Dagblaðið - 21.03.1977, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUK 21. MARZ 1977.
Strandaði trillu í Vogunum
—grunaður um ölvun
Lítil trilla sigldi í strana i Ferðinni var heitið til Reykja- stoðar. Hann var færður til
Vogunum á laugardag. Einn víkur. Fólk í Vogum benti lög- blóðprufu vegna gruns um ölv-
maður var í bátnum og var reglunni i Keflavík á trilluna un.
hann að koma úr Keflavík. og kom hún manninum til að- -KP.
CASITA VERÐUR
ÞAÐ
ÍÁR
Casita hjólhýsið er FELLI-
HÝSI. Það er reist á
aðeins 30 sekúndum.
Þetta er hið glæsi-
legasta hjólhýsi sem
þér getið valið um í
dag. Sem sagt, Casita er
framtíðin, því það
veldur engri mótstöðu í
akstri og bíllinn þinn
dregur það hvar sem er.
Þetta er undravagn, sannkölluð töfrakerra, allt einangrað og loft
bólstrað. Pantið því strax i dag því afgreiðslufrestur er stuttur. Munið að
aftan í franskan bíl passar aðeins franskt fellihýsi og þó auðvitað
Casita.
Casita fer sigurför um allan hinn stóra heim. Casita heillar alla, einnig þig.
Hallbjörn J. Hjartarson hf.
Skagaströnd. Simi 95-4629.
Við þotum
ciö óbgrgjfl/l
þjónu/lu okkcif
og bjóðum auk þess hagstæðasta verðið
Eskifjörður:
Bæjarstjóri
og forseti
bæjarstjómar
segjaupp
störfum súium
Bæjarstjóri og forseti bæjar-
stjórnar á Eskifirði hafa sagt
upp. Jóhann Kiausen bæjar-
stjóri boðaði tii bæjarstjórnar-
fundar á föstudag eftir langa
mæðu. Fundurinn var opinn og
stóð stutt. Forseti bæjarstjórn-
ar, Kristmann Jónsson, las upp
bréf frá félagsmálaráðuneyt-
inu þess efnis að hús Bóasar
Emilssonar skyldi keypt fyrir
elliheimili Eskfirðinga.
Forseti bæjarstjórnar sagði
þar með lausu sínu starfi.
Einnig lýsti Kristmann (Fram-
sóknarflokki) því yfir að fyrsti
varamaður. Vöggur Jónsson
(Alþýðuflokki), tæki ekki vió
forsetastarfinu því að hann
væri á móti áðurgreindum
húsakaupum. Georg Halldórs-
son (Sjálfstæðisflokki), sem
er annar varamaður, tók við
forsetastarfinu.
Samþykkt var í febrúar að
kaupa húsið fyrir elliheimili og
voru tveir sjálfstæðismenn og
tveir alþýðuflokksmenn því
fylgjandi.
Jóhann Klausen tók því næst
til máls og sagði sínu starfi
lausu með sex mánaða fyrir-
vara frá 1. marz. Eskfirðingar
halda sumir að Jóhann ætli að
sækja um starf sláturhússtjóra
hjá Pöntunarfélagi Eskfirð-
inga, því að sláturtíð byrjar þar
aldrei fyrir 1. október.
Guðmundur Arnbjörnsson
tók næstur til máls og lýsti
undrun sinni yfir því „einræði
og ábyrgðarleysi" sem minni-
hlutinn sýndi í þessu nauð-
synjamáli, sem hann taldi að
kaupa áðurgreint hús sem er
með 1846 fermetra lóð og bíl-
skúr, fyrir 8 milljónir. Jafn-
framt lýsti Guðmundur ánægju
sinni með undirtektir félags-
málaráðuneytisins.
Bæjarstjóri tók aftur til máls
og sagðist verða að hlíta úr-
skurði ráðuneytisins en hann
væri ekki ánægður með hann.
