Dagblaðið - 11.08.1976, Page 24
Sveinbjörn Björnsson, jarðeðlisf rœðingur:
FJÁRHAGSLEG ÁHÆTTA AÐ
BORA ÁFRAM VK> KRÖFLU
- vaxandi jarðrask kann að spilla holunum
„Eg lít svo á að það sé verið
að taka áhættu, miðað við jarð-
fræðilegar aðstæður, að leggja
kapp á boranir við Kröflu og ég
tel víst að ef verið væri að hefja
kannanir á virkjunarmögu-
leikum þar nú, yrði talið hyggi-
legra að bíða og sjá hverju
fram yndi,“ sagði Sveinbjörn
Björnsson, jarðeðlisfræðingur
við Hí, í viðtali við DB í gær.
Miðað við versnandi
jarðfræðilegt ástand taldi hann
einnig að verið væri að taka
fjárhagslega áhættu. Líklegt
mætti teljast að frekara jarð-
rask yrði á svæðinu og hugsan-
lega kynni það að skaða bor-
holur, en nú eiga tveir stærstu
borar landsins að bora þar af
kappi. Þá væri ekki loku fyrir
það skotið að gos kynni að
brjótast út og í versta tilviki að
geysileg fjárfesting og dýr-
mætur tækjakostur á staðnum
færi forgörðum.
Þrátt fyrir versnandi jarð-
fræðilegt ástand á svæðinu
síðan í marz sl., svæðið hafi
hækkað um 6 mm á dag síðan
og skjálftavirkni aukizt, vildi
Sveinbjörn ekki leiða neinar
líkur að hugsanlegu gosi, en
sagði að nú væri fylgzt eins
náið og hægt væri með öllum
skjálftum og hugsanlegum
breytingum.
— G.S.
Lokun mjólkurbúða
Kemur verst
níður á
gamla fólkinu
Stofnaður hefur verið svo-
kallaður „Starfshópur gegn
lokun mjólkurbúða“. Berst
hann gegn þeirri ákvörðun
Mjólkursamsölunnar að leggja
niður mjólkurbúðir sínar á
StórReykjavíkursvæðinu frá 1.
febrúar 1977.
Við slíka ráðstöfun munu 167
konur tapa atvinnu sinni og
áunnum félagslegum réttind-
um. Þær hafa að vísu fengið
vilyrði um vinnu hjá Kaup-
mannasamtökunum, en það
mun aðeins leysa vanda örfárra
stúlkna, og þá að öllum líkind-
um þeirra sem greiðastan
aðgang eiga að vinnumarkaðn-
um, yngstu kvennanna.
Einnig er talið að lokunin
muni hafa í för með sér verri
þjónustu, sem mun aðallega
koma niður á gömlu fólki og
láglaunafólki sem býr í gömlum
bæjarhlutum og hefur ekki bíl
til umráða.
t starfshópnum sem skipu-
leggur baráttuna gegn lokun-
inni eiga sæti 4 starfsstúlkur og
3 úr hópi neytenda. Starfs-
hópurinn hefur nú boðað til
fundar, sem verður haldinn í
Lindarbæ fimmtudagskvöldið
12. águst og mun hann hefjast
kl. 20.30. Hann verður opinn
öllum þeim sem leggja vilja liö
þessu málefni.
— KL
Stúlkurnar í mjólkurbúðunum
munu missa vinnu sína, — lík-
lega reynist það mörgum þeirra
erfitt að fá aftur vinnu, einkum
þeim eldri. (DB-mynd Bjarn-
leifur).
Af hverju
ekki mótor
á bóti lög-
reglunnar?
Bóturinn œtlaður til
bjargano úr höfnum
— segir Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn
Innbrot reynd
í Haf narfirði
Innbrot var framið í Fisk-
iðjuverið í Hafnarfirði í nótt.
Var þar brotin rúða í útihurð
og Önnur i hurð inn til verk-
stjóra. Engu var þarna stolið
að séð verður, enda fé þar ekki
liggjandi. Allmikið var rótað
til.
Þá var gerð tilraun til
innbrots í Fjarðarkaup. Þjófa-
bjöllur fóru í gang þá er
þjófarnir komu inn. Töldu þeir
þá ráðlegast að flýja enda stutt
í það að komið væri á vettvang.
-ASt.
Stólu sér harð-
fiski til að
seðja hungrið
Tveir aðkomumenn gerðust
svangir á Akranesi í gærdag.
Hugðust þeir sjálfir ganga
fram í að seðja sárasta hungur
sitt. Það nærtækasta var harð-
fiskur og stálu þeir sér slatta í
poka. Siðar voru þeir staðnir
að hnupli í skipi.
Lögroglan tók þá í sína
vörzlu og voru þeir inni i nótt
þar sem þeir voru undir
áhrifum áfengis. í morgun-átti
að yfirheyra þá. — ASt.
