Dagblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 197«. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÖVEMBER 1976. 13 ss* Forusta Juventus á Ítalíu Liðin frá bílaborginni miklu — Torino við rætur Alpafjalla á Ítalíu heýja nú rétt eins og á síðasta keppnistímabili baráttu um ítalska meistaratitiiinn. Þegar hafa liðin — Juventus og Torino tekið forustu, Juventus þó stigi á undan. Juventus vann nauman sigur á Verona í Torino en þeir Bettega og Causio, sem svo mjög komu við sögu í leik Itala og Engiendinga, skoruðu mörk Juventus. Þeir félagar sýndu — snilldartakta gegn Englendipgum — það gátu ísienzkir knattspyrnuáhangendur sannfærzt um af hinni stuttu fréttamynd ' sem sjónvarpið sýndi frá leiknum. Þó hefur snurða hiaupið á þráðinn hjá hinu fræga liði — Verona hefur kært leikinn þar sem einn ieikmanna liðsins varð fyrir flösku, sem kastað var inn á völlinn og varð að fara útaf. Hver niðurstaðan verður af kærunni er of snemmt að spá um — en þó ólíklegt sé að stigin verði tekin af Juventus er ekki ólíklegt að heimaleikir verði teknir af lið- inu. Juventus á eins og íslenzkum knattspyrnuunnend- um er vafalaust kunnugt sjö leik- menn í italska iandsliðinu, sem sigraði Engiand 2-0 i síðustu viku. Aður hafði Juventus siegið út bæði Manchesterliðin í UEFA- bikarnum. Fyrst Manchester City 2- 1 samanlagt og síðan United 3- 1 samanlagt. Villa sigraði Frankfurt! Aston Villa Iék i gærkvöld við v-þýzka liðið Eintrach Frankfurt á Villa Park í Birmingham. Villa sigraði örugglega 3-1 — og er greinilega ákaflega sterkt á heimavelli. Leikurinn var vináttuleikur liðanna. Þá fór fram annar vináttuleikur á Eng- landi i gærkvöld. Manchester City fór til Stockport — útborgar Manchester og sigraði 4. deildar- lið Stockport 2-0. Karl langafi gerir það ekki endasleppt Karl Wallende — hinn 71 árs gamli langafi gerði það ekki endasieppt í gær. Þá gekk Karl eftir strengdum vír í 30 metra hæð yfir jörðu. Vírinn var strengdur milli hótelbygginga og fvrir neðan blasti við grjóthörð gangstéttin og ekkert öryggisnet. Sá gamli lét það ekkert á sig fá — þegar hann var kominn hálfa vegalengdina — 30 metra langt — þá stoppaði hann og hvíldi aðeins, stóð síðan á höfði eins og ekkert va>ri einfaldara eða sjalf- sagðara. Hræddur? Nei, aldeilis ekki en Karl kvartaði undan því, að vírinn hafi ekki verið nógu vel strengdur. Og af hverju gerir Karl þetta? Jú, sagði hann, þetta væri spennandi og vekti aðdáun. Karl YValIenda byrjaði að sýna í fyrri heimsstyrjöldinni og fyrir sex árum, 1970, vann hann sitt mesta afrek. Þá gekk hann eftir 350 metra löngum strengdum vír — og 220 metrum fyrir neðan hann blöstu við berir klettarnir í Talluah gljúfri í Bandarikjunum. Lene Köppen drottning NM í Reykjavík! Lene Köppen var skærasta stjarnan á Norðurlandamótinu i badminton sem háð var um helg- ina. Hin glæsilega danska stúlka stóð uppi í lok mótsins sem þre- faldur Norðurlandameistari í badminton. Hún sigraði með yfir- burðum í einliðaleiknum — fjórða árið í röð. ,,Ég er orðin vön þessu,“ sagði Köppen eftir mótið. Já, sannarlega hefur Köppen verið yfirburðamanneskja í bad- minton. Köppen sigraði einnig í tvíliðaleiknum og tvenndarleikn- um. I kvöld leikur