Dagblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Kunnir k'appar — Geoff Capes, Hreinn Halidórsson og Terry Albritton. DB-mynd Bjarnleifur.
Hreinn gengur næst Udo
Beyer í heiminum í dag!
— sagði Geoff Capes eftir að Hreinn hafði sigrað í kúluvarpinu
Hreinn Halidórsson, Evrópu-
meistari í kúluvarpi, staðfesti
enn að hann hefur skipað sér á
bekk fremstu kúluvarpara heims.
„Það er skoðun mín að Hreinn
Haildórsson sé bezti kúluvarpari
heims á eftir ólympíumeistaran-
um Udo Beyer frá A-Þýzkalandi,“
sagði Bretinn Geoff Capes eftir
kúluvarpskeppnina. Og Hreinn
staðfesti þessi ummæli með
hreint ótrúlega öruggum sigri í
kúluvarpinu, 21.02 mældist
iengsta kast hans og öruggur
sigur á Reykjavíkurleikunum var
í höfn, enn ein skrautf jöður í hatt
Hreins Halldórssonar.
Já, kúluvarpskeppnin var
vissulega hápunktur Reykja-
víkurleikanna — ákaflega vel
heppnaðra Reykjavíkurleika.
Hvorki fleiri né færri en fimm
vallarmet litu dagsins ljós á
Laugardalsleikvangi í gærkvöld,
já, fimm vallarmet.
Vilmundur Vilhjálmsson var
annar Islendingur er staðfesti
gefin fyrirheit. Gegn mótvindi
bókstaflega stakk Vilmundur
keppinauta sína af, hlaut tímann
10.6 Vissulega hefur Vilmundur
hlaupið á betri tfma en taka ber
mið af mótvindinum. Bandaríski
hlauparinn Charlie Wells kom
annar í mark á 10.9 en Wells
hefur hiaupið bezt á 10.0 og á
stórmótum í Evrópu undanfarið
hefur hann verið meðal fremstu.
Þriðji varð Trinidadbúinn Mike
Solomon á 11.0 og Magnús Jónas-
son fjórði á 11.3 Þetta eru tímar
sem allir eiga að geta hlaupið
undir en mótvindurinn hefur
tafið um 4 sekúndubrot.
Fimm vallarmet litu sem sagt
dagsins ljós í Laugardal hinum
1500 áhorfendum til óblandinnar
ánægju. Þar bar hæst stangar-
stökk Larry Jersee frá Bandaríkj-
unum, hann stökk 5.30 og reyndi
við 5.51 en tókst ekki. Raunar
mætti tala um hið sjötta því Jeff
Kingsted stökk 5.01 á stöngina og
áður en Jersee kom til sögunnar
var það vallarmet.
Trinidadbúinn Mike Solomon
hljóp 400 metrana sérlega
skemmtilega og áreynslulaust og
nýlt vallarmel leit dagsins ljós —
47.3 — bælli gamla vallarmetið
hans Bjarna Stefánssonar um 5
sekúndubrot.
Þá hljóp Norðmaðurinn Erik
Mathisen 1500 metrana á 3:45.7
— enn eitt vallarmet — hið eldra
átti Skotinn McDonald, 3:49.9.
Annar í 1500 metra hlaupinu var
Kenyabúinn Josyi Kimeto á
3:47.1. Jón Diðriksson kom þriðji
í mark í 1500 metrunum á 3:53.6.
Og fimmta vallarmetið í
Laugardal var í hástökki kvenna
— þar stökk Larisa Klementjenk
frá Sovétríkjunum 1.80 í
hástökki.
Það voru margar skemmtilegar
hildir háðar — og langstökkið
var og skemmtileg grein. Þar
áttust þeir við Friðrik Þór Öskars-
son og Sovétmaðurinn Ivan
Lobatsch. Sovétmaðurinn sigraði,
stökk 7.49, og Friðrik stökk 7.21
— vissulega ágætur árangur.