Eskfirðingar ræða mikið um
uppsögn bæjarstjóra og forseta
bæjarstjórnar og sumir telja að
bæjarstjóri hafi lagt í of miklar
framkvæmdir á of stuttum
tíma. Gárungar skjóta því fram
að Jóhann og Kristmann hafi
„hræðzt að verða settir á elli-
heimilið".
Regína/KP
„Utanlandsferðir auka ostneyzlu landsmanna:”
Sex kíló af
ostum á mann
„Það er ekki nokkur vafi á
þvi að aukinf ferðalög almenn-
ings til útlanda hafa
gjördbreytt matarvenjum okk-
ar Islendinga. Til sæmis hefur
ostaneyzla þjóðarinnar aukist
frá því sem áður var. Á síðasta
ári var ostaneyzlan tæp sex kg á
mann en var fyrir fáum árum
ekki nema þrjú kg á mann.
Margar þjóðir neyta þó mun
meiri osts, eða allt að tólf kg á
mann," sagði Óskar H. Gunn-
arsson framkvæmdastjóri Osta-
og smjörsölunnar, á fundi með
blaðamönnunt fyrir helgina.
Ársfundur fyrirtækisins var
haldinn sl. fimmtudag. Þar kom
m.a. fram, að velta fyrirtækis-
ins á árinu var 2610 milljónir
og hafði aukizt um 450 milljón-
ir frá árinu áður. Samt varð
verulegur samdráttur í osta-
framleiðslunni, eða sem nam
379 lestum en aukning á smjör-
framleiðslunni var 314 lestir.
Aukning varð á smjörsölunni
um 6,8% en sala á ostum var
hliðstæð og árið áður. Meðal-
neyzla landsmanna á smjöri var
7.3 kg. Mjólkurnevzla lands-
manna er gífurlega mikil miðað
við ne.vzlu annarra þjóða, en
hver íslendingur drekkur 232
lítra af mjólk á ári á móti 192
lítrum i Noregi og 174 lítrum í
Svíþjóð.
Osta- og smjörsalan sér um
sölu og dreifingu á um 70% af
sölumagni smjörs og osta í land-
inu. F.vrirtækið hefur rekið öfl-
uga k.vnningarstarfsemi í forrni
ostakynningar í verzlunum
bæði í Revkjavík og úti á landi.
Hefur húsmæðrakennari verið
í þjónustu fyrirtækisins síðan
1969 og séð um ostakynning-
una, útgáfu á mjög smekkleg-
um bæklingum með ostaupp-
skriftum og einnig vinnur hús-
mæðrakennarinn að því að
finna bragðefni í smurostana. í
vor og sumar er ráðgert að efla
kynningarstarfsemi á ostum úti
um land. Nú hafa verið gefnir
út tuttugu og tveir bæklingar
með uppskriftum.
Utflutningur á mjólkurafurð-
um var mjög lítill á árinu. Alls
voru flutt út 317 tonn af osti til
Bandaríkjanna og fæst gott
verð fyrir ostinn á þeim mark-
aði, þó ekki nema um 60% af
innanlandsverði. Lögð hefur
verið áherzla á að framleiða
óðalsost fyrir Bandarikjamark-
að og eru taldar líkur á þvi að
verðið myndi hækka ef fram-
leiðsla og útflutningur yrði
jafnari en verið hefur.
Eins og frægt var voru flutt
út 100 tonn af undanrennudufti
á árinu og þurfti fyrirtækið að
greiða um 200 kr. með hverju
kg. Einsýnt þótti að slíkur út-
flutningur borgar sig ekki og er
ráðgert að bændur fái til sín
aftur það undanrennuduft sem
eftir er í landinu til þess að'
gefa skepnum sem fóðurbæti.
Þá voru 342 tonn af „kaseini"
flutt út, en kasein er notað í
efnaiðnað.
Nú eru á markaðinum um
þrjátíu tegundir af ostum og
hefur fyrirtækið lagt sig fram
um að hafa framleiðslu sína í
smekklegum umbúðum.
A.Bj.