Bayern Munchen á Olympíuleikvanginum í Munchen við brazilíska liðið Cruzeiro Bello Horizonte — uppgjör S-Ameríku og Evrópu —leikur sem beðið er víðs vegar um heim með mikilli eftirvænt- ingu. Bayern mun hafa alla sína landsliðsmenn innanborðs — þá Franz Beckenbauer, Gerd Muller, Uli Höness, Sepp Maier, Franz Schwarzenbeck, Rummenigge f"áV-Þýzkalandi og sænska lands- liðsmanninn Conny Thorstenson. Hinir frægu kappar Bayern voru á skotskónum um helgina — Gerd Muller skoraði tvö mörk,- Franz Beckenbauer og Uli Höness eitt markið hvor 1 4-1 sigrinum í Essen. Skærasta stjarna Cruzeiro er Jairzinhio, brazilíski landsliðs- maðurinn sem heillaði heiminn í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó 1970 þegar Brazilía varð heimsmeistari. Jairzinhio var þá markhæstur í liði Brazzanna. Þjálfari Cruzeiro, Zeze Moreira, sa'gði að lið sitt mundi sækja — þá eina knattspyrnu kunna S- Ameríkubúar. Þrátt fyrir að leiks- ins sé beðið með mikilli eftirvænt- ingu beggja vegna Atlantshafsins — og þá fyrst og fremst vegna Góður sigur FH FH sigraði Ármann 14-10 og Vaiur - UBK 154 í deild kvenna í handknattleik FH vann góðan sigur á Armanni 14-10 í íþróttahúsinu í llafnarfirði um helgina í 1. deild Islandsmótsins í kvennahand- knattleik. í Garðabæ lék Valur við Breiðablik . og sigraði Valur örugglega 16-4. Leikur FH og Armanns var allan tímann ákaflega jafn — þó ekki væri hann að sama skapi vel leikinn. Armann hafði yfir í leik hléi 5-4 eftir að hafa komizt í 4-1. Framan af síðari hálfleik hafði Ármann undirtökin — en FH sigldi síðan framúr og sigraði örugglega 14-10. Ármannsliðið hefur orðið fyrir áföllum frá í fyrra — þrjár af meginstoðum liðsins vantar.— Liðið er ungt en verður varla lík- legt til stórræða í vetur. FH er eins og undanfarin ár léttleikandi — en hvort liðið gerir stóra hluti í vetur á eftir að koma á daginn. Svanhvít Magnúsdóttir var markahæst FH-inga með 6 mörk en fyrir Ármann gerði Guðrún Sigþórsdóttir flest mörkin eða 4 talsins. Leikur Vals og Breiðabliks var ólíkur þeim í Hafnarfirði að því leyti að aldrei fór á milli mála hvort liðið var sterkara — Valur hafði undirtökin frá upphafi til enda. Staðan í leikhléi var 6-1 Val í vil og yfirburðir Vals héldust í síðari hálfleik. Sóknarleikur Breiðabliks var í molum — og vörnin gloppótt. Vajsstúlkurnar áttu ekki í erfiðleikum með að brjótast í gegn um vörn Blikanna og að sama skapi var vörnin þeim auð- veld. Einn leikur átti að fara fram á Akureyri. KR átti að leika við Þór. Leikurinn átti að fara fram á laugardag — en var frestað til sunnudags. Þá mættu KR- stúlkurnar ekki og leikurinn var þeim dæmdur tapaður. Stjörnur Bayem gegn Brözzunum Bayern Munchen leikur í kvöld við Cruzeiro frá Brasilíu um hinn óopinbera heimsmeistaratitil félagsliða í knattspyrnu Bayern Munchen — handhafi Evrópubikarsins síðastiiðin þrjú ár — hefur verið í mikiiii sókn í Bundesiígunni í V-Þýzkalandi undanfarið, unnið hvern stórsig- urinn á fætur öórum. Eins og við greindum frá í gær þá vann Bayern Munchen athyglisverðan sigur á Rot-Weiss Essen um helgina — sigur sem vafalítið kemur hinu fræga liði til góða í keppni við þá beztu í S-Ameríku um óopinberan heimsmeistaratit- il félagsliða. HM í Argentínu ’78 — þá hefur fyrsti snjór vetrarins í Munchen dregið úr áhuga Munchenbúa á leiknum. í gær höfðu aðeins 10 þúsund miðar selzt á leikinn Að lokum skuium við lita á stöðuna í Bundeslígunni Bor. M. Gladbach 14 33-12 23 Bayern Munchen 14 48-32 20 Eintr. Braunschw. 