Dagblaðið - 31.05.1977, Side 7

Dagblaðið - 31.05.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1977. 7 Mólúkkamir lofaað skilja gíslana eftir sig og félaga sína Fátt varö um stóra viðburði vegna mólúkkönsku skæru- liðanna og gislanna þeirra 59 um helgina. Málið snýst nú að mestu leyti um kröfu skæru- liðanna um að fá þotu til afnota til að sleþpa úr landi. Þeir féllu i gær frá kröfu sinni um að fara með þá 55 gísla sem eru í haldi i lestinni úr landi með sér. Andreas van Agt dómsmála- ráðherra sagði að enn væri enga vísbendingu að sjá um málamiðlun milli hollenzku stjórnarinnar og Mólúkkanna. — Þeir krefjast þess nú sem fyrr að 21 félaga þeirra verði sleppt úr fangelsi og þeir fái að yfirgefa landið í Boeing 747 þotunni sem þeir fái til afnota fyrir sig. Skæruliðarnir hafa ekkert sagt enn um hvert þeir muni halda. Stjórnvöld hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir skuli fá þotu og bera því við að þau vilji fyrst fá að vita hvert halda skuli. Að sögn van Agts eru orða- skipti milli hollenzku stjórnar- innar og skæruliðanna all harðorð, þó að reyndar hafi þeir síðarnefndu sýnt nokkurn sveigjanleika upp á síðkastið. Til dæmis kvað van Agt stjórn- völd hafa verið búin að gefast upp á að fá skólabörnin 105 laus, er skæruliðarnir hafi skyndilega látið sig og leyft börnunum að fara. Sambandslaust hefur verið milli skæruliðanna í lestinni og skólanum síðan á föstudag — stuttu eftir að börnin voru látin laus. Kennt er um tæknilegum mistökum. Nú vonast menn til að skæruliðarnir vilji sleppa vanfærri konu úr lestinni gegn því að þeir fái samband sin á milli á nýjan leik. Handtökurí Angola vegna uppreisnar Vegna uppreisnar- tilraunarinnar, sem gerð var á föstudaginn i síðustu viku í Angola, hafa um eitt hundrað manns verið handteknir. Meðal þeirra næst æðsti foringi hersins. Agostinho Neto forseti Angola sagði í útvarpsávarpi að hinir handteknu hafi átt sér stuðnings- menn víðs vegar um landið. Hann sagði einnig að útlendingar styddu þá en gat þess ekki hvaðan þeir kæmu. Uppreisnrtilraunin er sögð hafa verið skipulögð af fyrrver- andi innanríkisráðherra landsins. Hann er hlynntur Sovétríkjunum. Nú er hans ákaft leitað um allt landið. Southgate, Bandaríkjunum: LEIT AÐ LÍKUM í KLÚBBRÚST- UNUM ER HÆTT —eldsvoðinn var sá versti í Bandaríkjunum um 35 ára skeið Leit hefur verið hætt að líkum í ,,Við eigum ekki von á að finna brunarústum næturklúbbsins i Southgate i Kentuckyfylki í Bandaríkjunum. Klúbburinn brann til kaldra kola á laugardag. 160 manns fórust í brunanum. Einangrast Quebec fjárhagslega? Frönskumælandi Quebec þarf ekki að búast við fjárhagsaðstoð frá öðrum ríkjum Kanada, fari svo að ibúarnir ákveði að stofna sjálfstætt ríki. Þetta var haft eftir fjármálaráðherra Kanada í Montreal í gærkvöld. Hann kvaðst þó eiga von á, að er íbúar ríkisins gerðu sér grein fyrir öllum þeim vandræðum, sem fylgdu aðskilnaði myndu þeir falla frá fyrirætlunum sínum. REUTER fleiri lík í rústunum,“ sagði borg- arstjóri Southgate, Ken Paul, í gærkvöld. Þá var unnið að því að brjóta niður það litla sem uppi hékk af veggjum klúbbhússins. Þegar eldurinn læsti sig í klúbbhúsið flúðu gestirnir, um þrjú þúsund að tölu, út í skelfingu. I fyrstunni var talið að um þrjú hundruð hefðu farizt. Lík 45 manna hafa enn ekki þekkzt, svo illa eru þau farin. Eldsvoði þessi er sá versti um 35 ára skeið i Bandaríkjunum. Höfundur Take Five erlátinn Paul Desmond, einn af mestu jazz-saxófónleikurum heimsins lézt að heimili sínu í New York í gærkvöld. Hann var orðinn 77 ára gamall. Hann Iék um sautján ára skeið með hljómsveit Daves Brubeck, en hætti fyrir tiu árum. Á tímanum, er Desmond og Brubeck léku saman, samdi Desmond lagið ,,Take Five“. Hann sagðist hafa staðið fyrir framan spila- maskínu í Renó og ryþminn í vélinni hafi gefið sér hug- myndina ,,að því að semja lag sem gæti skilað mér aftur peningunum, sem ég hafði tapað í vélinni,“ sagði Desmond sjálfur eitt sinn um tilurð lags síns. ferael: Begin ræðir um út- nefningu ráðherra Menachem Begin, leiðtogi Likudflokksins í Israel, ætlar að ræða um útnefningu í ráðherraembættin í dag við flokksforystu Frjálslynda flokksins. Begin þarfnast stuðnings flokksins, ef hann á að geta myndað starfhæfa stjórn. Leiðtogi Frjálslynda flokksins ákvað að hætta við- ræðum við Begin um ráðherra- embættin, eftir að Dayan, fyrr- um landvarnarráðherra, var boðið embætti utanríkisráð- herra. Ef Frjálslyndi flokkurinn, hætti stuðningi við Likud- flokkinn yrði Begin að styðj- ast við marga smáflokka sem starfa á trúarlegum grundvelli. Þjóðernissinnaflokkurinn Shlomzion, sem vann tvö þing- sæti í kosningunum, hefur ver- ið leystur upp og liðsmenn hans hafa gengið yfir í raðir Likud- flokksins. Begin formaður Likud- flokksins ræðir við flokks- leiðtoga um útnefningu i ráðherraembættin í dag. Hljómburðurinn einmitt eins og þu óskar þé hann. PK055 f mótsetningu viðöll önnurstereo-heyrnar- tæki getur þú á KOSS Technican/VFR stjórnað hljómburðinum alveg eftir þínu höfði. ístaðinn fyriraðþúhlustiráuppáhalds tónverkin eins og aðrir heyra þau, nýtur þú þess að geta framkallað þann hljómburð sem er þér að skapi- aðeins með því að færa til VFR-stillinn. FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Tæknilegar upplýsingar: 50 mm aflhátalarar • Mótstaða : 230 ohm/1 kHz • Tíðnisvið: 10-22000 Hz« Næmleiki: 95 V-rms/1 kHz • Bjögun: Minni en 0,4%/1 kHz/100 dB SPL • Hljóöstyrkur við 1% bjögun: 108 dB/1 kHz • 3 metra gormlaga aðtaug • „Pneumalite" eyrnapúðar. • Tenging fyrir gálgahljóðnema • Þyngd: 483 g (u/aðtaug) Verð kr. 23.967

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.