Dagblaðið - 27.07.1977, Síða 24
ESSO bezt rekna
olíufélagið?
Olíufélagið hf. (Esso), hefur
bezta rekstrarafkömu af hinum
þrem íslenzku olíudreifingar-
félögum.
Af heildarsölu, sem var um
10,2 milljarðar króna á síðasta
ári, nær það 213 milljónum i
hreinar tekjur, eða 2,1%.
Samkvæmt skattskránni, en
þaðan eru upplýsingarnar
fengnar, kemur Skeljungur
(Shell) hf. í næsta sæti. Af 6,1
milljarðs sölu er félagið með
103,6 milljóna tekjur, sem er
1,7% af sölu.
Olíuverzlun Islands (Olís)
rekur lestina með 33,5 milljón
króna hagnað af 5,4 milljarða
sölu, 0,6%.
Hver er skýringin? Olíu-
félagið hf., bezt rekna olíu-
félagið? Eða eru forráðamenn
Olíuverzlunar Islands hf.,
öðrum olíustjórum klókari við
gerð skattframtalsins?
Meðal annarra skýringa er
bent á, að ekki sé óeðlilegt að
Olíufélagið hf„ sem mest selji,
nái beztri nýtingu og hagnaði.
Olíufélagið hefur frá fornu
fari góðan bita, sem er öll við-
skipti á Keflavikurflugvelli.
Fullyrt er, að þau viðskipti séu
hagkvæmari öðrum viðskiptum
á olíusviðinu.
Aukin notkun hitaveitu til
húsahitunar hefur komið niður
á olíufélögunum. Fyrir þrem
árum var gasolía til hiisahit-
' --------------------\
—eða OLÍS
klókast við
framtalið?
7
unar 50% af gasolíunotkun en
er nú komin niður í 33%. Sam-
drátturinn hefur einkanlega
komið niður á Olíufélaginu og
Olíuverzlun íslands.
Skeljungur hf. mun hafa
hlutfallslega mest viðskipti við
sjávarútveginn. Vegna
greiðslutregðu þeirrar atvinnu-
greinar oft á tíðum hafa við-
skipti við hann þótt dýrari og
óarðbærari en við aðra aðila.
-ÓG
7
Fiskkassa-
kaupin hjá
BÚR
boðin út
Fiskkassakaup Bæjarút-
gerðarinnar voru enn á dag-
skrá í borgarráði Reykja-
víkur í gær. Björgvin Guð-
mundsson, borgarfulltrúi,
bar fram tillögu um málið.
Efnislega er hún á þá leið,
að borgarráð samþykki að
beina þeim tilmælum til
BtJR, að hún bjóði út kaup á
þeim 15 þúsund fiskkössum,
sem ráðgert er að festa kaup
á. Tillaga Björgvins gerir
ráð fyrir, að útboð á fisk-
kassakaupunum verði gert á
vegum Innkaupastofnunar
Reykj avíkurborgar.
„Útgerðarráð samþykkti á
sínum tíma að Ieita verðtil-
boða hjá tveim aðilum,"
sagði Björgvin Guðmunds-
son í viðtali við fréttamann
DB. „Þegar sú ákvörðun var
tekin, hafði verið skýrt frá
því að aðeins tveir aðilar
væru innflytjendur þessara
kassa. Síðan hefi ég frétt að
þeir séu fleiri. Þess vegna
tel ég rétt að almennt útboð
fari fram,“ sagði Björgvin.
Hann situr í útgerðarráði
BÚR.
„Það er meginstefna borg-
arinnar, þegar keypt eru
mikil verðmæti og mikið
magn til fyrirtækja hennar,
að útboð fari fram. Tillaga
Björgvins var ekki afgreidd,
en telja má víst, að hún
verði samþykkt. -BS.
Blaðamennog
útgefendur
ræðastafturvið
Kl. 10 í morgun hófst
fundur með samninganefnd-
um Blaðamannafélags
Islands og útgefendum, en
viðræður hafa legið niðri í
níu daga.
.............'
Reykvíklngar hafa fengið áskorun. Það er skorað á þá að fegra borgina sína. Og fjöldamargir hafa orðið
við áskorunum um þetta. 1 gærkvöldi voru íbúar við eina blokkina i Gnoðarvoginum að fegra lóðina sína.
Þar lögðust ungir sem gamlir á eitt um að gera nánasta umhverfið aðlaðandi. Þau i Gnoðarvoginum ættu
að verða til þess að örva aðra borgarbúa til sams konar samstarfs. — DB-mynd Bjarnleifur.
Frá Ingvari Ásmundssyni,fréttamanni DBá Norðurlandamótinu:
..Ég ætla að skera hann”
Sannkölluð skákstemmning
ríkir í herbúðum Islendinga.
„Flóðhestur, dauður, stein-
dauður“ og fleiri slík eru al-
gengustu orðin um andstæðing-
ana. Einn landinn átti til dæmis
unnið tafl og klukkustund af-
gangs af umhugsunartíma
sínum. Til öryggis ætlaði hann
að gefa tímann og setja skákina
í bið. Þegar hann var kominn
áleiðis með umslagið með bið-
leiknum, snerist honum hugur.
Hann brá vísifingri þvert um
háls sér og sagði: „Ég ætla
heldur að skera hann.“
Ég á að tefla við flóðhest í
kvöld," segja Islcndingarnir.