Ingunn Einarsdóttir var að
venju sigursæl en óneitanlega
vantaði sterkan keppinaut fyrir
hana, þessa miklu hlaupadrottn-
ingu okkar. Ingunn sigraði í 100
metra hlaupinu á 12.5 en þar varð
önnur Sigurborg Guðmundsdóttir
á 12.8 Þá sigraði Ingunn í 400
metra hlaupinu á 56.1, aðeins
tveimur sekúndubrotum frá eigin
vallarmeti. önnur í 400 metra
hlaupinu varð Sigríður Kjartans-
dóttir á 58.3, Sigurborg Guð-
mundsdóttir, Armanni, þriðja á
59.8 og Sigrún Sveinsdóttir
Armanni, fjórða á 60.7
Það var mikii og hörð barátta í
1500 metra hlaupi kvenna — ekki
taktiskt hlaup — en gífurleg bar-
átta milli Guðrúnar Árnadóttur
FH og Thelmu Björnsdóttur úr
Breiðabiiki. Þær stöllur fylgdust
að alla vegalengdina en Guðrún
seig fram úr á endasprettinum og
sigraði á 5:03.6, aðeins einu
sekúndubroti á undan Thelmu.
Annars urðu úrslit í heild á
Reykjavikurleikunum: 100 m hlaup kvenna: sek.
1. Ingunn Kinarsdótlir 12.5
2. SÍKurhoru (lurtmundsd. 12.8
.‘I. Iiára Svoinsdóttir i:u
4 Si«rlrtur Kjartansd. 1.1.1
5. Kul Ólafsdóttir 1.1.5
(>. lijörk liiKÍmundard. 1.1.5
100 m hlaupkarla:
I. Vilmiindur Vilhjalmsson 1 ().<*
2. Cliarlio WHIs I0.il
3. Mike Solomon 11.0
4. Magnús Jónasson 11.3
5. Guðlaugur Þorsteinss. 11.5
6. Jón S. Þórðarson 11.5
1500 m hlaup karla:
(A-hlaup) — Minningarhlaup um Svavar
Markússon mín.
1. Enk Mathisen 3:45.7
2. Josyi Kimeto 3:47.1
3. Jón Diðriksson 3:53.6
4. Gunnar P. Jóakimsson 3:57.8
5. Sigfús Jónsson 3:58.4
1 500 m hlaup karla:
(b-hlaup)
1. Steindór Tryggvason 4:08.0
2. Sigurður P. Sigmundss. 4:08.8
3. Hafsteinn Óskarsson 4:09.6
4. Þorgeir óskarsson 4:11.8
5. óskar Guðmundsson 4:27.3
6. Markús Ivarsson 4:44.6
7. Magnús Haraldsson 4:48.0
8. Karl Blöndal 4:54.8
Hástökk. konur: m
1. Larissa Klementjenok 1.80
2. Lára Halldórsdóttir 1.55
3-4. Hrafnhildur Valbjömsd. 1.55
3-4. Ragnhildur Sigurðard. 1.55
400 m hlaup kvenna: sek.
1. Ingunn Einarsdóttir 56.1
2. Sigríður Kjartansö. 58.3
3. Sigurborg Guðmundsd. 59.8
4. Sigrún Sveinsdóttir 60.7
Langstökk, kariar: m
1. Ivan Lobatsch 7.49
2. Friðrik Þ. Óskarsson 7.21
400 m hlaup karia:
sek.
1. Mike Solomon 47.3
2. Jón S. Þórðarson 51.1
3. Einar P. Guðmundsson 51.2
Kúluvarp, kariar: m
1. Hreinn Halldórsson 21.02
2. Geoff Capes 20.60
3. Terry Albritton 19.89
4. A1 Feuerbach 18.54
5. óskar Jakobsson 17.75
6. Guðni Halldórsson 16.40
1500 m hlaup kvenna: mln.
1. Guðrún Árnadóttir 5:03.6
2. Thelma Björnsdóttir 5:03.7
3. Hjördís Armannsdóttir' 5.27.3
4. Bára Friðriksdóttir 5:27.8
Stangarstökk, kariar: m
1. Larry Jersee 5.30
2. Jeff Kingstad 5.01
3. Guðmundur Jóhanness. 4.00
4. Karl West 4.00
Vilmundur Vilhjálmsson — öruggur sigurvegari í 100 metra hlaupinu.
DB-mynd Bjarnieifur.
Norðmenn
auga til Tc
„Víkingur frá Stafangri hefur
sýnt því mikinn áhuga að fá mig tii
að þjálfa og haft samband við mig.
