Dagblaðið - 27.07.1977, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGtJR 27. .TTTI.T 1977
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
— náði beztum heimstima i 1500.
i BEZTUM
IA í 1500
i í Stokkhólmi í 1500
>i á 3:34.1
Bayi en ekki gengið.
Pólland sigraði í karlagreinum i
þriggja landa keppninni í Stokk-
hólmi. Pólverjar sigruðu Breta 118-93
og Svia 130-81. Innbyrðis stigafjöldi
sænsku og brezku karlanna var 114-
96 Bretum í hag.
Hins vegar báru brezku stúlkurnar
sigur úr býtum í Stokkhólmi. Þær
sigruðu Pólland 94-58 og Svíþjóð 105-
49. Þá höfðu pólsku stúlkurnar betur
i baráttunni um stigin við sænskar
stallsystur sínar — 92-57.
Raunar var öðrum heimstíma í ár
hnekkt. Það var í göngu kvenna —
þar sigraði sænska stúlkan Britt
Holmquist en hún gekk 5000 metra á
23:33.74. Hún bætti heimstíma löndu
sinnar, Margtatta Simu, um tæpar 15
sekúndur, 23:48.2.
IÐ STERK
ði Barcelona 6-0 og
Feyenoord 6-0
ar V-Þýzkalands, FC Köln, stórsigur á
Feyenoord, öðrum risa i evrópskri
knattspyrnu, 6-0.
Þessi úrslit koma á óvart þvi bæðí
Barcelona og Feyenoord hafa verið
risar í evrópskri knattspyrnu en taka
ber mið af því að einungis er um
vináttuleik að ræða.
Stórstjarnan Barcelona, Johan
Cruyff fór út af, meiddur, eftir 16.
mínútur í Hamborg og heimamenn
með enska landsliðsmanninn Keegan
í fararbroddi bókstaflega tættu
Barcelona i sig. Þýzki landsliðsútherj-
inn Volkert skoraði tvivegis,
Reimann Kaltz, Keller og Keegan
sjálfur bættu við mörkum —
staðan í leikhléi var 3-0, 6-0 lokatölur.
I Köln, einni fegurstu borg Evrópu
á bökkum Rínar, vann heimaliðið
stórsigur á hollenzka liðinu Feyen-
oord frá Rotterdam. Staðan í leikhléi
var 2-0 — og er upp var staðið, 6-0.
Neumann 2, Flohe, Zimmermann,
Willmerog Dieter Muller skoruðu
mörk heimamanna.
Vissulega stórar tölur — skyldu
v-þýzk félagslið vera orðin stórveldi i
knattspyrnu Evrópu? Þriðji
leikurinn fór fram í gærkvöld — i
Sofíu, höfuðborg Búlgaríu átti
búlgarska landsliðið í höggi við Mol-
enbeek, belgíska liðið er var í undan-
úrslitum UEFA-keppninnar í ár og
sýndi áhuga á að fá Inga Björn
Albertsson i sínar raðir.
Búlgaría sigraði 3-1 — eftir jafnt i
leikhléi, 0-0. Mörk Búlgaríu skoruðu
Petrov, Tsevkov og Panov. Fyrir Mol-
enbeek svaraði Gonets skömmu fyrir
leikslok.
Nýir vellir spretta upp
víða í golfinu
- rætt við Þorvald Ásgeirsson,
eina íslenzka golfkennarann
„Þetta er tíunda árið sem ég ér
við þetta,“ sagði Þorvaldur
Asgeirsson, golfkennari, þegar
við hittum hann að máii á dögun-
um. Þorvaldur er eini
Islendingurinn sem hefur golf-
kennslu að atvinnu. Þegar við
spurðum hann hvað nýjast væri i
fréttum af hans högum, lét hann
okkur f té þcr upplýsingar, að f
sumar hefðu verfð teknir f
notkun þrfr nýfr golfvellir, eða
aðstaða til goifiðkunar, værf
kannski réttara að segja.
Hvolsvellingar og Hellubúar
hafa sameinazt um vallargerð og
er hún á ræktuðu landi hjá
Strönd. Þar var 21 nemandi á
námskeiði hjá Þorvaldi fyrir
skömmu. A Sauðárkróki hefur
golfið verið endurvakið og er golf-
vallarstæði I athugun þar nyðra.
Á námskeiði sem Þorvaldur hélt
fyrir skömmu á Sauðárkróki voru
28 nemendur. I Vik i Mýrdal er
verið að byggja golfbrautir 6 svo-
kölluðu Víkurtúni, en þar voru 12
manns ó námskeiði f sumar.
Þorvaldur hefur einnig kennt
golf á veturna og ennfremur
hefur hann gefið kylfingum kost
á að æfa sig undir sinni leiðsögn
yfir vetrartímann, en það segir
hann að sé mjög mikilvægt fyrir
kylfinga.
I sumar tók Þorvaldur upp þá
nýbreytni í golfkennslunni að
bjóða unglingum, 14 ára og yngri,
ókeypis kennslu í undirstöðu-
atriðum golfiþróttarinnar hjá
þeim þrem klúbbum sem hann
kennir við fasta daga, þ.e.a.s.
Golfklúbbi Ness, Golfklúbbnum
Keili og Golfklúbbi Suðurnesja
rl.
mumervorkunn”,
iður Bjamfreðsdóttir
itíkin grípur
vintýrí Eisenhowe