Dagblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 11.08.1976, Blaðsíða 3
DAC'iBLAÐIl) MIÐVIKUDAC.UR 11. AUUST 1976 3 Húsmóðir í Árbæjarhverfinu hringdi: Hvers vegna í ósköpunum er alltaf verið að hringla með leiðakerfið hjá strætó. Nú í sumar var leið nr. 10 breytt og það var ekki haft fyrir því að auglýsa það. Arbæjarvagninn ók um Rofabæinn og farþcgar með vögnunum gátu verið í góðu skjóli fyrir veðri og vindum meðan þeir biðu. En þá var tekið upp á því að breyta leiðinni og nú ekur vagninn um Suðurlandsveg. Þangað þurfa nú íbúar hverfisins að fara til að komast í vagninn. Við þurfum að ganga yfir grasið meðfram veginum og nú þegar hafa myndazt slóðir eftir veg- farendur. Hvers vegna í ósköpunum er verið að eyða í að fegra umhverfið þegar stuðlað er að því með stað- setningu biðstöðva strætó að það verði eyðilagt? Áður en þessi breyting varð notfærðu íbúar hverfisins sér vagninn til að ferðast á milli staða innan hverfisins. Nú er búið að koma í veg fyrir að það sé hægt. Ef þessi breyting er gerð fyrir þá sem vinna í iðnaðar- hverfinu þá er verið að gera hana fyrir mjög fáa á kostnað fiölda manna sem búa í Arbæjarhverfi. Hvers vegna eru vagnstjórarnir ekki spurðir álits þegar breytt er um akstursleiðir? Þeir og engir aðrir hafa þekkingu á þessu og þeir geta einir komið réttri mynd á framfæri við stjórn- endur. Forráðamenn vita ekkert um það hverjir ferðast með vögnunum. Eg er viss um að þeir hafa ekki tekið sér far með almenningsvagni í mörg herraris ár. Hvernig væri að þeir breyttu nú til og ferðuðust með strætó. Þá hefðu þeir vit á því sem þeir tala um. Þá gerðu þeir ekki breytingar út I hött, eins oe gert er nú. Ef forráðamennirnir fengju sér far mundi leiðakerfið batna. Ef forráðamennirnir fengju sér far Fjöldahreyf ing fer af stað gegn lokun mjólkurbúða Neytandi skrifar: Að undanförnu hafa þær raddir gerzt æ háværari sem andmælt hafa lokun mjólkur- búða og er það skiljanlegt þar eð hér er um hagsmunamál að ræða bæði fyrir afgreiðslu- stúlkur í brauð- og mjólkur- búðum og neytendur. Nokkuð hefur þó skort á að sjónarmið neytenda hafi komið fram á opinberum vettvangi. Lokun mjólkurbúða mun þýða færri útsölustaði fyrir mjólk og brauð þar eð margir smákaupmenn munu ekki geta tekið mjólkurvörur til sölu vegna plássleysis og/eða fjár- skorts. Af þessu mun leiða verri þjónusta við neytendur (lengra á milli útsölustaða). Ennfremur tapa smákaup- mennirnir á þessari lokun. Mjólkurbúðirnar eru víða við hliðina á verzlunum smákaup- manna og ef þeim verður lokað dregur úr viðskiptum við þá. Nú þegar standa smákaupmenn i harðri samkeppni við stór- markaðina og mega þeir því sízt við þessari lokun. Ljóst er því að einokun stórverzlana eykst og æ fleiri smákaupmenn leggja upp laupana. Afleiðingin gæti orðið sú að KRON og ör- fáir stórmarkaðir næðu algerri einokun á matvöruverzlun í borginni og hver trúir þvi að verð á matvörum myndi lækka við það. En hér erum við e.t.v. komin að kjarna málsins, þ.e.a.s. tengsl KRON og þar með SlS við Mjólkursamsöluna sf. Flestir landsmenn gera sér grein fyrir sívaxandi einokun SÍS auðvaldsins hér á landi og jafnvel erlendis. SÍS auðvaldið sér að miklu hagkvæmara er að hafa mjólkurvörur í stórmörk- uðum KRON heldur en að hafa litlar mjólkur- og brauðbúðir dreifðar um alla borgina í nábýli við smákaupmenn. Því grípur SÍS auðvaldið til þess ráðs að ganga á milli bols og höfuðs á smákaupmönnunum með þvi að koma öllum mjólkurvörum inn í stórmark- aði sína og annarra álika auð- fyrirtækja. Lokun mjólkurbúða er þvi tilræði við smákaup- mennina. í því skyni svífst SÍS, stærsti auðhringur á Islandi, einskis. Til dæmis eru viðvar- anir borgarlæknis um lakara hreinlæti og þar með lakari vörugæði látnar sent vindur um eyru þjóta. Engu máli er talið skipta þó að gamla fólkið þurfi að staulast langa leið í búðir til að kaupa brýnustu lífsnauð- s.vnjar. Og ekki tekur SÍS það nærri sér þó að 167 afgreiðslu- stúlkur verði atvinnulausar. ASÍ-forustan þegir þunnu hljóði yfir þessunt fjöldaupp- sögnum enda er helzti draumur hennar að fallast i faðma með SÍS auðvaldinu og byggja nýjan stórmarkuð inn við sundin blá. Kn verkafólkið horfir ráðþrota á og sér ekki lengur mun á ASÍ forustunni, burgeisunum i Vinnuveitendasambandi Is- lands og Vinnumálasambandi samvinnufélaganna. Að lokum þetta: Fjölda- hreyfing er að fara af stað gegn lokun mjólkurbúða. Þar standa saman afgreiðslustúlkur i brauð- og mjólkurbúðum og neytendur. Og að gefnu tilefni skal tekið fram að stjórn ASB stendur einhuga gegn lokun mjókurbúða þó að Þjóðviljinn, málgagn annars helzta stuðningsflokks SÍS auðvalds- ins, hafi reynt á lævísan hátt að kljúfa stjórn ASB frá almenn- um félagskonum. Efþú œttir eina ósk, hver mundi hún verða? Sigríður Ándrésdóttir, 9 ára: Eg vildi að það yrði gott veður í Svíþjóð þegar ég fer þangað bráðum. Unnar Ingimundarson, 10 ára: Eg mundi óska mér ferð til Kanaríeyja. Mig langar svo mikið til að koma þangað. Guðmundur Halidórsson, 11 ára: Ég mundi vilja fara aðra ferð með pabba mínum á Ljósafossi. Hann er fyrsti stýrimaður. Friðrik Gestsson, 5 ára. Eg mundi vilja fara til Ameríku i ofsa stórri flugvél. Þær fara alveg ógurlega hratt ogJiátt upp í loftið. Haraldur og Gunnlaugur Reynis- synir. 9 ára: Haraldur (t. vinstri): Eg vildi fara til Spánar eða eitthvað til útlanda. Gunnlaugur. Ég myndi sko óska ntér að fá hest. Sigmar Armann Sigurðsson. 12 ára: Eg mundi vilja flottasta og hraðskreiðasta bil i heimi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.