Dagblaðið - 17.08.1977, Síða 11

Dagblaðið - 17.08.1977, Síða 11
DAGBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977. ■ 11 Til fundar við steina um sýningu Hreins Friðfinnssonar í Galleríi Suðurgötu 7 Mynstur 'V rökrænt og pöetískt hugarflug. A efri hæðinni verða sýning- argestir sjálfir þátttakendur í verkunum. Á borði eru steinar sem Hreinn hefur tínt til og með því hefur hann „gripið inn í sögu þeirra", eins og segir í skýringu sem verkinu fylgir. Býður Hreinn svo gestum til fundar við steina þessa og að verða þeim samferða út af sýningunni. Á vegg er síðan mynd af mynstri því sem skapast þegar maður og gestur yfirgefa herbergið í sam- einingu, — í línuritsformi. Mestur bógur finnst mér þó vera i Komposition sem finna má í innsta herbergi annarrar hæðar. Verkið lætur lítið yfir sér: á vegg er mynd af regn- boga, en í loftið er fest róla og á setu hennar eru litir regnbog- ans. Með því að setja róluna á stað, myndast skemmtilega ljóðræn samlfking regnbogans og man ég ekki eftir öðru verki Hreins sem snortið hefur mig eins. Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Það væri synd að segja að mikið færi fyrir verkunum á sýningu Hreins Friðfinnssonar í Galleríinu að Suðurgötu 7 og þeir sem ekki eru þar heima- vanir þyrftu líklega að hvessa augun til að finna titla og út- skýringar. En eins og lista- maðurinn segir einhversstaðar, þá er engin ástæða til þess að klæða hugmyndir í fyrirferðar- mikinn stakk. Séu þær nægilega frjóar geta áhorf- endur sjálfir lagt út af þeim og þá er björninn unninn. Þegar rætt er um Hrein og verk hans verður vart komist hjá þvi að nefna Amsterdam hópinn sem einskonar útgangspunkt og í því samhengi kemur í ljós að hann er einna óútreiknanleg- astur af þeirri þrenningu sem þar býr, þótt viðhorf Hreins og Sigurðar Guðmundssonar tengist á stöku stað, sérlega í virkjun þeirra á landslagi. Tilfœringar í náttúru En þar sem Sigurður nálgast V náttúruna sem einstaklingur, þá hefur Hreinn stundum notað hana óbeint, þ.e. i gegn- um þjóðsögur, drauma og bók- menntir. í þetta sinn skilst mér að Hreinn hafi unnið þessa sýningu sérstaklega fyrir Galleri Suðurgötu og inni- heldur hvert herbergi eitt verk og fjalla öll fjögur að einhverju leyti um tilfæringar á náttúr- unni og þá með þeirri ljóðrænu margræðni sem oft einkennir hugsunarhátt Hreins. I fyrsta herbergi er Viðkoma, jarðefni sem liggur á gólfi, en á vegg er ljósmynd sem sýnir hvaðan það er komið og hver ytri mörk þess voru. I- öðru herbergi neðri hæðar er svo Kross, tvær ræm- ur gerðar úr röð ljósmynda. Lárétta ræman er mynduð úr ljósmyndum af hafi sem er að sjálfsögðu lárétt fyrirbæri en 'sú lóðrétta hinumegin á veggn- um er gerð úr röð ljósmynda af eldtungum sem leita upp á við. Þessum ræmum skiptir Hreinn síðan í tvennt um miðju, eld- ræmunni með saltvatni og haf- ræmunni með brennslu. f ' ... 1 ■.... < Styðjum Heims- ráð frumbyggja - I næstu viku hefst í Kiruna í Svíþjóð ráðstefna samtaka er nefnast Heimsráð frumbyggja (World Council of Indigenous people). Ráðstefna þessi er önnur ráðstefna af þessu tæi. Hin fyrsta var haldin í Port Alberni í Kanada dagana 27.