Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 21.03.1977, Qupperneq 10

Dagblaðið - 21.03.1977, Qupperneq 10
10 Irjálst, úháð dagblað Útgefandi Dagblaftiö hf. Framkvœmdastjóri: Svoinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aftstoftarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Handrit: Ásgrímur Pólsson. Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Ema V. Ingólfsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob Magnússon, Katrín Pálsdóttir, Kristín Lýðs- dóttir, Ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkori: Þráinn Þorieifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Áskriftargjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. Ritstjóm Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugerð: Hilmir%f., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Svæfmgar ínefnd Hannibal Valdimarsson, for- maður stjórnarskrárnefndar, sagði í viðtali við Dagblaðið á þriðjudaginn, að nefndin hefði lítið starfað um skeið. Tekur hann þar vægt til orða, því að nefndin hefur frá upphafi nær ekkert starfað. Heilu árin liðu án funda fyrst eftir að stjórnarskrárnefnd Hannibals komst á laggirnar á tíma vinstri stjórnarinnar síðari. Enn virðist ýmislegt vera því til fyrirstöðu, að langþráð endurskoðun stjórnarskrárinnar verði að veruleika. Ráðsmaður Hannibals í Selárdal hefur veikzt og á nefndarformaðurinn því ekki heimangengt. Virðist búskapurinn í Selárdal ætla að verða þjóðinni örlagaríkur. Merkilegt er, að hinum önnum kafna Selár- dalsbónda skuli ekki hafa dottið í hug að fela formennskuna að minnsta kosti um tíma ein- hverjum öðrum, sem má vera að því að sinna þessu þjóðþrifamáli. En sennilega framkvæmir Hannibal svæfingar sínar með vitund og vilja leiðtoga þjóðarinnar, úr því að ekkert er rekið á eftir honum. Hannibal upplýsti ennfremur í viðtalinu, að ekki væri hljómgrunnur í nefndinni fyrir ein- menningskjördæmum. Hafa þó skoðanakann- anir leitt í ljós, að með þjóðinni er útbreiddur áhugi á einmenningskjördæmum. En full- trúum flokksvélanna í nefndinni þykir sjálf- sagt líklegt, að einmenningskjördæmi mundu draga úr ofurvaldi flokksvélanna. Þessar flokksvélar þrúga þjóðina á margan hátt og er þetta eitt dæmið. Við getum ekki fengið betri þingmenn, kosna beint í persónu- legu kjöri, í stað núllanna í öruggum sætum framboðslistanna, af því að slík breyting hentar ekki flokksvélunum. Hannibal þykir ekki tíðindum sæta, að nefnd ungra manna úr þremur stjórnmálaflokkum, Alþýðuflokknum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, hefur náð samstöðu um tillögur um persónulegt kjör alþingismanna. „Það er góðra gjalda vert, að unga fólkið myndar sér skoðanir,“ segir Hannibal um þessar ágætu tillögur. Samkvæmt tillögunum eiga flokksvélarnar ekki að geta troðið þægu börnunum sínum í örugg sæti, því að ekki er kosið eftir listum. Kjósendur eiga sjálfir að setja númer fyrir framan nöfn frambjóðendanna í þeirri röð, sem kjósendur en ekki flokksvélarnar vilja hafa þá. Og kjósendurnir geta meira að segja sett frambjóðendur annarra flokka inn í þessa röð, ef þeir vilja. Því miður er áhugaleysi Hannibals um þessar tillögur líkast til dæmigert um áhuga- leysi þingmanna almennt. Þeir eru skrautblóm flokksvélanna og hafa smám saman unnið sig upp eftir númeraröð framboðslistanna. Þeim er þaó sjálfsagt óbærileg tilhugsun, að skyndilega kæmi til sögunnar ný skipan, er gæti á einni nóttu gert alla þessa fyrirhöfn að engu. Núverandi alþingismenn hafa þeirra hags- muna að gæta, að kosningalögin verði ekki bætt. En Hannibal ætti ekki að þurfa að þjóna þessum hagsmunum. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. MARZ 1977. HELGI PETURSSON Tafír á afgreiðslu jarðgass frá Norðursjónum kosta milljónir Olíuboranir á Ekofisk-svæðinu í Norðursjónum. Fyrsta tilraun til þess að leiða gas frá hinu auðuga Ekofisk-svæði í Norðursjónum hefur nú tafizt í marga mánuði og lítur allt út fyrir að svo verði um sinn. Ástæðan: Illa frágeng- in leiðsla sem unnin var af dönsku fyrirtæki. Leiðslan liggur um 55 km leið um danska hlutann af Norðursjónum og vill viðskipta- ráðuneyti Dana ekki leyfa notk- un hennar fyrr en tryggt sé að hún sé fullkomlega örugg. Viðgerðin mun taka marga mánuði og kosta milljarða króna. Tapið telst vera gífur- legt því um hana eiga að fara 15-16 milljarðar kúbikmetra af jarðgasi til neytenda i Þýzka- landi, Frakklandi og Hollandi. Heildarmagnið svarar til allrar orkunotkunar Dana á einu ári. Einn metra niður Það hafa áður orðið seink- anir á afgreiðslu jarðgassins. Seinkunin nú er því að kenna að Danir gerðu vissar öryggis- kröfur er leggja átti leiðsluna á botn Norðursjávar frá Ekofisk- svæðinu til borgarinnar Emd- en í Norður-Þýzkalandi. M.a. var gert ráð fyrir að leiðslan yrði grafin niður í botn Norðursjávar og hulin jarðvegi í öryggisskyni. Norðmenn og Þjóðverjar gerðu svipaðar kröf- ur á sínu landsvæði. Svífur Nú er búið að leggja leiðsi- una. En er rannsóknir voru gerðar á henni fyrir stuttu kom í ljós að mikið bjátaði á. A sumum stöðum er hún alls ekki grafin niður. Sums staðar flýt- ur hún bókstaflega í sjónum. Það gæti haft hinar alvarleg- ustu afleiðingar. Leiðslan er umlukt steinsteypu og ef hún liggur ekki kyrr er hætta á að steypan brotni af. Eins gæti farið svo að leiðslan flyti upp undir yfirborð sjávar og þá væri hætta á ásiglingum, með ómældum afleiðingum. Viðurkennir afglöpin Fyrir nokkrum árum flaut gasleiðsla upp undir yfirborðið vió Holland. án þess þó að nokk- uð alvarlegt kæmi fyrir. Þess vegna hafa Danmörk og löndin tv.ö krafizt þess að gert verði við leiðsluna áður en hún verður tekin í notkun. Danska fyrirtækið, sem lagði leiðsluna, hefur viðurkennt mistökin og er búizt við að það verði að greiða miklar upphæð- ir í skaðabætur.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.