14 24-15 20 Hertha BSC 14 27-15 18 FCKöln 14 30-20 17 Schalke 04 Duisburg Bochum Hamburger SV Bor. Dortmund Fort Diisseldorf Werder, Bremen Karlsruhe Kaiserslautern Tennis Borussia Eintr. Frankfurt Saarbrucken Rot-Weiss, Essen 14 32-26 17 14 29-20 16 14 22-23 15 14 22-24 14 14 26-26 13 14 20-24 13 14 23-24 12 14 18-24 12 14 16-18 10 14 22-44 14 29-34 14 11-22 14 16-45 10 9 8 5 Ég næ mér niðri á þér, svertingi — Ali ætlar að snúa til hringsins og berjast við Foreman Muhammed Ali — „the greatest" hefur nú ákveðið að koma fram í sviðsljósið og berjast við George Foreman en það var ekki fyrr en Forman hafði skorað á meistarann að draga sig út úr skel sinni og brigzlað honum um hræðslu. „Viljir þú berjast við mig, þá gerðu það,“ sagði Foreman við Ali. Það stóð ekki lengi á svarinu — „Bíddu bara í þrjá mánuði. Þá næ ég mér niðri á þér. svertingi!" var svar Ali. Og nú bíða menn spenntir eftir viðureign þeirra kappa. Ali til- kynnti þann 1. október að hann hygðist draga sig í hlé svo að hann gæti útbreitt múhameðstrúna. En yfirlýsingu hans þann 1. október var tekið með varúð — allir vita að Ali er óútreiknanlegur. En hvað eftir annað hélt Ali við sitt — hann ætlaði sannarlega að draga sig í hlé. Raddir heyrðust um að Ali hafi ekki orðið um sel eftir hinn nauma sigur gegn Ken Norton —- þá hafi honum skilizt að stundin væri upp runnin til að hætta. Frýjunarorð George Foreman gat Ali ekki staðizt og búizt er við að Ali keppi fyrst við Duane Bobick í New York í febrúar — Bobick þessi hefur ekki tapað leik á ferli sínum en er engu að síður álitinn auðveldur viðfangs fyrir Ali „the greatest”. En ennþá hefur Ali ekki staðfest að hann hyggist snúa aftur til hringsins — þrátt f.vrir yfirlýsingar vita allir að Ali er óútreiknanlegur. Nýir leikmenn úr ýmsum attum 6 f rá Anderlecht — leika nú með Royale Union í 2. deild, sem stefnir að því að endurheimta forna frægð í belgískri knattspyrnu Brussel 17. nóvember. Frá því keppnin um belgíska meistaratitilinn í knattspyrnu hófst 1896 hafa aðeins tvö lið hlotið meistaratignina oftar en 10 sinnum. Bæði frá Brussel. Ander- lecht, sem sigrað hefur 16 sinn- um, og Union.sem sigrað hefur ellefu sinnum. Anderlecht er frægasta lið Belgíu eftirstríðs- áranna — hefur unnið alla sína meistaratitla eftir síðari heims- st.vrjöldina. Þann fyrsta 1947. Union var hins vegar frægasta lið Belgiu fyrir heimsstyrjöldina. Beerschot er í þriðja sæti með sjö meistaratitla. Standard Liege i f jórða sæti með sex. Síðustu mánuði hefur verið gert stórt átak í að endurreisa forna frægð Union. Nýir luik- menn fengnir úr ýmsum áttum — meðal annars sex frá Anderlecht, Marteinn Geirsson — Royale Union og svo erum við tveir Islendingar í liðinu og Spánverji. Það kom því eins og köld skvetta, er því var slegið upp fyrir nokkrum vikum, að félagið væri gjaldþrota. Það mál var þó ekki eins alvarlegt og í fyrstu var talið. Gjaldþrotið heyr- ir