Dagblaðið - 31.05.1977, Síða 11

Dagblaðið - 31.05.1977, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31 ....... " \ MAÍ 1977. FRAMHALDSNAM OG ÁTTHAGAFJÖTRAR varö að yfirgefa landió fyrir fullt og allt á síðasta ári vegna síendurtekinna morðhótana ofbeldismanna. Fleiri erlendir menn hafa yfirgefið landið að undanförnu, þar eð þeir telja sig ekki lengur örugga um líf sitt. Þá er það einnig þungt á metunum, að þeir hafa ekki lengur frjálsar hendur til að vinna starf sitt. Meðal annarra, sem eru farnir úr landi er Mats Holmberg, fréttaritari sænska dagblaðsins Dagens Nyheter. Ofur skiljanlegt er að blaða- mennirnir skuli ekki vilja vinna með það yfir höfði sér að fá ávítur og jafnvel formleg mótmæli fyrir sára meinlausar fréttir, sem engan skaða. Þá er ekki síður að óttast ofbeldis- hópa, sem styðja stjórn hersins. Með þessum aðgerðum eru stjórnvöld bersýnilega að stöðva frjáls skoðanaskipti á prenti og reka fingurna í það, sem blöðin vilja skýra les- endum sínum frá. Allt sem kynnir argentísku þjóðinni framandi hugmyndafræði virðist eiga að vera bannað. Ekki skiptir neinu máli, hvort það kallast marxísk, peronsk eða einfaldlega borgaraleg fræði. Ef þau falla ekki saman við skoðanir herstjórnarinnar, geta þeir, sem halda þeim fram átt von á því að hverfa ein- hvern daginn, — jafnvel fyrir fullt og allt. Argentínskur blaðamaður lýsti ástandinu á eftirfarandi hátt: „Víst ríkir hér prentfrelsi, en ég voga mér ekki að notfæra mér það.“ Á einum af síðustu dögum þinghalds var loks lagt fram frumvarp til laga um fram- haldsskóla. Það er allt of síðbúið, þegar haft er i huga að nú eru nemendur að útskrifast úr grunnskóla skv. hinum nýju grunnskólalögum frá 1974 og óvissa því framundan fyrir fjölda nemenda um áfram- haldið. Það er því löngu orðið brýnt að setja ný lög um fram- haldsskólastig, sem nú svífur í lausu lofti, ef svo mætti að orði kveða. En í frumvarpinu eru nýmæli um kostnað framhalds- skólastigs sem eiga vafalaust eftir að valda miklum deilum og tefja framgang þessa nauðsynjamáls. Tillögur rlkis- stjórnarinnar um kostnað fram- haldsskólastigsins fela í sér svo gagngerar breytingar frá núverandi skipan að full ástæða er til að allur al- menningur geri sér grein fyrir þeim, og íhugi þær afleiðing- arnar sem þær hljóta óhjá- kvæmilega að hafa á möguleika hvers og eins til framhalds- menntunar. Eins og er kostar ríkið eitt skólahald við menntaskóla og marga aðra framhaldsskóla. Iðnskólanám er kostað af ríki og sveitarfélögum í sameiningu og þar greiðir ríkið helming stofnkostnaðar og fjölbraut- askólar eru kostaðir af ríki -Og' viðkomandi sveitarfélagi í sam- einingu en með sérstökum samningi hverju sinni um kostnaðarhlutföll. Vitanlega er þetta ósamræmi í kostnaði við skólahald óþolandi, enda eng- inn ágreiningur að í því efni þyrfti að koma samræmingu á. En vandinn er þessi: Hvaða leið á að fara? Samkvæmt frumvarpinu er meginregla sú að allt skóiahald á framhaldsskólastigi skuli kostað af ríki og sveitarfélögum í sameiningu. Gert er ráð fyrir því að ríkið greiði launakostnað vegna skólastjórnar og kennslu, en allur annar rekstrar- kostnaður greiðist ekki nema að hálfu. Hinn helminginn skulu sveitarfélögin bera. Vegna stofnkostnaðar greiðir ríkið 70% af grunntölu, sveitarfél. afganginn. Það er því ljóst að hér er verið að leggja á sveitar- fél. stórauknar fjárhagslegar skuldbindingar frá því sem nú er. Hins vegar fylgja engar