Dagblaðið - 08.04.1976, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1976.
17
Veðrið
Suðvestan kaldi og
súld eða rigning í fyrstu,
en breytist síðar í skúrir
eða slydduél. Heldur
mun rofa til í kvold.
Guðmundur Kristinsson verka-
maður, Kóngsbakka 11, lézt í
Borgarspítalanum 1. apríl. Hann
verður jarðsunginn frá Fríkirkj-
unni í dag. — Guðmundur var
fæddur í Reykjávík 22. janúar
1906, sonur hjónanna Kristínar
Guðmundsdóttur og Kristins
Gíslasonar trésmiðs. Á uppvaxtar-
árum Guðmundar átti þjóðin við
mjög kröpp kjör að búa, og varð
hann að loknu barnaskólaprófi að
fara að stunda ýmiss konar verka-
mannastörf, sem til féllu við
sjávarsiðuna. Árið 1941 hóf Guð-
mundur störf hjá Olíufélaginu
Shell, sem síðar nefndist Skelj-
ungur hf. Þar starfaði hann við
afgreiðslu olíuskipa og vakt-
mannsstörf til ársins 1969, er
hann varð að láta af störfum
vegna heilsubrests.
Guðmundur var frá unga aldri
eindreginn verkalýðssinni og
Alþýðuflokksmaður. Hann hvik-
aði aldrei frá þessari æskuhug-
sjón sinni. Þá var hann einnig
ákveöinn Nýalssinni og var þraut-
lesinn í fræðum dr. Helga Pjeturs
og annarra, sem fjölluðu um
skyld efni.
Árið 1929 kvæntist Guðmundur
Guðrúnu Elímundardóttur. Þau
eignuðust fjögur börn og tóku
auk þess eina fósturdóttur.
Guðrún lifir mann sinn.
Þorsteinn V. Fjeldsted bóndi,
Vatnshömrum, Andakílshreppi,
lézt 1. aprí. Hann verður jarð-
sunginn frá Hvanneyrarkirkju
10. apríl kl. 14.
Hörður Eydal, Hlíðargötu 8,
Akureyri, andaðist laugardaginn
3. apríl. Utför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju 12. apríl kl.
13.30.
Jón Sveinsson fyrrum bóndi að
Skárastöðum í Miðfirði, V-Hún.
lézt að heimili sínu, Torfufelli, 6.
apríl.
Þorsteinn Bjarkan lézt 6. apríl.
Sigrún Guðmundsdóttir frá ísa-
firði verður jarðsett frá Fossvogs-
kirkju 9. apríl kl. 13.30.
Matthildur M. Gísladóttir, Skóla-
vegi 27, Vestmannaeyjum, verður
jarðsungin frá Landakirkju föstu-
daginn 9. apríl kl. 14.
Indriði Heigason rafvirkjameist-
ari, Ráðhústorgi 1, Akureyri, lézt
25. marz. Hann verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 10. apríl.
Neskirkja
Föstuguðsþjónusta kl. 8.30. Séra
Frank M. Halldórsson.
Útivistarferðir
Páskar á Snæfellsnesi, gist á
Lýsuhóli, sundlaug, kvöldvökur.
Gönguferðir við allra hæfi um
fjöll og strönd, m.a. á Helgrindur
og Snæfellsjökul, Búðahraun,
Arnarstapa, Dritvík, Svörtuloft
og víðar. Fararstjórar Jón I.
Bjarnason og Gísli Sigurðsson.
Farseðlar á skrifstofunni,
Lækjargötu 6, sími 14606. Útivist.
Aðalfundur Knattspyrnu-
félagsins Hauka
verður haldinn í Haukahúsinu við
Flatahraun mánudaginn 12. apríl
og hefst kl. 8. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Kvennadeild styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra
heldur fund að Háaleitisbraut 13,
fimmtudaginn 8. apríl kl. 20.30.
Fró Kattavinafélagi
íslands
Fundur verður haldinn í félaginu
laugardaginn 10. apríl kl. 14 í
Tjarnarbúð niðri. Félagar eru
beðnir að mæta og nýir félagar
eru velkomnir á fundinn.
Samtök asma- og
ofnœmissjúklinga.
Tilkynning frá samtökum asma-
og ofnæmissjúklinga: Skrifstofan'
opin alla fimmtudaga kl. 17 — 19
í Suðurgötu 10, bakhúsi. Sími
22153. Frammi liggja tímarit frá
norrænum samtökum.
Hjólprœðisherinn
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Lautinant Enstad og frú
stjórna og tala. Mikill söngur.fjöl-
breytt efnisskrá. Allir velkomnir.
Fró
rauðsokkahreyfingunni:
Starfsmaður er við mánudaga kl.
5 — 7 og föstudaga frá 2 — 4.
Bahaitrúin
Kynning á Bahaitrúnni er haldin
hvert fimmtudagskvöld kl. 20.00
að Óðinsgötu 20. Bahaiar 1
Reykjavík.
