Dagblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977.
23
Utvarp Sjónvarp
HLEYPUR í SKARÐIÐ í FORFÖLLUM EN
VINNUR ANNARS Á DAGSKRÁRDEILD
„Eg er nú bara aö leysa hana
Margréti Guðmundsdóttur af á
meöan hún er í sumarfríi," sagði
Sigrún Sigurðardóttir sem sér um
óskalagaþátt sjómanna A frí-
vaktinni á morgun. Sigrún er
einnig að lesa söguna í morgun-
stund barnanna þessa dagana.
Sigrún er fastur starfsmaður á
dagskrárdeild útvarpsins, en
Sagðist stundum hlaupa í skarðið
í forföllum fastra flytjenda.
I fyrramálið er þriðji lestur
sögunnar Komdu aftur, Jenný
litla, sem Gunnvör Braga segir að
hafi alla kosti sem prýða megi
góða barnasögu, sé bæði frumleg,
skemmtileg, spennandi og vel
skrifuð.
-A.Bj.
Utvarp á sumarvökunni íkvöld kl. 20,00:
Skólapiltarnir sendir úr
sóttkvínni eftir bökunar
dropum í jólabaksturinn
vegna taugaveiki, en hálf-
neyddumst til þess að ná í
nauðsynjar fyrir skólann.
Þetta var dálitið sögulegt
ferðalag, .eða það fannst í það
minnsta okkur sem tókum þátt
í því. Þetta var nokkru fyrir jól
árið 1918. Þá hafði spánska
veikin geisað meðal skólasveina
á Hvítárbakka. Við vorum ekki
fyrr staðnir upp úr henni en við
fórum að tínast i rúmið aftur og
þá var það taugaveiki sem
herjaði á okkur. Við vorum um-
svifalaust settir í sóttkvi.
Svo var það rétt fyrir jólin að
stúlkunum sem sáu um mat-
seldina hjá okkur, fannst þær
illá búnar til að baka til jólanna
og því vorum við sendir niður í
Borgarnes eftir bökunar-
(Iropum og fleiru.
■' Þegar við komum ofan í
Borgarnes voru allir skít-
hræddir við okkur. En talið var
óhætt að við segðum frá hvað
við ætluðum að fá og sætum svo
úti á kletti og biðum eftir að
vörurnar yrðu settar út fyrir
búðina. Síðan ætluðum við að
sækja þær, þegar búðar-
maðurinn var farinn.
Þó var nú horfið frá þessu
ráði og við afgreiddir á venju-
legan hátt. Þetta reyndist allt í
lagi, því enginn smitaðist af
okkur,“ sagði Sólmundur.
Sólmundur er ættaður úr
Álftaneshreppi og var tvo vetur
í skóla á Hvítárbakka. Síðan
fluttist hann til Borgarness þar
sem hann vann sem skrifstofu-
maður hjá kaupfélaginu. Síðar
fluttist hann austur í ölfus og
fór að búa. Nú hefur hann látið
af búskap en hann er orðinn
sjötíu og átta ára og fluttur á
mölina fyrir einum sex árum.
-A.Bj.
„Þessi kaupstaðarferð var
farin í allra manna óþökk,
nema þeirra sem hún var farin
fyrir,“ sagði Sólmundur Sig-
urðsson sem flytur erindi er
hann - nefnir Övenjulega
kaupstaðarferð á sumarvöku
útvarpsins í kvöld kl. 20.00.
„Við vorum nefnilega í sótt-
kví í skólanum á Hvitárbakka
Sólmundur Sigurðsson er orðinn sjöitu og átta ára gamall og fluttur
á mölina fyrlr sex árum. DB-mynd Bjarnleifur.
Undanfarna daga hefur verið unnið að þvi að rifa brunarústir Aðalstrætis 12. Þvf hefur verlð fleygt að
þarna eigi að rfsa annað hús, álveg nákvæmlega eins og það sem brann.
