Dagblaðið - 10.07.1976, Blaðsíða 1
fijálst,
úháð
daublað
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, ^UGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 2702Z,
r ••
METHITIIHOFUÐBORGINNIIHEILA OLD:
24 STIG (SKUGGANUM!
— og þá þóttí
mörgum
baranóg um
..Fljótt á litið er þetta methiti.
Ljóst er að hiti hefur ekki
mælzt svona mikill á þessari öld
í Reykjavík. Hiti hefur mælzt
mestur 23,4 stig. Það var í júli
1950, en augljóst er að hitinn í
dag hefur farið yfir 24 stig,“
sagði Markús A Einarsson
veðurfræðingur i gær í viðtali
við DB.
Reykvikingar hafa áreiðan-
lega orðið greinilega varir við
að hitinn var óvenjumikill í
gær. Eflaust hafa þeir sem fóru
til vinnu í gærmorgun ekki gert
ráð fyrir þessunt ósköpum og
búið sig eins og venjulega,
rnjög vel, og fengið síðan ræki-
lega að kenna á því; verið að
kafna úr hita er leið á daginn.
..Þessi hiti er hluti af hlýja
loftinu sem berst frá Evrópu
núna,“ sagði Markús. Við erum
að öllum líkindum að stela hlý-
indunum frá Evrópubúum því í
dag mældist hiti 16 stig í Kaup-
mannahöfn, að sögn Markúsar,
og það gekk á með skúrum.
Hitinn kl. 6 f gærmorgun var
hærri en á venjulegum dögum,
eða 15 stig, og kl. 4, er þeir á
Veðurstofunni litu á mæla hjá
sér, sýndu þeir 24 stig, og það
jaðraði við að vera sól seinni
partinn, en hún náði samt ekki
að brjótast fram úr mistrinu.
Á Akureyri mældist 24 stiga
hiti kl. 3 í gærdag. ,,Það er
næstum því of heitt og fólk er
hér léttklætt eins og í suð-
rænum löndum," sagði Halldór
Lárusson á Hótel Akureyri er
DB hringdi í hann og spurðist
fyrir um veðurblíðuna þar.
„Veðrið er alveg sérstaklega
gott þótt ekki hafi verið sólskin
í allan dag. Það horfir mjög vel
hjá okkur í ferðamálunum, full-
bókað er núna, og talsvert er
bókað fyrir sumarið, þó ekki
enn alveg fullt,“ sagði Halldór
og bætti þvi við að veðursæld
væri yfirleitt mikil á Akureyri
á sumrinu og ekki verra að vera
ferðalangur þar.
„Ætli hitinn sé ekki svona
15—20 stig,“ sagði lögreglan í
Vestmannaeyjum þegar við
slógum á þráðinn þangað. „Það
er ekki að marka þennan hita
þarna hjá ykkur, þið eruð á
hitaveitusvæðinu," sagði lög-
regluþjónninn. Raunar mun sú
stétt manna hafa átt einna bág-
ast í hitanum í gær, svartur
búningur er ekki það ákjósan-
lega þegar hitinn fer vel yfir 20
stig.
í sólinni í gœr DB mynd
Ární Páll
Jón Ivarsson hjá Storr á Lauga-
vegi sýnir okkur hitamælinn
sem sveiflast upp í 24—25
gráðuriskugganum.
(DB-mynd R.Th.Sig.)
Hann Vigfús er orðinn niræður
og man vart annað eins
jgóðviðri, nema fyrir 20 árum
þegar hann bjó í Svínadalnum.
Hann var að slá í garði þing-
manna við Austurvöllinn i hita-
svækjunni
2. ARG. — I.AUG ARDAGUR 10. JULÍ 1976 — 149. TBL.
Bóndinn um harmleikinn í Stakkholti:
HANN FELL 0FAN
AF JEPPAÞAKI
Frá Atla Steinarssvni,
nesi, i gærkvöldi:
Borgar-
Sakadömur Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu héll áfram yfir-
heyrslum vegna dauða 13 ára
drcngsins i Slakkholti. Við-
staddur yfirheyrslurriar var
formaður barnaverndar-
nefndar, séra Leó Júliusson.
Sýslumaður, Ásgeir Pétursson,
tjáði fréttamanni I)B að vissir
þætlir málsins hefðu skýrzt í
dag en hann taldi að eftir helgi
mundi málið að fullu upplýsast.
Að öðru leyti vildi sýslumaður-
inn ekki t.iá sig unt yfirhc.vrsl-
urnar i dag.
Eftir
Dagblaðið telur áreiðanlegar,
mun bóndinn. sem nú situr í
gæzluvarðhaldi, hafa haldið því
fram að drengurinn hafi fallið
ofan af þaki jeppabifreiðar á
hlaði bæjarins. Hefði hann
hlotið dauða við fallið. I.ækna-
skýrslan telur aftur á móti eng-
an vafa á dauðaorsökinni sem
sé skotsár á höfði.
Ljót sjón i Keflavík:
Skildu
gœludýrin
ef tir í
lœstri íbúð
i heila viku
— baksíða
t '
Þau
koma
úr
hitanum
og komu kannski
með hann?
- bls. 7
-7