Sýning Hans Richter
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
er opin daglega írá kl. 13.00 til
19.00 til 29. apríl. Hans Richter er
vel þekktur málari og grafiker,
sem og kvikmyndagerðarmaður.
Kvikmynd hans „Dreams that
Money Can Buy” er gerð árið 1946
og er löngu orðin heimsþekkt.
Þessi mynd verður sýnd kl. 21.00
6. apríl.
Klúbburínn: Dínamit, Eik og diskótek.
Sosar: Cabaret og diskótek.
Glœsibær:Galdrakarlar.
Óðal: DisTcótek.
Röðull: Stuðlatríó ásmt nektardansmeynni
Susan.
Sigtún: Fóstbræórabingó.
Templarahöllin: Bingó.
I
DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGÁBLAÐIÐ
SIMI27022
ÞVERHOLTI 2
8
i
Til sölu
8
Grásleppunet.
Til sölu nokkur grásleppunet.
Uppl. í síma 72203 og 2322.
Til sölu
vegna brottflutnings nýr 3ja sæta
sófi og 2 borð, 50x54 og 30x50.
Einnig til sölu nýr kjóll frá
Karnabæ, stærð 12/36. Tilvalinn
fermingarkjóll. Verð 5 þúsund.
Uppl. í síma 74515 eftir kl. 4.
Óska eftir að kaupa
2ja-3ja ára miðstöðvarketil, 2'A
ferm. ásamt brennara og dælu,
helzt háþrýstibrennara. Uppl. á
milli kl. 6 og 8 i dag herbergi 310
á Hótel Esju.
Skíði, reiðhjól.
Drengja- og stúlknahjól óskast,
einnig skíðaútbúnaður fyrir
stúlku. Uppl. í síma 66370 eftir
kl_. 5.
Til sölu
er fasteignatryggt skuldabréf til 6
ára að nafnverði kr. 600 þús.
Tilboð sendist til afgr. Dagbl.
fyrir 10. apríl merkt „Öruggt
15106”.
Hjólhýsi
6 manna hjólhýsi til sölu. Uppl. í
síma 92-8170 í Grindavík.
2ja manna svefnsófi
til sölu, nýuppgerður, á 25 þús-
und kr. og hjónarúm með tveim
náttborðum, verð kr. 30 þúsund.
Upplýsingar í síma 22752 eftir kl.
18 í dag og næstu daga. Til sýnis
að Vallarbraut 5, 1. hæð, Seltj.
Rafha eldavél
með grilli. sem ný, til sölu, einnig
Volkswagen árgerð ’64 og nokkur
drengjaföt á 3 þúsund kr. settið.
Öll ný. Sími 51457.
Húsdýraáburður til solu,
dreift úr ef óskað er. Góð
umgengni. Uppl. í síma 81793 og
42499.
Óskast keypt
Öska eftir að kaupa
nett sófasett á hagstæðu verði.
Upplvsingar í síma 75472 eftir kl.
4.
Pappírshnífur.
Lítill pappírshnífur hand- eða
mótordrifinn óskasl keyptur.
Plastprent h/f, Höfðabakka 9,
sími 85600.
Óska eftir að kaupa
júlí blað árg. ’53 af tímaritinu
Satt. Uppl. í síma 25179.
Óska eftir að kaupa
sem fyrst um það bil 150 stk. af
uppistöðum 1x4” 2.70 til 3 m
langar. Uppl. í síma 13374.
Í
Verzlun
8
Ódýr, samb.vggð bílaútvarps- og
segulbandstæki
fyrir átta rása spólur.
Bílahátalarar og loftnet. Póst-
sendi. F. Björnsson,
Radíóverzlun, Bergþórugötu 2,
sími 23889.
Töskur og hylki
fyrir kassettur og átta rása
spólur. Plötustafíf, segulbands-
spólur. Kassettur og átta rása
spólur, auðar og áteknar. F.
Björnsson, Radíóverzlun, Berg-
þórugötu 2.
Kápusalan, Skúlagötu 51
auglýsir bómullarnáttföt og
prjónasilkináttföt l'yrir ferm-
ingarstúlkur og eldri. Mikið úrval
af jökkum i ýmsum gerðum. Ódýr
bílateppi. Teryline- og ullarefni
Allt vönduð vara.
Kaupum af lager alls
konar fatnað s.s. barnafatnað,
kvenfatnað, karlmannafatnað og
prjónafatnað af öllu tagi. Sínii
30220.
Ilandunnar leðurvörur
Sérunnar eftir óskum hvers og
eins. Vönduð vinna á heiðarlegu
verði. Sími 82697.
Körfugerðin Ingólfsstræti 16.
Brúðuvöggur, vinsælar gjafir,
margar tegundir. Nýtízku reyr-
stólar með púðum, reyrborð,
barnavöggur, bréfakörfur og
þvottakörfur ávallt fyrirliggjandi.
Kaupið íslenzkan iðnað.
Körfugerðin, Ingólfsstr. 16, sími
12165.
Kjarakaup.
