Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.11.1976, Qupperneq 7

Dagblaðið - 23.11.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. NOVEMBER 1976. Enn er ekki búið að ákveða hvaða dag það verður — fulltrúar Allsherjarþingsins vilja bíða eftir utanríkis- ráðherra Angóla en hann er nú í Genf, þar sem hann hefur verið áheyrnarfulltrúi á Ródesíuráðstefnunni. Angóla fær aðild að Sameinuðu þjóðunum: Bandaríkjamenn og Kínverjar sátu hjá Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna hefur samþykkt aðild Angóla að samtökunum, eftir að Bandaríkjamenn breyttu afstöðu sinni til málsins með því að sitja hjá í stað þess að beita neitunar- valdi, eins og þeir hafa gert áður. Ekkert er því nú til fyrir- stöðu að þessi fyrrum nýlenda Portúgala fái aðild að sam- tökunum sem 146. þjóðin. Sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, William Scranton, sagði að Bandaríkjamenn létu af and- stöðu sinni gegn aðildarbeiðni Angóla ,,með tilliti til afrískra sjónarmiða", eins og segir í til- kynningu frá Einingarsamtök- um Afriku. En hann endurtók mótmæli ríkisstjórnar sinnar gegn veru kúbanskra hermanna í landinu — sagði að þeir hefðu verið sendir til Angóla tveimur mánuðum áður en landið varð sjálfstætt og að þeir stæðu nú fyrir blóðugum skæruhernaði á a.m.k. þremur stöðum I landinu". Þá sagði hann, að stjórn Angóla hefði ekki nema rétt svo tök á öllu landinu og að víðs vegar um landið væru hreyfingar manna sem berðust gegn henni. Þrettán af fimmtán fulltrúum í öryggisráðinu greiddu aðildarbeiðni Angóla atkvæði sitt, en landið varð sjálfstætt fyrir einu ári. Kínverjar sátu hjá ásamt Bandaríkjamönnum, en það gerðu þeir einnig er málið var til umræðu í júní sl. Bæði Bandaríkjamenn og Kínverjar hafa mótmælt áframhaldandi dvöl kúbanskra hermanna í landinu en þeir njóta stuðnings Sovétmanna. Það var fyrir tilstilli þeirra, sem núver- andi stjórn landsins tókst að vinna fullnaðarsigur á öðrum frelsishreyfingum í landinu í borgarastyrjöldinni sem háð var í Angóla. Sigurvegararnir og nýjustu fuiltrúar-á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, MPLA í Angóla. Erlendar fréttir REUTER Átök við landamæri Thailands og Kambódíu Talsmaður landamæravarða í Thailandi hefur sagt, að margir hermenn frá Kambódíu hafi fallið í átökum við landamæri ríkjanna í Suðaustur-Thailandi í gær. Hversu margir þeir eru er ekki vitað en talsmaðurinn sagði að þeir væru ,,mjög margir '. Átökin í gær áttu sér stað í Hat Lek- héraðinu, þar sem landamæri ríkjanna ná niður að Thailands- flóa. Sagði talsmaðurinn, að thai- lenzku sveitirnar hefðu notið stuðnings þriggja fallbyssubáta af hafi. Ekki hefði orðið mannfall í liði þeirra. MUGURINN REÐST AÐ LOG- REGLUMÖNNUM í MADRID — handtóku tvo blaðasala Reiður múgur réðst að tveim lögreglumönnum í Madrid í gær- kvöldi og særði þá illa er þeir handtóku tvo kommúnista sem stóðu fyrir fyrstu opinberu félagasöfnun til flokksins í 40 ár. Sagði borgarstjórinn í Madrid að lögreglumennirnir hefðu skotið af byssum sínum upp í loftið til þess að reyna að dreifa æstum múgi er ráðizt hafði að þeim fyrir að handtaka tvo unglinga er voru að selja vikurit kommúnistaflokksins. Þessi fyrstu opinberu umsvif flokksins í fjóra áratugi koma í kjölfar samþykktar um stjórnar- skrárbreytingar, sem binda enda á einveldi Francos og gera ráð fyrir rýmra stjórnmálalífi. Fyrr í gær handtók lögreglan í Madrid fimm kommúnista, sem voru að dreifa bæklingum á neðanjarðar- járnbrautarstöð í borginni. Omar krefst yfirráða yfir Panama- skurðin- um á næsta r ■ ari Þjóðarleiðtogi Panamabúa, Omar Torrijos, hershöfðingi hefur lýst því yfir að tími sé kominn til að ,,nýlendustaða“ landsins leggist af við Pananta- skurð þegar á næsta ári. Sagði hann að þolinmæði þjóðarinnar væri nú á þrotum og timi væri kominn til að Panamabúar fengju sjálfir yfirráð yfir skurðinum úr hendi Bandaríkjamanna. Torrijos gaf út þessa yfir- lýsingu eftir að hann og forseti Colombíu, Alfonzo Lopez Michelsen, höfðu undirritað samning um skipan mála á haf- svæðum sínum. Bandaríkjamenn og Panamabúar standa þessa dagana í samningum um endurleigu á skurðinum, en hann var leigður Banda- ríkjunum til eilifðarnóns árið 1903.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.