DB-mynd Bjarnleifur.
2 Útvarp
D
Miðvikudagur
17. ógúst
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Föndraramir" eftir
Leif Panduro. örn Ölafsson les þýðingu
sína (8).
15.00 Miðdegistónleikar. David Rubin-
stein leikur Píanósónötu I F-dúr op. 12
eftir Jean Sibelius. Csilla Szabó og
Tátrai kvartettinn leika Kvintett fyrir
píanó og strengjakvartett eftir Béla
Bartók.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom. Halldór Gunnarsson
kynnir.
17.30 Litli bamatíminn. Finnborg
Scheving sér um tímann.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Viðs|á. Umsjónarmenn: Ólafur
Jónsson og Silja Aðalsteinsdóttir.
20.00 Sunnukórínn á isafirði syngur Iðg
eftir íslenzka og eríenfla höfunda.
Sigriður Ragnarsdóttir leikur á pianó,
Jónas Tómasson ieikur á altflautu.
Hjálmar Helgi Ragnarsson stjórnar.
20.20 Sumarvaka. a. Óvenjuleg kaup-
staðarferð. Sólmundur Sigurðsson
segir frá. b. Kvssði eftir Sigurð Einars-
son. Baldur Pálmason les. c. A jökul-
göngu. Þorsteinn frá Hamri les frá-
sögu eftir Hlöðver Sigurðsson. d. Lög
eftir íslenzk tónskáld. Pétur Þorvalds-
son leikur á selló og Ólafur Vignir
Albertsson á pianó.
21.15 Reykjavíkuríeikar I frjálsum íþrótt-
um. Hermann Gunnarsson lýsir.
21.30 Útvarpssagan: „Ditta mannsbam"
eftir Martin Andersen-Nexö. Þýðand-
inn, Einar Bragi, les (21).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Sagan
af San Michele" eftir Axel Munthe.
Þórarinn Guðnason les (30).
22.40 Nútimatónlist. Þorkell Sigurbjörns-
son kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
18. úgúst
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbssn kl. 7.50. Morgunstund
bamanna kl. 8.00: Sigrún Sigurðar-
dóttir les söguna „Komdu aftur,
Jenný litla“ eftir Margaretu Ström-
stedt (3). Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Viö sjóinn kl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson kynnir skýrslu
rannsóknarnefndar sjóslysa. Tónleikar
kl. 10.40. Morguntónleikar kl. 11.00:
Orazio Frugoni, Eduard Mrazek og
Pro Musica hljómsveitin i Vin leika
Konsert i E-dúr fyrir tvö píanó og
hljómsveit eftir Felix Mendelssohn;
Hans Swarowsky stj. / Filharmoniu-
sveitin í Vin leikur Sinfóniu nr. 1 i
D-dúr eftir Franz Schubert; Istvan
Kerteszstj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
Sjónvarp íkvöld kl. 21,45:
AÐALSTRÆTIER
ALLTAF AÐ BREYTA
UM SVIPMÓT
I sjónvarpinu í kvöld verður
endursýnd mynd sem sjónvarpið
lét gera árið 1970 um Aðalstræti.
Árni Óla gerði texta myndarinnar
en Andrés Indriðason hafði um-
sjón með upptökunni.
Kr íeitazt við að lýsa svipmóti
Aðalstrætis og sýna
breytingarnar sem á því hafa
orðið. Síðan þessi mynd var gerð
hafa enn orðið breytingar á Aðal-
stræti því nú hefur liklega verið
iokið við að rffa brunarústirnar
siðan á nýársnótt. Skjótt skipast
veður f lofti f borg eins og Reykja-
vík, þar sem var hús i gær, er
kannski orðið að bílastæði næsta
dag.
Annars hefur þvi verið fleygt
að þarna eigi að byggja aftur hús
sem verði nákvæm eftirlíking
þess sem brann.
Þátturinn var áður á dagskrá 9.
nóvember 1970.
-A.BJ.