Dagblaðið - 11.08.1976, Page 15
15
DACIll.Atmi .MH)VIKi;i)'.\(;iIÍ{ Íl. ACUST 1!I7(>
AUDREY HEPBURN SNÝR AFTUR
Átta ár eru nú liúin síúan
Audrey Hepburn lék i síöustu
kvikmynd sinni. En nú hefur
hún ákveöið að hefjast handa á
nýjan leik og það í kvikmynd-
inni Robin og Marian. En sú
mynd fjállar um líf útlaganna í
Skírisskógi.
Móttökurnar hafa verið
ámóta og þegar prinsessa snýr
aftur eftir að hafa þurft að yfir-
gefa land sitt.
Audrey segir að það sé varla
hægt að tala um að hún sé að
snúa aftur, þar sem aldrei hafi
verið ákveðið að hún léki ekki
framar. En hún sagðist ekki
hafa leikið um skeið þar sem
fjölskyldan þarfnaðist hennar
og hún fjölskyldunnar. Og þar
hafi verið ólíkt meiri þörf fýrir
móðurina heima en leikkonuna
á hvíta tjaldinu.
Eldri sonur hennar er nú
tæplega tvitugur og sá yngri er
rétt að byrja í skóla.
Audrey Hepburn heldur sér
ákaflega vel enda þótt hún sé
orðin 47 ára gömul. Hún er með
á hvíta tjaldið
smáhrukkur við augun en fátt
annað gefur aldur hennar til
kynna. Audrey er alltaf jafn
mögur og berst hatrammri bar-
áttu við það að fara ekki niður
fyrir 48 kíló.
Hún segist vera ánægð í
hjónabandinu og segir að ekk-
ert sé að marka slúðursögur um
framhjáhald eiginmannsins.
Hann er ítalskur geðlæknir að
nafni Andrea Dotti. En sögur
halda áfram að fara á kreik um
það að Dotti sjáist í fylgd með
yngri konum. Hún lét þær ekk-
ert á sig fá og hélt áfram að lesa
þau kvikmyndahandrit sem
henni voru send. Fyrsta hand-
ritið sem hún sýndi verulegan
áhuga var að myndinni Marian
og Robin. Og loks kom að því að
henni fannst vera tími til
kominn að fara aftur að leika.
Að vísu liðu 2 ár áður en
myndataka hófst, en Audrey
beið bara róleg, staðráðin í því
að þetta væri rétt hlutverk
fyrir hana. Og segja má að biðin
hafi verið til einhvers þrátt
fyrir misjafna dóma þeirra sem
fylgzt hafa með myndinni.
Audrey Hepburn segir að
mikil þörf sé fvrir kónur sem
viljaleikaí kvikmyndum kven-
persónur sem séu komnar yfir
miðjan aldur. Alltof margar
leikkonur sem komnar eru yfir
fimmtugt vilja leika ungar
stúlkur.
En hún er sem sagt komin
aftur á hvita tjaldið þar sem
hún á heima. Og Audrey flytur
með sér þessa einstöku sam-
blöndu af glæsileika og mál-
snilld. Vonandi líður ekki á
löngu þar til íslenzk kvik-
myndahús taka þessa mynd til
sýningar.
r™....
Bólstrun Harðar Péturssonar
í því tilefni veitum við 1 A O/
IV /O aukaafslátt
af f ramleiðsluvörum okkar þessa viku
t
i
Sem dæmi:
Sófasett sem kostar kr. 295.000.-
Fæst gegn staðgreiðslu fyrir kr. 238.950.-
s______/
lúsgögn
2ja m svefnsófi sem kostar 79.800.-
Fæst gegn staðgreiðslu fyrir kr. 64.638.-
A
10% afsláttur á húsgögnum gegn afborgunum
10% afsláttur á húsgagnaáklæði.
10% afsláttur á húsgagnaleðri.
Grensásvegi 12, sími 32035.