Dagblaðið - 23.11.1976, Side 1

Dagblaðið - 23.11.1976, Side 1
friálst, úháð dagblað 2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1976. — 264 TBL. i RITST.ÍORN SIÐUMULA 12, SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 — segir Guðmundur Pálmason ,,Það er viss sannleikur í frétt- um um að holan kunni að vera ónýt en ég vil ekki ræða þetta mál nú, þetta skýrist allt frekar í dag,“ sagði Guðmundur Pálmason hjá Orkustofnun í vi'ðtali við Dag- blaðið í morgun um þá frétt, að borhola fimm við Kröflu sé að öllum líkindum ónýt. Mun fóðring hafa skemmzt og bognað og því erfitt að halda áfram borunum við holuna. ,,Það er auðvitað rétt að það er erfitt að standa í borunum hér á svæðinu en ég vil samt ekki fullyrða að hér sé um ónýta holu að ræða.“ Vildi Guðmundur ekki viður- kenna að hér væri sama vandamál á ferðinni og er Sjálfskaparvíti tók að gjósa, og sagði að fleiri holur væru með skemmdar fóðr- ingar. Máli sínu til stuðnings beitti Guðmundur eftirfarandi röksemd: „Hcla er hola en Sjálfskapar- víti er ekki hola og því ekki hægt að ræða um það í þessu sam- bandi.“ Sjálfskaparvíti var eitt sinn borhola númer fjögur en sprakk síðan og tók að gjósa. Því gosi er nú lokið. •HP. Rauðu strikin dugðu skammt Kaupmáttur hefur fallið um 5,8 prósent frá í marz Verðbólgan hefur valdið því, að kaupmáttur launa hefur fall- ið um 5,8 af hundraði síðan í marz þrátt fyrir öll „rauðu strikin". Lítið er eftir af kaup- hækkunum sem urðu l.marz. Iðnaðarmenn munu búa við svipaðan kaupmátt og var fyrir samningana síðustu. Kaup- hækkun þeirra 1. marz og hækkanir rauðu strikanna eru uppétnar. Hins vegar er talið að verkamenn hafi 2,3 prósnt hærri kaupmátt launa og verka- konur um 3% hærri en var, áður en síðustu kjarasamningar voru gerðir. Þarna kemur til 1500 króna láglaunabót, sem var samþykkt í síðustu samningum, og taxtatilfærslur Þarna er um meðaltal að ræða, sem þýðir að margir verka- menn og verkakonur búa nú ekki lengur við pieiri kaupmátt en var fyrir samningana. Verðbólgan heíur verið 27,3 prósent síðan 1. febrúar. Rauðu strikin taka hins vegar ekki alla þætti með, svo að verðbólgan samkvæmt þeim er talin minni á blaði. Meðalkauphækkun allra hópa í ASÍ síðan 1. febrúar er talin 29,18%. Meðalkaup- hækkun iðnaðarmanna mun vera 27,9%, meðalkauphækkun verkamanna 30,25% og verka- kvenna 31,1%. Þannig er lítið eftir af aukningu kauþmáttar, þótt kauphækkunin 1. marz sé tekin með, og 5,8% fall kaupmáttar hefur orðið þegar vegnar eru saman þær breytingar sem hafa orðið á kaupi og verðlagi síðan. ! þessum útreikningum er miðað við vísitölu fram- færslukostnaðar. Umdeilt er, hve vel hún mælir verðhækkanirnar, til dæmis vill húsaleiguliður hennar, sem verulegu máli skiptir, gjarnan hækka lítið og draga meðaltalið niður. -HH. Er borhola 5 énýt?: „ÞAÐ ER VISS SANNLEIKURIÞVI” Þó holugöng bogni og gangi til. borholur hætti að gefa gufu eða breyti sér í leirhveri, þá hefur það engin áhrif á gang framkvæmda í og við Kröfluhúsið sem einnig sígur og rís með mannskap og vélar innanborðs. Hér