Dagblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNl 1977.
5
Svartolíunefnd lýkur velheppnuðum störfum:
Fjórtán skip spara 15,5 milljónir á
mánuði með notkun svartolíu
Aðrir útgerðarmenn vilja ekki spara þó allt sé til reiðu í skipum þeirra til svartolíubrennslu
í 15 skipum, fjórtán togurum
auk Akraborgar, þar sem við-
bætur hafa verið settar við skips-
vélar svo að brenna megi svart-
oliu í stað gasolíu, nemur verð-
munur brennsluolíu samtals 15,5
milljónum króna á mánuði
hverjum. Þessi sparnaður á elds-
neytisnotkun kemur viðkomandi
útgerðarmönnum eða útgerðar-
félögum allur til góða. Hefur
þessi sparnaður í sumum tilfell-
um haft þau áhrif að útgerð hefur
borið sig nokkurn veginn í stað
þess að vera rekin með bullandi
tapi.
Svartolíunefnd sem stofnuð var
2.7. 1972 lauk störfum um sl.
mánaðamót. Við starfi hennar
tekur tæknideild Fiskifélags Is-
lands. Hefur Ólafur Eiríksson
tæknifræðingur verið ráðinn til
deildarinnar vegna þessara breyt-
inga. Hann hefur átt sæti í Svart-
olíunefnd frá upphafi en for-
maður SON frá upphafi hefur
verið Gunnar Bjarnason fyrrum
skólastjóri.
I yfirliti sem SON hefur sent
frá sér segir að eftirtalin skip hafi
breytt frá gasolíubrennslu í svart-
olíu fyrir tilstilli og undir eftirliti
SON: Narfi Reykjavík, Rauði-
núpur Raufarhöfn, Hvalbakur
Stöðvarfirði, Vestmannaey Vest-
mannaeyjum, Bjartur Neskaup-
stað, Páll Pálsson Hnifsdal,
Drangey Sauðárkróki, Arnar
Skagaströnd, Ölafur Bekkur
Ólafsfirði, Brettingur Vopnafirði,
Ljósafell Fáskrúðsfirði, Akraborg
Akranesi, Ver Akranesi, Karls-
efni Reykjavík og Enge.v Reykja-
vík. Þá var og breytt um eldsneyti
á ljósavél Hvalbaks og reyndist
það vel.
Sparnaður af breytingunni
fyrir minni togarana (t.d. þá
japönsku, vélarstærð 2000 hö.)
reyndist miðað við 1976 um 1
milljón króna á mánuði, eða 12
milljónir yfir árið. Innkaupsverð
er um % hlutar af þessu, svo
þjóðarbúið sparar um 8 millj. kr.
á ári í erlendum gjaldeyri fyrir
hvern minni togaranna sem
brenna svartolíu.
í greinargerð SON segir að sú
svartolía sem hér er notuð sé
blanda úr gasolíu og afgangsolíu
sem rennur frá eimunarturni
eftir að búið er að eima úr jarðolí-
unni aðrar olíuvörur, s.s. dísilolíu,
gasolíu, steinolíu, bensín o.fl. I
svartolíunni hér er þáttur gasolíu
um 38% og þáttur úrgangsolíu
um 62%. Af þessu sé ljóst að
óhugsandi sé annað en að svart-
olía verði alltaf ódýrari en gas-
olía. Um árabil hefur svartolíu-
verð verið um 60% af verði gas-
olíu með árstímabundnum sveifl-
um.sem gert hafa að verkum að
svartolíuverðið hefur verið allt
frá 50% af verði gasolíu upp í
65% af verði gasolíu.
Reynslan af brennslu svartolíu,
sem nú spannar yfir nokkur ár,
hefur leitt í ljós að slit í vélum
hefur ekki aukizt við svartolíu-
brennslu, þvert ofan i það sem
haldið hefur verið fram af ýmsum
andstæðingum svartoliu. Út-
gerðarmenn eru sammála um að
viðhaldskostnaður hafi ekki
hækkað vegna svartolíubrennslu.
SON er ekki kunnugt um
neinar rekstrartruflanír af völd-
um svartolíu í þeim skipum sem
hafa verið á hennar vegum og
telur ólíklegt að slíkt hafi getað
hent án hennar vitundar. Ýmis
svartolíukerfi eru til í togurum,
sem ekki hafa verið á neinn hátt á
vegum SON. Sum hafa aldrei
verið notuð hver svo sem ástæðan
er. Hefur SON boðið þjónustu
sína til notkunar sumra þessara
kerfa en boðinu ekki verið tekið,
segir í greinargerðinni.