Hjartacrepe og Combicrepe nú
176 pr. 50 gr., áður 196 pr. hnota.
Af 1 kg pökkum eða meiru er
aukaafsláttur kr. 3000 pr. kg. 150
pr. hnotan. Nokkrir ljósir litir á
aðeins 100 kr. pr. hnota. Hof,
Þingholtsstræti 1, sími 16764.
Rauðhetta auglýsir.
Náttfötin komin, númer 20—26,
verð 690, frottégallar á 640,
bleyjur á 130 kr. stk., Borás'
sængurfatnaður 4800 settið.
Barnasængurfatnaður frá 1450.
Mikið úrval fallegra sængurgjafa.
Barnafataverzlunin Rauðhetta,
Iðnaðarmannahúsinu
v/Hallveigarstíg.
Fermingarkerti
servíettur, slæður, vasaklútar,
hanzkar, sálmabækur, gjafir.
Gyllum nöfn á sálmabækur og
servjettur. Póstsendum. Komið
eðá hringið milli kl. 1 og 6.
Kirkjufell, Ingólfsstræti 6, sími
.21090.
Í
Fyrir ungbörn
8
Pedigree
barnavagn til sölu simi 52094.
Sem ný barnagrind
til sölu. Verð kr. 6.900. Uppl.
sima 18882.
1
Vetrarvörur
8
Caber skíðaskór
til sölu nr. 43L. Uppl. i síma 16686
cftir kl. 7.
Tvennir skíðaskór,
sem nýir, númer 38 og 41 til sölu.
Uppl. i síma 31283 eftir kl. 16.40.
Fatnaður
8
Tækifærisverð.
Til sölu síður, brúnn kjóll, blá-
rósótt og grænköflótt dragt nr.
38—40. Önotað. Upplýsingar í
sima 73299 eftir kl. 17.
1
Húsgögn
8
Til sölu sófasett,
4ra sæta sófi, 2 stólar og sófaborð,
verð kr. 30 þús. Einnig Kenwood
strauvél. Uppl. í síma 44703.
Sófasett,
vel útlítandi, til sölu. Uppl.
37538.
Eldhúsborð og
fjórir stólar til sölu. Upplýsingar í
síma 20551.
Furuhúsgögn:
Til sýnis og sölu sófasett, horn-
skápar, vegghúsgögn, borðstofu-
sett, sófaborð o.fl. Opið á vinnu-
tíma og á laugardögum kl. 9—4.
Húsgagnavinnustofa Braga
Eggertssonar, Smiðshöfða 13,
Stórhöfðamegin. Sími 85180.
Klæðningar og viðgerðir
á bólstruðum húsgögnum.
Greiðsluskilmálar á stærri verk-
um. Símastólar í tízkulitum,
klæddir plussi og fallegum áklæð-
um. Hagstætt verð og greiðslu-
skilmálar. Bólstrun Karls Adólfs-
sonar, Hverfisgötu 18, kjallara.
Inngangur að ofanverðu. Sími
11087.
Nett hjónarúm
með dýnum, verð aðeins kr.
28.800. Svenbekkir og 2ja manna
svefnsófar, fáanlegir með stólum
eða kollum í stíl. Kvnnið ykkur
verð og gæði. Afgreiðslutími kl.
1—7 mánudag til föstudag.
Sendurn í póstkröfu um land allt.
Húsgagnaþjónustan,
Langholtsvegi 126. Sími 34848.
Smíðum húsgögn
og innréttingar eftir þinni
hugmynd. Tökum mál og’
teiknum ef óskað er. Seljum
svefnbekki, raðstóla og hornborð
á verksmiðjuverði. Hagsmíði hf.,
Hafnarbraut 1, Kópavogi. Sími
40017.
Í
Heimilistæki
8
Sjálfvirk þvottavél
í góðu standi til sölu. Sími 33897.
Frystiskápur til sölu
í skápnum eru þrjár hillur sem
lokast hver fyrir sig. Sími 25692.
Í
Sjónvörp
8
Gott Grundig Electronic
sjónvarpstæki, 2‘A árs, til sölu.
Sími 20551.
I
Til bygginga
8
Timbur, 4x4,
til Sölu. Upplýsingar í síma 26951
i
Bátar
i
Plastbátur tii sölu,
1414 feta. Einnig nýlegur 20 hest-
afla Johnsons utanborðsmótor.
Uppl. í síma 13389 eftir kl. 20.
Óska eftir
að taka 8-20 tonna bát á leigu eða
sem skipstjóri á Suðurnesjum á
handfæri. Tilboð sendist Dag-
blaðinu fyrir þriöjudag merkt
„Vanur 15047."
Til sölu 6—7 tonna
góður dekkbátur, smiðaður 1971,
ásamt 50 bjóðum, einnig nýlegur
2Vi tonna handfæra- og grásleppu-
bátur með dísilvél og stýrishúsi.
Uppl. í síma 21712 eftir kl. 8 í
kvöld og næstu kvöld.
12—30 tonna bátur
'óskast til kaups strax. Sími 30220.