Dagblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 8
s
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JCNl 1977-
Kvenkjólar
stórar stærðir,
verð frá kr. 5000.-
ELÍZUBÚÐIN,
Skipholti 5
Heildartilboð óskast í að reisa, gera
tilbúna undir tréverk og fullgera að
utan heilsugæslustöð o. fl. á
Seyðisfirði.
Verkinu skal að fullu lokið 1. des.
1979.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri og skrifstofu bæjarstjórans á
Seyðisfirði gegn 20.000.- kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Innkaupa-
stofnun ríkisins, Borgartúni 7,
Reykjavík, þriðjudaginn 28. júní 1977,
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Ckurfet cj fliefeík
Hinar þekktu og vönduðu frönsku
snyrtivörur frá CHARLES OF THE
RITZ eru nú kynntar hérlendis.
Snyrtisérfræðingur okkar verður
til leiðbeiningar um rétt val
snyrtivaranna í eftirtöldum verzlun-
um:
Verzl. Bylgja, Hamraborg 1, Kópavogi
mánudag 6. júní, frá kl. 14-17.30
Laugavegs Apótek, snyrtivörudeild
þriðjud. 7. júní, frá kl. 14-17.30
Ócúlus, Austurstræti 7
miðvikud. 8. júní, frá kl. 14-17.30
Snyrtivörubúðin Laugavegi 76
fimmtud. 9. júni, frá kl. 14-17.30
Glæsibæ, snyrtivörudeild
föstud. 10. júní, frá kl. 14-17.30
„ÞETTA ER MJÖG SKIKKAN-
LEGUR VINNUTÍMIEF VIÐ
FENGJUM SÆMILEGT KAUP
FYR8R HANN” — segjamennumyfirvinnubannið
Langtfmaáhrif yfirvinnubannsins, hver eru þau? Það lék okkur DB-mönnum
nokkur forvitni á að vita svo við heimsóttum nokkra vinnustaði og spurðum
starfsfólk um skoðanir þess á þvíog stöðu samninganna ídag.
„Menn skrimta
einii/ern veginn“
í Kópavoginum hittum við þá
Egil Arnason trcsmið og Slefán
Magnússon nema í trésmi'o feir
voru sammála um að vinnutíminn
eftir bannið væri mjög ágætur en
kaupið væri ekki að sama skapi
gott. Vikulaunin hjá þeim hafa
minnkað um þetta 8-9 þúsund
krónur.
— Og hvernig lifa menn af því?
,,0, ntenn skrimta einhvern
veginn," sögðu þeir félagar „En
það er ekkert að marka það eftir
svona stuttan tíma.“
— Hvernig leggjast samning-
arnir í ykkur?
„Iila. Að öllum líkindum
verður langt verkfall í sumar en
þó má vera að skyndiaðgerðir og
verkföll á einstaka stöðum ýti
undir santningana. Tilboðin sem
lögð hafa verið fram ennþá eru þó
það slök að ekkert virðist miða i
áttina."
Stefán Magnússon og Egill Árnason í byggingavinnu.
DB-myndir Bjarnleifur.
„Kemur sér illa
fyrir námsfólk“
Hjá Kirkjusandi H/F hittum
við Sonju Óskarsdóttur náms-
mann á vetrum en fiskvinnslu-
kraft nú í sumar. Hún sagði að
yfirvinnubannið kæmi sér ákaf-
lega illa fyrir nátnsfólk þvi það
yrði að lifa allan veturinn á
Sonja Oskarsdóttir
sumarvinnunni. Hún kvaðst fá 17
þúsund krónur á viku í kaup
núna en henni var ekki kunnugt
um hvað eftirvinnan hefði verið
mikill hluti á meðan hún var.
Ekki kvaðst hún hafa vit á
samingsstöðunni.
„Posslegur vinnutími
og mó standa lengur“
A móti Sonju við borðið sat
Oddný llólm
Oddný Hóim. Álit hennar á yfir-
vinnubanninu?
„Það er fínt og ég vona að það
standi lengur því þetta er pass-
legur vinnutími, 8 tímar" Launin
eru að vísu lægri munar um það
bil 5 þúsundum á viku en það
skiptir mig persónulega engu'
máli.“
— Og samningarnir?
„Mikil' ósköp hvað þeir ganga
hægt. Aðgerðirnar sem gripið
hefur verið til eru ekki nógu
áhrifamiklar og ég er hrædd um
að það verði langt verkfall í
sumar. Aðgerðirnar sem núna eru
í gangi eru búnar að standa svo
lengi án sýnilegra áhrifa."
„Forysta verkalýðsins
er óiœf“
I Landssmiðjunni hittum við’
Sumarliða ísleifsson iðnnema.
Hann kvaðst hafa verið í skóla í.
vetur þannig að hann gerði sér
ekki glögga grein fyrir þeim
áhrifum, sem yfirvinnubannið
hefði á pyngjuna. Þó sagðist hann
sjá það í hendi sér að fólk hefði
mun minni laun því yfirvinna
væri aðeins unnin vegna þess að
þörf væri fyrir peningana.
Sumarliði isleifsson
„Vfirvinnubannið er alveg
fáránlegt," sagði Sumarliði. „Það
getur hvort eð er ekki verið i gildi
fyrir alla þjóðina Það er aðeins
eitt dæmi af fjölmörgum um það
hvcM'su verkalýðsforustan er
slöpp. Annað dæmi eru skæruað-
gerðirnar sem gripið var til. Um
leið og mótbárur komu frá at-
vinnurekendum var þeim hætt.
Aðgerðir i kjaramálum á ekki
að auglýsa langt fyrirfram. Kkki
var auglýst árið 1973 þegar visi-
lölubæturnar voru afnumdar. Af
hverju skyldum við auglýsa að-
gerðir með löngum fyrirvara þeg-
ar aðrir gera það ekki?
Það sem gera þarf er að skipta
um forustu í ASÍ. Þeir sem nú eru
í henni gæta ekki hagsmuna
verkalýðsins. Þeir eru að þessu
fyrir sjálfa sig en ekki okkur þvi
starfi þeirra fylgja margvísleg
hlunnindi. Þeir koma örugglega
ekki til með að standa við 110
þúsund króna kröfuna því þeir'
hafa aldrei staðið við þær kröfur
sem þeir hafa sett fram heldur
samið eins og þeim sýnist. Löng
verkföll breyta þar engu um.“
Róbert Einarsson.
Róbert Einarsson plötusmiður
starfar einnig hjá Landsmiðjunni.
Hann kvaðst hafa unnið þá eftir-
vinnu sem stóð til boða fyrir
bannið og hefði kaupið hjá sér
minnkað um ca 10 þúsund krónur
á viku síðan.
— Og til hvaða ráða er gripið til
að láta enda ná saman? „Eg re.vni
að láta þetta duga og það er hægt
þvi konan mín vinnur úti líka.
Launin min eru það lág að ekki
væri hægt að lifa á þéím einum.
Þegar búið er að taka af mér
skatta og fæðiskostnað i vinnunni
fæ ég þetta 7-10 þúsund krónur á
viku. Það lifir víst enginn af því.
Þetta væri hins vegar æski-
legur vinnutimi ef maður fengi
sæmilega borgað. Maður er þó
ekki búinn að aðlaga sig því enn-
þá að vinna svona stutt.
Mér lizt ekkert á samningastöð-
una. Þeir hljóta að semja ein-
hvern timann en hvena-r það
verður veit vist enginn. Aðgerðir
þær sem gripið hefur verið til og
nntn verða gripið til a'ttu þó ef til
vill að ýta undir." |)S.