Dagblaðið - 21.03.1977, Síða 5
5
DACBLÁÐJÐ. MÁNUDAGUR 21. MARZ 1977.
Kosið um
klerka
— 40 ár frá síðustu prestskosningum í Firðinum
A annaó þúsund Hafnfirðingar
höföu mætt á kjörstaði til að kjósa
sér prest kl. 3 í gær en um 40 ár
eru liðinfrásíðustuprestskosning-
um í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta
skipti sem kosið er í tveim presta-
köllum en bænum hefur nú verið
skipt í Víðistaðaprestakall, með
um 37% kjósenda og Hafnarfjarð-
arprestakall með um 63%.
Fráfarandi prestur, sr. Garðar
lega tryggja kynsystur sinni em-
bættið.“
„Ekki er ég sammála því,“
sagði annar dyravörður á staðn-
um. „Gunnþór fer inn. Á þvi leik-
ur enginn vafi.“
„Undarlegt þetta með prests-
kosningar," sagði Einar Ólafsson.
„Fólkið er húðlatt við að mæta í
kirkju en svo fer allt á annan
Á kjörstað í Hafnarfirði í gær.
Þorsteinsson hefur þjónað þess-
um prestaköllum sem einu sam-
fellt í 40 ár.
Mikil kirkjusókn hefur verið
í Hafnarfjarðarkirkju sl. þrjá
sunnudaga en þá hafa messað
þeir þrír prestar sem nú sækja
um.
endann þegar á að fara að kjósa
prest.“
„Ég held að dreifibréfið hafi
skemmt mikið fyrir Auði Eir,“
sagði nærstödd kona „en mér
finnst tími til kominn að kona fái
að sanna ágæti sinn í predikunar-
stólnum."
Mikill hugur
í konunum
I Lækjarskóla var kjörstaður
f.vrir Hafnarfjarðarprestakall en
þar eru sem kunnugt er tveir um-
sækjendur, sr. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir og sr. Gunnþór Inga-
son.
„Þáð er mikill hugur í konun-
um," sagði Helgi Enoksson dyra-
vörður við eina kjördeildina.
„Þær eru duglegri við að mæta en
karlmennirnir og vilja augljós-
Nauðsynlegt
að kjósa
í Víðistaðaskóla, sem var kjör-
staður Víðistaðaprestakalls voru
öllu færri kjósendur mættir enda
aðeins einn umsækjandi sr. Sig-
urður H. Guðmundsson og telja
vafalaust margir óþarfa að kjósa í
slíkum tilfellum. Svo er hins veg-
ar ekki. Til að kosning geti talizt
lögmæt verður a.m.k. helmingur
kjósenda að mæta og greiða at-
kvæði sitt og helmingur af þeim
Einar Ólafsson og kona hans: Fólkið húðlatt að mæta í kirkju en svo
fer allt á annan endann við prestskosningar.
Hluti sóknarnefndar Víðistaðasóknar: Jóhanna Engiiberts, Soffia Stefánsdóttir, Einar Sveinsson og
Guðbjörn Ólafsson.
DB-myndir: Sveinn Þorm
atkvæðum verður að vera greidd-
ur umsækjanda þótt aðeins sé um
einn að ræða.
Við hittum fyrir sóknarnefnd-
armennina Guðbjörn Ölafsson og
Einar Sveinsson: „Sigurður H.
Guðmundsson kemur til með að
þjóna þeim hluta bæjarins sem
hvað örast hefur vaxið á undan-
förnum árum. Hann er afar vin-
sæll maður og vel liðinn og mun
koma hans hingað mörgum kær-
komin.“
Vaxandi trúaróhugi
„Trúaráhugi og kirkjusókn ver
mjög vaxandi í þessum bæjar-
hluta og er það ekki síst að þakka
dugnaði nokkurra kvenna í sókn-
arnefndinni,“ sagði Guðbjörn.
„Eftir messu sl. sunnudag, sem
var mjög fjölmenn, var öllum boð-
ið í kaffi og kökur og þá voru hér
rúmlega tvö hundruð manns."
Sr. Sigurður H. Guðmundsson
hefur starfað á Eskifirði undan-
farin ár við mjög góðan orðstír og
munu sóknarbörn hans þar hafa
safnað undirskriftum til að skora
á hann að sitja áfram.
„Við eigum von á mörgum
seinna í dag en fólk bregður sér
gjarnan út úr bænum með börnin
á sunnudögum,“ sagði Einar, „en
hér verður kjörstaður opinn til kl.
10 í kvöld."
Úrslit kosninganna í báðum
prestaköllum munu gerð kunn
n.k. fimmtudag. -JFM.
Framleiðendur
grásleppuhrogna
Við neðanskráðir framleiðendur grásleppuhrogna teljum nauðsynlegt, að nú þtgar verði
hafizt handa við stofnun samtaka grásleppuhrognaframleiðenda, sem hafa að markmiði að gæta
hagsmuna framleiðenda og sjómanna, semja um sölu framleiðslunnar á hagstæðustu kjörum á
hverjum tíma og koma fram sem fulltrúi félagsmanna við verðákvarðanir í framtíðinni.
Við undirritaðir höfum komið okkur saman um að mynda undirbúningsnefnd til stofnunar
samtaka, en formlegur stofnfundur verði síðan haldinn í ágúst-október nk. Framkvæmdastjórn
nefndarinnar skipa þeir Sigursteinn Húbertsson, Henning Henriksen og Karl Agústsson.
Við skorum á alia framleiðendur að taka höndum saman um hagsmunamál sín og láta skrá sig
sem aðila að samtökunum. Mun íslenzka útflutningsmiðstöðin h/f, sími 16260, annast skráningu
félagsmanna auk okkar undirritaðra.
Sigursteinn Húbertsson,
Ilafnarfirði, sími 51447.
Zóphanías Ásgeirsson,
Hafnarfirði, simi 51113
Gunnar Stefánsson, Akranesi,
sími 93-2085
Kristján Vídaiín, Stykkishólmi.
Ingvi Haraldsson, Barðaströnd.
Ólafur Gíslason, Selárdal,
Henning Henriksen, Siglufirði,
sími 97-71196
Helgi Pálsson, Húsavík,
sími 96-41231.
Karl Ágústsson, Raufarhöfn,
sími 96-51133
Kristinn Pétursson, Bakkafirði.
Aðalsteinn Sigurðsson, Vopnaf.,
Sími 97-3118.
Hrafnkell Gunnarsson, Breiðdalsvík
sími 97-6185
Marej Edvaldsson, Hafnarfirði,
sími 50954
Ingóifur Haiidórsson, Keflavík,
sími 92-1857
Kjartan Óiafsson, Stykkishólmi
Einar Guðmundsson, Barðaströnd.
Þráinn Hjartarson, Patreksfirði,
sími 94-1312
Guðmundur Halldórsson, Drangsnesi
Július Magnússon, Ólafsfirði,
sími 96-62130
Guðmundur A. Hólmgeirss. Húsavik,
sími 96-41492
Þorbergur Jóhannsson, Þórshöfn,
sími 96-81165
Elías Helgason, Bakkafirði.
Þorgeir Sigurðsson, Seyðisfirði,
sími 97-2111.
SALA
verötryggðra spariskírteina
ríkissjóðs
hefst þriöjudaginn 22. mars
n
s/\S"
SEÐLABANKI ÍSLANDS
< -
3