Dagblaðið - 21.03.1977, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. MARZ 1977.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Hörkulið í undanúrslit
ensku bikarkeppninnar!
— LiverpooNiðin, Leeds og Manch. Utd. sigruðu á laugardaginn í 6. umferð
Fjögur af stórliðum enskrar
Knattspyrnu tryggðu sér rétt i
undanúrslit ensku bik'arkeppn-
innar á laugardag. Everton,
Leeds, Liverpool og Manch.
Utd. Langt er síðan svo vel hef-
ur verið skipað í undanúrslit og
hvert, sem er þessara fjögurra
líða gæti orðið sigurvegari í
keppninni. Leikirnir í undan-
úrslitum verða háðir 23. apríl,
en úrslitaleikurinn verður 21.
maí á Wembley — eða þremur
vikum siðar en venjan hefur
verið síðustu áratugina. Enska
kanttspvrnan fer lengra fram á
sumarið en áður vegna riðla-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar og hafa þeir, sem ráða
deildakeppninni mjög amast
við því, svo ekki sé meira sagt.
En nóg um það. Snúum okk-
ur aó leikjunum fjórum í 6.
umferð bikarsins á laugardag.
Urslit urðu:
Everton-Derby County 2-Ó
Liverpool-Middlesbro 2-0
Man.Utd.-Aston Villa 2-1
Wolves-Leeds Utd. 0-1
Skemmtilegasti leikurinn var
á Old Trafford í Manchester,
þar sem lið Aston Villa kom
verulega á óvart án þriggja
sinna beztu manna, Chris Nich-
oll, Andy Gray og Alex Cropley.
Leikirnir erfiðu við Everton í
úrslitum deildabikarsins sátu
ekki í leikmönnum Villa og lið-
ið fékk óskabyrjun. Eftir að-
eins 90 sek. hamraði Brian
Little knettinum í markið hjá
Alex Stepney af 30 metra færi
— í vinstra hornið. Strax allt á
suðupunkti og 60 þúsund áhorf-
endur voru heldur betur með á
nótunum. Knötturinn gekk
markanna á milli. Á 25. mín.
var dæmd aukaspyrna á Aston
Villa rétt utan vítateigs. Bak-
vörðurinn Stewart Houston tók
spyrnuna og við hörkuskot
hans réð John Burridge ekki. Á
10. mín. meiddist enski lands-
liðsframvörðurinn Brian
Greenhoff hjá United og eftir
að hafa haltrað um stund á vell-
inum varð hann að fara út af.
David McCrerry, írski fram-
herjinn, kom í hans stað og
varð hægri bakvörður en
Jimmy Nicholl miðvörður.
Þetta var veiking — en ekki
afgerandi og eftir að hafa jafn-
að sótti lið United mjög fram að
leikhléinu.
Sókn Manch. Utd. var lengst-
um þyngri í s.h., en Gordon Hill
fór tvívegis illa með góð færi —
áður en Lou Macari skoraði
sigurmark leiksins á 76. mín.
Miðherjinn Stuart Pearson var
með knöttinn úti á kanti — gaf
vel fyrir og Macari skoraði.
Þriðja mark hans í bikarnum
— 11 á leiktímabilinu. Rétt á
eftir var Brian Little nærri að
jafna fyrir Villa — en lokakafli
leiksins tilheyrði United. Leik-
menn lögðu áherzlu á að halda
knettinum — og sigur liðsins
var verðskuldaður.
Meistarar Liverpool — án
John Toshack og Ian Callaghan
— voru lengi að ná sér á strik
gegn Middlesbro, reyndar svo,
að það var aðeins markvarzla
Ray Clemence, sem hélt Liver-
pool á floti framan af. Þrívegis
bjargaði hann hreint í heims-
klassa frá Alf Wood, David
Mills og Souness. En í s.h. var
Liverpool betra liðið, einkum
eftir að David Fairclough —
super-varamaðurinn tvítugi —
skoraði fyrsta mark leiksins á
54. mín. Pat Cuff, markvörður
Middlesbro, átti ekki mögu-
leika að verja hörkuskot hans
af nokkuð löngu færi. Sex mín.
síðar gulltryggði Kevin Keegan
sigur Liverpool, þegar hann
skallaði í mark af stuttu færi.
Vafi var á hvort Keegan gæti
leikið vegna bólgu á vinstra
hné næstum fram að leiktima.
En Keegan gat leikið og mark
hans eftir hornspyrnu Kay
Kennedy var fallegt. Þá vakti
athygli stórgóður leikur
Tommy Smith í Liverpool-
liðinu. Þessi fyrrum fyrirliði
Liverpool kom inn, þegar
Thompson meiddist og vex með
hverjum leik.
Ulfarnir sóttu miklu meira í
leiknum gegn Leeds — en
heppnin var ekki með leik-
mönnum liðsins. Ekkert heppn-
aðist við mark Leeds, þrátt
fyrir góðar tilraunir Hibbitt,
Daley og Kindon. Ulfarnir áttu
70% af leiknum — en Leeds
treysti á skyndiupphlaup. Á 31.
min. skoraði Eddie Gray og það
reyndist eina mark leiksins.