nú til liðinni tíð og fjárhagur félagsins orðinn traustur, að þvi er ég bezt veit. Liðinu hefur geng- ið vel í 2. deildinni og er nú komið með annan fótinn í 1. deild næsta leiktímabil eftir sigurinn gegn Eupen fyrra laugardag, en Eupen er í neðsta sæti í deildinni. Það verður að viðurkennst. hér að við vorum mjög sme.vkir fyrir þennan leik við Eupen. Þar var mikið í húfi Völlurinn í Eupen er afar slakur og þar rúm- ast aðeins 3000 áhorfendur. Það er mikil breyting frá hinum ágæta velli, sem við leikum venju- lega á hér í Brussel. Viillur sem er með þeim betri i Belgíu og þar rúmast 30.000 áhorfendur. En það hafðist að sigra í Eupen, þótt litlu munaði, því aðeins voru fjórar mínútur til leiksloka, þegar Leghait skoraði eina mark leiksins. Þar með hlaut Union tvö stig og efsta sætið i deildinni eftir 10 fyrstu leikina. Keppninni í 2. d. er þannig háttað hér í Belgíu, að leiKiui eiu ou leiKir, sem síðan skipast niður í þrjár „seríur" eins og það er kallað hér. Efsta liðið eftir tíu fyrstu leikina, sem í þessu tilfelli er Union eftir sigurinn i Eupen, er búið að vinna sér rétt til að keppa til úrslita um 1. deildarsæti að ári — það er að segja ef liðið verður ekki i efsta sæti að keppninni lokinni, því efsta liðið beint í 1. deild. Til gamans ætla ég að geta hér þeirrar uppstillingar sem verið hefur á liði Union síðustu leikina. Nr. 1 er Weynand, markvörður, sem er 22ja ára og kom til Union frá E.upen. Nr. 2 er Callaerts, 24 ára, en hann lék áður með Anderlecht. , Nr. 3 er Lomme, 22ja ára og hann varð Evrópumeistari í keppni bikarhafa með Anderlecht 1976. Nr. 4 er Marteinn Geirsson, 25 ára. Nr. 5 er Phillipp. 26 ára, en hann kom til Union í fyrra frá Standard Liege, liðinu, sem As- geir Sigurvinsson leikur með. Nr. 6 er Ordonnes, 24 ára Spánverji, sem áður lék með Eupen. Nr. 7 er Verheyen, 32 ára. Hann lék áður með Anderlecht. en er nú fyrirliði Union. Einn kunnasti leikmaður Belgíu, er ieikið hefur 38 landsleiki. Nr. 8 er Leghait, sem er 21 árs og hann lék áður með Anderlecht. Nr. 9 er Stefán Halldórsson. 22.ja ára. Nr. 10 er De Bolle, sem er 27 ára og lék áður með Anderlecht. Nr. 11 er Denul, 30 ára, og hann lék áður með Anderlecht og hefur leikið fjóra landsleiki. Framkvæmdastjóri félagsins og jafnframt aðalþjálfari liðsins heitir Georges Heylens, sem leik- ið hefur margá landsleiki fyrir Belgíu. Var meðal annars í belgíska landsliðinu '72, þegar ég spilaði með því íslenzka hér í Brussel það ár. Þá eru einnig tveir aðrir þjálfarar hjá félaginu — einn læknir, einn nuddari og svo kemur fótasérfræðingur einu sinni í viku. Það er af okkur Stefáni að segja, að okkur líkar mjög vel hérna — og erum ánægðir með félagið. Mórallinn getur ekki verið betri og við stefnum allir sem einn, að ná settu marki — það er sæti í 1. deild næsta leiktímabil. Auk deildaleikjanna eru nokkrir „vináttuleikir" framund- an. Til dærhis við l'C Brugge á Stefán Halldórsson — Royale Unioh leikvelli okkar og síðan við Anderlecht. en ekki er búið að ákveða hvar sá leikur verður. Eg sl;e þá botninn í þetta kveðju heim. Martein og bið fyrir n Geirsson. MARTEINN GEIRSS0N SKRIFAR FRÁ BELGÍU

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.