Dagblaðið - 31.05.1977, Page 3

Dagblaðið - 31.05.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1977. 3 Hvar eru 6200 krdnumar? KANNSKIFASTAR MILLI Raddir lesenda Spurning dagsins PðSTGÍRÓS 0G BANKANS Umsjón: Jónas Haraldsson HUSIÐ GRETTISGÖTU 46 • REYKJAVÍK • SÍMI 25580. Geir Þormar hefur eftirfarandi sögu að segja um viðskipti sín við póstþjónustuna: „Árið 1975, nánar tiltekið 17. júlí, greiddi ég í gíró krónur 6200 til greiðslu á tveim eintök- um af frímerkjabókinni, sem þá átti brátt að sjá dagsins ljós. Bókin var gefin út í tilefni af 100 ára afmæli íslenzka frí- merkisins. Kom bók þessi loks út núna í vor, eins og lesendur munu eflaust vita. Nú taldi ég að tvær bækur biðu mín, enda sannanlega Skálholts- samþykktir Sigurður Jónsson stýrimaður skrifar: Á öllum tímum hefur trúar- leg reynsla verið mönnum helgidómur og andlegt leiðar- ljós. Á öllum tímum hafa menn líka haft aðra ástríðu sem er engu síður sterk og áleitin. Þessi ástríða er að vita hið rétta og skilja hið raunverulega sanna. Fyrri ástríðan er grund- völlur trúarbragða, hin síðari þekkingar og vísinda. Þessar tvær ástríður eru undirrót allra deilna um trú og vísindi og deil- urnar halda áfram meðan sannleiksást og trúarleg þörf eru hluti af eðli okkar. Nú er það að flestra dómi staðreynd að menn eru alltaf að bæta við reynslu sína og þekk- ingu. En það hefur aftur í för með sér að bæði trúarhugmynd- ir og vísindalegar kenningar eru í stöðugum vexti og þess vegna alltaf að breytast. Enginn vísindamaður getur í dag verið að. öllu leyti sammála Galileo eða Newton. Og svo örar eru breytingarnar, að enginn vísindamaður getur í dag að öllu leyti verið samþykkur skoðunum sem hann hélt að væru réttar fyrir tíu árum. Trúmönnum hættir oft til að álíta að skoðanir og skýringar þeirra á helgum bókum séu svo sannar og réttar, að þær séu óhagganleg undirstaða trúar- innar. En þessar trúarskoðanir, sem menn héldu óhagganlegar niðurstöður um hvernig skilja bæri ritningarnar, hafa engu síður breytzt en vísindalegar „staðreyndir". I frumkristni skýrðu menn ritninguna þannig, að enginn sannkristinn maður gæti efast um að heimsendir væri í nánd. Þegar tíminn leiddi í ljós að þetta var misskilningur, gerðist ekkert annað en það, að kristnir menn breyttu kenn- ingu sinni og útskýringum. Lærðir guðfræðingar á 6. öld töldu það eina af grundvallar- kenningum biblíunnar að jörð- in væri flöt. Munkur einn, Cosmos að nafni, skrifaði bók um þessi efni árið 535, þar sem, hann hugðist finna óyggjandi ritningargreinar í biblíunni sem sýndu að jörðin væri fer- hyrningur og lengd hennar væri helmingi meiri en breidd- in. Hvað gerðist nú, þegar menn urðu að viðurkenna að þetta var rangt? I raun og veru ekki neitt. Kenningunni var breytt án þess að kristin trú missti við það gildi sitt á nokk- urn hátt. Lærðir guðfræðingar á 6. öid töldu það eina af grundvallar- kenningum biblíunnar að jörðin væri flöt. búinn að greiða andvirði þeirra. En málið var ekki auð- sótt. Ég ræddi við Rafn Júlíus- son póstfulltrúa sem var ekkert nema góðmennskan ein. Hann tjáði mér að því miður væri ekki hægt að afhenda mér bæk- urnar, — Póstur og sími hefði aldrei fengið umrædda greiðslu! Þetta þykir mér nokkurt harðræði, ekki sízt þar sem póstgíróþjónustan er undir sömu stjórn og bókarútgefand- inn. Hjá póstinum er mér sagt að mistökin hljóti að vera hjá Landsbankanum. Gjaldkerinn í þeim banka gaf mér kvittun fyrir greiðslunni, og þar stendur skýrum stöfum að ég sé að greiða fyrir áður umrædda minningarbók um íslenzka frí- merkið. Kannski get ég aldrei náð rétti minum í þessu máli, — nema kannski með flóknum og langvinnum málaferlum. Hver fer út í slíkt út af 6200 krónum? En eitt er víst. Ekki treystir maður betur póstgírókerfinu eftir að hafa kynnzt afgreiðslu eins og á þessu máli minu sem þegar hefur kostað mig mikinn ÍSLENZK FRÍMERKI í 100 ÁR tíma og fyrirhöfn án þess að nokkur árangur virðist í nánd.“ PÖNTUN Gxir Hnmili V (L ~fí>arry)Díhlu PóuJicifinjumöð ~kÚ. FJÖI.DI FINTAKA 2st- »7* Ðókin vctður póstlögð jafnskjótt og hún kcmur út, hafi greiðsla borizt fyrir þann tíma. KVÍTTUN FYRIR GREIDSLU A A Nr 638B90 iicund c*t issiu // / • /00 . /írr //M. - r VIOyCM-TASIOFNUN CMlÐANOA É Verzlunin flytur í Bankastraeti 14 . -. >. , .» W % &Q afclátUr o Borðarþú mikið af ávöxtum? Agnes Karlsdóttir, afgreiðsiu- stúlka: Já, appelsinur og banana af þvi áð ávextir eru hollir og góðir og ég reyni að nota það litla sem gefst fyrir heilsuna. Rósa Stefánsdóttir skrifstofu- stúlka: Mjög mikið. Appelsínur og epli borða ég helzt. Þetta er hollt og gott, auk þess sem ég er að passa línurnar. Linda Þórðardóttir, atvinnulaus: Nei, ekki mikið. Mér þykja ávextir ekkert sérstaklega góðir.> Ég borða þó dálítið af eplum, appelsínum og banönum. Sandra Róberts gjaldkeri: Já, þó nokkuð mikið, þetta er svo hollt. Eg borða aðallega epli og. appelsínur. Kristinn Hallsson söngvari: Eg skal segja þér það, — hvílík spurning! Eg borða ávexti þegar ég kemst í tæri við ávexti sem mér þykja góðir. Annars borða ég vel af öllu sem mér finnst gott. Regína Steingrímsdóttir. 9 ára: Já, appelsinur, epli og banana. Þeir eru svo góðir.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.