Dagblaðið - 03.06.1976, Page 24
Utlendingar njóta vaxandi
forrétlinda á íslandsmiðum
frjálst, úháð daghlað
FIMMTUDAGUR 3. JTJNl 1976.
— fá að nota smœrri möskva og landa smœrri fiski, segir Auðunn Auðunsson, skipstjóri
Hassmálið á Spáni:
W
„FA ÞVIMIÐUR
ALDREIMINNA
EN SEX ÁR"
— segir rœðismaður íslands
Tvö íslenzk ungmenni,
Matthildur Guðmundsdóttir, 20
ára og Matthías Einarsson, 26
ára, sitja nú í gæzluvarðhaldi í
landamæraborginni Alceiras á
Spáni eftir að rúm 15 kíló af
hassi fundust í dekkjum bif-
reiðar þeirra. Hafa þau viður-
kennt að hafa ætlað að smygla
hassinu til íslands.
„Því miður verð ég að segja,
að þau sleppa sennilega ekki
með minna en sex ára
fangelsi,” sagði Marin Guðrún
Briand de Crevecoer,
ræðismaður Islands á
Malaga, í viðtali við Dagblaðið í
morgun. ,,Þó getur verið, að
stúlkan fái vægari dóm, því hún
er ekki orðin 21 árs ennþá.“
Marin Guðrún sagði, að hún
hefði þegar haft samband við
enskumælandi lögfræðing
og myndi hún fara og
heimsækja ungmennin i fang-
elsið einhverja næstu daga.
-H.P.
Laxinn að koma
í verzlanir
Fyrstu laxarnir fara nú
bráðlega að koma i verzlanir.
Kjötverzlun Tómasar á Lauga-
vegi 2 fékk í gær laxa frá Hvítá
í Borgarfirði og á næstunni
verður hann á boðstólunum
annars staðar.
Mörgum þykir lax heldur dýr
matur til að hægt sé að hafa
hann á boröum. Kilóið kostar
nú 1.000 krónur í heilu hjá
Tómasi. Þar er einnig til annar
fiskur — harðfiskur — í 100
gramma pakkningum. Hver
pakki kostar 225 krónur og er
þar af leiðandi kílóið á 2250
krónur. Það er því sýnu meiri
munaöur að naga harðfisk en
að leggja sér laxinn til munns.
— AT —
„Ég fæ ekki séð í nokkrum
samningum að útiendingar,
sem fá að veiða á Islands-
miðum, þurfi að fara eftir
íslenzkum reglum um möskva-
stærð um leið og verið er að
herða að okkur sjálfum hvað
það varðar,” sagði Auðunn
Auðunsson, skipstjóri á
togaranum Hvalbak, í viðtali
við DB í gær.
Hann sagði að útlendingarnir
væru með 120 mm möskva skv.
samþykkt NA-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar, íslenzku
togararnir væru nú með stærri
möskva í netum sínum, eða 135
mm, — og yrðu þeir að
líkindum stækkaðir upp í 150
til 155 mm í haust þannig að
munurinn væri 30 til 35 mm.
Auðunn benti á að það væri
orðinn alvarlegur aðstöðu-
munur hjá íslenzku togurunum
og þeim erlendu þegar þeir
íslenzku mættu ekki koma með
fisk að landi undir 50 cm um
leið og t.d. í Færeyjum fengjust
röskar 30 krónur fyrir fisk af
stærðinni 32 til 42 cm..
Að lokum sagði Auðunn ljótt
til þess að vita að nú væri verið
að semja við útlendinga um
áframhald þessara veiða, miðað
við að Bretar fengju að veiða
hér 70 til 80 þúsund tonn á
árinu yrði samanlagður afli
þeirra og annarra útlendinga
hér sjálfsagt ekki undir svona
150 þúsund tonnum, en það
þýddi að leggja yrði íslenzkan
sjávarútveg niður eftir hálft
árið. Miðaði hann þá við þær
hámarkstölur, sem talað er um í
svörtu skýrslunni, og að ekki
yrði skefjalaus rányrkja
stunduð hér á miðunum það
sem eftir væri árs. -G.S.
HILUR NU UNDIR
JARÐSTÖÐHÉR?
— samgönguróðherra skipar nefnd til að leita
samkomulags við Stóra norrœna símafélagið
„Núna öðruhvorumegin við
helgina geng ég frá stofnun
nefndar til að athuga frekar
samninga okkar við Stóra
norræna símafélagið með það
fyrir augum að stefna að
byggingu jarðstöðvar hér,“
sagði Halldór E. Sigurðsson
samgönguráðherra í viðtali við
blaðið í gær.
Halldór sagði að nefndin ætti
að freista þess að ná einhverju
samkomulagi við Stóra
norræna um framtíð þessara
mála, hann mundi ekki brjóta
samninginn við fyrirtækið._
Nefndin verður skipuð sér-
fræðingum á tæknisviðinu, lög-
fræðingum og mönnum til
könnunar á fjármálahliðinni.