Ekki sanngjarnt, sagði Brian
Butler, fréttamaðurinn kunni
hjá BBC. Síðustu 10 mín. var
knötturinn að mestu í öðru
horninu á vallarhelmingi Úlf-
anna — leikaðferð, sem Leeds
hefur oft beitt, þegar tefja þarf.
Hreint snillingar á þessu sviði
— en það fór í taugarnar á
leikmönnum Úlfanna og til
nokkurra stimpinga kom milli
leikmanna. En áætlun Leeds
heppnaðist.
Gordon Lee, nýi fram-
kvæmdastjórinn hjá Everton,
kom á óvart fyrir leikinn við
Derby. Setti Duncan McKenzie
úr liði Everton, en valdi skozka
miðherjann Jim Pearson í hans
stað. Að áliti Lee hefur
McKenzie ekki lagt sig nóg
fram i leikjum Everton að und-
anförnu. Ekki tilbúinn í slag-
inn i hörku ensku knattspyrn-
unnar eftir dvölina hjá Ander-
lecht. En hvað um það — bragð-
ið heppnaðist hjá Lee. Derby
var ýtt til hliðar, sem auðvitað
kom ekki á óvart, því Derby
hefur ekki unnið leik á útivelli
á leiktímabilinu. Það var þó bið
í mörkin. Þegar klukkustund
var af leik skallaði Bob Latch-
ford í mark Derby eftir fallegt
upphlaup Bruce Rioch (áður
Derby) King og Lyons. 1 næsta
upphlaupi Everton, hálfri mín.
síðar, skoraði Pearson síðara
mark Everton.
í dag verður dregið í undan-
úrslit keppninnar og sagt er, að
fólk í Liverpool hafi legið á
bæn í nótt og óskað þess, að
Liverpool-liðin sleppi við hvort
annað. Það hefur enn ekki skeð
í 105 ára sögu bikarkeppninnar,
að Everton og Liverpool hafi
mætzt i úrslitaleik FA-
bikarsins.
Eddie Gray, til vinstri, skoraði
sigurmark Leeds gegn Úlfun-
um á laugardag. Eina mark
leiksins.
Ipswich komst ekki á
toppinn í Sunderland
Utd., — sem lék snilldarlega
leiknum.
Staðan er nú þannig:
l.deild
Ipswich Town nýtti ekki
tækifærið, sem liðinu gafst á
laugardag, til að komast á ný í
efsta sæti 1. deildar. Liðið lék
þá í Sunderland — og jafntefli
nægði til að ná toppsætinu. En
án þriggja stórkarla, Beattie.
Mills, fyrirliða, og Whymark
réð Ipswich ekki við hið gjör-
breytta lið Sunderland. Þar
hefur Jimmy Ádamson beinlín-
is gert kraftaverk. Hann hefur
verið peninganna virði og eins
og Sunderland leikur í dag á
liðið ekkert erindi niður á 2.
deild á ný, sagði fréttamaður
BBC.
Það er önnur saga hvort
Sunderland tekst að verjast
falli. Hins vegar náði liðið báð-
um stigunum af Ipswich með
marki Colin Waldron, láns-
manns frá Manch. Utd., sem
áður lék lengi undir stjórn
Adamson hjá Burnley. Það var
á 70. mín. eftir hornspyrnu —
og miðvörðurinn fór upp og
skoraði. Sunderland var betra
liðið lengstum drifið áfram af
stórgóðum leik Arnott, korn-
ungs leiksmanns. En marka-
vélin fór ekki í gang eins og
síðustu vikurnar á Roker Park
— og i lokin þurfti Barry
Siddell, markvörður Sunder-
land, að taka á honum stóra
sínum til að koma í veg fyrir að
Ipswich jafnaði.
Úrslit í deildakeppninni á
laugardag urðu þessi:
1. deild
Birmingham-Tottenham 1-2
Bristol City-QPR 1-0
Stoke-Leicester 0-1
Sunderland-Ipswich 1-0
WBA-Newcastle 1-1
Meðal þeirra leikja, sem
fresta varð vegna bikarkeppn-
innar voru Liverpool-Manch.
Utd.. Manch. Cit.v-Everton.
2. deild
Bolton-Cardiff fr.
Carlisle-Fulham 1-2
Shelsea-Bristol Rov. 2-0
Hereford-Luton 0-1
Hull-Charlton 0-0
Millwall-Oldham 2-1
Notts Co. -Blackburn 0-0
Orient-Burnley 0-1
Plymouth-Blackpool 2-0
Sheff. Utd.-Nottm.For. 2-0
Leik Southampton- Wolves
frestað vegna bikarsins.
