Dagblaðið - 13.07.1977, Síða 23
23
D ACUUAtm). M 11)VI KUUACiUK 13. .JUU lí)77
Utvarp
Á sumarvöku útvarpsins íkvöld kl. 20.20:
BILVEGUR KOM
UM SKRIÐURNAR í
KRINGUM 1950
Flutningsmaður erindisins,
Ármann Halldórsson, stendur
þarna við Naddakross i kringum
1940.
Ármann Halldórsson safn-
vörður á Egilsstöðum heldur
áfram að segja frá Njarðvíkur-
skriðum á sumarvökunni í út-
varpinu í kvöld. Er það fyrsti
liðurinn á vökunni sem hefst kl.
20.20.
Ármann skráði frásögn þessa
eftir Andrési Björnssyni bónda í
Snotrunesi, en hann lézt vorið
1974. Var hann móðurbróðir
Ármanns.
Bílvegur var lagður um skrið-
urnar í kringum 1950 og var
stærri myndin hér tekin skömmu
eftir að vegurinn var opnaður.
Ármann sagði að ekki væri mikið
um grjóthrun úr veginum, en aur
vill síga fram i hann.
Minni myndin er af Ármanni
þar sem hann stendur við gamla
Naddakrossinn og er sú mynd
tekin í kringum 1940. Nú er kross-
inn allt öðruvísi, stendur á
steyptum stöpli.
Talið er að ef krossinn er ekki á
sínum stað muni ófreskjan Naddi
Petta er heldur hrikalegur vegur og óskemmtilegt að mæta þar ófreskju!
birtast og gera einhvern óskunda.
Hún er talin vera maður að hálfu
og skeljavaxið dýr að hálfu. Það
væri heldur óskemmtilegt að
mæta slíkri veru á þessum hálf-
hrikalega vegi. Síðasta slys sem
orðið hefur í þessum skriðum var
árið 1909 er þau fórust tveir
menn í snjóflóði. A.Bj.
Á sumarvöku útvarpsins íkvöld:
HJÓLREIÐAFERÐ UM
RANGÁRÞING LÝKUR
Síðasti þátturinn um ferð séra
Garðars Svavarssonar um Rangár-
þing á reiðhjóli er á sumarvök-
unni í útvarpinu i kvöld. Sr.
Garðar kom fram í þætti Svavar
Gests á laugardaginn og þar sagði
hann frá því hvernig hann eign-
aðist sitt fyrsta reiðhjól eftir að
hann var orðinn fullorðinn.
Sonur hans var í sveit og sr.
Garðar ætlaði að gefa honum reið-
hjól í afmælisgjöf. Hugðist hann
fara með hjólið til stráksins þar
sem hann var vestur á Snæfells-
nesi og dvelja hjá honum í nokkra
daga. Datt honum þá í hug að
gaman væri ef hann gæti farið
með hjól handa sjálfum sér til
þess að þeir feðgar gætu hjólað
saman um sveitina. Fór hann í
Fálkann, þar sem hann hafði
keypt hjólið fyrir drenginn, og
Sr. Garðar hjólar á hverjum degi niður um höfn og úl á Selljarnarnes.
IIB-mynd lliirður Vilhjálinsson.
spurði hvort þeir gætu lánað hon-
um hjól.
Það var auðsótt mál og þegar
hann kom aftur úr þessari ferð
hafói hann haft svo gaman af
hjólreiðaferðinni að hann keypti
hjólið.
Síðan þá sagðist hann hafa
hjólað á hverjum einasta degi og
væri slíkt hin mesta heilsubót.
Hjólreiðar reyna á hvern einasta
vöðva líkafnans. Sr. Garðar er líka
áreiðanlega í réttri kjörþyngd og
ber ekki með sér að hann hafi
orðið sjötugur í fyrrahaust.
-A.Bj.
ÚRVRL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/TA
/iVallteitthvaö
gott í matinn
STIGAHLIÐ 45747 SlMI 35645
Munið
Smámiöa-
happdrætti
RAUÐA
KROSSINI
+
GARÐAÚÐUN
sfmi 15928
kl.6-8ákvSldin
Bílaviögeröir
Viljum ráða strax bifreiðasmiði eða
fóík vantbílaréttingum, einmg
bílamálara.
Bílasmiðjan Kyndill
Súðarvog 36, sími 35051 og 85040.
Skrifstofuhúsnæði
Félagssamtök óska eftirskrifstofu-
herbergi strax.
Þarfekki aö vera stórt en á góöum staö,
helzt í miöborginni eöa viö
fjölfama götu.
Uppl. ísíma 20745.
íslenska járnblendifélagið hf.
Icelandic Alloys Ltd.
Grundartanga
301 Akranes — Sínii 92-1092
ðskum að ráða nú þegar 4 nienn til svæðisvörslu á
bygglngartíma kisiljárnverksmiðjunnar að Grundar-
tanga, sem áætlaður er um 2 ár. Yaktavinna. vauitanlega
hentug fyrir menn á aldrinuni 30-50 ára. l'msóknir skulu
hafa borist staðarverkfra-ðingi íslenska járnblendi-
félagsins hf.. Grundartanga, sent veitir nánari
upplýsingar. fyrir 23. júli nk.