Dagblaðið - 17.08.1977, Síða 15
DAGBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977.
15
— ný hljómleikaplata með Rolling Stones
væntanleg innan skamms
ROLLING STONES — Þeir segja Love You Live vera þverskurðinn af tónlist hijómsveitarinnar
síðustu fimmtán árin.
Rolling Stones aðdáendur
(og það er nú enginn smáhóp-
ur, maður...) eiga von á tvöföld-
um glaðningi frá uppáhalds-
hljómsveitinni innan skamms.
Annan september næstkom-
andi kemur á markaðinn tvö-
föld hljómleikaplata, Love You
Live, sú síðasta sem Atlantic
gefur út með hljómsveitinni.
Love You Live var tekin upp
í Paris og Toronto í Kanada
seint á síðasta ári og í byrjun
þessa. Á henni (eða þeim) er
Ronnie Wood nú örðinn fastur
meðlimur Rolling Stones. Auk
gömlu meðlimanna fjögurra
koma við sögu þeir Billy Prest-
on, Ian Stewart og Ollie Brown
slagverksleikari. Umslag plöt-
unnar hannaði Andy Warhol,
sá sami og gerði Sticky Fingers
umslagið.
Á Love You Live eru eftirtal-
in lög:
• Hliö eitt: Stef úr Fanfare For The Comm-
on Man eftir Aaron Copland. Þafl tengist
síflan vifl Honky Tonk Women, You Can't
Dylanáhljóm-
leika íEvrópu
Verulegar líkur eru taldar á
að Bob Dylan komi fram á
tveggja daga hljómleikahátíð í
Longleat I Bretlandi í byrjun
september.
Framkvæmdaaðilar hátíðar-
innar hafa ekki viljað staðfesta
að Dylan komi þar fram en
vitað er að fulltrúar þeirra voru
nýverið í Bandaríkjunum og
áttu viðræður við fulltrúa
Dylans.
Einnig er talið víst að hljóm-
sveitin Who komi fram á Long-
leat-hátíðinni.
Verði af því að Dylan komi
fram á Longleat verður það í
fyrsta skipti í sjö ár að Dylan
kemur fram í Evrópu. Hann
kom síðast fram á Isle Of
Wight-hljómleikunum 1970. ÓV.
Rock Me, Got Of My Cloud, Happy (það lag
syngur Keith Richard samkvœmt vanju), Hot
Stuff og Star Star.
• Hlifl tvö: Tumbling Dice, Fingeiprint Fila,
You Gotta Move og You Can't Always Get
What You Want.
• Hiifl þrjú: Mannish Bly. Cracking Up,
Little Red Rooster og Around And Around. >
# Hlifl fjögur: It's Only Rock'n'Roll, Brown
Sugar, Jumping Jack Flash og plötunni lýkur
síflan mefl hinu eftirminnilega, Sympathy
For The Dovil.
Tvö þessara laga hafa ekki
komið áður út á plötu með Roll-
ing Stones. Þau Mannish Boy,
eftir Muddy Waters og lag Bo
Diddjeys, Cracking Up. Bæði
eru lögin á hlið þrjú.
Að sögn Rollinganna sjálfra á
Love You Live að ná yfir flest
það sem þeir hafa gert merki-
legt síðastliðin fimmtán árin.
Hinir upprunalegu Animals
koma saman til plötuupptöku
Upprunalegu meðlimir
hljómsveitarinnar Animals eru
nú saman komnir að nýju í
þeim tilgangi að hljóðrita plötu.
Hún mun bera heitið Before
We Were So Rudely Interrupt-
ed og þykir það nafn nokkuð
táknrænt. Á íslenzku þýðir
nafnið Áður en við vorum
ruddalega truflaðir. Af þessari
plötu mun eitt lag að minnsta
kosti vera komið út á lítilli
plötu. Það heitir Please Send
Me Someone To Love.
Hljómsveitin mun bera nafn-
ið The Original Animals til að
þeim verði ekki ruglað saman
við gömlu hljómsveitina. Þegar
hefur verið gerð 'með þeim
kvikmynd á hljómleikum, sem
á að auglýsa útkomu nýju plöt-
unnar.
Hinir upprunalegu Animals
eru: Eric Burdon söngvari,
Alan Price hljómborðsleikari,
Chas Chandler bassaleikari,
Hilton Valentine gítaristi og
trommarinn, John Steel.
Fyrir þá sem ekki þekkja til
hljómsveitarinnar má geta þess
að hún stóð framarlega sem
rhythm and blueshljómsveit í
Bretlandi um miðjan sjöunda
áratuginn. Þá urðu vinsæl með
hljómsveitinni lög eins og
House Of The Rising Sun og
Baby Let Me Take You Home.
