Dagblaðið - 17.08.1977, Side 8
DAGBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGtJST 1977.
REYKJAVÍK
SITUR UPPI
MEÐ RÓNANA
„Það er eðlilegt að áfengis-
sjúklingarnir safnist hingað til
borgarinnar, því að hér er eini
staðurinn þar sem eitthvað er
gert fyrir þá,“ sagði Jón Guð-
björnsson hjá Félagsmálastofn-
un Reykjavíkurborgar í viðtali
við DB.
Menn hafa haft á orði að
margir þeir rónar sem hafa lagt
undir sig Austurvöll og Leifs-
styttuna að undanförnu séu að-
komnir til Reykjavíkur Þetta
hefur verið nefnt í sambandi
við allt talið um „vandræði
borgarinnar", meðal annars
vegna þess að margir trygginga-
þegar flytjast hingað.
Jón sagði að áfengissjúkling-
ar stæðu kannski einir uppi úti
á landi og kæmu sér þá til borg-
arinnar.
Margir þeir rónar sem sett
hafa svip á Reykjavík síðustu
15-20 árin væru aðfluttir.
Einnig mundu brögð að því að
utanbæjarmenn kæmu til borg-
arinnar til að drekka, til dæmis
f sumarfríum.
-HH.
framkvæmdir Grunnur nýrrar stöðvar
við logreglustoð i ép i w ■ w ^ w
íKefiavík: hefur beðið maiiuðuiii saman
lögreglumenn starfa íhjalli og fá inni fyrir fangana á Keflavíkurflugvelli
„Það er trú min að neðri hæð
nýju lögreglustöðvarinnar í
Keflavík verði tilbúin seint á
næst ári. Það á að vera vel hægt
að ná því marki, þannig að lög-
reglustöðin geti flutt í helming
nýja húsnæðisins en nýja stöðin
verður tvær hæðir.“
Þannig fórust Jóni Eysteins-
syni bæjarfógeta í Keflavík,
Njarðvík og Grindavík og sýslu-
manni í Gullbringusýslu orð f
samtali við DB.
„Það sem mestu skiptir er að fé
til byggingar hússins er veitt. Á
þessu ári er heimild til að steypa
sökkla og fylla grunninn. Það
verk á að fara að bjóða út,“ sagði
Jón. „Framkvæmd þess verks
tekur ekki nema rúman mánuð.
Vinna við húsið yrði þá ósundur-
slitin, ef sökklarnir kláruðust f
árslok og áfram yrði svo haldið
við byggingu neðri hæða með
fjárveitingu af næsta árs fé, en
fyrir þvf er loforð fengið.“
Tilefni samtalsins við sýslu-
mann er að langt er sfðan
grunnur hússins var gerður, en
sfðan hefur ekkert verið þar
aðhafzt. Þó lögreglumenn á ýms-
um stöðum landsins búi við
þröngan og ófullnægjandi húsa-
kost, hefur þó einna mest kreppt
að Keflavíkurlögreglunni f hús-
næðismálum. Var svo komið að
fangageymslur liðsins voru taldar
ósæmandi til notkunar. Hefur lög-
reglan þvf afnot af fangageymsl-
um á Keflavíkurflugvelli.
Það mun hafa verið fyrir
harðfengi sýslumanns að grunn-
urinn var grafinn en það ýtti
síðan á framhaldandi bygginga-
framkvæmdir þó merki þeirra
sjáist ekki enn. Til þessa hefur
staðið á teikningum verkfræðinga
en nú munu útboðslýsingar svo til
tilbúnar. Það er Innkaupastofnun
ríkisins sem annast útboðið. Mun
þess að vænta alveg á næstunni.
Nýja lögreglustöðin rfs vió
Hraunbraut 132, gegnt slökkvi-
stöðinni. „Þar verður nóg hús-
rými fyrir lögregluna eins og er,“
eins og Jón sýslumaður komst að
orði. Þarna verða varðstofur og
tilheyrandi, geymslur og tfu
fangaklefar. Atta þeirra verða
fyrir einstaklinga ætlaðir til
næturgeymslu en tveir fyrir
gæzluvarðhaldsfanga. Gætu tveir
verið í hvorum, ef henta þætti.
Keflvíkingar æitu því ekki mik-
ið lengur úr þessu að horfa á
grafinn grunn nýju lögreglu-
stöðvarinnar. Ef Innkaupastofn-
unin stendur sig vel, ætti senn að
fara að koma hreyfing á fram-
kvæmdir og undirstöðurnar að
rísa.
-ASt.
„Ég ætla í framboð í
Reykjanesk jördæmi ”
—segir Karl Steinar Guðnason
„Það er rétt, ég ætla að fara f
framboð til Alþingis," sagði
Karl Steinar Guðnason for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Suðurnesja í viðtali við
DB í morgun.
„Alþýðuflokkurinn hefur
aftur verið að falla að
launþegasamtökunum og á
þeim forsendum mun ég
berjast,“ sagði Karl Steinar.
„Ég veit ekki til þess að Gylfi
Þ. Gíslason ætli f framboð hér í
Reykjaneskjördæmi," sagði
Karl Steinar, „að minnsta kosti
hefur ekkert samráð verið
okkar á milli um það, eins og
einhverjar sögur segja.“
Auk Karls Steinars er talið
víst að Kjartan Jóhannsson
verkfræðingur í Hafnarfirði
muni bjóða sig fram við próf-
kjör . Ölafur Björnsson út-
gerðarmaður í Keflavík og
Gunnlaugur Stefánsson guð-
fræðinemi úr Hafnarfirði
munu einnig bjóða sig fram í
prófkjöri Alþýðuflokksins.
Loks má geta þess að Jón
Ármann Héðinsson, alþingis-
maður kjördæmisins, verður í
framboði.
-BS.
1»
Karl Stcinar Guðnason for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Suðurnesja. DB-mynd
Sv. Þorm.
Pólitík á Vestfjörðum:
Jón Baldvin
Sighvatur
Sighvatur og
Jón Baldvin fara
í prófkjör krata
Sighvatur Björgvinsson
alþingismaður og Jón Baldvin
Hannibalsson skólastjóri verða
í framboði til prófkjörs Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum.
Á miðnætti sl. rann út fram-
boðsfrestur til prófkjörsins.
„Það er rétt að ég hefi sent
inn framboð til þessa próf-
kjörs," sagði Jón Baldvin
■Hannibalsson í viðtali við DB
og staðfesti það sem áður hefur
kornið fram í Dagblaðinu.
„Þetta er laukrétt framhald af
því sem gerzt hefur innan sam-
takánna. Innan þeirra varð
ágreiningur. sem leiddi til þess
að rætt hefur verið um að
ganga til samstarfs við
jafnaðarmannaflokk og vinna
þannig að framgangi stefnu-
mála hans. Karvel Pálmason
hefur hins vegar ákveðið að
fara í framboð utanflokka og
Magnús Torfi Ölafsson hefur
lýst yfir framboði Samtakanna
í öllum kjördæmum."
„Eg átti von á framboði Jóns
Baldvins." sagði Sighvatur
Björgvinsson alþingismaður i
viðtali við DB. Eg á hins vegar
ekki von á því að þati verði
fleiri," sagði hann.