Dagblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 08.04.1976, Blaðsíða 3
DAlíBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. APRlL 1976. 3 Helgi Skúli Kjartansson: Raddir lesenda ENN UM KJOR- DÆMIN KEPPA Helgi Skúli Kjartanssun skrifar Reykjavík, mánud. 5. apríl. Varla get ég farið að svara Pétri Gaut Kristjánssyni í sama tón og hann sendir mér í Dag- blaðinu í dag, en tv.ennt spyr hann mig um, sem ég vil gjarna að lesendur viti (og þeim til glöggvunar skal tekið fram, að við Pétur erum að deila um orðalag á spurningu, sem ég samdi, en lögð var fyrir hann í sjónvarpsþætti nýlega). Hann spyr, hver hafi nefnt vatnsorkuver, hvar og hvenær. Svar: Spyrjandinn, Jón Ásgeirsson, í áðurnefndum sjónvarpsþætti. Það aðgættum við Jón saman á myndsegul- bandsupptöku af þættum, áður en ég skrifaði athugasemd, sem ég kom með til Dagblaðsins að morgni 30. marz og birtist þar sem lesendabréf 2. apríl. Pétur furðar sig ennfremur á því, að ég skuli ekki fara rétt með þetta í Dagblaðinu áður, og mun hann þá eiga við frétta- klausu, sem blaðið birti 31. marz. Segir þar, að ég hafi „komið að máli við Dag- blaðið” og sagt þetta og hitt. Þessi frétt var ekki byggð á neinu viðtali við mig, heldur soðin, án minnar vitundar, upp úr athugasemdinni, þeirri sömu sem prentuð var tveim dögum síðar. Kom þá i ljós, eins og Pétur rak augun í, að uppsuðan var allt annað en orðrétt. Til þess munu liggja einhver hin dýpri rök blaðamennskulistar- innar, sem mér eru hulin, en ekki lái ég Pétri, þótt ruglingur þessi hafi komið honum, rétt eins og mér, dálítið á óvart. — vor stungið inn fyrir að grennslast fyrir um son sinn Hvers ó einstœður faðir að gjalda? Carl J. Eiríksson skrifar: „Fyrir nokkrum dögum gerðist sá atburður að einstæður faðir fór að húsi einu í Reykjavik til að tala við konu sem þar býr vegna þess að sonur hans hafði týnzt í nokkrar klukkustundir nokkrum dögum áður. Konan hefur viðurkennt að hafa tekið drenginn inn á heimili sitt án vitundar föðursins. Vildi hann nú grennslast fyrir um ástæðuna og hafði orðaskipti vió konuna í gegnum dyrasímann í húsi hennar Faðir drengsns hafði með sér mann sem vitni að þessum orðaskiptum. Konan talaði fyrst við mann- inn í tæpa mínútu, brá sér síðan frá, líklega til að hringja á lögreglu en kom síðan aftur i dyrasímann og talaði við manninn í 5 mínútur mánuði. Hvers vegna var ekki sveigjumælt strax þegar búið var að ganga frá þilinu? Hver tók þá ákvörðun að ekki skyldi sveigumæla sveifarásinn? Það skyldi þó ekki vera fyrrverandi skipherra sem gerði það? Okkur er ljóst, eftir því sem við höfum kynnt okkur málin hjá Landhelgisgæzlunni, að það sem þú, Pétur Sigurðsson, og eftirlitsmaður þinn haldið að Augnabliki eftir að sam- talinu lauk kom lögreglan á staðinn og handtók manninn og vitnið. Vitninu var þó sleppt fljótlega en faðir drengsins var settur í fangageymslu lög- reglunnar. Hann fékk ekki aðgang að síma né nokkurt sam- band við aðra en lögregluna í sjö og hálfa klukkustund. Taldi lögreglan að maðurinn hefði „ónáðað” konuna nokkrum sinnum með því að tala við hana í dyrasíma, vegna hvarfs sonar hans. Maðurinn hefur aldrei séð konuna né komið inn í hús hennar. Hann hefur átt í verulegum erfiðleikum vegna afskipta ákveðins fólks af drengnum. Fróðlegt væri að vita hvers vegna manninum var haldið í einangrun i sjö og hálfa klukkustund í stað þess að þið vitið um vélar og vélbúnað er að hann gangi af gömlum vana og helzt bezt og hraðast ef ekkert er gert fyrir hann. Þess vegna finnst okkur að tími sé kominn til að þú, Pétur Sig- urðsson, ráðir til þín vélaverk- fræðing, véltæknifræðing eða einhvern annan vélfróðan mann sem skilur og vill gera búnað varðskipanna þannig að ekki verði um stórtjón að ljúka strax yfirheyrslum. Þess má geta að þetta átti sér stað um kl. 10.15 fyrir hádegi. Tekið skal fram að hann var ekki Sjómaóur. ræða. Það er ekki nóg að hafa einhvern gamlan skipherra, sem hvorki veit né skilur þarfir góðs vélbúnaðar. Viljum við benda þér á að útgerðarfélög eins og Eimskip og SÍS