
vió Sinfóníuhljómsveit Islands,
stjórnandi kórsins á þessum tón-
leikum verður Jón Ásgeirsson og
hefur unnið að æfingu kórsins
allt frá því um miðjan janúar
fyrir þetta eina verk. Alls munu á
tónleikum þessum koma fram
tæplega 200 manns, ca. 65 manns í
Sinfóníunni, ca 120 I Fíl-
harmoníukórnum og fjórir ein-
söngvarar.
Verdi samdi sálumessu þessa
árið 1874, sama árið og Svein-
björn samdi ,,Ó guð vors lands.”.
Er það hald manna að sálúmessan
sé fjögurgust allra sálumessa og
tala menn um að þetta sé „bezta
ópera” Verdis, en óperubragð það
sem af sálumessunni er á ekki að
vera nema til þess eins að bæta
verkið. Verkið tekur i flutningi
rúmlega einn og hálfan tíma og
eru aðgöngumiðar seldir í bóka-
verzlun Lárusar Blöndal og Sig-
fúsar Eymundssonar. -BH.
KJÖTBORG
Páskaegg
Úrval stærða og gerða.
30% álagningarafsláttur.
Verzliö meðan úrvalið er mest.
Kjötborg sf.,
Búðargerði 10, sími 34945 og 34999.
Hluti flytjenda „Sálumessu Verdis” ásamt stjórnanda. F.v. Guðmundur Jónsson, Magnús Jónsson og
Ruth L. Magnússon sem eru einsöngvarar í verkinu, Ragnar Árnason varaformaður Fílharmoníukórs-
ins og Carsten Andersen hljómsveitarstjóri (DB-mynd. R.Th. S.)
Það gerist alltaf eitthvað
í þessari Viku:
64 síðna páskablað — Ásgerður Búadóttir vefari — Egill Jónasson hagyrðingur
Wessman sér um páskamatinn — Tvöföld páskakrossgáta — Fiskirœkt — íslensk