Dagblaðið - 27.07.1977, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. JULl 1977.
Rafmagnsverðið:
Ríkisstjórnin settist
á beiöni Landsvirkjunar
—frestun að
minnsta
kosti fram
íoktóber
Ríkisstjórnin „settist" i gær á
beiðni Landsvirkjunar um 15
prósent hækkun á heildsölu-
verði rafmagns. Þetta þýðir, að
sögn Georgs Ólafssonar verð-
lagsstjóra, að hækkun verður
ekki að minnsta kosti næstu
brjá mánuði.
A rlkisstjórnarfundi í gær
var ákveðið að ,,fresta“ af-
greiðslu hækkunarbeiðninnar.
Sú frestun er talin munu gilda
fram í október. Þá yrði mögu-
legt að heildsöluverð rafmagns
yrði hækkað.
Svonefnd gjaldskrárnefnd,
þar sem verðlagsstjóri er for-
maður, hafði hafnað beiðni
Landsvirkjunar eftir að ráðu-
neyti höfðu mælt með henni. t
nefndinni eru auk Georgs
stjórnarþingmennirnir Olafur
G. Einarsson (S) og Halldór
Asgrímsson (F). Nefndin leit á
það sem prófmál um tilverurétt
sinn hvort ríkissijórnin mundi
ganga gegn tillögum hennar og
samþykkja hækkunina.
Landsvirkjun tilfærir þá
ástæðu fyrir beiðninni að 529
milljónir hafi vantað á tekjur
hennar síðustu þrjú ár til þess
að fullnægt væri ákvæðum um
arðgjöf af rekstri fyrirtækisins
sem sett séu í lánssamningi við
Alþjóðabankann. Nefndin segir
hins vegar að afkoma fyrirtæk-
isins hafi verið og verði í ár
nægilega góð.
Yfir tveir milljarðar
í hagnað
Nefndin bendir á að hagn-
aður Landsvirkjunar verði i ár
2126 milljónir, áður en vaxta-
greiðslur eru inntar af hendi,
og nettóhagnaður verði 1078
milljónir. Þetta sé 400 milljón-
um meira en kröfur Alþjóða-
bankans um arðgjöf á árinu.
„Það er því ljóst að núverandi
rafmagnsverð mun á þessu ári
gefa Landsvirkjun allt að um
400 milljónir upp I þær 529
milljónir sem Landsvirkjun tel-
ur sig hafa vantað til þess að
uppfylla skilmála Alþjóðabank-
ans,“ segja nefndarmenn i
greinargerð. „Jafnframt ber að
hafa í huga að af 360 milljóna>
króna bótum Járnblendifélags-
ins til Landsvirkjunar, sem
Landsvirkjun hefur þegar
fengið greiddar, verða einungis
73 milljónir króna færðar til
tekna á þessu ári.“ Nefndin tel-
ur því ekki þörf á hækkun. -HH
KÍNVERSKA H0FIÐ
RISIÐ AÐ NÝJU
Týrsarar í Eyjum urðu fyrir
verulegum skakkaföllum á dög-
unum, þegar veðurhamur mikill
eyðilagði þjóðhátíðarmannvirki
Til sölu:
M. Benz 250 S
árg. ’68. BíU í algjörum sér-
flokki.
Mazda 929
station árg. ’76,
Volvo 144
árg. ’74. Sjálfskiptur.
Willys Wagoneer
árg. '74. Góðir greiðsluskil-
málar.
Volkswagen
Micro-Bus
árg. ’74.
Fíat 128
árg. ’74. Ekinn 28 þús. km.
Carina
árg. ’75. Ekinn 19 þús. km, 4
dyra.
Audi 100
árg.’74.
Citroen GS
árg. ’72. Sérstaklega vel
með farinn einkabíll.
GUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3 — Reykjavfk
Simar 19032 & 20070
þeirra í Herjólfsdal. I dalnum
verður þjóðhátíð Vestmannaey-
inga haldin að þessu sinni, í
fyrsta sinn eftir gosið fyrir 4 ár-
um. En þeir voru ekki á því að
gefast upp, enda annálaðir bar-
áttumenn. Og nú er allt risið að
nýju, jafnvel stærra og vandaðra
en fyrr. Hér sjáum við kínverska
hofið þeirra í dalnum. — DB-
mynd Sigurjón Jóhannsson.