sjáum við annars vegar gufuleiðslurnar utan á húsinu tilbúnar að flytja gufu inn, fáist gufan. Hins vegar er verið að setja hluta hverfils á sinn stað. Engin bylting í Varðarfélaginu: Stjórnarlistinn flaug inn Á aðalfundi landsmálafélags- ins. Varðar í gærkvöldi hlaut framboðslisti stjórnarinnar kosningu við stjórnarkjör, með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða. Björgúlfur Guðmunds- son (Dósagerðin) var kosinn formaður, 149 atkv., en aðrir i stjórn Varðar voru kosnir: Aslaug Ragnars 137 atkv., Brynjóifur Bjarnason (AB) 152 atkv , (iuðmundur J. Oskarsson (Sæbjörg) 149 atkv., Hilmar (iuðlaugsson (Múrarafél.) 156 atkv.. Oskar Friðriksson (Ráðn- Kvíkur) 125 atkv., Ottar OKtósson verzlm. 126 atkv. Fráfarandi formaður, Ragnar Júlíusson skólastjóri, gaf ekki kost á sér til endur- kjörs. Talið var að einhver undir- búningur væri að skipulegu mótframboði. Minntust menn í því sambandi ágreinings sem upp kom i hörðum orðaskiptum á aðalfundi félagsins i fyrra en þá reyndi hluti félagsmanna að beita sér fyrir skipulagsbreyt- ingu við stjórnarkjör 1 Verði. Ekki kom til svipaðra átaka á aðalfundinum i gærkvöldi og hlutu ofangreindir menn kosn- nigu með yfirburðum yfir önnur framboð. BS. Skjálftahrina við Kötlu í nótt „Skjalftarnir héldu áfram i nótt og í morgun, en engmn verulega stor skjálfti hefur orðið á svæðinu siðan á sunnudaginn," sagði Páll Emaissou jarðeðlisfræðingur i viðtali við Dagblaðið í morgun. „Þettahafa verið svona tveir til fimm skjálftar á sólarhring en það er ómögulegt að segja til nákvæmlega hvar á svæðinu þeir hafa orðið." Sagði Páll ennfremur að erfitt væri að geta sér til um hvað þarna væri að gerast, aðeins væri fylgzt vandlega með skjálftunum. -HP. Hugsanlega heilsárs loðnuvertíð — með því að dýpka næturnar ganga veiðarnar enn vel Það er nú allt eins líklegt að tæpum mánuði hefur skipið eitthvað farinn að gera vart «íð Það er nú allt eins líklegt að loðnuveiðarnar í ár nái saman við vertíðina í fyrra, en það veltur nokkuð á veðri þar sem loðnan heldur sig heldur dýpra ef eitthvað er að veðri. Nótin á loðnuskipinu Gísla Arna hefur verið dýpkuð niður í 60 faðma, sem er a.m.k. tíu föðmum dýpra en gerist og gengur. Arangurinn hefur ekki látið á sér standa og nú á tæpum mánuði hefur skipið fengið um 2 þúsund tonn af góðri loðnu. Verðmæti þess afla er lauslega áætlað 17 til 18 milljónir króna, þannig að hlutur hvers skipverja er eitt- hvað nálægt 400 þúsundum á þessu tímabili. Búast má við að loðnan fari nú að hreyfa sig eitthvað austur á bóginn.enda hafa vertíðir undanfarinna ára hafizt út af Norðausturlandinu. Hafís er eitthvað farinn að gera vartt «íð sig_ á miðunum nú en ef ekki verður mikið af honum-virðist ekkert því til fyrirstöðu að bát- arnir haldi austur með Norður- landinu með loðnunni. Þess má geta að ekki er fjarri lagi að tvöfalda megi verðmæti upp úr sjó í útflutningi, þannig_ að Gísli Arni hefur í raun veitt fyrir á fjórða tug millióna á tæpum mánuði. -G.S. i

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.