Dagblaðið - 01.09.1976, Síða 3
DACBLAÐIÐ. — MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTF.MBKK 197H.
N
W #• W
ifiora
Lcsandi úr Grundarfirði sendi
DB eftirfarandi:
Vegna skrifa undanfarið um
slakan árangur frjálsíþrótta-
fólks okkar langar mig aó
koma eftirfarandi á framfæri.
Fyrir skömmu var haldið
meistaramót íslands í frjálsum
Raddir
lesenda
hluta
íþróttum í drengjaflokki á
Akranesi. Þar var meðal annars
keppt í 4x100 metra boðhlaupi
drengja. Önnur verðlaun í þess-
ari keppni var skjal nokkurt.
Það var rifið í fjóra hluta og
fékk hver keppandi sinn part.
Drengirnir fóru því til síns
heima með sitt pappaspjaldið
hver!! Það er ekki furða þó
áhuginn dofni dálitið, þegar
viðurkenningarnar eru af
þessu tagi.
Mér finnst þetta alveg for-
kastanlegt og það ætti svei mér
að verðlauna þann, sem datt
þetta snjallræði í hug. Hugsið
ykkur: fjórði partur úr pappa-
„spjaldi!!!
Hjá íþróttafélagi úti á landi
var haldið innanfélagsmót í
frjálsum íþróttum fyrir
skömmu. Keppt var i öllum
aldursflokkum í hlaupum,
stökkum og köstum. Veittir
voru verðlaunapeningar fyrir
fvrsta sætið'í öllum flokkum,
nema í hástökki 16 ára og yngri.
Þarnasparaðifélagið sér 6 verð-
launapeninga og gerði upp á
milli keppenda, þrátt fyrir sár
vonbrigði þeirra sem af verð-
laununum misstu.
Ef svona er staðið að íþrótta-
málum víða á landinu er ekki
furða, þó minnkandi áhugi sé
fyrir frjálsum íþróttum og lé-
legur árangur náist í þeim.
Þetta er fjórðiparturinn úr pappaspjaldinu sem drengirnir fengu i
verðlaun á meistaramótinu á Akranesi. Faliegur verölaunagripur
eða hitt þó heldur.
✓
VITIÐ ÞIÐ
að nýja prjónavélin okkar Brother KH 820 með sniðreiknara og kambi kostar aðeins
kr. 68.640.00 og að sama vél kostar yfir kr. 100.000.00 i Danmörku?
Ný sending komin
Ef viðauglýstum að BROTHER KH820 hefði útbúnað fyrir brugðið prjón fram yfir
aðrar prjónavélar, værum við að segja ósatt og auglýsa fáfræði okkar um
prjónavélar, þviallar prjónavélar hafa nú slíkan útbúnað. Hinsvegar hefir nýjasta
gerð BROTHER KH 820 þetta fram yfir allar aðrar prjónavélar,
sem hér eru boðnar:
1. sjálfvirkur nálaveljari i sleða.
2. mynsturkort gengúr í hring,
þannig að ekki þarf að setja það
i aö nýju.
3. 24ra nála breidd á mynstri og
prjónar þvi helmingi stærra
mynstur en aðrar vélar.
4. stærð á sniðreiknarafilmu er
63x104 cm.
KH 820 hefur einnig aita bestu
kosti annara prjónavéla:
brother hefir einnig sleöa fyrir sjálfvirkt
knipplingaprjón.
brother skilar einnig ofnu munstri.
Með bíöther KH 820 getið þér
fengið sniðreiknara.
Þér þurfið aðeins að teikna stykkið
inn á filmuna. Reiknarinn segir
siðan til um hvenær á að fella af
eða auka í.
brother kh 820
er langfullkomnasta heimilisprjóna-
vélin á markaðinum.
brother KH820 prjónar 2 liti i einu sjálfvirkt.
ÖTOther KH 820 prjónar allt mynstur
sjálfvirkt eftir tölvukorti.
brother KH 820 prjónar auóvitaó bœði slétt
og brugðið.
Komið, sjáið, sannfærist
BORGARFELL P
Skólavörðustig 23 sími 11372
Dað er leikur að
læra
Á BROTHER PRJÓNAVÉL,
SEM ER SÚ FULLKOMNASTA
i brother
prjónabókinni eru
1000 munstur.
Auk þess getiö þér
prjónaó á vélina
hvaöa munstur sem
yöur dettur i hug.
Hafa auglýsingar óhrif 6
val þitt ó vörum?
Ólöf Jónsdóttir, atvinnulaus: Já,
að nokkru leyti. Ég held að
sjónvarpsauglýsingar hafi mest
áhrif á fólk.
1
I
Birgir Scheving trésmiður: Nei,
þær fara fyrir ofan garð og neðan
hjá mér. Ég held að ég hafi aldrei
staðið mig að verki við að kaupa
eftir einhverri auglýsingu.
Spurning
dagsins
Guðjón Baldursson, nemi i vél-
virkjun: Nei, ekki held ég það,
svona yfirleitt. Annars hefur
það komið fyrir mig að ég kaupi
eftir auglýsingu, það kemur fyrir
flesta.
Baldur Baldursson: Já, ég held að
þær hafi einhver áhrif á alla.
Blaðaauglýsingarnar eru áhrifa-
meiri að mínu mati, ef þær eru
sniðugar, heldur en sjónvarpsaug-
lýsingarnar.
Helgi Loftsson bakari: Já, ég er
viss um það að þær hafa mikil
áhrif, sérstaklega ef þær eru
endurteknar nógu oft.
Fanney Halldórsdóttir húsmóðir:
Nei, þær hafa engin áhrif á mitt
vöruval. Ég kaupi þær vörur sem
reynast mér vel. Það selst engin
vara á auglýsingunni einni saman
ef hún er ekki góð.