Dagblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJÚBAGUR 23. NÓVEMBER 1976.
fl
Útvarp
23
Sjónvarp
Útvarp kl. 14.30 á morgun: Miðdegissagan
Morðdeildin leysir gát-
una um fullan strætis-
vagn af myrtu fólki!
„Þetta eru virkilega spennandi
sögur og hafa verið metsölubæk-
ur á Norðurlöndunum og á
Englandi". sagði Ölafur Jónsson
phil. cand. um síðdegissöguna
„Löggan sem hló“, sem hann les
kl. 14.30 mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga.
„Höfundarnir, Maj Sjöwall og
Per Wahlöö tóku að sér að skrifa
tiu reyfara, — morðsögur, fyrir
ákveðið útgáfufyrirtæki. Þetta
tók þau tíu ár og er söguhetjan í
öllum bókunum Martin Beck, yf-
irmaður morðdeildarinnar.
Hver bók er sjálfstæð. Wahlöö
var róttækur rithöfundur, en
hann er nú látinn, — en Sjöwali
er blaðamaður.
Sagan sem ég les er sautján
lestrar. Hún gerist haustið 1967,
byrjar raunar á svipuðum tima og
nú er, 13. nóvember og henni lýk-
ur í janúar. Hún er um fjölda-
'morð, en það finnst strætisvagn
Ölafur Jónsson kann vel að
meta góða reyfara.
sem er fullur af myrtu fólkí.“
Ólafur þýddi sjálfur söguna.
Hann sagðist kunna því ágætlega
að lesa upp reyfara, — hann hefði
gaman af slíkum sögum.
Næsti lestur Olafs verður á
morgun kl. 14.30.
A.Bj.
Útvarp í kvöld kl. 19.35:
Það átti að greiða
Nígeríumönnunum
þrjá dali á dag
— Öryggi á vinnustöðum víða í
miklum ólestri. Ýmislegt sem áður
var hulið kemur á daginn í
þættinum Vinnumál
Þátturinn Vinnumál, sem
fjallar um lög og rétt á vinnu-
markaðinum er á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl. 19.35. Stjórn-
endur þáttarins eru" Arnmundur
Backman og Gunnar Eydal.
„Það verða tvö efni tekin til
meðferðar hjá okkur i kvöld,"
sagði Gunnar Eydal. „I fyrsta lagi
verður fjallað um ráðningu
Nígeríumannanna á íslenzkt skip,
sem frægt er orðið og út frá því
verður fjallað um ráðningar út-
lendinga á íslenzk farskip yfir-
leitt.”
— Er mikið um að útlendingar
ráði sig á íslenzk farskip?
„Nei, það mun ekki vera, en
hins vegar kemur fram í þættin-
um að dæmi eru um að íslenzk
skip sigli undir fána annarra
rikja, t.d. Singapore, og fengum
við gefin upp tvö dæmi um slíkt.
Þótt málið snúist ekki beinlínis
um ráðningu Nígeríumannanna
kemur fram athyglisverður þátt-
ur varðandi mál þeirra, þ.e.a.s.
undirritaður samningur sem
gerður var við annan þeirra.
Samningur þessi hefur ekki verið
birtur áður en þar kemur í ljós að
Nígeríumaðurinn er ráðinn upp á
þrjá dollara á dag eða sem svarar
sex hundruð krónum íslenzkum.
(Osjá
Stjórnendur þáttarins Vinnumál, lögfræðingarnir Gunnar Eydal
og Arnmundur Backman. DB-mynd Bjarnleifur.
Ölöglegt er að semja undir þeim
kjörum sem stéttarfélag hefur
samið um, þegar um ráðningar
manna á íslenzk skip er að ræða.
Hitt málið sem fjallað verður
unt er bruninn hjá Sláturfélagi
Suðurlands á dögunum. M.a. er
rætt við starfsmenn á staðnum og
lýsing þeirra á öryggisatriðum er
með ólíkindum. Þarna virðist
hafa verið stórkostleg slysahætta
á meðan vinnusalurinn var fullur
af fólki og slátursalan fór þar
fram.