- ASt.
Brettingur frá Vopnafirði er einn togaranna, sem sparar sér milljón á
mánuði með svartolíubrennslu.
„Það er einstaklingurinn sem máli
skiptir ekki f jöldinn”
— Samtök manna með blóðsjúkdóma stof nuð
Kr. 5980.-
„Ástæðan til stofnunar þessa
félagsskapar er að miklu leyti
áskorun Alþjóða samtaka
blæðingarsjúklinga (WFH). Sá
félagsskapur hefur verið starf-
andi i nær því tvo áratugi og
hefur verið sýndur mikill áhugi á
því að íslendingar gengju í hann.
Tilgangur samtakanna er fyrst og
fremst að stuðla að því að
blæðingarsjúklingar fái hvar-
vetna sem bezta meðferð og geti
lifað eins eðlilegu og virku lífi og
frekast er unnt," sagði Sigmund-
ur Magnússon sérfræðingur i
blóðsjúkdómum á Land-
spítalanum.
Sigmundur ásamt þeim Guð-
mundi 1. Eyjólfssyni og Jóhanni
L. Jónassyni hélt í gær blaða-
mannafund um stofnun Islands-
deildar blóðsjúkdómafélagsins.
Undirbúningsfundur að þessari
stofnun verður haldinn á
fimmtudaginn í Domus Medica og
hefst hann klukkan 20.30.
Blóðsjúkdómar eru sem betur
fer frekar sjaldgæfir hér á landi
og eru ekki nema um það bil 50
manns sem þjást af þeim en eins
og Sigmundur sagði skiptir hvern
og einn þeirra eins miklu máli að
fá lækningu eins og hvern og einn
þeirra fjölmörgu sem þjást af
gigt. Það er hver einstaklingur
sem skiptir máli en ekki hversu
margir eru með hvern sjúkdóm.
Islandsdeildin gæti gert það að
verkum að þessir sjúkdómar fá
aukna athygli og læknar og annað
hjúkrunarfólk verður að kynna
sér þá. Miðstöð sem fólkið gæti
leitað til er einnig nauðsynleg því
nokkrar mínútur til eða frá geta
skipt sköpum um það hvort mað-
urinn lifir eða deyr eða hvort
hann verður örkumla það sem
hann á eftir. Sjúklingar og
Þetta er ekki kvenmaður í
tveimur pörtum, né heldur
sama stúlkan í svona myndar-
legri sveigju. En þessa
skemmtilegu mynd tók Hörður
Vilhjálmsson Ijósmyndari I)B
í laugunum í gær, en þangað
sóttu margir, enda skjól fyrir
norðannepjunni.
Sund-
sprettur-
inn dýr-
ara verði
keyptur
Töluverð hækkun hefur
orðið á aðgangseyri sundlauga.
Einstakir miðar hafa hækkað
mest, eða úr 100 kr. I 150 kr.
Hins vegar kostar aðeins 90 kr.
ef' keypt er kort með 10 miðum
í. Langmestur hluti miða er
keyptur á þann hátt «‘ða um
80%, að sögn Stefáns Kristjáns-
sonar íþróttáfulltrúa. Það
hefur verið stefna borgar-
stjórnar undanfarið að fá u.þ.b.
60% kostnaðar vegna sundlaug-
anna með aðgangseyn, en
u.þ.b. 40% sem framlag borgar-
sjóðs. Þegar þetta hlutfall fer
að raskast verulega verður að
hækka gjaldið. Barnamiðar
kosta nú kr. 50 ef keyptir eru
einstakir miðar, en 30 kr. ef
keypt eru kort. JH
Splunku-
nýtt
aðstandendur þeirra ættu því að
drífa sig og ganga í þetta félag.
-DS.
Kr. 4950.-
Lausarstööur
Tvær kennarastöður, önnur í eðlisfræði en hin í islensku,
við Menntaskólann í Kópavogi eru lausar tii umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 30. júni nk. — Sérstök
umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
2. júní 1977.
Lausstaða
Staða deildarstjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu er laus til umsóknar. Við-
skiptafræði- eða hagfræðimenntun
nauðsynleg. Umsóknir ásamt upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf
sendist ráðuneytinu fyrir 5. júlí nk.
Sjávarútvegsráðuneytið
3. júní 1977.