Dagblaðið - 27.07.1977, Blaðsíða 6
G
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. JULÍ 1977.
Stúdentagarðarnir
Umsóknarfrestur um Garðsvist næsta
vetur rennur út i. ágúst nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu Félagsstofnunar, sem jafn-
framt veitir nánari upplýsingar.
Félagsstofnun stúdenta
Sfndrntnhriinilimi virt Hrimjbraut,
Sími 16482.
Kennarar, kennarar!
Kennara vantar í almenna kennslu við
Barnaskólann á Ækranesi.
Þá vantar tungumálakennara við
gagnfræðaskólann á Akranesi.
Upplýsingar gefur form. skólanefnd-
ar, Þorvaldur Þorvaidsson, sími 2214
og 1408.
Umsóknarfrestur er til 7. ágúst.
Skólanefnd Akraneskaupstaðar.
Hafið þér ónæði
af f lugum?
Við kunnum ráð
við því
;ox
FLUGIMA'
FÆLAIM
Á afgreiðslustöðum engar flugur í því herbergi
okkar seljum við næstu 3 mánuðina.
SHELL flugnafæluspjaldið. Spjaldið er lyktarlaust,
Spjaldið er sett upp og og fæst í tveim stærðum.
Oliufélagið Skeljungur hf
Shell
IGNIS
í SUMARHÚSIÐ
IGNIS kæliskápar í viðarlit, fyrir sumarbú-
staði, kaffistofur og skrifstofur, fást einnig
á fótum. TÆKIFÆRISVERÐ meðan birgðir
endast — kr, 65.970.00.
Hæð 52,5 cm breidd 52,5 cm.
Leitið upplýsinga biðjið um myndlista.
Rafiðjan Vesturgötu, símí 19294
Rafiðjan Kirkjustr. sími 26660
Smá sundsprettur í Miðjarðarhafinu getur valdið því að þú verður fárveikur, segja vísindamenn sem
hafa rannsakað það. Þessi mynd er frá Costa del Sol, sem margir Islendingar kannast við. DB-mynd KP.
Miijariarhafið
er Irfshættulegt
— ef þú ert að sulla í því eða borðar oft fisk sem þar veiðist
Miðjarðarhafið er svo mengað
að það er orðið lífshættulegt,
segir í danskri blaðagrein. Smá
sundsprettur í Miðjarðarhafinu
getur valdið því að þú verður fár-
veikur. Fiskur i hafinu er svo
mengaður að ef maður borðar
sem svarar tveimur og hálfu kílói
af honum á viku verður maður
smátt og smátt sjúkur og mun
deyja eftii 20 ár ef haldið er
áfram að neyta fisksins öll þessi
ár.
Þessar fullyrðingar eru
byggðar á rannsóknum um eitt
hundrað vísindamanna frá 14
þjóðum er hafa verið að störfum 1
Monaco. Þessir vísindamenn eru
að reyna að finna einhverja lausn
á þessu vandamáli og ætla að
finna leiðir til að draga úr meng-
un Miðjarðarhafsins. Vísinda-
mennirnir segja að Miðjarðarhaf-
ið sé langmest mengað af þeim
höfum sem lönd Evrópu liggja að.
Ar hvert fara þúsundir manna
alls staðar að úr Skandinavíu til
Spánarstranda eða annarra landa
sem liggja að Miðjarðarhafinu.
Vísindamenn þeir sem vinna að
rannsóknum á sjónum við strend-
ur landanna ráðleggja fólki að
njóta sólarinnar og hafa það gott
en fara ekki í sjóinn, nema rétt til
að dýfa tánni í hann.
Vísindamennirnir benda á að I
Miðjarðarhafið liggja klóök frá
þúsundum íbúðarhúsa við
strendur hafsins. Eins er það
mikið olíumengað og í það renna
alls konar kemisk efni. Að sögn
vísindamannanna tekur minnst
15 ár að hreinsa hafið og það
kostar marga tugi, ef ekki
hundruð milljarða danskra króna.
Skólabörn læra ekki heima
Brezk skólabörn lesa minna
heima hjá sér en börn í öðrum
löndum, segir í könnun á veg-
um íhaldsflokksir.s brezka.
Höfundur könnunarinnar,
Max Wilkinson, sem er fyrrver-
andi kennari, komst að þeirri
niðurstöðu að skólabörn í Bret-
landi læsu skólabækur sínar
um fimm klukkustundir á viku.
Börn í Hollandi og Vestur-
Þýzkalandi lesa skólabækurnar
í átta tíma á viku. Þetta á við
um skólabörn undir 14 ára
aldri.
Um sex prósent af brezkum
börnum lesa alls ekkert heima i
skólabókunum. Til samanburð-
ar eru aðeins þrjú prósent
tþýzkra skólabarna sem lesa
ekki heima.
■
■■
g§ i—i
SIIIIIÍllll
' f ■;'--í Ifilil A'l
jiifFspspl
r. x M
FRAMTfÐ RÓDESÍU. Þáð er eins líklegt að tll tfðinda dragi i Ródesiu bráðiega. Bandarfkin og
Bretland hafa reynt að koma þar á stjórn meirihluta landsmanna, sem er blökkumenn. Ian Smith
forsætisráðherra landsins hefur boðað til kosninga f haust og lofað bót og betrun. Samt sem áður höfðu
Bretar og Bandaríkjamenn ekki árangur sem erfiði af för sinni tii Ródesiu, og ekki er likiegt að aðilar
semji frið í bráð.
Þessi mynd er af götu í Ródesfu og það er algeng sjón að sjá fólk með riffil um öxl og börnin fá
snemma að vita allt um skotfæri.