í þættinum kemur fram að
öryggismálin almennt á vinnu-
stöðum virðast mjög ’víða vera i
slæmu ástandi. T.d. kemur fram
hjá Bárði Daníelssyni brunamála-
stjóra að stórbrunar undanfar-
inna mánaða eigi oftast rætur
sínar að rekja til þess að öryggis-
reglum á vinnustað sé ekki fylgt.
Einnig er rætt við Rúnar
Bjarnason slökkviliðsstjóra. í því
viðtali kemur m.a. fram að
Eldvarnaeftirlit Reykjavíkur-
borgar annast skipulega fræðslu
um eldvarnir fyrir starfsmenn
ýmissa fyrirtækja en Sláturfélag
Suðurlands hefur ekki notfært
sér þá þjónustu,” sagði Gunnar
Eydal lögfræðingur.
A.Bj.
Sjónvarp í kvöld kl. 22.10:
Söngur og Ijóð.
Bóndinn og skóla-
stjórinn flytur eigin
Ijóð og annarra
Barðastrandarsýslu og er eini
launaði starískrafturinn við
barnaskóla hreppsins.
í viðtali við DB i sumar, i tilefni
af útkomu nýrrar plötu með
Sigrúnu sagði hún m.a.:
„Eg nota frístundirnar til.-að
æfa mig á gitar og held að ég sé
aðeins að skána á hann. Þá gef ég
mér einnig tima til að glugga i
drauma mina og stjörnuspeki.
Það er mun auðveldara að sann-
prófa öll kerfi og draumaráðning-
ar á svo fámennum stað sent
Klettur er. heldur en i fjölmenni.
Þánota ég einnig timann til að
læra af náttúrunni. hlusta á hana
,og fræðast um hluti sem ég þekkti
ekki áðui;. A Kletti njótum við út i
yztu æsar þess sem sveitin hefur
upp á að bjóða. gróðursins. vatns-
itis og loftsins.
Heimurinn. eitis og hann litur
út i dag virðist vera á góðri leið
með að tortima sjálfum sér tneð
mengun og alls konar skit og
drullii. El' honum tekst það
endanlega tetla ég ekki að taka
þált i þeirri tortimingu."
A.Bj.
Söngur og ljóð nefnist þáttur
sem er á dagskrá sjónvarpsins í
kvöld kl. 22.10. Sigrún Harðar-
dóttir fl.vtur eigin Ijóð og annarra.
Með henni koma fram Magnús
Kjartansson, pianóleikari og
söngvari. Ingólfur Steinsson,
söngvari og gitarleikari hjá
Þokkabót. og Ragnar Sigurjóns-
son trommuleikari, en hann lék
siðast með hljómsveitinni Mexicó.
Sigrún Harðardóttir er bæði
bótuli og skólastjóri, búsett á
bænum Kletti i Gufudalshreppi i
«c
Sigrún Ilarðardóttir söngkona
er sannkallað náttúruharn. Ilún
liefur lagt stund á allskyns dul-
speki og stjörnuspeki. Þegar hún
heimsótti höfuðhorgina i suntar
lar þessi mynd tekin al' lienni i
Gr jótaþorpinu. þar sent liiin
dvaldi i heimsókninni.
DB-mvnd Arni lȇll.
I
Utvarp
Þriðjudagur
23. nóvember
12.00 DaKskráin. Tónleikar. TilkynninK*
ar.
12.25 Veðurfrefínir 0« fróttir.
Tilkynninfíar. Vió vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Póstur frá útlöndum. Sendandi:
Sifímar B. Hauksson.
15.00 MiAdegistónleikttr. Serfiej
Rakhmaninoff ofe sinfóníunljómsveit-
in í Filadelfiu leika Píanókonsert í
fís-moll op. 1 nr. 1 eftir Rakhnjninoff
Euuene í*rmandy stj.
Fílharmoniusveitin i Osló
leikui Sinlóu.. nr. 1 í D-dúr op. 4 eftir
Johan Svendsen; Miltiades Caridis
stjórnar.
16.00 Fróttir. Tilkynninfíar (16.15
Veóurfrefínir).
16.20 Popphorn.
17.30 Litli barnatíminn. Finnhorfí
Schevinf’ sér-um tímann.
17.50 Á hvítum reitum og svörtum.