Ég sagði hins vegar að þeir yrðu að
bíða fram yfir HM-Ieiki tslands því
ég hefði skrifað undir samning
við KSÍ og fyrr en sá samningur
væri útrunninn færi ég ekki frá ís-
landi,“ sagði Tony Knapp, landsliðs-
þjálfari ísienzka landsliðsins, en
ýmis lið á Norðurlöndum hafa sýnt
Tony Knapp mikinn áhuga undan-
farið. Greinilega hefur árangur ís-
lenzka landsiiðsins vakið mikla at-
hygli á Norðurlöndum.
Þá hefur einnig verið skrifað um
það í norsk blöð að Lilleström, sem
nú hefur örugga forustu í 1. deild,
eigi í vandræðum með Joe Hooley
og það kemur engum á íslandi á
óvart. Norsku blöðin hafa skrifað að
Lilleström vilji Knapp en hann vildi
ekkert um það segja.
„Hins vegar hefur KSl ekkert
talað við mig um frekari samning en
núgildandi samningur minn rennur
út 21. september, eftir HM-leikinn
gegn N-Irum,“ sagði Tony Knapp.
„Framundan eru þrir HM-leikir,
ákaflega erfiðir leikir og allir er-
lendis. Það veldur mér miklum
áhyggjum að félögin erlendis hafa
ekki sinnt fyrirspurnum okkar um
að fá landsliðsmenn okkar í HM-
leikina.
Aðeins eitt félag hefur svarað
okkur, það er Jönköping, sem hefur
þegar sagt að Teitur Þórðarson fáist
ekki laus þar sem Jönköping á að
leika um sömu mundir.
En engin svör hafa komið frá
Royale Union og Standard Liege i
Belgíu, ekkert svar frá Celtic I Skot-
landi, ekkert svar frá Halmia I Svf-
þjóð. Vissulega bagalegt því til-
kynna þarf hópinn fyrir 20. ágúst.
Það er því vissulega möguleiki að
við spilum án Jóhannesar, Asgeirs
Sigurvinssonar, Matthíasar Hall-
Öruggl
Atvidaberj
Atvidaberg hefur nú örugga for-
ustu í 2. deiidinni sænsku, hefur
hiotið 28 stig, 6 stigum meira en
næsta lið sem er örgryte. Halmia er
í þriðja sæti með 19 stig.
Matthías Hallgrímsson. var settur
í straff eftir landsleikinn gegn Sví-
um hjá Halmia vegna yfirlýsinga
hans við sænska blaðamenn þar sem
hann gagnrýndi þjálfara Halmia
mjög. Matthías var settur í straff í
einn leik, gegn Alvestra, en honum
tapaði Halmia 0-4.
Matthías kom inn í næsta leik,
gegn Raa, og lyktaði leiknum með
jafntefli, 1-1. Það var einmitt send-
ing frá Matthíasi sem færði Halmia
markið. Þá var leikið gegn Norrby
og rétt eins og gegn Raa varð jafn-
tefli, 2-2, og eins og þá jafnaði
Norrby í lokin. Þriðji leikur Matt-
híasar var loks gegn Ulvissahamn,
enn jafntefli, 1-1, og Matthías Hall-
Walker nærri
heimsmeti Bayi
Um 40 þúsund áhorfendur fylgd-
ust spenntir með hlaupi Johns
Waiker í Brussel í Belgíu, minn-
ingahlaupi um belgíska hiauparann
Ivo Van Damme er lézt svo sviplega
í bilslysi í desember á siðasta ári.
Walker hljóp 1500 metrana á
3:32.7.
Það var Bandaríkjamaðurinn
Steve Scott sem leiddi hlaupið
framan af og eftir 800 metra var
tími Walkers 1:51.9 — tími sem
hefði átt að nægja til að bæta met
Filberts Bayi en það er 3:32.2. En
Scott missti hraðann eftir 1000
metra og eftir það var það einungis
Walker og áhorfendur er hvöttu
hann dyggilega. A síðustu 100 metr-
unum gaf Walker aðeins eftir — og
heimsmet Bayi stendur enn, 3:32.2.
Tilraun Walkers var góð og vel við
hæfi í minningu Ivo Van Damme,
hins mikla hlauparaefnis er tók
bæði silfrin i 800 og 1500 metrun-
um.