—31. okt. 1975 og voru sam- tökin þá formlega stofnuð. En hvað er Heimsráð frum- byggja? Hvaða aðilar standa að þessum samtökum? Því vildi ég svara með örfáum orðum. Frumbyggjar eru þeir sem búið hafa á tilteknum land- svæðum um langan aldur en lent í minnihluta vegna að- flutnings annarra þjóða eða þá hrakist undan þrýstingi ná- granna. Dæmi um frumbyggja eru Indjánar í Ameríku, Maoris á Nýja-Sjálandi, Samar á Norðurlöndum. Frumbyggjar eru í öllum heimsálfum og mörgum ríkjum. Sameiginleg vandamál þeirra eru fyrst og fremst pólitísk, félagsleg og menningarleg. Þeir hafa lent undir, orðið að þoka fyrir fram- andi menningu og hlíta stjórn erlendra aðilja. Ekki eru allir þjóðernisminnihlutar frum- byggjar, þótt vandamál þeirra séu yfirleitt hin sömu og frum- byggjanna.Þaðsemgreinirfrum- byggjana frá öðruAi þjóðernis- minnihlutum er að þeir réðu áður einir því landi, sem þeir eru nú í minnihluta á. Þeir voru sjálfráðir í sínum byggð- um. Hugmyndin um að þessir hópar byndust samtökum varð til fyrir nokkrum árum og var Kanadaindjáninn George Manuel einn aðalhvatamaður- inn að stofnun þeirra. Hann er forseti Indjánasamtaka í Kanada, National Indian Brotherhood. Arin 1971-72 ferð- aðist hann um Ástraliu, Nýja- Sjáland og Norðurlöndin og hóf undirbúning að stofnun sam- takanna. Meðal þeirra samtaka sem hann leitaði til og veittu stuðning voru Alkirkju- ráðið, Félag til verndar frum- byggjum (Aborigines Protecti- on Society), ILO og Alþjóðlegi vinnuhópurinn um málefni inn- fæddra (IWGIA). Undirbún- ingsfundur var haldinn í Guyana í Suður-Ameríku vorið 1974, en ráðstefnan og stofn- fundurinn var svo í Port Alberni haustið 1975 eins og áður sagði. Þar komu til fundar fulltrúar frá frumbyggjum í eftirtöldum löndum: Argen- tínu, Bólivíu, Ecuador, Guate- mala, Kolumbíu, Perú, Mexíkó, Paraguay, Venezúela, Panama, Nicaragua, Nýja-Sjálandi, Ástralíu, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Grænlandi, Bandarikj- unum og Kanada. Á ráðstefnunni voru gerðar samþykktir um markmið og starfsemi samtakanna. Segir þar, að Heimsráð frumbyggja muni að eigin frumkvæði rann- saka misrétti það sem frum- byggjar búi við, birta um það skýrslur og afhenda þeirri nefnd Sameinuðu þjóðanna sem annist málefni minnihluta- hópa. Meðal þess sem mest áhersla var lögð á er að tryggja frum- byggjum rétt til landsvæða for- feðra þeirra og réttindi til nýt- ingar landgæða þar og að þetta land verði ekki látið af hendi né nýtt nema með fullu sam- þykki frumbyggjanna. Þessi at- riði eru að dómi forystumanna samtakanna hin mikilvægustu vegna þess að landið var eina eign frumbyggjanna og það sem gefur tilveru þeirra merk- ingu og gildi. Átökin um umráðarétt og ákvörðunarrétt yfir náttúruauðæfum á Græn- landi eru dæmi um hvaða atriði eru þýðingarmest þegar fjallað er um þjóðréttarlega stöðu frumbyggja. Krafa íslendinga til fullra umráða landhelgi sinnar og lokaákvörðunar um nýtingu og vernd fiskstofna er náskyld hugmyndum Heims- ráðsins um rétt frumbyggja til að ráða náttúruauðæfum. Ég hefi orðið þess vísari í samtöl- um við leiðtoga þess, að þeir hafa fylgst með landhelgisdeil- um Islendinga og Evrópuþjóð- anna af mikilli athygli og þekkja þau mál vel. Ekki er það krafa Heimsráðs frumbyggja að allir hópar frumbyggja fái pólitískt sjálf- stæði. Fyrst og fremst er óskað eftir menningarlegu sjálfstæði. Þeir vilja fá að nota tungu sína óáreittir, bæði í skólum og sín í milli. Þeir vilja fá að viðhalda og efla menningararfleifð