Dagblaðið - 21.03.1977, Síða 3
DAGBLADIÐ. MÁNUDAGIIR 21. MARZ 1977.
3
Hvor á að bera kostnaðinn?
—sá sem þiggur þjónustuna eða sá sem veitir hana
Hermann Hansson,
Kaupfélaginu á Hornafirði,
hafði samband við blaðið.
í tilefni af grein mat-
sveinsins á Öskari Halldórssyni
í blaðinu sl. þriðjudag, viljum
við vinsamlegast koma á fram-
færi eftirfarandi athugasemd:
Matsveininum láðist að geta
þess að umrædd afgreiðsla fór
fram seint að kveldi, alllöngu
eftir lokunartima verzlana en
afgreiðslugjaldið er að sjáif-
sögðu ekki tekið á venjulegum
verzlunartíma.
Til að afgreiða pöntunina
þurfti að kalla út starfsmann
og samkvæmt kjarasamningum
verzlunarmanna ber að greiða 4
klst. í næturvinnu fyrir út-
kallið. Laun og launatengd
gjöld vegna útkalisins nema
fast að 6 þúsund krónum.
Smásöluálagningin er við það
miðuð að vörusala fari fram á
venjulegum verzlunartíma og
álagning á þær vörur sem af-
greiddar voru í umrætt skipti
nemur samtals kr. 2574,-
Ríkissjóður fær sinn hlut af
afgreiðslugjaldinu í gegnum
söluskattsinnheimtu þannig að
í hlut verzlunarinnar koma kr.
3333.-. Smásöluálagningin og
nettó fjárhæð afgreiðslugjalds-
ins, nemur þannig kr. 5.907.-
eða því sem næst launa-
kostnaðinum við útkallið.
M.ö.o. vörurnar eru seldar á
kostnaðarverði.
Af þessu má ljóst vera að
viðskiptin eru hvorugum hag-
stæð, kaupanda eða seljanda.
Spurningin er hins vegar sú:
Hvor á að bera kostnaðinn, sá
sem þiggur þjónustuna eða sá
sem veitir hana.
dii
blaðasali
leggur
víst
hendur
á litla
sölu-
stráka
Stefán Tyrfingsson fisksali
hringdi:
Mig langar til þess að leggja
nokkuð til málanna vegna
þeirra skrifa sem orðið hafa
um Öla blaðasala. Hann sagði í
blaðinu hjá ykkur fyrir
skömmu að hann hefði aldrei
lagt hendur á „litla
blaðsölustráka".
Ég leyfi mér að lýsa Óla
ósannindamann, því ég er
sjálfur einn af „blaðsölu-
strákunum" sem ÓIi hefur lagt
hendur á.
Á árunum 1954-58 var ég
lítill polli sem vann mér inn
aura við blaðasölu. Eg hafði
þann starfa að hjálpa til að
bera Vísi frá Félagsprent-
smiðjunni í afgreiðsluna og
fékk tíu eintök af blaðinu
fyrir. Ég var því oft fyrstur.
á vettvang á hornið á Reykja-
víkur Apóteki ásamt Óla blaða-
sala.
Þá urðu blóðug slagsmál, þvi
Óli var meiri að líkamsburðum
heldur en ég og hann bæði
lamdi mig og sparkaði í mig.
Það eru því helber
ósannindi að Óli blaðasali hafi
aldrei lagt hendur á aðra blað-
sölustráka sem hafa „leyft“ sér
að koma inn á hans „umráða-
svæði“ við apótekið. Annars
finndist manni að Óli blaðasali
ætti að fara í eyrarvinnu eins
og liver annar og láta lítlu
strákunum cftir að selja blöð í
miðbænum.
— Ijósmyndavörur
óhemjudýrar
Okur eða bara
háir tollar?
Bjartur skrifar:
Ég er svo óheppinn að vera
einn af þeim mörgu sem hafa
„Það er dýrt spaug að hafa áhuga
á Ijósmyndun,“ segir Bjartur
bréfritari.
gaman af því að taka myndir. Eg
fór með litfilmu i framköllun til
Hans Petersen fyrir 4 dögum og
lét framkalla hana og kópera.
Þetta var aðeins 12 mynda filma
(venjulega nota ég þó 36 mynda).
Það kostaði 1380 kr að framkalla
og kópera 12 mynda filmu. Ég
var áður búinn að kaupa filmuna
fyrir 630 krónur, þannig að þessar
12 myndir kostuðu mig kr. 2010.
Er ekki hægt að taka þessi mál til
endurskoðunar? — Hví þarf að
vera svo dýrt að taka myndir nú
til dags þegar tæknin er svona
mikil og Hans Petersen er með
eintómar sjálfvirkar vélar?
Er þetta vegna svo hárra tolla
eða er þetta bara okur?
Ég vænti þess að þeir hjá Hans
Petersen svari þessu bréfi sem
fyrst.
Spurning
dagsins
Hvaða ostur finnst þér
beztur?
Birgitta Jónsdóttir húsfreyja: Lg
kaupi yfirleitt 30% ostinn frá
Osta- og smjörsölunni en mysu-
osturinn finnst mér líka mjög
góður.
Ólafur Ólafsson skrifstofumaður
á Alþingi: Nú ætla ég að kaupa
bragðsterkan ost til tilbreytingar.
Ætli ég kjósi ekki tilsitter og
ambassador í þetta skipti.
Gréta Nielsen húsfrú: Eg kaupi
aðallega paprikuostinn sem er
tiltölulega nýr á markaðnum. Þá
■finnst mér roeherfordosturinn af-
ar bragðgóður og svo auðvitað
30% osturinn vinsæli.
Davið Kr. Jensson: Mér finnast
allir íslenzku ostarnir mjög góðir
yfirleitt og Osta- og smjörsalan
má vera stolt af framleiðslu sinni.
Mínir uppáhaldsostar eru camem-
bert og 30 % brauðosturinn.
Svanhvít Loftsdóttir frá Vest-
mannaeyjum: Mysingur og smur-
ostur.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, af-
greiöslumær í Osta- og smjör-
sölunni: Ég er hrifnust af óðals-
ostinum sem erlendis er þekktur
sem Emmentahl, en tilsitterostur-
inn finnst mér einnig mjög ljúfur.