Faraágrasa-
fjall íkvöld
Það er ár og dagur síðan
fólk gekk á grasafjall svo
heitið getur. I dag er það
orðin frétt, þegar slíkar
ferðir eru farnar. Ferðafé-
lag íslands efnir til slíkrar
ferðar í kvöld. Farið verður í
Bláfjöllin rétt austan við
Reykjavík. Leiðbeinandi
verður Anna Guðmundsdótt-
ir, húsmæðrakennari. Takist
vel til með ferðina í kvöld er
reiknað með annarri slíkri
síðar og verður þá sótt
lengra, þar sem meira er af
grösunum.
Fjallagrös voru fyrrum
höfð í grauta eða saman við
skyr. Voru þau smátt söxuð
með þar til gerðu járni. Þá
voru þau notuð út í slátur til
mjöldrýginda. Einnig voru
grös notuð til litunar á vefn-
aði og fataefnum.
Keflavík
Til sölu nýlegt og vel með farið raðhús á tveimur hæðum,
3 svefnherbergi.baðherbergi, hol og fataherbergi uppi.
Niðri eru stöfur, húsbóndaherbergi, gestasalerni, eldhús
og þvottahús. Húsið er með föstum bílskúr og góðri,
ræktaðri lóð. — Uppl. í síma 92-2979.
Brúin á Jónsvaði í Svínadal
Bflstjórar bíta á
jaxlinn og aka yfir
Það er ekki aldurinn sem hrjáir
brúna á Jónsvaði í Svínadal,
heldur hvernig að byggingu brú-
arinnar var staðið fyrir tæpum
þrjátíu árum. Brú þessi er fremst
í Svínadal og ekki alls fyrir löngu
átti sér stað við brúna hörmulegt
slys er tvær stúlkur óku þar út af
veginum og niður í ána. En brú
þessi er í vægast sagt afar slæmu
ástandi, efnið sem í hana var not-
að afar lélegt og brúin steypt í
frosti.
Nú er svo komið að steypu-
styrktarjárnið í brúnni stendur
víðast hvar út úr henni, jafnt í
brúargólfinu, undir brúnni og á
brúarstöplunum. Aldrei eru
auglýstar þungatakmarkanir á
Jónsvaðsbrúnni, enda loka vöru-
flutningabílstjórar bara augunum
og bíta á jaxlinn um leið og þeir
aka yfir brúna.
Brúin stendur ekki yfir hinu
eiginlega Jónsvaði, heldur var
lagður vegur framhjá vaðinu upp
að brúnni þegar hún var byggð,
fyrir tæpum 30 árum. Jónsvaðið
sjálft er alls ekki svo illt yfirferð-
ar og myndi því einfaldlega duga
að leggja veg niður að vaðinu og
síðan gætu þungaflutningabif-
reiðar farið þar yfir. Nú er sá
möguleiki ekki fyrir hendi og
Af stöplum brúarinnar og unaan
henni hefur steypan hrunið og
hrynur enn, svo víða sést í bert
járnið. (DB-myndir BH)
Útboð
STJÓRN VERKAMANNABÚSTAÐA í Reykjavík óskar
eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir 18 fjölbýlishús í Hólahverfi í
Reykjavík. Samtímis óskar Reykjavíkurborg eftir tilboðum í
gerð stíga sem umlykja svæðið.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu VB Mávahlíð 4, ■
Reykjavík gegn 20.000 kr. skilatryggingu, miðvikudaginn 27.
júlí 1977.
Tilboðin verða opnuð 8. ágúst 1977.
neyðast þeir því til að aka yfir
brúna upp á von og óvon.
I Dölunum heyrðist fyrst talað
um að ný brú á Jónsvaði væri í
bígerð 1974, en það ár leið án þess
að úr framkvæmdum yrði og
hefur nú heyrst að ný brú verði
byggð árið 1979.
-BH
Hér sésl glöggt hvað brúargólfið er illa farið, ste.vpustyrktartelnarnir
stauda v iða upp úr. Einnig er handrið brúarinnar ekki beysið, víðast
■hvar orðið litið eftir af því.