Dagblaðið - 07.06.1977, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl 1977.
9.
öryrkjar borga hærri leigu en
tíðkast á almennum markaði
Húsaleiga á íbúóum í húsi
Öryrkjabandalags tslands að
Hátúni 10A hefur nýlega verið
hækkuð að mun og er nú orðin
hærri en leiga á almennum
markaði. Sem dæmi um þessa
hækkun má taka að leiga á 40
fermetra íbúð hefur hækkað úr
kr. 22.400 í rétt tæp 27.000 eða um
29.4%. Á meðan borga stúdentar i
Háskóla tslands, er búa á hjóna-
görðum, 23 þúsund fyrir íbúðir
sem eru af sömu stærð og er þó
rafmagn og hiti innifalið (það
kostar um sjö þúsund á mánuði í
íbúðum Öryrkjabandalags þannig
að leigan þar fer með því upp í 34
þúsund á mánuði). Leigan á
stúdentahúsnæði er því
sambærileg því sem gerist á al-
mennum markaði og sést á þessu
að leigan á húsnæði fyrir öryrkja
er töluvert meiri en tíðkast á al-
mennum markaði og hafa þó
tslendingar verið þekktir fyrir
annað en að leigja ódýrt út
húsnæði.
Við heimsðttum einn öryrkja
sem býr í Hátúni 10A. Hann heitir
Elfar Ragnarsson og getur enga
vinnu stundað þar sem hann er
lamaður vinstra megin. Elfar
kvaðst þó heppnari en flestir þeir
sem í húsinu búa því kona sín
.ynni úti og aflaði þeim hjónum
nokkurra tekna. Ef hann ætti
sjálfur að sjá um að greiða
leiguna af öryrkjubótum sínum
yrði ekki eftir nema rétt fyrir
bensíni á bílinn, en hann þarf
Elfar að hafa vegna fötlunar
sinnar hyggist hann hreyfa sig
eitthvað utan dyra. Örorkubætur
hafa verið hinar sömu nú í marga
mánuði og finnst Elfari og eflaust
fleirum það koma úr hörðustu átt
að hækka leiguna hjá fðlki sem
engar aðrar tekjur hefur án þess
Stúdentar borga leigu sem er sambærileg og á hinum almenna markaði fyrir ieigu á íbúðum í
hjónagörðum. Sú leiga er mun lægri en öryrkjarnir borga. DB-myndir Ragnar Th.
að hækka þær um leið.
Elfar sagði að öryrkjum
gremdist einnig að Reykjavíkur-
borg leigði út húsnæði, sem væri
mjög sambærilegt því húsnæði er
hann er I, á aðeins 13 þúsund á
mánuði og væri oft í þeim íbúðum
fólk sem vinnur fulla vinnu eða
ynni að minnsta kosti að hluta.
Öryrkjarnir sem hvergi gætu
unnið þyrftu hins vegar að punga
út nærri því helmingi meira.
Ódýrara að gefa þeim
frkt kjöt allt árið
en láta þær eyðileggja garða
„Það er turðulegt varnarleysi
sem það fólk býr við er vill rækta
sina garða og hafa snyrtilegt í
kringum sig með gróðursetningu
trjáa, jurta og gerð snyrtilegra
grasflata. Örfáum mónnum líðst
að halda rollur í fjölbýli sem
ekkert er hugsað um. Og þessar
skynlausu skepnur troða allt
niður, slíta upp nýgræðing og
eyðileggja bæði verðmæti og
mikla vinnu fólks.“
Á þessa leið fórust Aðalsteini
Gíslasyni rafveitustjóra í Mið-
neshreppi orð er Dagbl.
ræddi við hann um óvenjulegan
ágang sauðfjár í húsgörðum
Miðneshreppsbúa. Hafa þeir
kvartað yfir þessum ágangi við
lögreglu en lögreglan hefst ekki
að. Telur lögregluliðið að sögn
Aðalsteins, að rétt boðleið sé að
kvartað sé til hreppstjóra en
hann flytji bæjarfógeta tíðindin
og fógetinn snúi sér til
lögreglunnar. En þó rætt hafi
verið við hreppstjóra hefur
ekkert gerzt.