3. deild
Brighton-Bury 1-1
Chester-Grimsby 2-0
Gillingham-Sheff.Wed. 1-0
Mansfield-Peterbro 1-1
Northampton-Port Vale 3-0
Oxford-C.Palace 0-1
Preston-Tranmere 1-0
Reading-Chesterfield 2-0
Rotherham-York 1-1
Shrewsbur.v-Swindon 2-2
Walsall-Portsmouth 1-1
4. deild
Barnsley-Doncaster 1-1
Bradford-Huddersfield 3-1
Cambridge-Hartlepool 2-0
Colchester-Southend 0-1
Darlington-Southport 2-1
Exeter-Bournemouth 1-1
Rochdale-Workington 0-3
Scunthorpe-Halifax 2-1
Stockport-Aldershot 0-0
Watford-Crewe 3-1
Tottenham hlaut dýrmæt stig
í Birmingham og kannski tekst
Lundúnaliðinu fræga að verj-
ast falli. Þriðji útisigur Tott-
enharn á leiktímabilinu. John
Conolly náði forustu f.vrir
Birmingham á 5. mín., en að-
eins mín. síðar jafnaði Glen
Hoddle f.vrir Tottenham. Peter
Taylor skoraði sigurmarkið á
62. mín. þar sem markvörður
Birmingham, Jim Montgomery.
lánsmaður frá Sunderlahd.
beinlíms hjálpaði knettinum í
markið. Sigtjtr ToHennafú var
verðskuldaður.
QPR fór illa með góð.tæki-
færi framan af leiknum í
Bristol — einkum David Webb
og Peter Eastoe. En siðan fór
Bristol Cit.v að ná tökum á
leiknum. Don Masson bjargaði
á marklínu QPR — og á 78.
mín. skoraði Collier sigurmark
City. Báðir markverðirnir, Phil
Parkes, QPR, og John Shaw
vörðu af snilld. I lokin varð
QPR fyrir miklu áfalli. Enski
landsliðsmaðurinn Stan Bowles
var borinn af velli og var óttazt
að hann hefði brotnað á ökkla.
Stoke tapaði á heimavelli
gegn Leicester, þar sem Frank
Wothington skoraði eina mark
leiksins — en Peter Shilton
bjargaði Stoke frá stærra tapi
með frábærri markvörzlu. Það
er hann. sem heldur Stoke á
floti. Aðeins Liverpool . og
Manch. Cit.v hafa fengið á sig
færri mörk en Stoke. Jafntefli
varð í West Bromwich. þar sem
Newcastle kom í heimsókn. Nýi
leikmaðurinn, Laurie Cunning-
ham, lék snilldarlega í liði
WBA og skoraði mark liðsins.
en Mahoney varði oft mjög vel
frá honum. Barrowclough skor-
aði mark Newcastle.
Chelsea náði forustu á ný í 2.
deild með sigri á Bristol Rov-
ers. Sjálfsmark Peter Aitken á
63. mín. kom Chelsea á bragðið
og rétt á eftir skoraði Steve
Wichs. Úlfarnir og Bolton léku
ekki — en Luton komst í 3ja
sætið með sigri i Hereford. Ron
Futcher skoraði eina mark
leiksins á 88. mín. eftir fyrir-
gjiif John Aston — áður Man.
Liverp. 31 18 6 7 50-27 42
Ipswich 31 17 7 7 53-29 41
Man.City 30 14 11 5 42-23 39
Man.Utd.28 14 7 7 51-36 35
Newc. 30 12 10 7 50-36 35
Leicester 32 11 13 8 43-46 35
WBA 31 12 10 9 44-38 34
A.Villa 26 14 4 8 51-30 32
Middlesb 30 12 8 10 29-32 32
Leeds 29 11 9 9 34-35 31
Arsenal 31 10 8 13 47-52 28
Norwich 31 11 6 14 34-48 28
Birm’h 30 10 7 13 46-46 27
Stoke 29 9 8 12 17-28 26
QPR 26 9 6 11 32-36 24
Coventry 27 8 8 11 31-39 24
Everton 27 9 6 12 38-49 24
Tottenh. 30 9 5 16 37-5« 23
Bristol C 28 7 7 14 26-33 21
Sunderl. 31 7 7 17 31-38 21
Derb.v 28 5 11 12 31-42 21
W.Ham 28 8 5 15 27-45 21
2. deild
Chelsea 32 16 11 5 56-42 43
Wolves 30 16 9 5 67-35 41
Luton 32 18 4 10 52-34 40
Bolton 30 16 7 7 55-38 39
Blackp. 32 12 13 7 45-34 37
Notts Co 31 15 7 9 50-44 37
Nottm.F. 30 13 8 9 56-35 34
Millwall 31 12 10 9 46-39 34
Charlton 31 11 11 9 52-46 33
Blackb. 31 12 8 11 33-39 32
Oldham 30 12 7 11 40-41 31
Hull 30 7 15 8 36-35 29
South’t. 28 9 10 9 49-46 28
Sheff.U. 30 9 10 11 36-41 28
Plym. 32 6 14 12 38-49 26
Bristol R 32 9 8 15 38-55 26
Cardiff 30 9 7 14 40-47 25
Burnley 32 7 ii 14 34-52 25
Orient 28 7 10 11 29-36 24
Fulhant 32 7 10 15 40-54 24
Carlisle 31 7 7 17 32-58 21
Hereford 30 4 9 17 35-59 17