Eins og áður hefur verið sagt
frá í blaðinu er stofnkostnaður
við að leggja nýjan kapal héðan
minni en bygging jarðstöðvar,
en skv. öruggum heimildum
munu útreikningar verk-
fræðinga tæknid. Pósts og
sima benda í þá átt að með
tímanum verði jarðstöðin hag-
kvæmari lausn en kapall. Yfir-
maður tæknideildarinr.ar vildi
ckki staðfesta þetta við blaðið,
en bar heldur ekki á móti þvi.
-G.S.
Alls munu hafa orðið 12
árekstrar í rigningarsuddanum
í Reykjavik í gær. — Sem betur
fer virðist enginn þeirra hafa
verið alvarlegur, en þó verða
ávallt tilfinnanlegar skemmdir,
þótt þær séu ekki af stærri
gráðunni.
Sveinn Þormóðsson ljós-
myndari tók þessa mynd af
árekstri þriggja bíla á Miklu-
brautinni í gær. Því miður tókst
okkur ekki að fá nánari upplýs-
ingar um hann né aðra árekstra
sökum annríkis hjá lögregl-
unni. Lögregluþjónarnir sem
rannsökuðu þennan árekstur
mættu til vinnu klukkan sex í
morgun, en laust eftir klukkan
níu hafði þeim enn ekki gefizt
tími til að gefa skýrslu um hann
sökum annríkis. — Árekstra-
súpan virðist því hafa haldið
áfram í morgun.
DB-rhynd: Sv. Þorm.
í nótt lagði 23 feta plastskúta upp frá Vestmannaeyjum í síðasta
áfanga siglingar sinnar frá Bretlandi, en þrír íslendingar sigldu
henni þaðan með viðkomu í Færeyjum. Hrepptu þeir einu sinni
óveður, en síðasti spölurinn tii Eyja var þeim mjög hagstæður. Þá
er nú önnur 23 feta seglskúla í hafi á leið hingað, einnig með þrem
íslendingum um borð og er hún væntanleg til Eyja hinn 8. júní nk.
Ferð þeirra tafðist eitthvað á írlandi vegna bilana, en nú er allt í
lagi. Þá er nautshúðabátur Timothys Severin einhvers staðar á
leiðinni hingað, en það eina sem vitað er um hann er að Slysavarna-
félagið fékk fyrir nokkru upplýsingar um útlit hans ef til ieitar
þyrfti að koma. Ljósm. — Ragnar Sigurjónsson. -G.S.
Þrjár skútur
á leið hingað:
Landinn á trefjaplasti,
Bretinn á nautshúðum
Mál tollvarð-
anna sent
saksóknara
— báðir lausir úr
gœzluvarðhaldi
Það var ekki talið nauð-
synlegt i þágu rannsóknar
málsins að halda mönnunum
lengur 1 gæzluvarðhaldi,
sagði Haraldur Henrýsson
sakadómari í viðtali við DB í
morgun af þvi tilefni að nú
er búið að sleppa báðum toll-
vörðunum sem voru í gæzlu-
varðhaldi vegna rannsóknar
á smyglmáli.
Haraldur vildi ekki segja
hvort játningar lægju fyrir
enn en málið snerist ein-
ungis um áfengissmygl, Tiu
til fimmtán manns hafa
verið yfirheyrðir vegna
þessa máls og bjóst
Haraldur við að málið yrði
fljótlega sent ríkissaksókn-
ara.
—G.S.
INNBR0Tí
FLÓABÁTINN
DRANG
Innbrot var framið í flóa-
bátinn Drang á Akureyri í
nótt. Þar var smávegis stolið
af gosdrykkjum og fleiru og
nokkrar skemmdir unnar á
hurðum.
Nokkru eftir að lögregl-
unni hafði verið tilkynnt um
innbrotið, handtók hún tvo
drukkna menn, sem eru
sterklega grunaðir um að
hafa átt hlut að máli. Er DB
hafði samband við lögregl-
una á Akureyri í morgun,
var enn ekki búið að yfir-
heyra mennina, en þeir nutu
gistiþjónustu lögreglunnar
og sváfu úr sér vímuna.
—AT—
í morgungðngu
ó náttf ðtum
einum klœða
Um níuleytið í morgun
var lögreglunni tilkynnt um
mann sem væri á ferð í
Skipasundi og væri öðruvísi
búinn en fólk ætti að venj-
ast. Er að var gáð kom í ljós
að þarna var maður á ferð á
náttfötum einum klæða.
Leið honum vel í morgunsól-
inni.
Manninum varð fátt um
svör er lögreglumenn inntu
hann erindis. Töldu þeir þá
hugsanlegt að maðurinn
væri frá Kleppi, en er
þangað kom vildi enginn við
hann kannast og þar losnaði
lögreglan ekki við hann.
Við nánari athugun kom í
ljós, að þarna var á ferð
maður sem í nótt hafði verið
tekinn fyrir ölvun við
akstur, en síðan leyft að fara
heim. Þar mun veizlan hafa
haldið áfram unz fyrrgreint
morgunævintýri batt enda á
hana.
— ASt