„Litli gúmmíbáturinn er
fyrst og fremst ætlaður til að
bjarga fólki úr höfnunum og
skapa öryggi við þær aðgerðir
með því að lögreglumenn þurfi
ekki að synda eftir fólki, en sé
um bjarganir utan hafnanna að
ræða hefur lögreglan samband
við hafnsögumenn eða tollgæzl-
una, sem á bát, og fær undan-
tekningarlaust aðstoð þeirra
aðila við bjarganir," sagði
Óskar Ólason yfiriögregluþjónn
í viðtali við blaðið í gær.
Tilefnið að spjallinu við
Óskar var að sl. sunnudag féll
maður í sjóinn við smábáta-
höfnina í Elliðaárvogi og barst
hratt út voginn á kili smákænu.
Lögreglumenn brugðu skjótt'
við og hrundu á flot gúmmí-
bátnum sem Slysavarnafélagið
gaf lögreglunni fyrir nokkrum
árum, og hugðust róa mann-
inum til hjálpar. Skv. tveim
öruggum vitnum er allsendis
ovíst hvenær eða hvort lög-
reglumennirnir hefðu náð þeim
er rak, því þeir réðu lítið við
bátinn í miklum vindi og
erkum straum, enda reka
lir gúmmíbátar ótrúlega
undan vindi og snúast.
Eins og fram kom, björguðu
-skipverjar af Perlunni hinum
rekandi manni. Vitnunum
tveim bar saman um að lög-
reglumennirnir á gúmmíbátn-
um hefðu fljótlega dregið
manninn uppi ef báturinn
hefði verið með utanborðs-
mótor, en báturinn er gerður
fyrir að geta borið mótor. Hann
er hins vegar ekki til.
Óskar sagði að ef lögreglan
ætti að sjá eingöngu um bjarg-
anir hér umhverfis, þyrfti hún
að sjálfsögðu fullkominn búnað
til þess, hann væri ekki fyrir
hendi og því væri fyrrnefnt
fyrirkomulag notað. —G.S.
Skipverjar á Perlu komu og björguðu manninum, þegar lögreglu-
bátinn rakeitthvað út á sundin. títilokað var að stjórna bátnum í
hvassviðrinu án vélarafls. (Sv. Þorm.)
frjálst, nháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1976
REYNDU AÐ
STELASÉR
BIFREIÐ
Tveir ungir pilar voru hand-
teknir er þeir voru staðnir að
þvi að reyna að stela bifreið úr
húsi við Suðurgötu. Annar
þeirra var á þeim aidri, að
hann var fluttur í Upptöku-
heimilið í Kópavogi. Hinn
fékk gistingu hjá lögreglunni.
—ASt.
fangabyssu að
fólci og bömum
Tvívegis í gærkvöldi fékk
Kópavogslögreglan kvörtun
yfir manni, sem hefði byssu í
höndum og væri að miða að
fólki og börnum. Bárust
kvartanirnar kl. 20.20 og aftur
kl. 23.20.
í síðari skiptin fann lög-
reglan manninn sem ekki
reyndist ölvaður. - Játaði hann
að hafa miðað byssunni að
fólki. En byssan var ekki
hættuleg, heldur algeng leik-
fangabyssa ætluð börnum. Var
hún meira segja gömul og hálf-
löskuð orðin.
Ekki var talin ástæða til að
handtaka manninn, en hann
fékk alvarlegt tiltal og byssan
var tekin af honum. Atburður
þessi gerðist í Hvömmunum,
en þar telst þessi maður til
heimilis.
—ASt
MIKIL ÖLVUN
MIÐAÐ VIÐ
MIÐJAVIKU
Allmikið var um ölvun í
Reykjavík í gær og í nótt.
höfðu lögreglumenn tölu-
verðan eril af og fengu óvana-
lega margir gistingu í Hverfis-
steini af þessum sökum miðað
við miðja viku. Lögreglan
hér skiptir sér meira af
drukknu fólki en erlendis er
gert af lögregluyfirvöldum.
Þar er slíkt fólk oft látið af-
skiptalaust. Veðrátta og hita-
stig hér býr þessu fólki hér-
lends hins vegar mikla hættu.
Meðal þeirra sem lögreglan
hafði afskipti af var utan-
bæjarkona sem kom í hús hér í
borginni með tvö börn sín.
Gerðist hún drukkin og var
leitað aðstoðar lögreglu, sem
kom henni til venzlafólks.
—ASt.
Lézt ón þess
að komast til
meðvitundar
Gamli maðurinn sem varo
fyrir bifreið á Snorrabraut á
mánudaginn er látinn. Hann
komst aldrei til meðvitundar
eftir slysið og lézt í gjörgæzlu-
deild Borgarspítalans eftir
hádegið í gær.
Maðurinn hét Þorsteinn
Magnússon og var 84 ára
gamall.
-ASt.