tillögur frá ríkisstjórninni um aukna tekjustofna sveitar- félaga til að standa straum af þessu verkefni. Menntamála- ráðherra gat engin svör gefið við því, hvernig sveitarfélögin ættu að standa undir þessu en vísaði til nefndarskipana og fundahalda í sumar. Þá kom fram að ekkert samráð hafði verið haft við sveitarstjórnar- menn áður en frumvarpið var lagt fram og engin fyrirheit unnt að gefa um samþykki þeirra eða samkomulag í þessu efni. Hér er því staðið að þessu: máli af harla miklu ábyrgðar- leysi, svo vægt sé til orða tekið. t jafnstrjálbýlu þjóðfélagi og þvi íslenska er þetta kostnaðar- fyrirkomulag vitanlega alger- lega óraunhæft. Fámenn sveit- arfélög og fátæk munu ekki hafa getu né áhuga á að standa undir framhaldsskóla og ljóst er að búseta nemenda mun ráða Kjallarinn Svava Jakobsdóttir úrslitum við inntöku í fram- haldsskólana. Hætt er við að unglingar úr strjálsbýli muni eiga enn erfiðara um vik að stunda framhaldsnám en nú er. Möguleikar þeirra til fram- haldsnáms verða að miklu leyti komnir undir því hvernig og að hve miklu leyti sveitarfélögum tekst að semja innbyrðis og við ríkisvaldið. Og jafnvel þótt þátttaka hvers sveitarfélags verði lögboðin, kemur það fyrir lítið ef fjármagnið vantar. Það sýnir reynslan af iðnfræðslu- lögunum. Nokkuð má ráða í afleiðingar þessa kostnaðarfyrirkomulags af nýlegri ákvörðun Fræðslu- ráðs Reykjavíkur um rekstur framhaldsdeildar á næsta skólaári. Þessi framhaldsdeild er hugsuð sem bráðabirgða- ráðstöfun til þess að leysa vanda næsta vetrar. Reykja- víkurborg hefur fallist á þá til- lögu menntamálaráðuneytisins að borgin greiði 95% af rekstpi deildarinnar, en jafnframt hefur Fræðsluráð Reykjavíkur-i borgar samþykkt, að ekki skuli gert ráð fyrir að utansveitar- nemendur verði teknir inn í framhaldsskóla sem reknir eru sameiginlega af ríkinu og Reykjavíkurborg, nema önnur sveitarfélög semji um það sér- staklega við borgina. Þessi af- staða Fræðsluráðs Reykja- víkurborgar er eðlileg með hlið- sjón af því að borgarbúar leggja til fjármagnið að mestu. Og hætt er við að forsvarsmenn sveitarfélaga muni ekki sjá sér mikinn hag I því að reisa og reka framhaldsskóla fyrir utan- sveitarmenn og leggja í þann kostnað sem þarf til þjónustu við umfangsmikið skólahald ef þetta umrædda frumvarp verður að lögum í núverandi mynd. Flestir munu telja það ærið verkefni að sjá um sína. Stefna ríkisstjórnarinnar mun hafa það í för með sér að átthagafjötrar ráða námsvali og unglingar úr strjálbýli munu kannski útilokaðir frá fram- haldsnámi með öllu. Eina skyn- samlega leiðin í þessum efnum er sú að allt framhaldsnám, verklegt sem bóklegt, • verði rekið á kostnað ríkisins. Svava Jakobsdóttir alþingismaður. ritinu Ægi, 6. hefti 1967, í grein eftir Jakob Jakobsson fiski- fræðing. Þar segir síðan í fram- haldi af þessu: „Af framansögðu má ljóst vera að ástandið f íslensku síld- arstofnunum er mjög alvarlegt í dag. Tölur liggja að vísu ekki fyrir um stærð stofnanna 1966, en óhætt er að fullyrða að um áframhaidandi rýrnun þeirra hefur verið að ræða. Þessar niðurstöður eru þó ekki óvænt- ar, því að á undanförnum árum hefur oft verið varað við hinum stórauknu veiðum ungsíldar hér sunnan lands. Ég tel að ástæðan fyrir hinni öru rýrnun íslenzkra síldarstofna sé tví- mælalaust aukin veiði ungsíld- ar og vöntun nýrra árganga í stofnana.“ Áfram segir i sömu grein: „Það er því af þessum sökum að lagt er til að gerðar verði eftirfarandi ráðstafanir til verndar síldarstofnunum. 