Dagblaðið - 27.01.1977, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. JANtJAR 1977.
EKKERT YLRÆKTARVER
VERÐUR í REYKJAVÍK
— undirbúningsfélag
leyst upp ígær, of
margir þættir óvissir
Undirbúningsfélag að yl-
ræktarveri í Reykjavík var
leyst upp á fundi þess í gær og
ekkert bókað um að frekari at-
hugun málsins færi fram. Þessi
ákvörðun var tekin á grund-
velli skýrslu sem félagið hef-
ur látið gera um hina ýmsu
þætti málsins.
Höfuðástæður þess að félagið
var leyst upp og ekki var stofn-
að formlegt hlutafélag um mál-
ið eru m.a. að óvissa ríkir um
framleiðsluafköst með tilliti til
vaxtarhraða græðlinga og þarf-
ar fyrir vinnuafl. Þá hafa
stjórnvöld hér ekki viljað fella
niður aðflutningstolla af bún-
aði, sem til verksins þarf, en
það mun m.a. ein forsenda þess.
Loks ríkir óvissa um markað,
að mati félagsins. Sem kunnugt
er stóð til að verið yrði reist í
samvinnu við hollenzkt fyrir-
tæki, en aðilar undirbúningsfé-
lagsins voru Reykjavíkurborg,
Flugleiðir hf, Kassagerð
Reykjavíkur hf, Olíufélagið
Skeljungur hf og Heimilistæki
hf.
Á fundinum í gær var bókuð
samþykkt þess efnis að láta
skýrsluna liggja fyrir, ef ein-
hver vildi kynna sér hana,
senda hana ráðuneyti og þeim
aðilum í Hveragerði, sem
byggjast starfrækja ylræktar-
ver í samvinnu við sama
hollenzka fyrirtækið.
-G.S.
I sýningarsölum okkar eru meöal annars
Maverick ’70. Blár, 6 cyl.,
beinsk. Mjög fallegur bill. Verð
1 millj.
Vauxhall Viva ’74. Rauður, ek-
inn 30 þ. km. Nagladekk. Verð
kr. 900 þús.
»1 rXfTL IM
Fiat 128 ’73. Hvítur, ekinn 56 þ.
km„ nagiad. Verð kr. 550 þús.
Volvo Amazon ’63. Rauður, 4ra
dyra, góð vél. Verð kr. 300 þús.
pBUU"1* -
Austin Mini ’73. Gulur, ný
sprautaður, vei með farinn bíll
Verð kr. 520 þús.
Humber Hawk ’66. Grænn.
mjög vei með farinn bíll. Tif
boð, skipti.
M. Benz 190 ’58. Blár, góður bill
miðað við aidur. Tiiboð, skipti.
Willys Jeepster ’67. Grænn,
Verð kr. 700 þús.
.kaduhinn
Opel Rekord Sprint '69
ljósbiár, nýuppt. vél.
Verð kr. 620 þús.
Ford Fairlane 500 Fastback ’68.
blár, 8 cyi (302), sjálfsk.
Verð kr. 900 þús.
Skipti á dýrari og nýrri bíl.
Citroén G.S. ‘T2
blár. útvarp. snjód.+sumard
Verð kr. 700 þús.
Mazda 929 '75
brúnn, sanseraður, ekinn 37 þ,
km. snjód+ sumard.
Verð kr. 1650 þús.
Saab 99 '73,
grænn, ekinn 40 þús. km, mjög
fallegur bill.
Verð kr. 1650 þús.
Mazda 929 station '75
brúnn, ekinn 42 þús. km,
segulband, útvarp, 2 gangar af
dekkjum. Verð kr. 1650 þús.
Citroén Dyane ’70,
grár, nvuppt. vél. Heillegur
bíll.
Verð kr. 340 þús.
Vauxhall Viva station '72
rauður. lítur vel út.
Verð kr. 650 þús.
Chevrolet Van ’76
brúnn, ekinn 8 þ. km, sjálfsk.
aflstýri, útvarp.
Verð kr. 2.3 millj.
Willys ’65,
hvítur, Hurricane vél, skúffa
nýleg.
Verð kr. 550 þús.
Atislin Clubman '76
rauður. ekinn 12 þ. km
Verð kr. 1 millj.
Will.vs ’42
rauður, Chevrolet vél 327 cc,
4ra gira kassi.Hurst skipting,
vökvastýri, pústflækjur.
Verö kr. 780 þús.
Leiðin liggurtilokkar
NJÁLSGATA
GRETTISGATA f5-
Við eru staðsettir í hjarta
borgarinnar.
Bílaskipti
oft möguleg
LAUGAVEGUR
Grettisgötu 12-18
Sigrún Sverrisdóttir stendur
fyrir framan myndvefnaðinn
sem hún nefnir „Að loknu
dagsverki” þar sem hún sýnir
roskið fólk sem hefur, ekki i
annað hús að venda en ihúir í
blokk og það finnsi Sigrúnu
heldur sorglegt.
DB-myndir Bjarnleifur.
Norræn
veflist á
Kjarvals-
stöðum
Mikiðbrættá
Raufarhöfn,
en enginn sér
„móðuna"
Raufarhafnarbúar hafa alveg
sloppið við rafmagnsleysi og hef-
ur verið brætt þar látlaust undan-
farnar vikur.
Að sögn fréttaritara DB hefur
rúmlega 13 þúsund tonnum af
loðnu verið landað þar og var
talið að pláss fyrir um 1800 til
2000 tonn myndi losna núna
næstu daga, þar eð einn tankur
væri að tæmast.
Um 50 manns vinna á vöktum
við bræðsluna, sem gengið hefur
vel.
Segjast Raufarhafnarbúar ekki
hafa yfir neinu sérstöku að
kvarta, nema e.t.v. sjónvarpsleysi,
eða „móðunni", eins og sjónvay?
er nefnt á Norðausturlandi. Beina
Raufarhafnarbúar þeim tilmæl-
um til forráðamanna þess fyrir-
tækis, að þeir verði a.m.k. látnir
vita næst þegar sjónvarp eigi að
sjást þar.
-J.Fr.
Tóku byssuna
og róuðu
ölóða
Lögreglan var í fyrrinótt kvödd
inn í Laugarneshverfi þar sem
félagar tveir, húsráðandi og gest-
ur hans, höfðu gerzt ölóðir mjög.
Húsfreyjan á staðnum hafði þá
nokkru áður yfirgefið heimilið
vegna ástands þar innan veggja
og hafði hún með sér 18 mánaða
gamalt barn.
Lögreglumenn róuðu þá sem
voru á staðnum en til vonar og
vara höfðu lögreglumenn á brott
nteð sér haglabyssu og hlaðið
skotbelti sent annar mannanna
hafði i höndum og á sér.
-ASt.