Dagblaðið - 11.08.1976, Side 1
trjálst,
dagblað
2. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1976 — 175. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022
InnbrotiðíÚtsýn:
Yfirvöld vilja skýringnr:
„Skýringa á þessum gjald-
eyri veröur óskaö,“ sagði
Siguröur Jóhannsson, forstööu-
maður gjaldeyriseftirlits Seðla-
bankans, í samtali við DB í
morgun um það erlenda fé —
lausafé og tékka — sem stolið
var í innbroti i ferðaskrifstof-
una Útsýn fyrir helgina. And-
virði gjaldeyrisins sem stolið
var er rúmlega ein milljón
króna.
„Ymsar skýringar eru hugs-
anlegar," sagði Sigurður enn-
fremur og benti á að Útsýn
ALLT A HREINU
annaðist til dæmis afgreiðslu
erlendra skemmtiferðaskipa og
farþegar þeirra greiddu oft
veitta þjónustu í gjaldeyri.
Ingólfur Guðbrandsson,
forstjóri Útsýnar, sagði í
morgun, að þarna hefði verið
um að ræða peninga, sem
nýlega hefði verið skipt fyrir
erlenda ferðamenn og einnig
gjaldeyri, sem Islendingar
hefðu' greitt fyrir ferðir sinar,
enda fengju þeir ekki að greiða
þessa þjónustu í islenzkum pen-
ingum.
„Töluvert af þessu var í
ferðatékkum,“ sagði Ingólfur,
„því auk skemmtiferðaskip-
anna höfum við einnig umboð
fyrir American Express og
skiptum slíkum tékkum, ef við
erum beðnir um. Það segir sig
sjálft, að ég get ekki sem um-
boðsmaður Tjæreborg hérlend-
is, neitað fólki að taka við pen-
ingum til að koma þeim til Dan-
merkur. Það er ekkert óeðlilegt
við það, að fyrirtæki sem hefur
jafnmikið umleikis og Útsýn,
hafi gjaldeyri í vörzlu sinni.“
Ingólfur sagði að um væri að
ræða danskar krónur, aðallega í
500 króna seðlum, sænskar
— segir Ingólfur
íÚtsýn
krónur — þar á meðal þrjá
þúsund króna seðla, norskar
krónur, aðallega í hundrað
króna seðlum, bandarlska dali,
þýzk mörk og svissneska
franka, aðallega í feröatékkum.
Fólk ætti því að vera vart um
sig, ef það verður vart við óeðli-
legt framboð á erlendum gjald-
eyri — einkum í fyrrnefndri
mynt. Þá hefur ferðaskrifstof-
an Útsýn heitið sólarlandaferð
fyrir tvo fyrir þær upplýsingar
, sem leiða til handtöku þjófs-
ins og upplýsingar innbrotsins.
— ov.
Bannó
yfir-
vinnu á
gjör-
gœzlu-
deild
Ánœgjuleg stund í Árbœjarkirkju
Þær skriktu litlu systurnar,
Lovísa Hildur. 4 ára, og Helga
Kristín, 7 ára, þegar séra
Halldór Gröndal blessar þá
yngri með vígðu vatni.
Óvenjuleg athöfn fór fram í
Árbæjarkirkju þennan dag,
litlu systurnar tvær voru
skírðar og eldri systur þeirra
voru fermdar. Við segjum
nánar frá þessum ánægjulega
viðburði.
DB-mvnd — Bjarnieifur.
— bls. 8
/
„Við höfum alltaf verið í
vandræðum með starfsfólk til
að leysa af í sumarleyfum, svo
er einnig nú, og þess vegna
hefur verið mikil yfirvinna hjá
starfsfólkinu," sagði Haukur Þ.
Benediktsson framkvæmda-
stjóri Borgarspítalans í samtali
við DB I morgun.
Vegna þessa mikla álags hafa
hjúkrunarfræðingar á Gjör-
gæzludeild sjúkrahússins tekið
upp yfirvinnubann sem staðið
hefur nú um skeið. Flutt hefur
verið starfsfólk milli deilda til
þess að hægt hafi verið að sinna
sjúklingum sem skyldi. Haukur
kvaðst mundu vænta þess að
þetta ástand lagaðist þegar að
loknum sumarleyfum. Meðan
skortur á hjúkrunarfólki væri
við lýði, þá mætti búast við
svona ráðstöfunum. Fjölgun
hjúkrunarfræðinga væri brýn
en eins og kunnugt er vantar
starfsfólk á margar deildir
sjúkrahúsanna í Reykiavík.
KP.
Hœpið að
bora
ófram við
Kröflu
Sjá baksKu
Kannski
fékkstu glaðn-
ing í happ-
drœttunum
núna???
Sjá bls. 4
„Kálaunamennirn-
ir" hafa 30-65
prósentum lakari
laun en geristá
frjálsum markaði
Sjá kjallaragrein
Jóns Hannessonar
bls. 10
Síðasta
sólsetrið í
Tel-AI Zaatar
búðunum
Sjá erl. f réttir bls. 6-7