Síðar, eftir að hljómsveitin
breyttist, komu til dæmis lögin
River Deep Mountain High,
Ring Of Fire og fleiri.
Eftir að Animals lögðu upp
laupana gerðist Eric Burdon
söngvari negrahljómsveitarinn-
ar War. Alan Price hætti
fljótlega í Animals eftir að
hljómsveitin varð fræg. Ástæð-
an var sögð sú að hann er méð
eindæmum flughræddur og
frægðinni fylgdu aukin ferða-
lög. Hann stofnaði þá Alan
Price Set og þar endurtók sama
sagan sig.
Bassaleikarinn, Chas Chandl-
er, er maðurinn sem var ábyrg-
ur fyrir því að Slade urðu fræg-
ir. Hann stjórnaði upptökum á
flestum ef ekki öllum hljóm-
plötum þeirra.
THE
ORIGINAL
ANIMALS —
Frá vinstri eru
John Steel, Alan
Price, Eric
Burdon og Chas
Chandler.
Fremst situr
Hilton Valen-
tine.
verið ao leita að, allt frá því
þegar við fórum til Danmerk-
ur,“ sagði Ömar Óskarsson.
„Hljómsveitin er mjög breytt
síðan hún starfaði hér heima.
Okkur liggur ekkert á lengur
heldur höfum við gert ýmiss
konar tilraunir úti í Danmörku
í leit okkar að réttu tónlist-
inni.“
í Pelikan starfa auk Ómars
þeir Júlíus Agnarsson, Ólafur
PELIKAN — fara hringinn i kringum iandið á 23 dögum.
Hljómsveitin Pelikan er
komin heim frá Danmörku, þó
aðeins til stuttrar dvalar á land-
inu bláa. Nú um helgina hefst
feri hljómsveitarinnar um
landið og verður byrjað í Stapa.
Með í ferðinni verður Einar
Vilberg með spánný lög í poka-
horninu.
Ferð Pelikan og Einars um
landsbyggðina tekur 23 daga.
Alls verður leikið á nítján dans-
leikjum, þar af mörgum ung-
lingadansleikjum í miðri viku.
Ferðin endar síðan í Reykjavík
skömmu fyrir miðjan septem-
ber. Að sögn Omars Oskars-
sonar hafa þeir hug á að halda
hljómleika í höfuðstaðnum,
annað hvort í Austurbæjarbíói
eða Sigtúni. Utan halda þeir
félagar síðan í lok september.
„Við erum nú loksins búnir að
finna þá músík sem við höfum
EINAR VILBERG — leikur
eigin lög við undirleik Pelikan.
Sigurðsson og Jón Olafsson.
Tveir aukameðlimir eru einnig
í hljómsveitinni. Þeir eru Dan-
inn Sören Larsen og Magnús
Magnússon sem eitt sinn lék á
trommur með Töturum. Þeir
leika aðeins með þegar um stór
verkefni er að ræða.
Fjórir þeir fyrstnefndu eru
því hinn harði kjarni hljóm-
sveitarinnar. Þeir hafa í sam-
einingu samið þau lög sem
hljómsveitin flytur að þessu
sinni. Ekkert af gömlu lögun-
um sem Pelikan lék inn á
hljómplötur gengur lengur.
Þau heyra fortíðinni til. Eitt lag
af sólóplötu Ömars, Middleclass
Man, er þó leikið öðru hvoru.
Það er lagið Uncle Donald.
Er Pelikan heldur „heim“ til
Danmerkur aftur, tekur við
upptaka nýrrar plötu með
hljómsveitinni. Þá er verið að
skipuleggja ferð hljómsveitar-
innar í nokkra unglingaklúbba
í Danmörku. Þeir starfa á svip-
aðan hátt og Tónabær gerði
áður en hljómsveitum var út-
hýst þaðan. Ennfremur er verið
að athuga með ferð Pelikan til
Þýzkalands eftir áramót, en sú
áætlun er opin í báða enda, eins .
og Ómar Óskarsson komst að
orði.
Pelikan gerði plötusamning
við fyrirtækið Polydor fyrir
nokkru síðan. í þeim samningi
var meðal annars það ákvæði að
hljómsveitin þyrfti ekki að taka
upp plötu fyrr en hún teldi sig
tilbúna til þess.
„Við erum nú komnir með
efni á plötu, sem við höfum von
um að seljist almennilega,“
sagði Ómar. „Það er ekkert vit í
því að vera að senda frá sér efni
sem maður veit að selst ekki í
meira en 1500 eintaka upplagi.
Við höfum farið okkur rólega
við að finna réttu tónlistina, en
teljum að við séum nú loksins
komnir á rétta hillu."
- AT-