Dagblaðið - 31.05.1977, Page 6

Dagblaðið - 31.05.1977, Page 6
ö DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1977. Vél til myndamótagerðar Til sölu er Vario-Klischograph myndamótageröarvél, sem einniggeturlitgreint fyriroffset Prentsmiðjam Hilmir hf. Síðumúla 12 — Sími 35323 Sölutjöld 17. júní Þjóðhátíöarnefnd mun sem fyrr veita leyfi fyrir sölutjöldum á þjóðhátíðar- daginn. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Æskulýðsráðs, Fríkirkju- vegi 11. Umsóknum sé skilað þangað í síðasta lagi mánudaginn 6. júní n.k. Þjóðhátíðarnefnd. Námskeið ífrosk-köfun Námskeið í frístundaköfun verður haldið í júní, ef næg þátttaka fæst. Allar upplýsingar hjá bátadeild Gunn- ars Ásgeirssonar h.f. til 8. júní. (Námskeiðið er ætlað eigendum köfunartækja.). Björgunarsveit Ingólfs. Lausar stöður Nokkrar stöður hjúkrunarkennara eru lausar til umsóknar. Fullt starf er æskilegast, en hálft starf kemur til greina. Uppl. gefur skólastjóri. Hjúkrunarskóli íslands, Eiríksgötu 34. Iðnaðarhúsnæði til leigu í austurbæ Kópavogs er til leigu iðnaðarhúsnæði, 320 ferm, hæð með. innkeyrsludyrum. Nánari upplýsingar í síma 43260 á kvöldin og um helgar. Auglýsing Sumardvalarheimili sjómannadagsins Hrauni í Grímsnesi tekur til starfa þann 11. júní — 19. ágúst. Börnum gefinn kostur á 5 og 10 vikna dvöl. Uppl. og móttaka pantana í síma 42338 þessa viku. Stjórnin. Tilkynningfrá Nýja hjúkrunarskólanum Fyrirhugað er framhaldsnám í Nýja hjúkrunarskólanum í ýmsum greinum hjúkrunarfræði. Verknám á skurðstofu, svæfingar- og gjörgæzlu- ueildum á að hefjast 1. sept. 1977, en bóknám 1. marz 1978. Umsóknir berist sem allra fyrst. Uppl. eru veittar í skólanum frá kl. 13—16 virka daga. Lokað í júlí vegna sumarleyfa. Skólastjóri. Margrét Trudeau um skilnaðarmál þeirra hjóna: TÖKUM SAMAN Á NÝ —ef hann lætur af forsætisráðherraembætt inu Skilnaður þeirra Margrétar og Trudeau forsætisráðherra Kanada er ekki líklegur til að hafa áhrif á stjórnmálaframa hans. Þetta kom fram í skoðanakönnun sem gerð var í Kanada daginn eftir að tilkynn- ing kom frá forsætisráðherran- um þess efnis að hann og kona hans væru skilin. Fólk hefur samúð með forsætisráðherran- um, samkvæmt þeim upplýsing- um sem koma fram í skoðana- könnuninni. I tilkynningu Trudeaus segir að skilnaðurinn hafi verið sam- kvæmt ósk Margrétar. Þau eiga þrjá syni, fimm ára, þriggja ára og tæplega tveggja ára. Trudeau fær umráðarétt yfir börnunum. Fréttin um skilnaðinn hefur ekki komið landsmönnum for- sætisráðherrans á óvart. Orðrómur um að hann og kona hans væru að skilja komst á kreik þegar hún sótti tónleika rokkhljómsveitarinnar Rolling Stones, í stað þess að vera hjá manni sínum og halda upp á sex ára hjúskaparafmælið þeirra. Hún hefur lýst því yfir að hún vilji vera meira en rós í hnappagat eiginmannsins. Einnig sagðist hún vilja reyna fyrir sér sem ljósmyndari. Eftir kosningarnar 1974 var Margrét lögð inn á spítala, vegna þess að hún hafði ofreynt sig. Hún hefur lýst þvi yfir að hún sé orðin þreytt á því að þurfa að vera tilbúin til skyldu- starfa, sem fylgja því að vera forsætisráðherrafrú. Þegar yfirlýsingin kom frá Trudeau um skilnað þeirra, sagði hún að þau myndu væntanlega aldrei skilja að lögum og ef hann léti af embætti þá gæti svo farið að þau myndu taka saman á ný. Margrét sagði einnig að þau myndu hittast í London í júní, þar sem Trudeau verður í boði Elizabethar drottningar en hún heldur upp á 25 ára drottn- ingarafmæli. Einnig verða þau Margrét og Trudeau með son- um sínum í sumarleyfi allan ágústmánuð, að sögn hennar. Margrét og Pierre Trudeau með tvo elztu syni sína. Hann hefur fengið umráðarétt yfir börnunum. y / fótspor King Kong Maður nokkur í New York fór í fótspor risaapans King Kong, sem var látinn klífa World Trade Centre bygging- una í New York. Hún er næst hæsta hús veraldar, 110 hæðir. Þegar maðurinn var kominn upp á þak eftir um þriggja klukkustunda þrekraun, var lögreglan þar fyrir og hand- járnaði hann. Síðan var hann dæmdur í 250 þúsund króna sekt. Borgarstjórinn í New York lét sektina hins vegar niður falla og ákvað að maður- inn skyldi greiða 10 sent fyrir hverja hæð sem hann kleif. Borgarstjórinn sagði að þessi atburður hefði lifgað upp á dag- legt líf í borginni en vonaði samt að fleiri borgarbúar létu það vera að stofna lífi sínu í hættu á þennan hátt. Húsgagnaverzlun Fjölbreytt húsgagnaúrval á tveimur hcdum Mjög fjölbreytt úrval af sófasettum, stökum stólum, hjónarúmum ogeinsog tveggja manna svefnsófum verðmjög Húsgagnaverzlun hagstætt. f Mj Reyk javíkur hf. 'O' Brautarholti2-Símir 11940-12691

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.