Dagblaðið - 27.01.1977, Page 14

Dagblaðið - 27.01.1977, Page 14
„FORANDRINGEN” KEMUR ÚT A ÍSLENZKU í HAUST — Þýðandinn á að vera kona oghelzt móðiraðauki Bókaútgáfan Helgafell hefur nú keypt útgáfuréttinn að „Forandringen" og er ráðgert að bókin komi út í haust. Enn hefur ekki verið ákveðið hver þýðandinn verður en Liv Ull- mann sjálf setur það skilyrði að hann sé kona og heízt móðir að auki. „Við höfum prófað nokkrar konur að undanförnu og tökum ákvörðun um í næstu viku hver þeirra hlýtur verkið,“ sagði Ragnar Jónsson forstjóri Helga fells í stuttu spjalli við Dag blaðið. Hann sagði ennfremur að bókin fengist á prósentukjörum og tæki Ullmann 5% af verð- inu. Ekki sagðist Ragnar vita hvort það væri dýr eða ódýr samningur fyrir þessa metsölu- bókþar eð hann gæfi ákaflega lítið út af þýddum verkum. Honum var einnig. ókunnugt um hvort algengt væri að höf- undar settu þýðendum verka sinna jafnströng skilyrði og Liv Ullmann gerir. -AT- Milljónir renna í vasann hennar Liv Ullmann Bók Liv Ullmann verður ,að öllum líkindum metsölubók i Bandaríkjunum í vetur og vor. Fyrir það fær norska leik- konan margar milljónir. Hún starfar nú í Bandaríkjunum við gerð kvikmynda og leikur auk þess á Broadway. Bók Liv Ullmann var valin bók mánaðarins en það er ein bezta auglýsing sem hægt er að fá. Tvö víðfræg kvennablöð, Vogue og McCalls, hafa auk þess keypt réttinn til að birta útdrátt úr bókinni. Liv vgrður bráðlega á forsíðu TV Guide, sem er talið útbreiddasta viku- blað í heimi. Allt stuðiar þetta að goon sölu bókarinnar. Reynslan er sú að blöð sem birta sjónvarpsdag- skrár eru mjög góð auglýsinga- blöð. Enginn veit með vissu hvað Liv hefur fengið fyrir sölu bókarinnar í Bandaríkjunum (orðrómurinn segir að upphæð- in sé ekki undir 2 milljónum n. kr. 72 milljónir ísl. kr.) Við þá upphæð bætast svo prós- entur sem hún fær af hverju seldu eintaki. A þessu ári verður bókin gefin út i vasabókarbroti. Slíkar bækur eru venjulega lesnar af 10 sinnum fleira fólki. Liv Ullmann vinnur nýja og nýja sigra í Bandaríkjunum, nú með útgáfu bókar sinnar, Forandringen. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 1977 EG HATA AÐ BUA ALEIN ,,Eg hef alltaf vitað að ég myndi enda með því að búa alein, þegar ég yrði gömul,“ sagði Bette Davis í viðtali við bandarísk blað. „Það er hræðilegt að vera einmana. Það ætti enginn að þurfa þess. Eg hata einmana- leik,“ segir þessi heimsfræga leikkona sem nú er oróin sextíu og átta ára gömul. ,.Allt mitt líf hef ég verið mitt á meðal fólks — alltaf ver- ið þar sem hlutirnir eru að ger- ast. Nú er ég alein heima hjá mér. Það koma vikur sem ég hitti engan nema hreingerning- arfólk sem kemur til þess að taka til hjá mér.“ A meðan á þessu samtali stóð keðjureykti Bette hverja sígarettuna á eftir annarri. Hún sagðist ekki búast við því að einhver maður kæmi og bjargaði henni frá þessum leiðindum. „Hver myndi fara að kvænast mér núna?“ spurði þessi gamla kona sem á fjögur hjónabönd að baki. Hún hefur eignazt tvö börn, sem nú eru bæði gift og flutt burtu frá henni. „Eg ásaka þau ekki fyrir að hafa yfirgefið „hreiðrið." Það er allt eins og það á að vera. Það væri nka mjög undarlegt ef þau hefðu viljað hanga í pils- faldi móður sinnar. Eg hef sam- band við þau öðru hverju og þau hringja líka til mín,“ segir hún. En hvernig skyldi þessi aldna kvikmyndastjarna fá timann til þess að líða? „Eg reyni að hafa eittnvað fyrir stafni, ef ég mögulega get, les rnikið og horfi mikið á sjón- varpið. Eg er einnig að reyna að fullnema mig í eldamennsku. Ég er að reyna að læra að búa til ítalskan mat sem mér fellur mjög vel og prófa allar nýjar uppskriftir sem ég kemst yfir. Stundum elda ég bara venju legan mat, nautasteik eða eitt- hvað einfalt. Fyrir mörgum árum sagðist ég vera viss um að ég m.vndi enda sem eldgömul kerling, alein í stóru húsi uppi á hæðinni. Nú hefur þetta allt komið á daginn, nema húsið er ekki uppi á hæðinni. það stendur á árbakka." Þessi gamla kvikm.vndastjarna er ósköp einmana í ellinni og stundum hittir hún engan nema hreingerningarfóikið sitt svo vikum skiptir.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.