Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.01.1977, Qupperneq 17

Dagblaðið - 27.01.1977, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 1977 17 Bogi Ingjaldsson vélstjóri, Miðtúni 10, Rvík. lézt í Borgar- spítalanum 25. jan. Ingibjörg Jónsdóttir frá Völlum í Mýrdal verður jarðsungin frá Sólheimakapellu laugardaginn 29. jan. kl. 14.30. Soffía Pétursdóttir Hansen verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni föstudaginn 28. jan. kl. 13.30. Brynjólfur Jóhannesson frá Hrísey verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. jan. kl. 3 e.h. Hjálprœðisherinn Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Nýtt líf Unglingasamkoma í sjálfstæðishúsinu Hafn- arfirði í kvöld kl. 20.30. Ungt fólk talar og syngur. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir. Fíladelfía Almenn guðsþjónusta í kvöld kl. 20.30. Gestir tala. Aðalfundur Knattspyrnudeildar Vals verður haldinn í kvöld í félagsheimili Vals að Hlíðarenda. DaKskrá: 1. Venjuleg aðalfund- arstörf. 2. Verðlaunaafhendinjí til leikmanna meistaraflokks. Aðalfundi Knattspyrnudeildar Víkings sem átti áð vera í kvöld, hefur verið frestað til 3. febrúar. Verður þá í félaKsheimili Vík- ings við Hæðargarð. KFUM Aðaldeildarfundur i kvöld kl. 20.30 í húsi félagsins við Amtmannsstig. „Af frændum vorum Norðmönnum" fundur í umsjá Þóris Guðbergssonar. félagsráðgjafa. Allir karlmenn velkomnir. Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Aðalfundur félagsins verður haldinn að Vík Keflavík fimmtudaginn 27. þ.m. kl.-20.30. Fundarefni: Lagabrevtinuar Venjuleg aðalfundarstörf Kaffiveitingar. Stjórnin. Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra l''undur verður ao Iláaleitisbroul 13 fimmlu- daginn 27. ian. kl. 20.30. St jórnin. Félagsstarf eldri borgara Athugið að i opnu húsi að Norðurbrún 1 í dag fimmtudag hefjast gömlu dansarnir kl. 16 (kl. 4 e.h.) Bókmenntaþáttur Indriða G. Þorsteinssonar rithöfundar hefst kl. 15.30 á föstudag. Ný dagskrá liggur frammi. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Opið hús — Kynningrrkvöld fimmtudaginn 27. janúar kl. 20. Fyrirléstur: Syndafall mannsins. Samtök Heimsfriðar og sameiningar. Skúlagötu 61. R.. s. 28405. Vonir um að einhverjar vörur lækki Nú hafa innflytj- endur mikinn áhugaá lækkun Vonir standa til, aö ein- hverjar vörur muni lækka í veröi eins og brauöin. Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagöi í morgun, aö allmargir innflytjendur hefðu snúið sér til hans og spurzt fyrir um hvort þeir fengju ein- hverja umbun í verölagn- ingu, ef þeim tækist að sanna að varan yrði, vegna hagkvæmra innkaupa, ódýr.- ari en sambærilega vara á markaðnum. Sumir hefðu haft gögn um hagkvæmari innkaup. Dagblaðið héfur frétt, að meðal þeirra vara, sem vonir eru um að lækki, séu sumar tegundir bifreiða. Þá hafa ábyrgðir, teknar erlendis, verið miklu dýrari en ef reyndist unnt að taka þær hér heima. Verðlagsstjóri sagði, að verðlagsnefnd hefði í gær heimilað sér að víkja frá gildandi verðlags- ákvæðum í þeim tilvikum, þar sem ótvírætt væri sannað að varan lækkaði í verði. Frumkvœði bakara- meistara, hveiti frá Belgíu Verðlækkunin á brauðum stafar annars vegar af því að bakarameistarar fengu fram lækkun á hveiti. Þeir komust inn á markað í Belgiu og innflytjendum tókst síðan að fá samsvar- andi lækkun á markaði í Bandaríkjunum. Sambandið og heildsalar, sem höfðu flutt inn hveiti, fylgdu í fót- spor bakara. Hins vegar á lækkun brauða rót að rekja til þess, að um áramótin losnaði um innflutning á rúgmjöli. Hann hafði áður verið bundinn við Sovét- ríkin, en rúgmjöl var gefið frjálst um áramótin. Franskbrauð og heilhveitibrauð, 500 grömm, lækka nú úr 80 krónum í 76. Formbrauð úr hvítu hveiti og heilhveiti lækka einnig um 5- prósent og kosta 79 krónur. Maltbrauð Iækka um tvö og hálft prósent niður í 82 krónur. — Nú er einnig ákveðið hámarksverð í heildsölu á brauðum. -HH Jazz með Þorra- matnum íNausti Kristján Magniísson og Ólafur Gaukur aftur komnir f trío saman „Viljirðu heyra létta jazzmúsík komdu þá í Naústið í kvöld eða næstu fimmtudags- kvöld,“ sagði Kristján Magnússon píanóleikari sem leit inn til okkar í gær. Kristján var um margra ára skeið fremstur í flokki jazzmanna hér og hóf að leika opinberlega fyrir um eða yfir 30 árum. Nú mun hann ásamt Ólafi Gauk