sína en vera ekki neyddir til að hverfa inn í stærri og áhrifa- meiri menningarheildir. Án pólitísks jafnréttis og viður- kenningar á réttinum til lands er menningarlegt sjálfstæði lít- ils virði og þess vegna er mikil áhersla lögð á að fá viður- kenndan fornan rétt. Verndun náttúrunnar er eitt fyrsta boð- orð frumbyggjanna og þeir þreytast aldrei á að prédika að frumbyggjar hafi lifað I friði við náttúruna en hinar iðn- væddu þjóðir séu I stöðugu stríði við náttúruna. Náttúran er að þeirra mati samstarfs- aðili, ekki óvinur sem sigrast verði á. Sjálfsákvörðunarréttur frumbyggja f sínum innri málum á efalaust langt I land að verða að veruleika og þó Kjallarinn Haraldur Ólafsson miðar nokkuð í áttina á sumum svæðum, einkum þó f Banda- ríkjunum og Kanada. Nágrann- ar okkar á Grænlandi munu vafalítið á komandi árum fá aukna sjálfstjórn, ekki bara að nafninu til, heldur einnig að þvf er varðar ákvörðunarrétt um hvernig náttúruauðæfi skuli nýtt. Samar á Norðurlönd- um eiga við ýmsa erfiðleika að stríða og fara skoðanir þeirra ekki ætíð saman við álit þeirra sem miklu ráða um fram- kvæmdir í Santabyggðum i norðurhéruðum Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Ráðstefnan i Kiruna er skipulögð af Norræna Samaráð- inu og hafa ríkisstjórnir allra Norðurlandanna styrkt hana fjárhagslega. Er ánægjulegt að íslenska ríkisstjórnin veitti nokkurn styrk til ráðstefnunn- ar og hefur það vakið athygli meðal forystumanna frum- byggja. Meðal þeirra sem ráð- stefnuna sækja eru fulltrúar frá langhrjáðum og hundeltum Indjánum víða I Mið- og Suður- Ameríku, manna sem eru svo fátækir að við skiljum það ekki og eina von þeirra um að rödd þeirra megi heyrast, eru fundir af þessu tæi. Styrkur rfkis- stjórnanna er fyrst og fremst ætláður til að kosta för þeirra sem ekkert eiga nema vitund- ina um að allt hefur verið frá þeim tekið. Ég tel það vel að Islendingar leggi eyru við röddum frum- byggjanna og styðji þá með ráð- um og dáð. Hér er um að ræða merkilega viðleitni til að efla fjölbreytni menningar mann- kyns, viðhalda erfðum kynslóð- anna og koma á jöfnuði þar sem lengi hefur rfkt ójöfnuður. Og þótt framlag okkar sé ekki mikið þá er það samt lóð á vogarskál. í ritgerð sem Guðmundur á Sandi ritaði I ísafold árið 1908 segir hann: „Lengi hefur sá myglublettur loðað við Mör- landann, að hann hefur setið í holu sinni eða kytju og horft á hina — horft á menn, sem taka þátt í framsóknarviðleitninni I landinu. Þessir holumenn hafa þetta orðtak: Ekkert munar um mig. Þetta er vafalaust það allra- versta eitur, sem smogið getur um bein lifandi manna. Því að hugsunarháttur þess- ara manna er baneitraður frá morgni til kvölds og frá vögg- unni til grafarinnar. Þeir eru mennirnir í dæmi- sögunni, sem grafa pundið sitt í jörðu. Þessir menn eru þöglu svikararnlr, sem getið er um í Huliðsheimum. Verstu menn og óþörfustu! Þeir lifa til eins og aðeins eins: þeir lifa til að hika.“ Þetta sagði Guðmundur Frið- jónsson árið sem íslendingar höfnuðu pólitískri lausn, sem þeim fannst hálf en ekki heil. En minnumst jafnframt að flestir frumbyggjar fá aldrei tækifæri til að velja milli einnar lausnar né annarrar, en þeir vita að viðleitnin er hið eina sem þeir hafa fram að færa. Haraldur Ólafsson lektor.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.