hafa sérstaka vélfróða menn sem hafa umsjón með vélbúnaði skipanna hjá þeim. Það er annars furðulegt að stofnun eins og Landhelgisgæzl- an skuli ekki hafa slíka menn í þjónustu sinni, því vélar og vél- búnaður varðskipanna verður alltaf að vera í lagi. Það er að minnsta kosti skoðun almenn- ings í landinu. Það má vera að Landssmiðj- an hafi einhvern slíkan mann í sinni þjónustu sem gæti sinnt verðskipunum einnig. Einnig viljum við spyrja þig um þær skemmdir sem verða á varðskipunum. Hvernig eru skemmdir þær er verða á varð- skipunum metnar? Við spyrj- um um þetta vegna þess að í fréttum heyrir maður að annað hvort sé um „miklar” eða „litlar” skemmdir að ræða. Svo koma skipin í höfn og eru þá aðeins framkvæmdar bráða- birgðaviðgerðir á þeim. Varðandi þessi mál viljum við spyrja þig, Pétur Sigurðs- son, hvort þú hafir séð varð- skipin Þór og Baldur áður en þau hafa haldið úr höfn að undanförnu. Telur þú það eðli- lega stjórnun að senda skipin til gæzlustarfa aftur jafn löskuð og þau eru án þess að framkvæma eðlilegar viðgerðir á þeim áður? Ætlar þú, Pétur Sigurðsson, að taka ábyrgð á þoim mannslífum sem kunna ,i(t tapast vegna þess að ósjófær J.ip eru send i hálfgildings- lnrnað? undir neinum „áhrifum.” Það mun vera skylda lög- reglunnar að valda fólki sem minnstu óhagræði, þó var maðurinn fyrst settur I lítinn klefa þar sem hann fékk köfnunartilfinningu. Ekki þarf að taka það fram, að maðurinn varð fyrir vinnutapi allan þennan dag, án sýnilegrar ástæðu. Einnig viljum við spyrja þig, Pétur Sigurðsson, vegna frétta að undanförnu um för tveggja skipherra til útlanda þar sem þeir skoðuðu báta sem munu ganga allt að 28 milum. Er um seglbáta að ræða eða hvernig eru þessir bátar knúnir? Allir þeir bátar sem líkjast því sem við höfum séð myndir af í blöð- um eru fyrst og fremst með litlar yfirbyggingar, en vélbún- aður er stór og flókinn. Hefðu ekki verið nær í þessu sam- bandi, að senda t.d. einn skip- herra og einn vélfróðan mann til þess að kynna sér þessa báta? Hnjótum við enn um nauðsyn þess að ráðinn verði vélfróður maður til Landhelgisgæzlunn- ar. Að lokum viljum við kasta þeirri spurningu fram til þín, Pétur Sigurðsson, hvort rétt sé að þegar Garðar Pálsson skip- herra fór utan sl. sumar vegna breytinga á Öðni hafi Benedikt Guðmundsson stýrimaður verið settur vélaeftirlitsmaður Land- helgisgæzlunnar á meðan? Vonumst við eftir að þú, Pétur Sigurðsson, svarir okkur, en annars telum við nauðsyn- legt, að taka öll mál Landhelgis- gæzlunnar til sérstakrar athug- unar, þvi að þetta sem við erum að skrifa um er víst lítið brot úr mynd Landhelgisgæzlunnar og þess vegna geta leynzt margar vitleysur sem hlýtur að vera nauðsyn á að lagfæra og það strax. Virðingarfyllst Jón Itagnarsson, vélskólanemi. Kristján G. Kristjánsson vélskólanemi Varðskipið Oðinn í Alaboru — ekki var um neina viðgerð að ræöa heldur bre.vtingu á útnti skipsins, segja tveir vélskólanemar. I)lt-mynd bP ER PUSI í GRÆNAN GRÆÐI FÉLL Baldur veittí Bretum skell, bölvuðu þeir og illa Iétu, er Pusi í grænan græði féll, um gatið fræga á Díómetu. V Hefurðu kynnt þér hvaða skemmth kraftar koma hingað á listahátíð Sigurjón Halldórsson iðnnemi: Nei, það hef ég ekki. Ég hef ekki fylgzt með þessum hátíðum. Ólafur Geirsson: Já, að einhverju leyti. Eg er ánægður með Benny Goodman, en þekki ekki aðra. Jóhann H. Sigurðsson nemi í MR: Nei, ég fylgist ekki neitt með þessu. Ef ég mætti ráða mundi ég vilja einhverja góða popphljómsveit. Björn Brandsson bílstjóri: Nei, ekki annað en ég hef fengið vitneskju um af sjónvarpsþætti fyrir stuttu, þar sem forsvars- menn hátlðarinnar greindu frá því hverjir kæmu hingað. Jóhanna Hulda Jónsdóttir nemi í MR: Ekkert að ráði. Mér finnast þessar hátíðir vera of oft. Það ætti að láta líða lengra á milli og hafa þá betri skemmtikrafta. Stefanía Arna Marinósdóttir vinnur hjá Pósti og síma: Nei, ég hef ekki hugmvnd um hverjir koma hingað. Eg vildi helzt einhverja góða söngvara eða popphljómsveitir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.