gítar- leikara og Helga Kristjánssyni bassaleikara koma fram í Naust- inu á fimmtudögum. Verður það eflaust til þess að þorramaturinn rennur betur niður og gleður ýmsa, a.m.k. miðaldra Reykvík- inga. „Við leikum bæði jazz og sitt- hvað, sem okkur dettur í hug,“ sagði Kristján. „Við byrjuðum reyndar að leika saman svona músík 1948 ásamt Halli Símonar- syni Dagblaðsmanni. Þetta er því að verða 30 ára stríð“ sögðu þeir Kristján og Ólafur, „og það er gaman að reyna þetta aftur. Það „Svona vorum vió Olafur Gaukur og Hallur Sím.l948,“ sagði Kristján Magnússon píanóleikari er hann dró upp þessa gömlu mynd. gefast fá tækifæri til að leika þessi mjúku, fínu og ágætu lög, svo að þetta tækifæri í Naustinu er okkur kærkomin tilbreyting." Þeir félagar- sögðu að ekki þyrfti að geta þess, að Naustið væri opið öll kvöld og þar væri • alltaf hægt að fá hvers kyns mat, en þeir leika þar bara á fimmtu- dögum. -ASt. K Þarna er æft fyrir fimmtudags- tónleikana í Nausti, Heigi, Kristján og Óiafur Gaukur. Hvernigá árshátíðargreiðslan að vera? Starfsemi Sambands hár- greiðslu- og hárskerameistara hefur verið mjög mikil undanfar- in tvö ár. Margar sýningar hafa verið haldnar á vegum sambands- •ins og almenningi hafa verið kynntar nýjungar á þessu sviði. Enn á ný ætlar Sambandið að halda sýningu í Sigtúni og þá verða sýndar samkvæmis- greiðslur og klippingar. Það er áreiðanlega mjög vel þegið, þar sem árshátíðir fara nú í hönd. A annað hundrað módel karla og kvenna koma fram og á milli sýnir Heiðar Ástvaldsson gestum nýjustu dansana. Sýningin hefst klukkan 3 sunnudaginn 30. jan. og er eins og áður segir i Sigtúni. -KP Korkurínn horfinn sporlaust undir yfirborðið Korkurinn — Christopher Barbar Smith — finnst hvergi, en fæstir efast um að hann sé í felum hjá vinum eða kunningj- um sínum, að öllum líkindum utan Keflavíkurflugvallar. Láta menn — t.d. lögreglumenn á Suðurnesjum sem þekkja til mannsins — sér detta í hug að hann bíði nú rólegur þar til um hægist og muni ekki um að sitja í þröngu bakherbergi í nokkrar vikur eða mánuði; annað eins hafi hann setið í gæzluvarð- haldi. Afar líklegt er að flótti Barbars Smith úr tugthúsinu á Keflavíkurflugvelli hafi verið skipulagður utan vallar. Her- stjórnin á Keflavíkurflugvelli hefur engar upplýsingar viljað veit um gang rannsóknarinnar þar eð það geti gert erfitt fyrir um væntanlega dómsrannsókn herréttar. -OV 8 I DAGBLADIÐ ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐIÐ SIMI27022 ÞVERHOLTI 2 I Til sölu 8 Kjöt, kjöt! Lambakjöt, ærkjöt, egg, hjörtu, íifur, mör, svið og hið viður- kennda hangikjöt mitt, frampart- ar 710 kr. kg, læri 950 kr. kg. Sláturhús Hafnarfjarðar, sími 50791. Til sölu vel með farin 4ra hellna Rafha eldavél með hitahólfi. Ennfremur tvöfaldur eldhúsvaskur úr stáli með borði. Uppl. í síma 35120 eftir kl. 18. Nýr svefnbekkur til sölu. Uppl. í síma 72712. Óskast keypt Kembivél óskast keypt. Uppl. í síma 43164 eftir kl. 18 á kvöldin. Þvottapottur frá Ofnasmiðjunni óskast til kaups. Uppl. í síma 86566 milli kl. 15 og 16, fimmtudag og föstudag. Oska eflir að kaupa hilakút oa miðstiiðvar- hitara. Uppl. i síma 94-8248. 1 Fyrir ungbörn Vel með farinn kerruvagn óskast. Hringið í síma 72233. Nýlegur Swallow kerruvagn til sölu. Uppl. í sima 18830. I Heimilistæki Frystikista, Ieecold. 275 1, til sölu. Uppl. i síma 72379 eftir kl. 7 á kvöldin. I Verzlun 8 Urval ft rðaviðtækja. þar á meðal ódýru Astrad- transistortækin. Kassettusegul- bönd með og án útvarps. Bílaseg- ulbönd, bílahátalarar og bílaloft- net. Hvlki og töskur f/kassettur og átta rása spólur. Philips og ÖASF kassettur. Memorex og BASF Cromekassettur. Memorex átta rása spólur. Músikkassettur og átta rása spólur, gott úrval. Hl.jómplötur. íslenzkar og erlend- ar. Póstsendum F. Björnsson radíóverzlun. Bergþórugötu 2. sími 23889. Donnubúð; Mikið úrval af grófu prjónagarni,. ullarblandað en þolir þvottavéla- þvott. Allar stærðir af prjónum og prjónamál. Nýkomið aeryl- heklugarn sem heldur sér í þvotti og þarf hvorki að stífa né strekkja dúka úr þvi. Plötulopj og hespu- lopi alltaf til, einnig prjónaupp-t skriftir. Þykkar sokkabuxur á börn og fullorðna. Erum líka með garn á útsölu, aðeins 100 kr. hnot- an. Sendum í póstkröfu. Donnu- júð, Grensásvegi 48, simi 36999.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.