Dagblaðið - 03.09.1976, Qupperneq 13
slands,
u þeir
íslenzku landsliðsmennina,
nhver erfiðasta raun,
hefur tekizt ó hendur
Tony Knapp
Við verðum því að gera okkur grein
fyrir að leikirnir verða erfiðir en eins
og ég sagði áðan, verði gæfan með liði
okkar eigum við möguleika á
óvæntum úrslitum.
Allt um það — hvað sem gerist í
landsleikjunum þá mun ég alltaf
meta strákana mikils. Það hefur verið
stórkostlegt að vinna með þeim.
Nú er því komið að hátindi ferils
míns sem þjálfara hingað til. Undan-
farið hef ég verið veikur ... en þó þeir
þyrftu að bera mig á börum myndi ég
ekki sleppa leikjunum. Ekkert fær
aftrað mér.
Ég hefði getað farið til Rosenborg
og fengið 3000 pundum meira i laun,
en mér fannst ég verða að koma
hingað aftur því eins og ég sagði er
stórkostlegt að vinna með strákunum.
Þeir eiga sigur skilið... og verði gæfan
okkur hliðholl munum við sigra.
Getan í liðinu er vissulega fyrir
hendi.“
■inn (ieirsson með soninn og þeir
on á Keflavikuri'lugvelli. I)B-niMid
— ÍBV tapaði sínum fyrsta leik í 2. deild
ÍBV tapaði sínum fyrsta leik í
2. .deild í sumar er liðið mætti
Haukum í síðasta leik liðanna í
gærkvöld í Eyjum, já tap í Eyjum
1-2. En úrslitin hafa engin áhrif á
stöðu Eyjamanna í deildinni —
þeir eru þrátt fyrir það hinir
öruggu sigurvegarar í 2. deild.
IBV hlaut samtals 26 stig í 16
leikjum sínum í sumar og leikur í
1. deild að ári — 1. deildinni, sem
ýmsum fannst ÍBV aldrei hefði
átt að yfirgefa.
Haukar mættu ákveðnir til
leiks í gærkvöld og voru betri
aðilinn í fyrri hálfleik enda fór
svo að Haukar skoruðu eina mark
hálfleiksins þegar Sigurður Aðal-
steinsson skoraði eftir að hafa
fengið góða sendingu utan af
kanti. Mark Hauka kom á 23.
mínútu og þrátt fyrir ýmis góð
tækifæri IBV tókst þeim ekki að
koma knettinum í netið.
ÍBV tókst að jafna á 23. mínútu
síðari hálfleiks og var þá Sigurlás
Þorleifsson að verki úr þröngri
aðstöðu eftir þunga sókn ÍBV að
marki Haukanna.
En Haukar voru ekki að baki
dottnir — skömmu siðar skoruðu
Haukar sigurmarkið þegar Sig-
urður Aðalsteinsson komst einn
inn fyrir vörn ÍBV og skoraði
örugglega.
Eftir þetta óvænta áfall sóttu
Vestmannaeyingar látlaust það
sem eftir var leiksins og sköpuðu
sér góð tækifæri en ekki tókst að
koma knettinum í netið. Því var
sigur Hauka staðreynd — sigur,
sem vissulega er nokkur uppreisn
fyrir liðið eftir slaka frammistöðu
í sumar.
Að loknum leiknum afhenti
Ellert B. Schram leikmönnum
ÍBV verðlaun og bikar 2. deildar
fyrir sigurinn í deildinni.
Þjálfara liðsins var afhent falleg
stytta frá Vestmannaeyjabæ. -RS.
KAJAKAR
ÚR GLASS FIBRE
Eins manns. Lengd 4,5 m. Breidd 60 cm.
Þyngd 13 kg. Verð kr. 51.590.-
Tveggja manna. Lengd 5 m. Breidd 72 cm.
Þyngd 26 kg. Verð kr. 69.000.-
Póstsendum
___________
Fyrsta bankaútibiíió í
GARÐABÆ
veróur opnaó
3. sept 1976
ÖLLINNLEND BANKAVIÐSKIPTI
AFGREIÐSLUTÍMI KL.13-18.30
/
%
—■ f
IBbNAÐARBANKI
ÍSLANDS
ÚTIBÚ GARÐABÆ SÍMI53944