1. Veiðibann á smásíld, sé miðað við 25 cm langa slld í stað 23 cm áður. 2. Settar verði reglur um hámarksveiði sunnanlandssíld- ar er stuðli að því, að lækka dánartöluna verulega. Kjallarinn Reynir Hugason veiða smásíld. Eins og kunnugt er hrygnir sfldin yfirleitt ekki fyrr en 3-4 ára og er þá 26-27 cm á lengd. t þriðja tölublaði Ægis frá 15. febrúar 1968 á bls. 57 f grein eftir Jakob Jakbosson og Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðinga, kemur fram eftirfarandi. „Tafla 1. Hlutfallið milli vorgots- og sumargotssfldar í aflanum sunnan- og suðvestanlands 1967. Tímabil Vorgotssíid Sumargotssild Ökynþroska sfld 1/1—31/5 13.5 51.1 1/6—30/9 8.0 30.3 1/10—31/12 6.4 42.4 3. Settar verði reglur um veiðibann á þeim árstíma, sem síld er lélegust til vinnslu og gefur rýrastar afurðir. Árangurs af slíkum aðgerðum, er ekki að vænta nú þegar.“ Eins og fram kemur í grein Jóns Arnalds var einungis farið að þriðju tillögunni, þ.e. sett veiðibann frá 28. mars til 15. maí árið 1967. Ekki þótti sem sé ástæða til að lækka dánartölu síldarinnar né að hætta að 35.3 52.7 51.2 Tafla 1, (hér að ofan) sýnir skiptingu sunnanlandssíldar eftir hrygningartíma árið 1967. Ástandið er í aðalatriðum mjög svipað og síðastliðið ár (1966), þannig að vorgotssíldarstofn- inn er mjög veikur og stór hluti aflans er ung og ókynþroska síld 2-4ra ára gömul“......Eins og sjá má af tölfu 1, er ókyn- þroska síld í meirihluta f veiðinni tvö seinni veiðitíma- bilin 1967 og rúm 46% fyrir árið í heild og er það um 3% Stofnstærð þungi) islenzku síldarstofnanna, vor- og sumargots- sfldar, (3ja ára og eldri). hærra en sfðasuioiu ár (þ.e.a.s. 1966) og um 6% hærra en 1965.“ Síldveiðibannið frá 28. mars til 15. júnf, hefur greinilega ekkert haft að segja! Meðallengd sfldarinnar, sem veiddist fór sffellt lækkandi. úr um 32 cm árið 1961 niður í 26 cm árið 1967. Það segir einnig sína sögu. í sömu grein og vitnað er til hér að ofan, segir ennfremur eftirfarandi: „Meðallengdiner þanniglang- minnst yfir sumarmánuöina og má segja að meðallengd einstaklinga f þeim sýnishorn- um sem bárust á þessu tímabili frá veiðisvæðum sunnan Reykjaness, hafi yfirleitt verið um og neðan við 25 cm.“ Siðan segja þessir heiðurs- menn Jakob Jakobsson og Hjálmar Vilhjálmsson: „Ekki sé ég ástæðu til að fjölyrða um áhrif slíkra veiða, að öðru leyti en því, að meðan þær eru stundaðar er tæplega hægt að búast við þeirri fjölgun, sem þyrfti að vera í íslensku síldarstofnunum, til þess að veiðarnar yrðu arðvæn- legar á ný.“ Nú er loks búið að setja þessa klausu, sem Jón Arnaids vitnar til, inn í sitt rétta umhverfi. Fyrir þá sem enn efast um að íslensku sfldinni hafi verið útrýmt og hún eigi sér litla viðreisnarvon, skal hér birt línurit sem sýnir stofnstærð hrygningarstofns íslensku vor- og sumargotssfldarinnar frá 1954-’74. Þetta línurit birtist f vlsindaritgerðinni Population Study on the Icelandic Herring Stocks eftir Jakob Jakobsson merkt Alþjóða Hafrannsókna- ráðinu númer CM 1973/H:4. Eins og sjá má af línuritinu fellur það mjög árið 1967. Vor- gotssíldarstofninn er þá út- dauður en sumargotssíldar- stofninn kemst f algjört lág- mark f byrjun árs 1968 og er það f samræmi við það sem ég hef áður sagt, nefnilega að leifar stofnsins hafi verið veiddar upp árið 1967. Reynir Hugason, verkfræðingur. /V

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.