Þegar þeir koma til leiks, líta
þeir fyrst á nafnspjald keppi-
nautarins og skrifa síðan „flóð-
hestur“ og „Ég ætla að skera
hann“.
Jón á betri stöðu
í biðskák
Staðan cr nú þessi, eftir 6.
umferð í gærkvöldi: Efstur er
Finninn Hurmi með 6 vinninga,
í 2.-3. sæti eru Pouitianen,
Finnlandi, og Helgi Ólafsson
með 5 vinninga. 4. er Raaste,
Finnlandi, með 4‘A vinning og
biðskák. Þá koma Salonen,
Finnlandi, Haraldur Haralds-
son og Gunnar Finnlaugsson
með 4V4. Jón L. Árnason hefur 4
vinninga og betri stöðu i bið-
skák.
Jón á biðskák við Danann
Andersen. Helgi vann Danann
Pedersen í 6. umferðinni. Átta
efstu menn sitja í sérstakri
virðingargirðingu. Þar voru
fyrir Helgi, Haraldur og Jón og
Gunnar komst þar inn, er hann
vann sína skák í gærkvöldi.
Guðlaug Þorsteinsdóttir
vann Ristoja frá Finnlandi og
er í 1.—2. sæti með 4 vinninga
eftir 4 umferðir.
Haraldur vann biðskák sína
úr 4. umferð, en jafntefli varð í
biðskák Jóns og Poutiainenen,
Finnlandi.
Skók Helga og Pedersen
Þetta er lokastaðan í skák
Helga og Pedersen: Hvítt,
Helgi Kgl, De2, Hcl, Hfl, Bd2,
h3, f5, d3, a2, b2. Svart,
Pedersen Kg7, De5, Hc8, Hf8,
Rh6, f6, e7, d4, h7, a7. I 25. leik
i þessari stöðu lék Helgi Bxh6,
og Daninn gaf, enda engin
úrræði til varnar.
frjálst, nháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 27. JULÍ 1977.
Stöðvast
rekstur
Hótel
Heklu?
Hörkumikil launadeila
stendur nú yfir á Hótel
Heklu, við Rauðarárstig.
Horfur eru jafnvel á að
hótelið stöðvist um næstu
mánaðamót vegna vinnu-
stöðvunar starfsfólks.
I vor hófst rekstur
staðarins 1 sömu húsakynn-
um og Hótel Hof leigði áður
af Framsóknarflokknum.
Hjónin Áslaug Alfreðsdóttir
og Ólafur Ölafsson tóku að
sér hótelstjórn og átti
reksturinn að vera í sama
formi og hjá Edduhótelun-
um.
Það fyrirkomulag byggir á
hreinni „akkorðsvinnu"
starfsfólks, sem fær ákveðna
prósentu af tekjum, sem
síðan er skipt á milli allra.
Starfsfólk telur að ekki
hafi verið rétt skipt tekjum
fyrir júní sl„ en um það
náðist þó bráðabirgðasam-
komulag. Eins telur það sig
eiga kröfu á lágmarkslauna-
tryggingu samkvæmt
samningum, en þeim hafi
ekki verið náð að fullu 1
júní.
I viðtali við Áslaugu
Alfreðsdóttur, hótelstjóra,
bendir hún á að verið sé að
reyna nýtt rekstrarform við
hótelið vegna þess að hingað
til hafi það ekki borið sig.
„Júnímánuður sl. var
fyrsti mánuðurinn sem þetta
nýja launakerfi var í gangi
og ætlunin var að breyta
ýmsu 1. ágúst nk„“ sagði
Áslaug.
Varðandi það að unnið
hafi verið undir taxta verka-
lýðsfélags sagðist hún ekki
telja að svo hefði verið.
Herbergisþernur hefðu
t.d. verið 20-50 þúsund yfir
taxta, eftir því hve vaktaálag
væri reiknað mikið.
Framhald málsins mun
vera í óvissu. Starfsfólki
hefur verið sagt upp frá og
með 1. ágúst en það hefur
aftur á móti áskilið sér rétt
til verkfalls á næstu dögum.
-ÓG.
Loðnan
tekur
við sér
Síðasta sólarhring var
veiðiveður á loðnumiðunum
út af Vestfjörðum og fengu
bátarnir nú loks talsverðan
afla. I gærkvöldi tilkynntu
fjórir bátar um afla sem þeir
voru að leggja af stað með til
lands. Harpa með 550 tonn,
Bjarni Ólafsson með 480
tonn og Arni Sigurður með
150 tonn og rifna nót, allir á
leið til Bolungarvíkur. Þá'
lagði Vörður af stað áleiðis
til Grindavikur með rifna
nót og slatta af loðnu.
1 morgun voru Gullberg
og Kap 2. að leggja af stað til
Siglufjarðar, Kap með um
500 tonn og Gullberg einnig
með góðan afla en ná-
kvæmar tölur lágu ekki
fyrir.
Skv. upplýsingum Loðnu-
nefndar munu 18 bátar hafa
verið á miðunum og taldi
starfsmaður nefndarinnar
ekki óliklegt að mun fleiri
en að ofan er getiö væru
komnir með talsverðan afla
þótt þeir væru ekki búnir að
tilkynna sig á heimleið.