Bæjarfógeti og sveitarstjórar
hafa gefið út viðvaranir og
auglýst viðurlög við því að fé sé
látið ganga laust í þéttbýli eftir
20. maí. En tilkynningar um
bannið virðast aðeins gefnar út af
gömlum vana, því ekkert er að
gert þó bönnin og boðin séu
brotin nótt eftir nótt.
„Hér er ekki einn einasti
maður í grenndinni sem lifir af
sauðfjárbúskap. Allir eigertdurpir
nafa aðra vinnu.en halda rollur
sem einskonar sport. Enginn
þeirra á það land sem nægir til
rolluhalds og þeir eru snapandi
og sníkjandi til að fá að slá hvern
þann túnbleðil er finnst í
grenndinni," sagði Aðalsteinn.
„Það leiða er að þeir komast
upp með þetta þrátt fyrir allt yfir-
vald í byggðunum. Af almannafé
er varið milljónum í smala-
mennsku fjár vegna hættu sem
flugvellinum stafar af kindum og
margra kílómetra girðingar hafa
verið settar upp í varnaðarskyni.
Allt þetta er svo dýrt, að ódýrara
væri að gefa eigendum rollanna
kjöt allt árið. Þá fengi líka annað
fólk að eiga sína garða í friði".
Aðalsteinn gat þess að þegar
rollur væru staðnar að verki í
húsagörðum væri mjög erfitt að
finna eigendur þeirra sem sam-
kvæmt lögum væru ábyrgir gerða
skepnanna. En sé rolla eða lamb
ekið niður á hraðbraut finnst eig-
andinn ætíð fljótt og tekur
þakksamlega við greiðslu fyrir
skepnuna úr vasa ökumanns, því
tryggingafélög eru hætt að bæta
slíkt tjón, að sögn Aðalsteins.
Aðalsteinn og kona hans hafa
oft staðið i- vörn í garði sínum
gegn ágangi fjár nótt eftir nótt.
Hann hefur krafizt bókunar á
kærum sínum til liigreglu út af
þessum ágangi, en beiðni hans um
brottrekstur fjárins sinnir lög-
reglan engu. Telur hún slíkt ekki
i sínum verkahring — ólíkt þvi
sem lögreglan í Re.vkjavik gerir.
-VSt.
Fyrir þrem árum þegar Elfar
og kona hans fengu íbúðina áttu
þau að borga hálfa milljón króna
fyrirfram I leigu. Þau höfðu vita-
skuld ekki efni á því með þær
tekjur sem hún hafði og
örorkubætur hans og fengu því
undanþágu en aðeins fyrir náð og
miskunn. Fólk sem leigir hjá
borginni þarf hins vegar ekkert
að borga fyrirfram.
„Fólk þorir ekki að kvarta við
bandalagið sjálft af ótta við að því
verði hent út,“ sagði Elfar. „Við
vitum eins vel og þeir hjá banda-
laginu að nóg af fólki er til, sem
vantar svona íbúð. I því skiólinu
erskákað." ' -DS.
„Ég þarf ekki að kvarta því konan
mín vinnur úti“ sagði Elfar
Ragnarsson, „en margir aðrir eru /• _
ekki svo lánsamir". '
leysirdæmið
FX-5000EP10+2
CASIO fx r){Hh 7' r ■,( II N1II IC PRINI INCí CALCULATOR
i _/ /_/ C c u o u O >J
i. >- J I -I U I U U U J J
m n n r
-.. nríc
m HD ffl B GD s
lU ds ;b CZ) ED,
foi íbi msi m m
céd b B b r~i
FX-5000 EP borðtölva með strimli —
31 vísindareikningsaðferð —
7 minni —10+2 stafir íborði
SIN COS TAN EXP +/- X
SIN-1 COS-1 TAN-1 71 0» »» N
SINh COSh TANh 0E6 LOG IN
SINh-1 COSh-1 TANh- 1 GRAD in 1X2
V~ 1/x XY RAD e* á"
S N-1
CASI0 UMB0ÐIÐ STÁLTÆKI
Vesturveri — Sími 27510