Dagblaðið - 31.05.1977, Side 4

Dagblaðið - 31.05.1977, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1977. Enn einn gallagripurinn frá Póllandi: Hefur aðeins náð þrem heilum veiði- túrum síðan fyrir miðjan marz sl. —raf kerfið meingallað—strokkur brotnaði í vél o.f I. Tl* m * Ftonr Þessar fjórar gerðir af hvíldarstólum eru framleiddar með leðri, plusi og/eða leðurlíki i úrvali lita. Sért þú hvildar þurfi ættir þú að hafa samband við okkur því við bjóðum bæði staðgreiðsluafslátt og góða greiðsluskilmála. Litaprufur sendar ef óskað er. Póstsendum um allt land. MJÖG TAKMARKAÐ UPPLAG FRAMLEITT. INNBYGGT í ARMA BLAÐAGRIND Á HJÖRUM OG VÍNSKÁPUR MEÐ SPEGLI. LAUS PÚÐI í SETU. FÆRANLEGIR TVÖFALDIR ARMAR. LAUS PÚÐI í SETU. ÞRJÁR BAKSTILLINGAR. 4ÚTSKURÐUR Á , ÖRMUM. LAUSIR PÚÐAR í BAKI OG SETU. ÞRJÁR BAKSTILLINGAR, SNÚNINGUR OG RUGGA. MEÐ OG ÁN SKEMILS. NORSKI HEIMILISSTÓLLINN HEFUR FARIÐ SIGURFOR UM| ALLA SKANDINAVÍU. ÞRJÁR BAKSTILLINGAR, SNÚNINGUR OG RUGGA. FÁANLEGUR MEÐ OG ÁN SKEMILS. LAUS PÚÐI í SETU. ERUM AÐ LAUGAV. 134 RÉTT FYRIR OFAN HLEMM OG SÍMINN ER 16541. g\lýjak <Bólsturgorðin Ekki tílaés byrlega fyrir sam- eiginlegri skuttogaraútgerð Selfyssinga, Eyrbekkinga og Stokkseyringa þessa dagana því nýi pólski skuttogarinn, Bjarni Herjólfsson, hefur aðeins náð að klára þrjá heila túra síðan hann fór á veiðar 13. marz sl. en meðaltúr tekur 10 til 12 daga. Ýmiss konar bilanir hafa hrjáð útgerðina og hefur það komið illa ,við pyngjur skip- verja, að sögn þeirra, er DB heimsótti um borð í Hafnar- fjarðarhöfn á föstudaginn. Þá lá togarinn í höfn vegna bilun- ar. Eftir því sem blaðið kemst næst mun rafkerfi skipsins gallað bæði hvað varðar flutn- ingsgetu og frágang. Rafkerfi í skipi sem slíku er mjög þýðingarmikið og verulegur hluti af kaupverði. Einnig hefur stimpill brotnað í aðalvél auk ýmissa fleiri smærri vand- ræða. Skipið kom hingað 8. marz sl. og fór á veiðar þann 13. marz. Dagana 17. til 20. ' sama mánaðar var skipið stopp vegna þess að eldur kom upp í raf- magnstöflu sem m.a. hleypti í gegn um sig straumi til togspils- ins. Þann 10. apríl varð að endurbæta vinnuaðstöðu í lest sem var alls ófullnægjandi. Tók sú lagfæring átta daga. Nokkrum dögum síðar, eða 22. apríl, bilaði aðalvélin. Þá brotnaði strokkur og slíf. Var skipið frá veiðum þess vegna til 6. maí. Upphaflega áttu að vera svissneskar vélar í skipinu af gerðinni Sulzer. Því var breytt og keyptar Sulzer, sem fram- leiddar eru í Póllandi með leyfi frá svissnesku verksmiðjunum. Svo var það í síðustu viku, eða 25. mai, í nýbyrjuðum túr að rofi í grandaraspili bilaði og skipið varð enn að leita hafnar til viðgerðar. Fór það aftur á veiðar sl. föstudag. Auk ofangreindra tafa vegna bilana hefur ýmiss útbúnaður verið endurbættur á meðan skipið hefur landað og má nefna að allir ljóskastarar skipsins hafa verið settir í land og nýir settir upp í staðinn vegna slæms ásigkomulags þeirra fyrrnefndu. Á föstudaginn var var pólskur maður á vegum fram- leiðenda um borð í skipinu að skrá galla og hluti sem miður fóru vegna hugsanlegra bóta. -G.S. Skuttogarinn Bjarni Herjólfsson í Hafnarfjarðarhöfn. DB-mynd: Hörður Vilhjálmsson. Islendingar drekka flestum þjóðum minna — segir f skýrsiu Áfengisvarnaráös Frakkar og Portúgalir drekka Iangmest allra þjóða, ef marka má skýrslu, sem Afengisvarnaráð hefur sent frá sér. Skýrslan er tekin upp úr tímaritinu „Alkohol og Narkotika". Hún gerir grein fyrir neyzlu 35 þjóða á sterkum drykkjum, þ.e. 50% áfengis-' magni, léttum vínum og sterku öli. íslendingar eru meðal fimni þjóða sem reka lestina þegar reiknað er hversu mikið magn af 100% áfengi hver íbúi drekkur. Samkvæmt þeirri viðmiðun erum við jafnir Perúmönnum með 2.9 1 af 100% áfengi á mann árið 1975. Minna en það magn drekka aðeins Mexikómenn, ísraelir og Tyrkir, þar sem trúarbrögð banna veru- legum hluta þjóðarinnar að neyta áfengis. Frakkar eru sagðir drekka 17.0 1 af 100% áfengi á mann, Portúgalir 16.9 1 , Spánverjar 14.1 1 , Italir 13.4 I, Vestur-Þjóðverjar 12.5 1 og Austurrikismenn 12.3 1. Danir eru sagðir drekka 8.9 1, Bretar 8.4 1 , Bandaríkjamenn 7.0 I . írar 6.7 I, Sovétmenn 6.3 1. Finnar 6.2 1 , Sviar 6.0 1 , Norðmenn 4.3 1. - BS Nýr bankastjóri vestur á ísafirði Isfirðingar eiga von á nýjunt bankastjóra við útibú Landsbank- ans vestra. Á fundi bankaráðs fyrir síðuslu heigi var ákveðið að ráða Þór Guðmundsson viðskipta- fræðing til starfans frá 1. júlí. Þór er 41 árs gamall og starfaði um skeið í Framkvæmdabanka Is- lands. Til Landsbankans réðst hann 1966 og var þá jafnframt framkvæmdastjóri Atvinnujöfn- unarsjóðs. Síðustu 5 árin hefur Þór starfað sem aðstoðarmaður bankastjórnar. Fyrirrennari Þórs í starfi á Isafirði er Helgi Jónsson sem nú tekur við starfi útibús- stjóra á Akranesi. - JBP-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.