Guðmundur Arnlaugsson flytur skák-
þátt.
18.20 Tðnleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Vinnumál, — þáttur um lög og
rétt á vinnumarkaði. Arnmundur Back-
man og Gunnar Eydal sjá um þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Ásta R.
Jóhannesdóttir kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum Hjálmar Árna-
son og Guðmundur Arni Stefánsson
sjá um þáttinn.
21.30 „Upp til fjalla", hljómsveitarverk
eftir Áma Bjömsson.
21.50 Ljóðalestur. Ingólfur Sveinsson les
frumort ljóð.
22.00 Fróttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Miningabók Þorvalds Thoroddsens"
Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor
les (13).
22.40 Harmonikulög. Erik FrariK leikur.
23.00 Á hljóðbergi. „Dagur í lífi ívans
Denisovitsj“ eftir Alexander
Solsjenitsín. Eli Wallach les kafla í
enskri þýðingu eftir Marianne
Mantell.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
24. nóvember
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00. 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustgr. daghl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbaen kl. 7.50. Morgunstund
barnanna kl. 8.00: Guðrún Guðlaugs-
dóttir les söguna „Halástjörnuna“
eftir Tove Jansson (3). Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfróttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Drög að útgáfusögu
kirkjulegra og trúarlegra blaða og tíma-
rita ó íslandi kl.10.25: Séra Björn Jóns-
son á Akranesi flytur fimmta erindi
SÍtt. Morgunto..'jikar kl. 11.00.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Viðvinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Löggan, sem hló"
eftir Maj Sjöwall og Per Wahlöö. Olafur
Jónsson les þýðingu sína (3).
15.00 Miðdegistónleikar. Martin Jones
leikur á pianó Fjögur rómantísk smá-
lög eftir Alan Rawsthorne. Igor
Gavrysh og Tatjana Sadovskaja leika
Sónötu fyrir selló og pianó eftir
Hindemith. Fílharmoníusveitin í New
York leikur Klassísku sinfóniuna í
D-dúr op. 25 eftir Prokofjeff;(Leonard
Bernstein stjórnar.
15.45 Fró Sameinuðu þjóðunum. Soffia
Guðmundsdóttir segir fréttir frá alls-
herjarþinginu.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Vcðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Óli frá
Skuld" eftir Stefán Jónsson. Gísli Hall-
dórsson leikari les (14).
17.50 Tónleikar. Tilkvnningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Rennsli vatns um berggrunn íslands
og uppruni hvera og linda.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöngur: Engel Lund
syngur íslenzk þjóðlög i Útsetningu
Feidinands Rauters. Dr. Páll Isólfsson
leikur á pianó. b Bóndinn á Brúnum.
Svorrir Kristjánsson sagnfræðingur
flvtur þriðja hluta frásögu sinnar. e.
Vísur og kvœði eftir Lárus Salómons-
son. Valdimar Lárusson les. d.
Miðfjaröardísin. Rósa Gisladóttir los
sögu úr þjóð'sagnasafni Sigfúsar Sig-
fússonar. e. Kynni mín af huldufólki.
Jón Arnfinnsson segir frá. Kristján
Þó'rstoinsson les frásögnina. f. Haldið
til haga. Grimur M. Helgason cand.
mag. flytur þáttinn. g. Kórsöngur:
Karlakórinn Fóstbrœður syngur. Söng-
stjóri: Jón Þórarinsson. Pianóleikari:
Carl Billich.
^ Sjónvarp
Þriðjudagur
23. nóvember
20.00 Frettir og veður.
20.30 Auglysingar og dagskra.
20.40 McCloud. Bandariskur sakamála-,
myndaflokkur. Illur fengur. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.10 Söngur og Ijós. Sigrún Harðardóttir
Hytur eigin ljóð og annarra. Flytjeud-
ur með heiini eru Magnús Kjartans-
son. Ingólfur Steinsson og Ragnar
Sigurjónsson. Stjórn upptöku Tage
Ammeiidrup.
22.25 Utan ur heimi. Þáttur iim erlend
malel'ni ofaiiega á haugi. l'msjónar-
maðúrJón Hákon Magmisson
22 55 Daqskrarlok.